Morgunblaðið - 31.12.1981, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1981
Peninga-
markadurinn
r \
GENGISSKRÁNING
NR. 249 — 30. DESEMBER 1961
Ný kr. Ný kr.
Einmg Kl. 09.15 Kaup Sala
1 Bandarikjadollar 8,193 8,217
1 Sterlingspund 15,579 15,625
1 Kanadadollar 6,923 6,943
1 Dönsk króna 1,1102 1,1134
1 Norsk króna 1,4017 4 1,4058
1 Sænsk króna 1,4704 1,4747
1 Finnskt mark 1,8718 1,8773
1 Franskur franki 1,4292 1,4334
1 Belg. franki 0,2136 0,2142
1 Svissn. franki 4,5416 4,5549
1 Hollensk florina 3,2861 3,2957
1 V-þýzkt mark 3,6140 3,6246
1 ítölsk líra 0,00678 0,00680
1 Austurr. Sch. 0,5158 0,5173
1 Portug. Escudo 0,1248 0,1252
1 Spánskur peseti 0,0840 0,0842
1 Japansktyen 0,03727 0,03738
1 írskt pund 12,883 12,921
SDR. (sérstök
dráttarréttindi 28/12 9,5118 9,5396
GENGISSKRÁNING
FERÐAMANNAGJALDEYRIS
30. DESEMBER 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 09.15 Kaup Sala
1 Bandarikjadollar 9,0123 9.044
1 Sterlmgspund 17,137 17,188
1 Kanadadollar 7,615 7,637
1 Dönsk króna 1,2212 1,2247
1 Norsk króna 1,5419 1,5464
1 Sænsk króna 1,6174 1,6222
1 Finnskt mark 2,0590 2,0650
1 Franskur franki 1,571297 1,5767
1 Belg. franki 0,2350 0,2356
1 Svissn. franki 4,9958 5,0104
1 Hollensk florma 3,6147 3,6253
1 V.-þýzkt mark 3,9754 3,9871
1 ítölsk lira 0,00747 0.00748
1 Austurr. Sch. 0,5674 0,5690
1 Portug. Escudo 0,1373 0,1377
1 Spánskur peseti 0,0924 0,0926
1 Japansktyen 0,04100 0,04112
1 írskt pund 14,171 14,213
/
Vextir: (ársvextir)
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparísjóðsbækur.............. 34,0%
2 Sparisjóðsreikningar, 3 mán.1). 37,0%
3 Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 1,„. 39,0%
4 Verðtryggðir 6 mán. reikningar. 1,0%
5. Avísana- og hlaupareikningar. 19,0%
6 Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innslæður i dollurum...... 10,0%
b. innstæöur i sterlingspundum. 8,0%
c. innstæður í v-þýzkum mörkum. .. 7,0%
d. innstæður í dönskum krónum. 10,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur i sviga)
1. Víxlar, forvextir... (26,5%) 32,0%
2. Hlaupareikningar..... (28,0%) 33,0%
3. Lán vegna útflutningsafurða.... 4,0%
4 Önnur afurðalán ...... (25,5%) 29,0%
5. Skuldabréf .......... (33,5%) 40,0%
6. Visitölubundin skuldabréf.... 2,5%
7. Vanskilavextir á mán...........4,5%
Þess ber aó geta, að lán vegna út-
flutningsafuröa eru verötryggö miöaö
viö gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
Lífeyrissjóóur starfsmanna rtkisins:
Lánsupphaeð er nú 120 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundið með
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt að 25 ár, en getur verið
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er i er lítilfjörleg, þá
getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Lífeyrtssjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú eftir 3ja ára aðild aö
lifeyrissjóðnum 72.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lánið 6.000 nýkrónur, unz
sjóðsfélagi hefur náö 5 ára aðild aö
sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæðar 3.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóösaöild er lánsupphæöin oröin
180.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast viö 1.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líður. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán i sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir janúarmánuö
1981 er 304 stig og er þá miöaö viö 100
1. júní '79.
Byggingavísitala fyrir janúarmánuð
909 stig og er þá miöaö viö 100 í októ-
ber 1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Áramótamessur
DÓMKIRKJAN:
Gamiársdagur: Kl. 6 aftansöngur.
Júlíus Vífill Ingvarsson syngur
einsöng, „Panis Angelicus", eftir
C. Frank. Sr. Hjalti Guðmunds-
son. Nýársdagur: Kl. 11 hátíðar-
messa. Biskup Islands, herra
Pétur Sigurgeirsson, predikar.
Sr. Þórir Stephensen þjónar
fyrir altari. Kl. 2 hátíðarmessa.
Sr. Hjalti Guðmundsson.
Sunnud. 3. jan.: Kl. 11 messa. Sr.
Hjalti Guðmundsson. Dómkór-
inn syngur við messurnar.
Organleikari Marteinn H. Frið-
riksson.
Hafnarbúðir: Gamlársdagur: Kl. 3
áramótaguðsþjónusta. Sr. Þórir
Stephensen.
Landakotsspítali: Nýársdagur: Kl.
10 áramótamessa. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Organleikari
Birgir Ás Guðmundsson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Gamlársdagur: Aftansöngur í
safnaðarheimili Árbæjarsóknar
kl. 6. Nýársdagur: Guðsþjónusta
kl. 2. Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngur einsöng. Sunnud. 3. jan.:
Barnasamkoma kl. 11 árd. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL:
Gamlársdagur: Aftansöngur í
Laugarneskirkju kl. 18. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18 í Breiðholtsskóla. Sr. Lárus
Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18. Nýársdagur: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Markús Örn
Antonsson, borgarfulltrúi, flytur
stólræðuna. Organleikari Guðni
Þ. Guðmundsson. Prestur sr.
Ólafur Skúlason, dómprófastur.
Sunnud. 3. jan.: Guðsþjónusta kl.
2. Sr. Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL:
Nýársdagur: Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14. Sunnud. 3. jan.:
Barnasamkoma í safnaðarheim-
ilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjáns-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND:
Gamlársdagur: Messa kl. 2. Sr.
Kristján Róbertsson fríkirkju-
prestur og Fríkirkjukórinn. Ný-
ársdagur: Messa kl. 10. Sr. Lárus
Halldórsson.
FELLA- OG HÓLAPRESTAKALL:
Gamlárskvöld: Aftansöngur í
safnaðarheimilinu að Keilufelli
1 kl. 6 síðd. Sr. Hreinn Hjartar-
son.
GRENSÁSKIRKJA:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18. Nýársdagur: Hátíðarmessa kl.
14. Sunnud. 3. jan.: Guðsþjónusta
kl. 14.
Grensásdeild Borgarspítala: Gaml-
ársdagur: Aftansöngur kl. 15. Sr.
Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Ný-
ársdagur: Hátíðarmessa kl. 15.
Sr. Karl Sigurbjörnsson. Sunnud.
3. jan.: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Þriðjud. 5. jan.: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Fimmtud. 7. jan.: Fundur
í Kvenfélagi Hallgrímskirkju kl.
20.30.
Landspítaiinn: Gamlársdagur:
Messa kl. 17. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Sunnud. 3. jan.: Messa
kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18. Sr. Arngrímur Jónsson. Ný-
ársdagur: Messa kl. 2. Sr. Tómas
Sveinsson. Sunnud. 3. jan.: Messa
kl. 11. (Ath. breyttan messu-
tíma.) Sr. Arngrímur Jónsson.
Borgarspítalinn: Gamlársdagur:
Aftansöngur kl. 16. Sr. Tómas
Sveinsson.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Gamlársdagur: Aftansöngur í
Kópavogskirkju kl. 6. Sunnud. 3.
jan.: Barnasamkoma í Kárs-
nesskóla kl. 11 árd. Guðsþjón-
usta í Kópavogskirkju kl. 11 árd.
Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIRKJA:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18. Kór Langholtskirkju og
Garðar Cortes flytja hátíðar-
söngva sr. Bjarna Þorsteinsson-
ar. Nýársdagur: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Predikun flytur
Sigurður Sigurgeirsson. Jónas Þ.
Dagbjartsson leikur einleik á
fiðlu. Kór Langholtskirkju og
Garðar Cortes flytja hátíðar-
söngva sr. Bjarna Þorsteinsonar.
Organleikari Jón Stefánsson.
Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson.
LAUGARNESKIRKJA:
Gamiársdagur: Aftansöngur kl.
18 í umsjá Ásprestakalls. Ný-
ársdagur: Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14. Sunnud. 3. jan.: Engar
messugjörðir. Sóknarprestur.
NESKIRKJA:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18. Nýársdagur: Guðsþjónusta kl.
14. Sunnud. 3. jan.: Barnasam-
koma kl. 10.30. Messa kl. 2. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SEUASÓKN:
Gamlársdagur: Aftansöngur í
Ölduselsskóla kl. 18. Nýársdagur:
Guðsþjónusta í Ölduselsskóla kl.
14. Altarisganga. Sunnud. 3. jan.:
Barnaguðsþjónusta í Öldusels-
skóla kl. 10.30. Barnaguðsþjón-
usta að Seljabraut 54 kl. 10.30.
Sóknarprestur.
SELTJARNARNESSÓKN:
Sunnud. 3. jan.: Guðsþjónusta kl.
11 árd. í Félagsheimilinu. Sr.
Frank M. Halldórsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl. 6.
Einsöngvari Margrét Matthías-
dóttir. Nýársdagur: Hátíðar-
messa kl. 2. Organleikari Fri-
kirkjunnar er Sigurður Isólfs-
son, prestur sr. Kristján Rób-
ertsson.
Prestar í Reykjavíkurprófasts-
dæmi halda hádegisfund í Nor-
ræna húsinu mánudaginn 4.
janúar.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti:
Nýársdagur: Hátíðarmessa kl.
10.30. Sunnud. 3. jan.: Lágmessa
kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30.
Lágmessa kl. 14. Alla virka daga
er messa kl. 18 nema á laugard.
þá kl. 14.
FELLAHELLIR:
Nýársdagur: Hámessa kl. 11 árd.
Sunnud. 3. jan.: Hámessa kl. 11
árd.
KIRKJA Óháða safnaðarins:
Gamlárskvöld: Áramótamessa kl.
18. Safnaðarstjórnin.
KFUM & K, Amtmannsstíg 2B:
Sunnud. 3. jan.: Nýárssamkoma
kl. 20. Formaður KFUM Sigurð-
ur Pálsson flytur ræðu.
FÍLADELFÍUKIRKJAN:
Gamlársdagur: Aftansöngur kl.
18. Ræðumaður Sam Glad. Kór
kirkjunnar syngur. Nýársdagur:
Guðsþjónusta kl. 20. Kór kirkj-
unnar syngur. Ræðumaður Ein-
ar J. Gíslason. Laugard. 2. jan.:
Svo skulum -
viö til
gleöinnar gá
Umsjónarmaöur Jenna
Jensdóttir rithöfundur
Ahugi og skilningur al-
mennings má ekki dofna
Á morgun lýkur „ári fatl-
aðra“. Þar með lýkur einnig
þáttum þeim er ég hefi séð um
hér í blaðinu.
Eg bað fjórtán ára dreng,
Örn Ómarsson, að ljúka þess-
um þáttum með mér. Hann tók
því ljúflega. Og við ræðum
saman um árið sem slíkt —
hvað áunnist hefur — og ræð-
um mannleg samskipti yfir-
leitt.
Hann er athugull og hugs-
andi, þar sem hann situr í
hjólastólnum sínum gegnt mér.
Augun eru skær og það er viss
gáski í þeim sem undirstrikar
sjarmerandi framkomu
drengsins. Hann gefur sér góð-
an tíma til að hugsa áður en
hann svarar spurningum mín-
um. í ljósi lífsreynslu sinnar
hefur honum tekist að ná meiri
sálarþroska en almennt gerist
miðað við aldurinn. Þroska
sem aðeins veitist í skilnings-
ríku umhverfi, i.jó kærleiksrík-
um foreldrum.
— Hvernig líst þér á þessa
hugmynd, sem hefur orðið að
veruleika undanfarin ár, að til-
einka mönnum eða málefnum
visst ár — eins og „ár barns-
ins“, „ár fatlaðra" o.s.frv.?
— Það er í sjálfu sér ágætt.
En samt finnst mér að það ætti
að vera óþarfi að vekja sér-
staka athygli á því sem er allt í
kringum mann — er einn hluti
af daglega lífinu.
Hvað viðvíkur málefnum
fatlaðra, finnst mér ekki þurfa
neitt sérstakt tímabil til þess
að minna á þau, fremur en
önnur málefni í samfélaginu.
Við eigum mörg vandamál sem
eru eðlilegur hlutur í lífinu. Og
í raun og veru er þjóðfélaginu
skylt að leysa þau öll, án þess
að taka eitthvert þeirra út úr
og benda á það.
— Finnst þér þá ekkert hafa
áunnist í þessum málum á ár-
inu?
— Jú, en ég er samt dálítið
hræddur um, að það sem byrj-
að er á til bóta nú á ári fatl-
aðra, falli aftur í sama farið.
Hvað af því sem byrjað hef-
ur til hags fyrir fatlaða á ár-
inu, telur þú að mætti síst
missa sig, ef ekki eru skilyrði
til að halda í alla þræðina?
— Sá áhugi og skilningur al-
mennings sem vaknað hefur á
málefnum fatlaðra má ekki
dofna. Og tillitsleysi gagnvart
þeim sem ekki komast óhindr-
að leiðar sinnar er enn of mik-
ið. Það þarf að breytast.
— Á hvern hátt telur þú að
hægt sé að ráða bót á því skiln-
ingsleysi?
— Með aukinni fræðslu á
margþættum vandamálum
fatlaðra. Til dæmis að auka
fræðslu í skólum landsins.
— Hvað viltu nú að lokum
segja, Örn, í lok þessa árs fatl-
aðra um framtíðina?
— Um leið og ég óska öllum
landsmönnum gleðilegs árs
vona ég fastlega að áhugi
þeirra á málefnum fatlaðra
fari ekki dvínandi — heldur
stórum vaxandi á komandi ár-
um.
Og þar með bindum við Örn
endi á þættina er hér hafa
birst í tilefni af ári fatlaðra.
Gæfuríkt nýár.
Miðfjörður:
Óvenju
snjólétt-
ur vetur
Stadarhakka, Midfirði, 29. desember.
FYRIR jólin var snjófdl hér og
leit út fyrir að nú yrðu hvít jól,
en að kvöldi jóladags, þegar
óveðrið gekk yfir Suðurnes,
hlýnaði hér um slóðir. Hvasst
var, en hvergi er þó talað um
skaða af því veðri. I»á tók upp
allan snjó, svo hér er nú alautt.
í dag er norðankuldi og nokk-
urt frost, en úrkomulaust.
Það lætur kannski undarlega í
eyrum, þegar svo mikið hefur ver-
ið talað um fannfergi á Norður-
landi, að hér í sveit hefur eigin-
lega aldrei komið snjór í vetur, að-
eins föl stöku sinnum. Það sýnir
að miklu getur munað á tíðarfari
þó á Norðurlandi sé. I svo góðri
færð og veðri hefur kirkjusókn í
þessu prestakalli verið mjög góð
um jólin.
Nýlega fundust fimm kindur
fram á afrétti, ekki langt frá girð-
ingunni, sem er milli afréttar og
heimalanda. Voru þessar kindur
allar sunnan úr Mýrasýslu og hafa
farið yfir Langjökulsgirðingu, sem
er varnarlína milli Húnavatns-
sýslu og Borgarfjarðar- og Mýra-
sýslna. Þær voru vel á sig komnar.
í gær var til athugunar hvort þær
yrðu fluttar á heimaslóðir eða
slátrað hér og var það fyrrnefnda
niðurstaðan.
— Benedikt.