Morgunblaðið - 31.12.1981, Síða 28

Morgunblaðið - 31.12.1981, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1981 „Díana, hættu ad atela aenunni," aagdi Karl prina ekki alla fyrir löngu viö sína ektafrú, en af meölimum konungsfjölskyldunnar á hún nú langmestum vinsældum að fagna. Heimsviðburðir jr MK %: w ario T „Trú felur þaö í sér aö maður lítur á allt böl eins og hvert annaö áfall, sem örlögin hafa buið manni til aö standa það af sér,“ sagöi Anwar Sadat forseti Egyptalands í sjálfsævisögu sinni, sem út kom nokkru áöur en hann var myrtur. „Pólitík er eina og afskoriö blóm — visnar áöur en varir,“ sagði jafnaöarmannaleiötoginn Fran- cois Mitterrand rétt áöur en hann Átökin í Afganistan — Frelsissveitir Afgana hertaka stríösvagn rússn- sigraöi Giscard d’Estaing í for- eska innrásarliösins. setakosningunum. Síversnandi ástand í Póllandi. Verkföll á verkföll ofan. Bíöraðir lengri en nokkru sinni, látlaust þóf atjórnvalda og Samstööu, spurt aftur og enn hvort og hvenær Sovétstjórnin láti til skarar skríöa. Og svo — á nöprum og köldum desembermorgni — var pólsk alþýða komin undir járnhælinn eina feröina enn. Herlög í gildi. Samband viö landiö rofiö. Þúsundir borgara teknar höndum. Óvíst hve margir hafa látið lífiö af völdum herstjórnarinnar. Útgöngubann. Hungurvofan hím- ir í skugga skriödrekanna. Næringarskortur gerir vart viö sig. Alræði kommúnismans lætur ekki aö sér hæöa, en aö þessu sinni er hernum att á foraðið en ekki kommúnistaflokknum, eins og venja hefur veriö þegar Sovétstjórn hefur talið ástæöu til aö taka í taumana. Skothríö. Kúlnaregn. Þrír leiðtogar riöa til falls. Reagan. Páfinn. Sadat. Einn liggur í valnum. Hinir sleppa naumlega. En á eftir er leiötogum þjóöanna Ijósara en áður sú hætta sem þeim stafar stöðugt af morðóöu fólki sem hvarvetna kann aó liggja í leyni. Þetta tvennt — atburðirnir í Póllandi og þrjú banatilræði — er það sem hæst ber í heimsfréttunum á því herrans ári 1981. En þaö er fleira en ógnaratburöir sem dregur að sór athygli fjöldans. Þaö fór t.d. ekki hjá því aö brúökaup brezka ríkisarfans og aðalsmærinnar Díönu — og í kjölfar þess tilkynning um væntanlega fjölgun í fjölskyldunni — vekti almenna eftirtekt og ánægju flestra. Velheppnaöar tilraunaferöir bandarísku geimferjunnar Kólumbíu og frábærar Ijósmyndir úr ferö Voyagers II til Satúrnusar geröu lukku og sama er að segja um þann táknræna atburð er Guernica Picassos kom loks til Spánar. Evrópsk samtök um einhliða afvopnun og yfirlýsingu um kjarnorkuleysi tiltekinna svæöa í Evrópu létu að sór kveða, einkum framan af, en ástandiö í Póllandi, fróttir um fjárframlög Sovétmanna til starfseminnar og áþreifanleg sönnun um hernaöarumsvif þeirra, þegar sovézkan kafbát meö kjarnorkubúnaö innanborös rak á fjörur Svía, drógu úr þrótti af- vopnunarsinna eftir því sem á leiö. í könnun meöal yfirmanna AP-fréttastofunnar um víða veröld, þar sem spurt var um mat þeirra á því hver væri mikilvægasta fréttin í ár, var moröiö á Sadat efst á blaöi en í ööru sæti var Pólland. Þessi rööun var rökstudd meö því aö fráfall Sadats væri annaö og meira en fráfall mikils stjórnmálaleiötoga — þaö kynni aö hafa úrslitaþýöingu fyrir ástandiö í Miðausturlöndum. Póllandsmáliö kom rétt í kjölfariö, en síöan varö rööin þessi: Árásin á Reagan, árásin á Jóhannes Pál páfa II., kjör Mitterrands Frakklandsforseta, öryggismál Vestur-Evrópu, samdráttur í vestrænum iönríkjum, ástandiö í Miö-Austurlöndum (og ekki síst árás ísraelsmanna á íraska kjarnorkuveriö, frelsun bandarísku gíslanna í sendiráöinu í Teher- an og ferðir bandarísku geimferjunnar. Rússneska innrásarliöiö hélt áfram hernaöi sínum gegn afgönsku þjóö- inni. Nútíma hertækni var áfram beitt gegn nær vopnlausri og matarlausri þjóö. Gereyöing heiila þorpa og hryöjuverk var daglegt brauð. Tugir þúsunda Afgana flýöu enn land sitt undan innrásarliöinu. — Á.R. Það telst til tíöinda þegar nýr forseti kemur í Hvíta húsiö eins og geröist í ársbyrjun. Ágústeplin hans afa Bókmenntir Jenna Jensdóttir Thöger Birkeland: Hús handa okkur öllum Teikningar: Palle Bregnhöi íslensk þýðing: Sigurður Helgason Vaka, Keykjavík, 1981. Það er ástæða til að fagna hverri bók, sem kemur út á ís- lensku eftir Thöger Birkeland. Hann er fæddur 1922 í Kalund- borg í Danmörku. Lauk kennara- prófi 1943 og hefur síðan stundað kennsiustörf í Kaupmannahöfn auk margvíslegra ritstarfa ann- arra en barnabókaritunar. 1961 hlaut Birkeland dönsku barnabókaverðlaunin fyrir sögu sína „Naar hanen galer". Samhliða góðum hæfileikum gjörþekkir Birkeland aðalpersón- ur sínar — börnin — og um- hverfi þeirra frá kennslustarfi sínu. Honum tekst að sjá atburði og manneskjur með augum barna — og lýsa því frá þeirra sjónarhorni á þann hátt að eftirtektarvert er. Birkeland hefur sent frá sér fjölmargar barna- og unglinga- bækur frá því „Drengen frá Sten- borgen" kom út 1958 og vakti mikla athygli. í byrjun áttunda áratugsins sótti Birkeland æ meir efni sitt eingöngu í vandamál líðandi stundar. Gleggst dæmi um það eru bækurnar um „Lasse Peder- sen“ sem eru í senn átakanleg lýsing á erfiðleikum og einmana- kennd sveitadrengs er flytur til stórborgarinnar — og rótleysi og örvæntingu hinna fullorðnu. Hús handa öllum er skrifuð í léttum, spaugsömum tón eins og sumar — en ekki allar — bækur Birkelands. Sagan er um drenginn Mikka- el, sem segir söguna, litlu systur- ina Katinku (gælunafn Skjalda), foreldrar þeirra og nokkur ná- komin skyldmenni. Báðir afar þeirra og önnur amman eru á lífi og koma þau mikið við sögu. Einnig Lassi frændi, sem ferðast um og selur ýmsa hluti, svo sem reiknivélar, búðarkassa o.fl. Kona Lassa, María og sonur þeirra Ulrik, síðhærður táningur með mikið skegg. Þetta er nú stór-fjölskyldan hans Mikkaels. í afmæli afa Jóa kom Ulrik með þá hugmynd ?ð gaman væri að allt frændfólkið byggi undir sama þaki. Fráleit hugmynd í byrjun en verður samt að veru- leika. Systkinin Mikkael og Skjalda gera sitt til að komast úr blokk- inni. Ymsar uppákomur verða fyrir þeirra tilstilli, sem valda sambúðarerfiðleikum og koma foreldrunum til að hugleiða mál- ið um sameiginlegt hús með frændfólkinu. Það er Lassi sem finnur ákjós- anlegt hús með stórum garði — allt er þar í niðurníðslu og nú þarf að taka til hendinni. Reyndar kemur í ljós að stór- fjölskylda á líka sín sambúðar- vandamál. En öllum finnst gam- an að lifa og afi Jói lætur eftir sér að fremja prakkarastrik, sem hann kunni í þernsku. Allir hafa nóg að gera í húsinu og enginn lætur sér leiðast, þótt áhugamálin séu sannarlega ólík. Litill nágranni, Þorkell, eykur á yndi barnanna — mikill og hugkvæmur prakkari. Bókin er skemmtileg og sífellt er eitthvað að gerast sem heldur lesanda sleitulaust við efnið. Sigurður Helgason bókavörður þýðir bókina. Myndir eru, að mínu mati, ekki til þess kjörnar að falla vel að efni. Útgáfa Vöku er vönduð — og gaman að þessi unga útgáfa skuli velja sögu eftir Thöger Birke- land, sem sína fyrstu barnabók.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.