Morgunblaðið - 31.12.1981, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1981
Gott íþróttaár
NÚ KR lidið ad áramótum og þv( eðli-
legt ad staldra vid, líta um öxl og horfa
yfir farinn veg. l»egar litid er til ársins,
sera er að líða, er ekki hægt að segja
annað en að það hafi boðið upp á
marga skemmtilega og eftirminnilega
athurði. Á því er enginn vafi að áhugi á
íþróltum og útilífi fer ört vaxandi og
tala þeirra, sem íþróttir og útilíf
stunda, vex ört. I*að er ekki aðeins í
keppnisgreinum, sem iðkendum fjölg-
ar heldur leynir sér ekki að fjöldinn
allur stundar útilíf og íþróttir sér til
heilsubótar og ánægju og því ber að
fagna.
Yfirleitt náði íþróttafólk okkar
ágætum árangri á árinu, sem er að
kveðja og afbragðsárangri í keppni við
erlent fþróttafólk. Mcð ólíkindum er,
hversu vel það stendur sig f keppni við
íþróttafólk milljónaþjóða, þrátt fyrir
að við búum við verri aðstæður og erf-
iðari skilyrði en flestar aðrar þjóðir.
Við megum ekki glcyma þvf, að íbúa-
tala íslands er á við Iftillar borgar í
fiestum þeim löndum sem við etjum
kappi við.
Margir fþróttaviðburðir eru ofarlega
á baugi þegar hugsað er til baka og af
mörgu er að taka.
Kftirminnileg íþróttaafrck á árinu
sem er að líða er t.d. góð frammistaða
íslenska landsliðsins í knatLspyrnu. En
frammistaða liðsins í riðlakeppni HM
vakti heimsathygli. Kraftlyftingamenn
unnu stór afrek. Jón l’áll Sigmarsson
hlaut silfurverðlaun á heimsmeistara
mótinu og Skúli Óskarsson bronsverð-
laun. Jóhannes Hjálmarsson varð
heimsmeistari öldunga. íslendingar
eignuðust fulltrúa í handarísku at-
vinnumannadeildinni í körfuknattleik
á árinu er Pétur (fuðmundsson skrif-
aði undir samning við Portland Trail-
blazers. Frjálsíþróttamenn og konur
unnu góð afrek. Þeir Sigurður T. Sig-
urðsson og Kinar Vilhjálmsson settu
gla-.NÍIeg met í sínum greinum. Ragn-
heiður Olafsdóttir úr FH varð f 6. sæti
i 1500 m hlaupi á Kvrópumóti ungl-
inga.
í sundíþróttinni settu tveir Akurnes-
ingar, Ingi l'ór Jónsson og Ingólfur
(fissurarson, mnrg og glæsileg fs-
landsmet. Handknattlciksmenn unnu
góð afrek á árinu. Landslið okkar sigr
aði hin sterku landslið Austur og
VesturÞjóðverja. Að vísu var frammi-
staða liðsins f B-keppninni í Frakk-
landi mikil vonbrigði. Kn góð frammi-
staða unglingalandsliðs sem náði
sjölta sæti í HM-keppninni lofar góðu
um bjarta framtíð. Og rúsínan í pylsu-
endanum hjá handknattleikslandslið-
inu var frábær frammistaða liðsins nú
í lok ársins er Danir voru gjörsigraðir
hér á landi.
Þá hafa íþróttir fatlaðra náð veru-
legri fótfestu hér á landi og er það vel.
Starf íþróttahreyfingarinnar er
margþætt og fjölbreytt.
íslenskt íþróttafólk fær mörg og
stór verkefni á árinu, sem fer í hönd,
og enginn vafi er á, að það mun standa
vel fyrir sínu eins og endranær. Það er
hins vegar sorgleg staðreynd hversu
lítinn stuðning íþróttir fá frá hinu
opinbera. Styrkur er minni til ÍSÍ en
tfðkast víðast hvar erlendis. Áhugi
stjórnvalda er ekki í samræmi vfð
áhuga almennings. Vonandi eykst
skilningur stjórnvalda á gildi fþrótta.
fþróttasíða Morgunblaðsins sendir
ölfu íþróttafólki og íþróttaáhuga-
mönnum nær og fjær innilegar nýárs-
óskir og þakkar samstarfið á liðnu ári.
ÞR.
• Hið sterka handknattleikslið Víkings hélt sínu striki á árinu sem er að
líða. Liðið vann marga góða sigra og vann íslandsmótið með glæsibrag.
Jafnframt stóð liðið sig vel í Evrópukeppninni.
• Phil Mahre • McEnroe
ÞEGAR litið yfir fþróttaafrek liða og einstaklinga á árinu sem er að líða
blasir auðvitað margt við. Úti í hinum stóra heimi gekk á ýmsu. Á hinni
árlegu Wimbledon keppni í tennis, sem er stærsta og virtasta mót sinnar
tegundar í heiminum, leiddu tveir erkifjendur saman hesta sína, þeir John
McEnroe frá Bandaríkjunum og Björn Borg frá Svíþjóð. Þar mættust sann-
arlega tveir ólíkir persónuleikar, annars vegar ísjaki (Björn Borg) og hins
vegar skaphundur ótrúlegur (McEnroe). McEnroe var dæmdur til að greiða
hinar og þessar sektir meðan á keppninni stóð og átti hann ekki síður í
baráttu við dómarana en Borg. En Kaninn sýndi hvað í bjó og hann sigraði
Borg glæsilega í úrslitaleiknum í einliðaleik.
Heimsbikarkeppnin á skíðum vakti að venju geysilega athygli, enda
spannar hún allan veturinn og er keppt um allan heim. Ingmar Sten-
mark, landi Björns Borg, reyndi árangurslaust að verja titil sinn.
Stenmark barðist ekki síður gegn reglugerðum sem ekki eru sniðnar
honum í hag og Bandaríkjamaðurinn Phil Mahre skaust fram úr og hirti
heimsbikarinn.
Bresku millivegalengdahlaupararnir Sebastian Coe og Steve Ovett
elduðu grátt silfur saman að venju, en kepptu þó ekki beinlínis hvor við
annan, þ.e.a.s. þar sem annar keppti lét hinn ekki sjá sig og svo öfugt.
Þeir slógu met hvors annars hvað eftir annað í míluhlaupinu og er upp
var staðið átti Coe metið, 3:47,33.
Tveir aðrir risar, hnefaleikakóngarnir Múhameð Ali og Joe Frazier
reyndu að hasla sér völl á nýjan leik. En í ljós kom, að sól þeirra sem
hnefaleikamanna er til viðar gengin, Aíi tapaði fyrir lítt þekktum kappa
og Frazier tókst naumlega að herja út jafntefli gegn ekki meiri spá-
manni en lagði Ali að velli. Arftaki þeirra félaga er án nokkurs vafa
millivigtarsnillingurinn Sugar Ray Leonard.
Fleira mætti tína tiU en þetta verður -ó látið nægja, enda gætu
erlendir íþróttaviðburðlr á árirru fyllt ötóra i-ók.
• íslenska knattspyrnuliðið vann mikil stór afrek á árinu og þó að einn og einn stórkostlegur sigur hafi unnist í
gegnum árin, hefur íslenska landsliðið aldrei náð þeim styrkleika sem náðist í sumar. Island var ósigrandi á
heimavelli, mætti þó þjóðum á borð við Tékkóslóvakíu og Tyrkland. Jafntefli og sigur gegn þeim, auk þess sem
Nígeríumenn fengu kennslustund í að hemja knöttinn og skora í suðaustan átta og rigningu, var afraksturinn á
Laugardalsvellinum, en á erlendri grund náðist þó toppurinn. Nánar tiltekið á Vetch Field í Swansea 14. október, er
Wales og ísland mættust í undankeppni HM. Jafntefli varð, 2—2. Var það síðasti leikur íslands í riðlakeppninni,
liðið fékk 6 stig í átta leikjum, fleiri stig en nokkru sinni fyrr í sambærilegri keppni. Og ísland skoraði 10 mörk í átta
leikjum. Sannarlega frábær árangur. Hér að ofan má sjá liðið sem gerði vonir Wales í HM-keppninni að engu á Vetch
Field á dögunum.
• Diðrik • Einar • Sigurður
• Mörg afrek og góð voru unnin á hinum ýmsu sviðum íþrótta hér á landi á árinu 19801 Knattspyrnufélagið Víkingur
fagnaði sigri á íslandsmótinu í knattspyrnu í fyrsta skiptið í fjöldamörg ár. Diðrik Ólafsson, fyrirliði og markvörður
liðsins, tók á móti sigurverðlaununum, en tilkynnti skömmu síðar að hann ætlaði að leggja skóna á hilluna, enda
verið í eldlínunni í mörg ár.
Nokkur framúrskarandi frjálsíþróttaafrek voru unnin á árinu. Einar Vilhjálmsson, spjótkastari úr UMSB, varð
fyrsti íslendingur sem kastað hefur spjóti yfir 81 metra, einnig fyrstur yfir 80 metra slétta.
Sigurður T. Sigurðsson var einnig í sviðsljósinu og ekki voru afrek hans f stangarstökkinu lakari heldur en
spjótköst Einars. Sigurður varð fyrsti íslendingurinn til þess að fara yfir 5 metra í stangarstökki, gerði reyndar betur,
fór yfir 5,20 metra. Er Sigurður þar með orðinn stangarstökkvari á heimsmælikvarða.
• Sebastian Coe
• Pétur Guðmundsson, körfuknatt-
leiksmaður úr Val var án nokkurs
, vafa körfuknattleiksmaður ársins.
Hann vakti geysilega athygli er fs-
land keppti á Evrópumótinu í körfu-
knattleik og nokkru síðar gerði
hann samning við bandarbka stór
liðið Portiand Trailblaizers. Varð
Pétur þar með fyrsti erlendi leik-
maðurinn sem leikur í bandarísku
NBA-deildinnL
• Jón Páll Sigmarsson, kraftlyft-
ingamaður, vann það stórgóða afrek
á árinu, að hreppa silfurverðlaun í
sínum þyngdarflokki á heimsmeist-
aramótinu í kraftlyftingum. Jón Páll
sýndi miklar framfarar (íþróttagrein
sinni og má mikils vænta af honum í
framtíðinni.