Morgunblaðið - 14.01.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAÖtJR 14. JANÚAR 1982
15
í tilefni af Kastljósi
um Blönduvirkjun
eftir Jón ísberg
Nokkru fyrir jól var í Kastljósi í
sjónvarpinu rætt um væntanlega
Blönduvirkjun. Þar töluðu saman
tveir ráðherrar og þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins. Þeir
rugluðust eilítið í ríminu, bæði
landbúnaðarráðherrann og þing-
flokksformaðurinn, varðandi
stærð væntanlegra uppistöðulóna
og hversu mikið gróðurlendi færi
undir vatn. Þá sýndi Páll þing-
flokksformaður litað kort, sem
sást vel í litasjónvarpi en sá
hængur á, að ekki eiga allir lita-
sjónvarp og geta þess vegna ekki
gert sér grein fyrir stærð lónanna.
Nú er það svo, að um staðreynd-
ir á ekki að deila. Lónastærðin er
fastákveðin, hvort sem leið I eða II
verður farin. Einnig eru kostnað-
aráætlanir þessara virkjunar-
kosta byggðar á sömu forsendum
og eiga því að gefa sömu niður-
stöðu. Þess vegna tel ég ákaflega
brýnt, að sjónvarpið bæti úr þess-
um annars mannlegu mistökum
Fridrik
efstur ísl.
skákmanna
ISLENZKA skákstiganefndin hefur
lokið stigaútreikningi skákstiga fvrir
1981, en aðeins eru reiknuð stig úr
skákmótum innanlands.
Friðrik Ólafsson stórmeistari er
stigahæstur Islendinga, en hér fer á
eftir listi yfir 10 stigahæstu skák-
mennina. (Skammstöfunin
SM = stórmeistar, AM = alþjóðlegur
meistari.)
1. Friðrik Ólafsson, SM 2585
2. Helgi Olafssnn, AM 2460
3. Guðmundur Sigurjónsson, SM 2455
4. Jón L. Árnason, AM 2440
5. Margeir l’étursson, AM 2420
6. Jón Kristinsson 2415
7. Jóhann Hjartarson 2410
8. Ilaukur Angantýsson, AM 2400
9. Ingi K. Jóhannsson, AM 2395
10. Ingvar Ásmundsson 2375
Alls er 871 skákmaður með
skákstig, en af þeim eru 564 virkir,
það er að segja, hafa undanfarin 2
ár teflt á opinberum skákmótum,
sem reiknuð eru til stiga.
tekið við því fólki, sem kemur á
vinnumarkaðinn ár hvert. Það
verður iðnaðurinn að gera og iðn-
aður þarf næga orku.
Á síðastliðnu hausti vann ég í
sláturhúsi á Sauðárkróki. Þar var
nokkur hópur af 16 ára piltum,
sem voru duglegir og samvisku-
samir starfsmenn. Mér varð
stundum hugsað til þess, hvort
ungt fólk, sem vex upp og þarf að
fá vinnu, gæti fengið hana í hérað-
inu, eða hvort það yrði að fara
eitthvað í burtu, kannski til Ástr-
alíu. Nærtæk og ódýr raforka frá
Blöndu gæti komið í veg fyrir það.
Einhver var að segja að virkjun
Blöndu ef til kæmi mundi standa
um aldir. Ég er ekki viss um það.
Þegar búið verður að virkja skrið-
jöklana og sjávarföllin má hleypa
vatninu úr Blöndulóni og þá verð-
ur þar rennislétt leirflag frjósamt
til ræktunar, ef þá skyldi vanta
gras, en þá verða þeir Heiðmar og
Rósmundur báðir dauðir.
Það hefur verið sagt hér á fund-
inum, að það væri siðleysi, að
virkja Blöndu samkvæmt tilhögun
I.
Það kann vel að vera, að ég verði
kallaður fyrir á efsta degi vegna
afstöðu minnar í þessu máli, en þá
verð ég þar með feðrum mínum,
sem eyddu skógunum og eftir
ástæðum, tel ég það ekki slæman
félagsskap.
þessara ágætu manna og fengi
mann frá Orkustofnun eða Raf-
magnsveitum ríkisins, sem út-
skýrði kort af Auðkúlu- og Ey-
vindarstaðaheiðum, þ.e. virkjun-
arsvæðið, á hlutlausan og hlutlæg-
an hátt, þar sem stærðin kæmi
fram og áætlaður kostnaður. Þá
verður einnig að gera ráð fyrir að
ekki hafi allir litasjónvarp.
Þarna kæmi fram frá ábyrgum
aðila, hvað mikið land fer undir
vatn við virkjunarkost I og hvað
sú virkjun muni kosta og einnig
hvað mikið vatnsmagn verði það
geymt. Sömuleiðis kæmi fram
lónsstærð við leið II og kostnaður
við þá virkjun. Getur þá hver og
einn borgari í þessu landi vegið og
metið aðstæður.
Páll þingflokksformaður hélt
því fram, eða ekki var hægt að
skilja orð hans öðruvísi, að
vatnsmagnið í lónunum væri
nokkurn veginn það sama, hvort
sem leið I eða II yrðu farnar. En
þetta er ekki rétt, ef miðað er við
það kort, sem hann sýndi í sjón-
varpinu. Lónið samkvæmt leið I
geymir 400 gígalítra en lónið sam-
kvæmt leið II geymir aðeins 220
gígalítra. Um þetta ætla ég ekki
að ræða, þetta eru staðreyndir,
sem á að sýna mönnum svart á
hvítu, já eða í lit. Páll sagði einnig
að við leið II þyrfti bara örlítið
Jón (sberg
meira af görðum. í fyrra skrifaði
hann grein, þar sem fram kom, að
þetta kostaði sem svaraði andvirði
tveggja til þriggja togara. Hann
virðist enn vera við sama hey-
garðshornið og bara alls ekki gera
sér grein fyrir raunverulegu verð-
gildi þegar upphæðirnar eru orðn-
ar svona háar. Nokkuð sem þing-
maður má ekki gera sig beran að.
Ég vil nú gefa Páli smá saman-
burð. Virkjun Blöndu samkvæmt
leið I er talin kosta á verðlagi nú í
haust um 1000 milljónir króna
plús 5% aukningu vegna bóta.
Þessir „örlitlu garðar", sem virkj-
unarleið II krefst til viðbótar eru
áætlaðir á 90 milljónir króna eða
virkjunin verður 9% dýrari, en þá
er miðað við sama vatnsmagn í
báðum lónunum eða um 400 gíga-
lítra.
Allar jarðir í Svínavatns- og
Torfalækjarhreppum með öllum
mannvirkjum og hlunnindum eru
að fasteignamati 1. des. 1981 tæp
31 milljón króna. Þá eru allar
metnar fasteignir teknar með
nema Húnavallaskóli og Rafstöðin
v/Laxárvatn, sem ríkið á eitt eða
að mestu leyti. Það er m.ö.o. ódýr-
ara fyrir þjóðina að ríkið kaupi
allar jarðir í þessum hreppum og
greiði fyrir þær þrefalt fasteigna-
matsverð og þurfi svo hvorki að
spyrja kóng eða prest um eitt eða
neitt.
Þessi samanburður ætti að
verða Páli umhugsunarefni og
einnig þeim, sem tala gálauslega,
líkt og hann, um „örlitla garða".
Éappkz -tölvukynning
DAGAR FORRIT SEM KYNNT VERÐA
15. janúar föstudagur kl. 2.00—6.00 VisiCalc, Visiplot. Mjög öflugt forrit sem er mikið notað af banda- rískum kaupsýslumönnum. Tilvalið fyrir áætlanagerð, útreiknings á sköttum o.s.frv. Mjög audlært.
18. janúar mánudagur kl. 2.00—6.00 Tollvörugeymsluforrit. Forrit fyrir aðflutningsskýrslur. Forrit fyrir verðútreikninga. Forrit fyrir verðlista. Þetta er forrit sem sparar mikla vinnu.
19. janúar þriðjudagur kl. 2.00—6.00 VISICALC VISIPLOT
20. janúar miðvikudagur kl. 2.00—6.00 LAUNAFORRIT Geysi fullkomið rjFTnn ,. bi n H H ÉKQ
SKIPHOLTI 19 SlMI 29800