Alþýðublaðið - 09.09.1920, Page 2

Alþýðublaðið - 09.09.1920, Page 2
s ALÞYÐUBLAÐIÐ ýsin frá skölanefnd Rvíkur um barnapróf. Samkvæmt samþykt skólanefndar á fundi 7. þ, m. verða öll börn, 8 og 9 ára gömul, sem heima eiga hér í bæ og enga kenslu eiga vísa næsta vetur, boðuð til prófs í skrift og lestri, síðari hluta þessa mánaðar, í Barnaskóla Reykjavíkur. Síðar verður auglýst nánar um, hvenær börn úr hverjum bæjar- hluta skuli koma til prófs. Fyrir hönd skólanefndar Sig’urður Guðmundsson. p. t. formaður. hlaösins er í Alþýðuhúsinu vi'Ó lagólfsstræti og Hverfisgötu. Síml 988. Auglýsingum sé skilað þangað *ða i Gutenberg í síðasta lagi kl. 10, þann dag, sem þær eiga að feoraa í biaðið. Fram vinnur íslandshornið. í gærkvöldi var háður síðasti kappleikurinn á þessu móti. Og fór hann svo, að Fram sigraði K. R. með S : o (2-|~3). Vann Fram þar með íslandshornið og hefir á mótinu sett 16 mörk gegn o. Knötturinn Iá meira á K. R. svo að segja allan leikinn og var félagið eins og heillum horfið. Á- hlaupamennirnir yfirleitt altof sein- ír að sækja á með knöttinn er þeir fengu hann, og fengu mót- stöðumennirnir þá tækifæri til að skipa sér til varnar; var helzt svo að sjá sem þeir treystu ekki vörn- inni. Sýaiiega var liðið ekki nægi- lega samæft, enda að sögn 4 nýj- tr menn í því. Markvörðutinn stóð sig prýðilega, eada þó klaufalega tækist til með eitt markið, en þar um má kenna veliinum nokkuð; það er óárennilegt að kasta sér flötum á hann. Framarar hafa á þessu móti leikið betur en þeir nokkurntíma hafa áður gert í sumar, enda haia þeir mörgum þaulvönum og ágæt- um leikurum á að skipa, svo sem Friðþjófi Thorsteinsen, er sjaldan taefir staðið sig betur en í gær- kvöldi, því þá gerði hann hvert áhlaupið öðru betra. Bræðurnir Pétur og Tryggvi eru heldur eng- ir liðléttingar, eða Gíslí, Obbi og Eiríkur og hvað þeir nú heita allir saman. Ekki svo að skilja að ekki séu dugandi urenn í hinum félög- unum, sussu jú, þar eru þeir líka. Sv® ekki væri úr vegi að knatb spyrnuráðið færi að hugsa til þess, að hóa saman beztu mönnunum úr öllum félögunum og samæfa þá undir næstu Olympiuleika, ekki mun af veita, því á næstu leika verða knattspyrnumenn að fara. Mesta áherzlu verður að leggja á það að æfa markvorð, því haan eiga félögin sfzt æfðan, og má veilinum mikið um kenna. En Fram vann íslandshornið, og var að þessu sinni vel að því kominn. Ingi. €rlend símskeytL Khöfn, 7. sept. Wrangel. Frá Varsjá er símað, að 150 þús. Pólverjar muni fljótlega ganga í lið með Wrangel [en hvaða leið þeir eiga að komast þangað er ekki getiðlj. Konstantin fyrverandi. Grikkland gerir þá kröfu, að Konstantin fyrv. konungi verði vísað úr landi (í Sviss), sökum þátttöku f samsæri [gegn Venizelos?]. Khöfn, 8. sept. Borgarstjórinn í Cork. Símað er frá London, að Lloyd George lofi því að Iáta borgar- stjórann í Cork iausan, ef Sinn- Feinar ábyrgist að morðin í ír- landi hætti. Indland vaknar. Símað er frá London, að Ind- land krefjist sjálfstæðis eins og Egyptaland. Yísað úr landi? Blaðið „Le Temps" segir, að brezka stjóínin muni vfsa Kamen- eff og Krassin úr landi, ef þeir ekld af írjáisum vilja yfirgefa Eng- land, áður en brottvísunarskjalið kemur. [Fregn þessi er að þvf leyti merkileg, að verði þetta gertP ýtir það undir ensku verkamenn- ina, að hefjast handa.] Bolsivíkahöfðingi. Símað frá Moskwa, að Enver Pasha sé útnefndur æðsti hershöfð- ingi bolsivíkahersveitanna gegn Indlandi. Peningakreppa í aðsigi í Svíþjóð. Símað er frá Stokkhólmi, að aðstaða ríkisbankans sé óhæg eg hafi upp á síðkastið versnað, svo tekið sé að bóla á peningakreppu. Saga borgarættarinnar. Síðaii hluti myndarinnar sýndur í gær. Segir Politiken hann tæp- Iega eins vel gerðan og hinn fyrri. Berlinske Tidende segja myndirn- ar miklu betri og tiihögun mynd- arinnar ágæta. Vatnsflóð mikið herjar Vínarborg.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.