Morgunblaðið - 20.02.1982, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.02.1982, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982 9 Umsjónarmaður Gisli Jonsson Nokkra, sem hafa sent mér góð bréf, hlýt ég að biðja að sýna mér nokkra biðlund. Mál þeirra er geymt, en ekki gleymt. Breiðfirsk kona, sem vill ekki sjá nafnið sitt á prenti, leggur orð í belg vegna þess sem ég sagði um orðið svinnur og mismunandi merkingar þess. Hún segir að á heima- slóðum sínum hafi þetta orð verið mest notað í „merking- unni nískur, eða fastur á fé“. Þessu til staðfestingar tilfærir hún það sem stendur í orðabók Blöndals, og er það allt rétt og satt. Mér var kunnugt um þessa merkingu orðsins, þótt ég gæti hennar ekki á dögun- um. Til ályktunar um þetta set ég hér svo það sem Orðabók Menningarsjóðs greinir um margnefnt orð, svinnur: „1. vitur, spakur, ágætur, 2. aðsjáll, naumur, nískur, 3. strangur, straumharður." Af þessu síðasta sést að frum- merkingin sterkur er ekki með öllu dauð. En gefum Breið- firskri konu aftur orðið: „Eng- um er jafnnauðsynlegt að leggja sig eftir réttu og fögru orðavali, og þeim er koma fram í fjölmiðlum og skrifa í blöð, en í því sambandi vor- kenni ég aumingja blaðamann- inum, (Mbl. 7. þ.m.) hann hafði aldrei heyrt um málsnilling- inn, Sig. Kristófer Pétursson, nefndan. Þá langar mig að minnast á orðið kvæntur, það virðist vefj- ast fyrir mörgum, er fást við skriftir minningargreina, því oftar og oftar sé ég að sagt er um konur „hún kvæntist o.s.frv.", en það liggur nokkuð ljóst fyrir að kvænast er komið af kvonfang, þá býst ég við að allir þekki kvonbænir og þýð- ingu þess. í ritningunni stend- ur: „Þar kvænast ekki menn, og giftast ekki konur.““ A þetta efni hefur verið drepið fyrr í þessum þáttum. Kván þýddi eiginkona, þar af kemur að kvángast. Samkvæmt því lögmáli tungunnar að vá- breyttist fyrst í vó- og síðan (oftast) í vo- er þetta orðið kvon og kvongast, sbr. og kvonfang, sem hin breiðfirska kona tiltók. Um þjóðkunnan glapyrðing var sagt að hann tæki svo til orða um nafn- greindan konung, að svo marg- ar væru dætur hans, að hann ætti fullt í fangi að afla þeirra kvonfangs. Af kván myndast svo með hljóðvarpi sögnin að kvænast, og það geta að sjálfsögðu karlmenn einir, ef allt er eðli- legt. Konur voru að fornu gefn- ar, að því er sagt er, ég held nú reyndar allt eins seldar. En hvað sem því líður, þá tek ég ekki til þess, þó sagt sé að karlmaður giftist. Karl og kona gefast hvort öðru, ef vel er, og má þá hafa sögnina að giftast um slíkt án tillits til kynferðis. Hákon Bjarnason sendir mér sem fyrr hressilegt bréf og taki þeir sneiðar sem eiga. Heimilt er þeim að svara fyrir sig í þáttum þessum. Hákon segir: „Gísli minn elskulegur. Mig hefur lengi furðað á auglýsingamáli ýmsra fyrir- tækja. Bjagað mál auglýsinga áður fyrr var afsakanlegt, þeg- ar kaupmennirnir urðu sjálfir að lýsa vörum sínum og þýddu lýsingarnar úr dönsku, ensku eða þýsku (sbr. heimtið verð- lista = forlang prisliste). Nú munu auglýsingafyrir- tæki sjá um alla gerð auglýs- inga fyrir flestar meiri háttar verslanir. T.d. lætur Mjólkur- samsalan hér auglýsingagerð í Kópavogi sjá um allt slíkt, en útkoman verður hrognamál. Virðingarvert er, þegar ís- lenskar verslanir láta þrykkja leiðarvísa á íslensku, en slíkt fer á stundum úrskeiðis. Því til sönnunar sendi ég þér plastmiða utan af tveim skeinipappírsrúllum, sem SÍS mun flytja inn. Þar heitir þetta WC-pappír og látum það vera, ef orðið skeinipappír fell- ur fyrir brjóst mönnum. En svo kemur — Innihald: Allir geta séð að rúllurnar eru tvær í plastumbúðum. Og síðan — Að meðaltali 240 arkir á hvorri rúllu. Væri nú ekki nær að segja 240 blöð á rúllu? Og svo kemur þyngdin. Það er nú meiri hátíðleikinn og ná- kvæmnin í þeirri setningu. Svo klykkir út með stærð arkanna. Gott það var ekki folio. Hér vantar ekkert nema leiðbein- ingar um notkun. Þetta sýni, sem ég sendi hér, er ekkert einsdæmi. Þú munt geta séð svipað á mörgum vörutegundum, en ég held það ______________135. þáttur þyrfti að benda auglýsinga- stofunum á það, að það er ekki nóg að kunna dráttlist. Þær verða að temja sér sæmilegt málfar. Ég hef því miður engin mál- blóm frá Mjólkursamsölunni við hendina, en þau eru sum bæði hryllileg og heimskuleg." Svo stór voru orð Hákonar. Sýnið af skeinipappírsumbúð- unum var svo: WC-pappír Innihald: 2 rúllur úr tvöföld- um kreppappír. Að meðaltali 240 arkir í hvorri rúllu. Þyngd: u.þ.b. 145 g; hvor rúlla. Arkarstærð: 11,5x14,0 cm. Legg ég þetta fyrir góðfúsan lesara og þau fyrirtæki sem hlut eiga að máli eða telja sér koma þetta efni við. Páll Helgason á Akureyri hefur enn sent mér hið merkasta bréf og lýkur þessum þætti á fáeinum glepsum úr þessu Pálsbréfi (til mín): Miklir hæfileikar „Árið 1977 tók ég þátt í hæfileikakeppni, sem haldin var um alla Svíþjóð, og tókst að sigra hana.“ Dilkar teknir að reskjast „Alls var slátrað 14.309 dilk- um, þar af var 1.712 af full- orðnu." Misjafn sauður „Þar verða keppendur víða að og óvíst að segja að Kristján verður þar í góðum félags- skap.“ Nógar reglur „Það er nóg af lögreglum á Vellinum: ein fyrir sjóherinn, ein fyrir flugherinn, ein fyrir landherin og loks íslenska lögreglan." I síðasta þætti laumuðust inn nokkrar villur. Lakast var að tvær vísur komu ekki alveg laukréttar. Vísa Einars í Ey- dölum er svo: Kvæðin hafa þann kost með sér, þau kennast betur og lærast ger, en málið laust úr minni fer. Mörgum að þeim skemmtun er. Vísa Arnar Snorrasonar (Aquilae) um Snorra Sturlu- son: Snorri fékk hinn félausi fullan sekk með Herdísi. Vel hann bjó á Borginni, burt fór þó að Reykholti. Vestmannaeyjar: Unnið á vökt- um við loðnu- frystingu IIM HELGINA var unnið á vöktum við loðnufrystingu í Vestmannaeyjum og var fenginn sá vinnukraftur sem var laus frá öðrum fiskvinnslustörfum í þessa vinnu. Sigurgeir Jónasson, fréttaritari Mbl. í Vestmannaeyjum, sagði að loðnan væri nú komin að Pétursey og hefði til dæmis Kap 2. landað fjórum sinnum í Eyjum um helgina og loðnan hefði öll farið í frystingu. Loðnan sem nú veiðist er stór og góð og því vel fallin til frystingar. 28611 Vallargerði Kóp. Falleg 2ja herb. kjallaraíbúö. Góöar innréttingar. Verð 430 þús. Melabraut Seltjarnarnesi 3ja—4ra herb. 110 fm íbúð á efri hæö í tvíbýlishúsi. Sórinn- gangur. Bílskúrsréttur. Austurberg 4ra herb. um 100 fm íbúö á annarri hæö. Suöur svalir. Skólavörðustígur Hús á tveimur hæöum, meö tveimur 3ja herb. íbúöum. Selst til flutnings. HÚS OG EIGNIR Bankastræti 6 Lúövík Gizurarson hrl., kvöldsími 17677. 83000 3ja herb. við Skeggjagötu Vönduð og falleg íbúö á 1. hæð. Afhendist við samning. FASTEICNAÚRVALIÐ SÍMI83000 SilfurteigM Sölustjóri: Auðunn Hermannsson, Kristján Eiriksson hæstaréttarlögmaður. Opiö í dag KÓPAVOGUR — 4RA HERB. 4ra herb. íbúð meö 3 svefn- herb. viö Efstahjalla á fyrstu hæð. Suövestursvalir. 110 fm. Verð 850 þús. HAFNARFJÖRÐUR 3ja—4ra herb. ibúö, 90 fm. REYKJAVÍK — 4RA HERB. 4ra herb. ibúö viö Hverfisgötu á 3. hæð, 90 fm. Vérð 600 þús. 4RA HERB. í GAMLA BÆNUM 4ra herb. risíbúö, 120 fm. Verö 780 þús. VITASTÍGUR — 5 HERB. 5 herb. risíbúö viö Vitastíg. íbúöin er 2 stofur, 2 barnaherb., 1 hjónaherb., litlar svalir. 90 fm íbúð. Verð 730—750 þús. SÉRHÆÐ — KÓPAVOGUR Sérhæö viö Hlaðbrekku í tvíbýli ca. 125 fm ásamt 40 fm bílskúr. Mjög stór stofa, 3 svefnherb., svalir. Mjög gott útsýni. Verð ca. 1150 þús. KÓPAVOGUR— 3JA HERB. 3ja herb. kjallaraíbúö viö Hóf- geröi 75 fm. Verö 590 þús. KÓPVOGUR — 2JA HERB. i 2ja herb. íbúö viö Vallartröð. 60 fm. Verð ca. 500 þús. FLYÐRUGRANDI — 2JA HERB. 2ja herb. íbúö á jaröhæö, 67 fm. Fæst í skiptum fyrir 3ja herb. íbúð í Vesturbæ. KÓPAVOGUR— 3JA HERB. 3ja herb. íbúö viö Löngubrekku á jarðhæö i tvíbýlishúsi, 84 fm. Bílskúrsréttur. Verö 750 þús. BALDURSGATA— 4RA HERB. 4ra herb. íbúö viö Baldursgötu, 86 fm. Nýjar innréttingar í eld- húsi og á baði. Verö ca. 600 þús. VESTURBÆR — 4RA HERB. 4ra herb. íbúð. Nýstandsett í gömlu steinhúsi, 95 fm. Verð 800 þús. HRAUNBÆR — 2JA HERB. 2ja herb. íbúö á jarðhæö, 55 fm. Verð 480 þús. KÓPAVOGUR— 3JA HERB. 3ja herb. íbúö á 3. hæð viö Lundarbrekku, 86 fm. Verö ca. 700 þús., útb. 590 þús. EYJABAKKI — 2JA HERB. 2ja herb. íbúö á 2. hæð, 68 fm. Verö 560 þús. EINBÝLISHÚS — HVERAGERÐI Mjög fallegt 4ra herb. einbýlis- hús, 113 fm ásamt nýjum 50 fm bilskúr. Losnar strax. EINSTAKLINGSÍBÚÐ — NJÁLSGATA Lítið einstaklingsherb. með eldhúskrók ásamt aógangi að baöi í góöu ásigkomulagi i kjall- ara við Njálsgötu. Lltb. ca. 80 þús. PARHÚS— HVERAGERÐI 4ra herb. parhús viö Borgar- heiði aö stærri gerðinni, 98 fm. Útb. 350 þús. HÚSEIGNIN Pétur Gunnlaugsson lögfr., Skólavöröustíg 18, 2. hæð. ÖOC44 ÖOA4A 0007(1 Mk>BORG fasteignasalan i Nyja bióhúsinu Reykjavik Símar 25590,21682 Jón Rafnar sölustj. Heima 52844. Vilhelm Ingimundarson, heima 30986. Einstaklingsíbúó Stofa, svefnherb., eldhúskrók- ur. Ákveðið í sölu. Móabarð Hafnarf. 2ja herb. íbúö, 80 fm á jarðhæö auk tokhelds bílskúrs. Akveöiö í sölu. Lundarbrekka Kóp. 3ja herb. 90 fm íbúð á 3. hæð. Ákveðið í sölu. Lynghagí 3ja herb. 90 fm íbúö. Ákveöiö í sölu. Mjósund Hafnarf. 3ja—4ra herb. íbúö ca. 90 fm. Ákveðið í sölu. Kinnahverfi Hafnarf. 3ja herb. 85 fm íbúð. Suöur- svalir. Ákveöið í sölu. Laufás Garðabæ 3ja herb. 80 fm ibúö í risi. Laus strax og samþykkt. Ákveðiö í sölu. Hagar 4ra herb. 110 fm íbúö á annarri hæö. Ákveöið í sölu. Krummahólar 4ra—5 herb. ibúö, 115 fm. Bílskúrsréttur. Ákveöiö í sölu. Þverbrekka Kóp. 6 herb. íbúö, 120 fm. Þvotta- herb. í íbúðinni. Ákveöiö í sölu. Hjallabraut Hafnarf. 5—6 herb. íbúö, 130 fm á fyrstu hæö. Ákveöið í sölu. Víghólastígur Kóp. 5—6 herb. íbúö í tvíbýli. Bíl- skúrsréttur. Ákveóiö í sölu. Einbýlishús Kóp. meö 10—12 herbergjum, 2 eld- hús og 2 böö. Bílskúrsréttur. Ákveöiö i sölu. Einbýlishús Garðabæ Einingahús, 160 fm og óinnrétt- aöur kjallari og innbyggöur bílskúr. Vantar tréinnréttingar. Aö mestu tilboð. Ákveöiö í sölu. Seljahverfi Raóhús á þremur hæóum. Sér ibúö í kjallara. Ákveóió i sölu. Eignaskipti Seltjarnarnes Stór sérhæð meö bílskúr. Fæst í skiptum fyrir minni sérhæð. Fossvogur Raöhús í skiptum fyrir stóra sérhæö. Einbýlishús Garðabæ í skiptum fyrir raöhús í Foss- vogi. Fossvogur raðhús 275 fm á tveimur hæöum. Fæst í skiptum fyrir stóra sérhæð eða lítiö einbýlishús. Einbýlishús Seljahverfi 200 fm fullfrágengiö. Fæst í skiptum fyrir 250—300 fm ein- býlishús. Milligjöf. Einbýlihsús óskast t.d. í skiptum fyrir 120 fm neöri sérhæð á Teigunum. Raðhús óskast Á byggingarstigi. Eignaskipti möguleg. Höfum kaupendur j mörgum tilfellum mjög fjársterka aö 2ja, 3ja og 4ra herb. ibúöum, víös vegar um borgina. Meöal ann- ars mjög háar greiöslur viö samning á 3ja og 4ra herb. íbúöum. Höfum kaupanda aö 3ja—5 herb. íbúð á jaröhæö sem hentar fyrir hjólastól. Bíl- skúr eða bílskúrsréttur nauð- synlegur. Fjársterkur kaupandi að 3ja herb. ibúö meö góöu út- sýni í lyftuhúsi viö Hamraborg i Kópavogi. Guömundur Þóröarson, hdl. Einbýlishús viö Hvannarlund Til sölu og afhendingar fljótt lítið einbýlishús með bílskúr. Söluverð kr. 1,3 millj. Teikning á skrifstof- unni. Fasteignamidstööin Austurstræti 7. Símar 14120 — 20424. Heimasímar 85482 Jón Baldvinsson, 30008 Sig. Sigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.