Morgunblaðið - 20.02.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
15
Nagar menntamálaráðherra. Hún er eina konan í stjórninni.
skapast hjá neytendum. Jann-
an og Hamati sögðu að að baki
Múslimabræðra stæðu stuðn-
ingsmenn þáverandi forseta
Egyptalands, Anwars Sadats,
zíonista og Bandaríkjamanna.
Nokkrum dögum síðar, komin
til Kýpur, las ég að Sadat hafði
látið handtaka einn forvíg-
ismann samtakanna í Egypta-
landi. Þá fóru að renna fleiri
grímur á mann en þessar tvær
sem voru fyrir.
Þess má og geta að hvort sem
það er af trúarástæðum eða
pólitískum nema til komi báð-
ar þær tvær og jafnvel fleiri,
að mjög stirð sambúð er milli
Líbana og Sýrlendinga, þó svo
að Sýrlendingar hafi fjölmennt
„friðargæzlulið" í Líbanon.
Margir Sýrlendingar eru á
þeirri skoðun, að með „friðar-
frumkvæði" sínu í Líbanon
hafi Sýrlendingar bundið óeðli-
lega stóran hluta hersins við
störf þar, og því sé lítið um
varnir heima fyrir ef í odda
skerst. Bardagarnir í Hama, nú
samfleytt í nær þrjár vikur,
sýna svo ekki verður um villzt
að sýrlenzki herinn er ákaflega
vanmegnugur og það er næsta
óskiljanlegt að honum hafi
ekki tekizt að bæla niður stað-
bundna uppreisn í Hama, ef
ekki hefði komið fleira til. Það
er því langtum trúlegra að víð-
ar sé ólga og átök en í Hama.
Atburðurinn í Damaskus á
fimmtudag sýnir svo ekki verð-
ur um villzt að víðar í landinu
er ókyrrð og raunar hnígur
flest í þá sömu átt: að Assad
forseti og lið hans eigi nú erf-
iða daga fyrir höndum.
Texti: Jóhanna
Kristjónsdóttir
Græna lyftan frum-
sýnd í Grindavík
(•rindavík, 18. Tebrúar.
NÆSTKOMANDI laugardag, þann
20. febrúar, frumsýnir Leikfélag
Grindavíkur farsann „Græna lyftan“
eftir Averu Hopwood, í þýðingu
Sverris Thoroddsen. Leikstjóri er
I*órir Steingrímsson.
Æfingar hafa staðið að undan-
förnu af miklum krafti í samkomu-
húsinu „Kvennó", þar sem félagið
kemur til með að sýna verkið. Er
þetta með þekktari gamanleikrit-
um sem hafa verið sýnd úti á landi,
hjá áhugaleikfélögum. Með helstu
hlutverk fara Lúðvík P. Jóelsson,
Olga Ólafsdóttir, Guðrún Jóhann-
esdóttir, Pétur Vilbergsson, Jó-
hann Ólafsson, Kolbrún Tobías-
dóttir, Jón Guðmundsson og Ás-
mundur Guðnason.
Alls taka u.þ.b. 16 manns þátt í
uppsetningu leikritsins og er Val-
gerður Þorvaldsdóttir aðstoðar-
maður leikstjóra.
Önnur sýning verður á sunnu-
daginn 21. febrúar og sú þriðja
fimmtudaginn 25. og síðan sunnu-
daginn 28. — Fréttaritari
Skátahátíð í Keflavík
SUNNUDAGINN 21. febrúar fjöl-
menna Heiðabúar við skátahúsið í
Keflavík kl. 13.30 og ganga til kirkju.
Við guðsþjónustuna verður minnst
Baden-Powells, stofnanda skátahreyf-
ingarinnar, 75 ára skátastarfs í heim-
inum og 70 ára skátastarfs á íslandi.
Ljósálfar og ylfingar verða vígðir.
Eftir guðsþjónustuna er foreldr-
um ljósálfa og ylfinga boðið á
skemmtun og til kakódrykkju.
22. febrúar kl. 19.30 verður flug-
eldum skotið á loft við skátahúsið,
en kl. 20 hefst hátíðarfundur í
skátahúsinu. Allir skátar og vel-
unnarar skátastarfs eru velkomnir.
Kynning á SHARP
ÖRBYLGJUOFNUM:
Frá kl. 14.00—16.00 í dag
kynnir Ólöf Guðnadóttir
SHARP örbylgjuofna í verslun-
inni.
ortofbnSök
STDI<
Cö PIOINIEER
Hljómtæki hinna vandlátu.
Kynnum
SHARP Búðarkassa
SHARP Reiknivélar
LUXOR Tölvur
SHARP Tölvur
Hljómtæki sem bera af. Myndsegulbönd- Feröa.æki
9 Sjonvorp-Ljosprentunarvelar
Tölvur —Örtölvur — Örbylgjuofnar
öö' PIONEER