Morgunblaðið - 20.02.1982, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
31
MARGIR ungir söngvarar
koma við sögu í sviðssetningu
Ujóðleikhússins á óperettunni
Meyjaskemmunni sem frum-
sýnd verður 25. apríl nk. Er
það frumraun margra söngv-
ara á sviði, en í þessari upp-
færslu Meyjaskemmunnar
koma einnig við sögu margir
kunnustu söngvarar landsins.
Meyjaskemman var sýnd í
Reykjavík á fyrstu áratugum
þessarar aldar, en fyrir
nokkrum árum flutti Samkór
Vestmannaeyja Meyja-
Katrín Sigurðardóttir
Ljósm.: Mbl. Kristján Örn Klíasson.
Meyjaskemman f Þjóðleikhúsinu:
Ung söngkona
frá Húsavík með
titilsönghlutverk
skemmuna á sviði og sýndi
hana m.a. í Færeyjum undir
stjórn Nönnu Egils Björns-
son. Sveinn Einarsson, Þjóð-
leikhússtjóri, kvað einn
kunnasta leikstjóra Austur-
ríkis á þessu sviði, Wilfried
Steiner, setja Meyjaskemm-
una á svið fyrir Þjóðleikhús-
ið. Hljómsveitarstjóri verður
Páll P. Pálsson.
Katrín Sigurðardóttir, ung
söngkona frá Húsavík, fer
með eitt aðalhlutverkið,
Hönnu, en hlutverk systra
hennar, Hildu og Heiðu,
sýngja þær Kristín Sig-
tryggsdóttir og Elísabet Ei-
ríksdóttir. Önnur titilhlut-
verk eru í höndum Júlíusar
Vífils Ingvarssonar sem leik-
ur Schober og Sigurðar
Björnssonar sem leikur
Schubert.
Meðal kunnra söngvara
sem Mbl. hefur fregnað að
syngi í Meyjaskemmunni er
Anna Júlíana Sveinsdóttir,
Halldór Vilhelmsson, Guð-
mundur Jónsson, Þuríður
Pálsdóttir og Kristinn Halls-
son.
Meyjaskemman byggir á
lögum Schuberts, aðstoðar-
Ieikstjóri verður Sigmundur
Örn Arngrímsson og Sigur-
jón Jóhannsson mun gera
leikmynd, hluti búninga
verður fenginn að láni frá
Austurríki.
Fær meira fyrir 75%
vinnu á benzínstöð,
en sem hjúkrunarkona
„Hjúkrunarfræðingar hrekjast
unnvörpum úr starfi vegna lé-
legra launa og mikils vinnuálags,
sem leggur auknar byrðar á þá,
sem eftir standa. Verði ekki
fljótlega breyting á, skapast al-
varlegt ástand í heilbrigðismál-
um ... Kjör hjúkrunarfræðinga
verða að vera þannoig, að þau
laði þá til starfa, en stuðli ekki að
flótta úr starfi.“ Þannig segir
m.a. í forystugrein, sem Svanlaug
Árnadóttir, formaður Hjúkrunar
félags íslands, ritar í „Hjúkrun",
tímarit Hjúkrunarfélags Islands.
I ritinu er fjallað um hjúkr-
unarfræðinga í öðrum störfum
og segir í inngangi, að skortur
sé á hjúkrunarfræðingum í
landinu. Skýrslur HFÍ frá 1.
janúar 1980 sýni, að 350 hjúkr-
unarfræðingar starfi ekki við
hjúkrun og skýrslur 1981 sýni
enn umtalsverða aukningu
þeirra, sem ekki nýta sér hjúkr-
unarmenntunina í starfi.
Hjúkrunarfræðingar á eftir-
launum og þeir, sem starfa er-
lendis eru undanskildir í þess-
um skýrslum.
Fjórir hjúkrunarfræðingar,
sem hafa önnur störf en hjúkr-
un að aðalstarfi, greina síðan
frá því hvers vegna þær vinna
ekki að hjúkrun og er greinin í
samantekt Ingibjargar Árna-
dóttur.
Inga Þ. Haraldsdóttir, starf-
andi afgreiðslumaður, segir
m.a., að hún hafi lokið hjúkrun-
arnámi árið 1979 og hafi síðan
starfað við hjúkrun í eitt ár.
Hún segir hjúkrunarstarfið
mjög krefjandi og að lokinni
átta stunda vakt hafi lítil orka
verið afgangs. Þegar það hafi
Hjúkrunar-
fræðingar
hrekjast
unnvörpum
úr starfi,
segir Svanlaug
Arnadóttir, ^
formaður HFÍ
síðan runnið upp fyrir sér, að
þessi ábyrgðarmiklu og krefj-
andi störf gáfu lítið í aðra hönd
hafi hún farið að hugleiða ann-
að starf. „Hjúkrunarfræðingar
lifa ekki á loftinu einu saman,
fremur en aðrir, né heldur lág-
værum röddum þakklátra
sjúklinga." Hún segist síðan
hafa unnið við afgreiðslustörf
hjá sama fyrirtæki nokkuð á
annað ár. „Starfið hér er leikur
einn, samanborið við hjúkrun-
arstarfið. Þó vinn ég 10—11
tíma alla virka daga. Ég get
heldur ekki lagt launin að líku,“
segir Inga Þ. Haraldsdóttir.
Petrína R. Bjartmars lauk
hjúkrunarnámi árið 1976 og
starfaði í fimm ár á St. Frans-
— iskusspítala í Stykkishólmi, en
hóf þá störf á benzín- og olíu-
stöð ESSO og BP í Stykkis-
hólmi, sem jafnframt rekur
söluturn. „Fyrir störf mín hér á
benzínstöðinni, sem eru 75%,
fæ ég greidd svipuð laun og
fyrir fullt starf við hjúkrun.
Ékki get ég þó lagt að líku hvað
hjúkrunarstarfið er meira
krefjandi, bæði andlega og lík-
amlega, en það tók um það bil
alla mína orku. Hér í Stykkis-
hólmi eru nú búsettir sjö hjúkr-
unarfræðingar, enginn er í
föstu starfi á sjúkrahúsinu,"
segir Petrína R. Bjartmars.
Alda Sigtryggsdóttir útskrif-
aðist sem hjúkrunarfræðingur
árið 1961, en rekur nú söluturn.
Hún segir meðal annars: „Að
lokum gafst ég upp á að standa
í þessu ábyrgðarmikla og krefj-
andi starfi fyrir ekki meiri laun
og fór því út á aðra braut. Nú
rek ég söluturn og ræð mínum
vinnutíma sjálf, haga honum
eftir því, sem mér og mínu fjöl-
skyldulífi hentar og ekki skaðar
það að launin eru stórum betri.
En bezt af öllu er þó að þegar
ég loka hurðinni á eftir mér á
þessum vinnustað mínum, þá
tek ég engar áhyggjur með mér
heim,“ segir í svari Öldu Sig-
tryggsdóttur.
Valgerður Lárusdóttir
brautskráðist sem hjúkrunar-
fræðingur árið 1966 og réði sig
þá strax sem flugfreyja til
Loftleiða. „Það vakti upphaf-
lega fyrir mér að fá tilbreyt-
ingu, þvl í þá daga voru kjörin
sennilega skárri hjá hjúkrunar-
fræðingum en flugfreyjum. í
dag eru þetta viss mótmæli.
Mér finnst hjúkrunarstarfið
vera svo vanmetið, að ég treysti
mér ekki til að lifa af dagvinnu-
laununum, og í jafn krefjandi
starfi sem hjúkrunarstarfið er,
bæði andlega og líkamlega, er
hart að þurfa að byggja afkomu
sína á aukavöktum og yfir-
vinnu," segir Valgerður Lár-
usdóttir meðal annars.
Inga Ilaraldsdóttir vinnur við afgreiðslustörf.
Alda Sigtryggsdóttir rekur söluturn.
Petrína R. Bjartmars afgreiðir á benzínstöð í Stykkis-
hólmi.
Valgerður Lárusdóttir starfar sem (lugfreyja.