Morgunblaðið - 20.02.1982, Page 20

Morgunblaðið - 20.02.1982, Page 20
í dag er aldarafmæli elzta kaupfélags landsins, Kaupfélags Þingeyinga. í þessari grein er ætlunin aö gera nokkra grein fyrir sögu þess, þróun og stööu í dag. Sagan er margþætt og merkilegri en svo aö henni veröi gerö nokkur viöhlítandi skil í blaða- grein og því hefur veriö tekinn sá kosturinn aö stikla fremur á stóru hvaö hana varöar, en reyna aö varpa fremur Ijósi á starfsemi KÞ í dag. í því tilefni brá blaðamaöur Morgun- blaösins sér til Húsavíkur, aöalstööva félags- ins og ræddi þar viö forvígismenn stofnunar- innar og ýmsa sem hönd hafa lagt á plóginn, og/ eöa hafa starfaö hjá KÞ og veriö félagar í því. Kaupfélag Þingeyinga var stofnaö aö Þverá í Lax- árdal í Suður-Þingeyj- arsýslu 20. febrúar 1882, en undirbúnings- fundur aö stofnun félagsins haföi veriö haldinn aö Grenjaöarstaö 26. september 1881. Aödragandi aö stofnun félagsins var starf verslun- arfélaga í sýslunni, er nefnd hafa veriö verökröfufélög, allt frá 1844, og siöan nokkur pöntunarstarfsemi í einstökum sveitum, svo sem Reykjadal og Mývatnssveit. Frum- hvöt aö stofnun KÞ var sameining þessarar pöntunarstarfsemi í eitt héraösfélag. Helsti aflgjafi til stofn- unarinnar var þó framtak Jakobs Hálfdánarsonar og Benedikts Jónssonar á Auönum til sauöasölu bænda í sameiningu haustiö 1881, er tókst mjög vel. Frumkvööull og aöalforgöngu- maöur aö stofnun Kaupfélags Þing- eyinga var Jakob Hálfdánarson, bóndi á Grímsstöðum við Mývatn, og hann varö einnig fyrsti kaup- stjóri félagsins og síöar kaupfélags- stjóri. I fyrstu stjórn félagsins áttu sæti, auk Jakobs, Jón Sigurösson, alþingismaöur á Gautlöndum, for- maður, og séra Benedikt Krist- jánsson í Múla, en Benedikt Jóns- son frá Auðnum annar mesti hvata- maður að stofnun félagsins, kom í stjórn þess áriö eftir, er fest var í lög félagsins aö kaupstjóri skyldi ekki eiga sæti í stjórninni. Þessi fé- algsstjórn veitti félaginu forstööu óbreytt fram að andláti Jóns á Gautlöndum 1889, en þá varö Pétur Jónsson á Gautlöndum, síöar al- þingismaöur og ráöherra, formaöur félagsins og kaupfélagsstjóri, eftir aö störfin voru sameinuö aö nýju, til 1919. Fyrstu markmiö Kaupfélags Þingeyinga voru þessi, eins og þau eru skilgreind í fyrstu lögum félags- ins 1881: „Aöaltilgangur félagsins er aö ná svo góðum kaupum á útlendum varningi, sem auðiö er, og gjöra út- vegur hans sem auöveldastar og kostnaöarminnstar hverjum ein- stökum félagsmanni. Ennfremur aö fá til vegar komiö meiri vöruvöndun og aö afnema sem mest skulda- verslun". Frá fyrstu tíö félagsins var sann- viröis- eöa kostnaöarregla megin- boðorö viö verölagningu vara, hvort sem var innflutningur eöa út- flutningur, en félagsmenn keyptu „hlutabréf", hvert 10 krónur að upphæö, til öflunar húsa og áhalda. Þessi „hlutabréf" báru þó engan arð eöa vextl, voru óafturkræf og því í raun aöeins þátttökugjald í fé- laginu. Eign fleiri en eins „hluta- bréfs“ veitti ekki aukinn atkvæöis- rétt, sem var alveg persónubund- inn. Þetta ráö til öflunar húsa og áhalda var til þess aö ekki þyrfti aö blanda þeim kostnaöi í sannviröis- regluna. Kaupfélag Þingeyinga hóf út- flutning lifandi sauðfjár á eigin ábyrgð áriö 1885. Árið 1886 varö mikiö veröfall á sauöum í Bretlandi svo aö félagiö varð mjög skuldugt SJÁ NÆSTU SÍÐU MATTUR HINNA MORGU Uppskipun á Húsavík um aldamótin síöustu Texti HG Nýjar myndir Emilía Björg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.