Morgunblaðið - 20.02.1982, Page 29

Morgunblaðið - 20.02.1982, Page 29
26 MORGUNBLAÐia i^AGUR 20. FEBRÚAR 1982 Á þessum árstíma fara allir sem vettl- ingi geta valdið á skíði. Enda er skíða- íþróttin ein ákjósanlegasta fjölskyldu- íþrótt sem hægt er að stunda. Foreldrar taka börn sín með sér til fjalla til að njóta útiveru og ánægjunnar af skíða- íþróttinni. En hafa ber ýmislegt í huga þegar börnin eru tekin með. Sum þeirra hafa öðlast kunnáttu í íþróttinni. En mörg eru að stíga sín fyrstu skref á skíð- um. Og þá er áríðandi að fara rétt að. Foreldrar verða að hafa hugfast að fara rólega af stað með yngstu kynslóðina og gera sem mestan leik úr öllu saman. Gera þarf skíðaferðirnar jákvæðar og skemmtilegar þannig að löngunin vaxi hjá börnunum við að læra meira. Hér á eftir fara ýmis ráð fyrir foreldra sem eru að byrja með börn sín á skíðum. Skíðaíþróttin er ekki síður íþrótt barnanna en fullorðinna og algengast er að bestu skíðamenn- irnir séu þeir sem hófu að stunda íþróttina strax í barnæsku. Það þarf að gera börnin skikkanlega út af örkinni strax í byrjun til þess að þau fái sem mesta ánægju út úr íþróttinni. Hér á eftir verða rakin nokkur atriði varðandi skíða- útbúnað sem heppilegur er fyrir litlu skíðakappana. Klæðnaður Þegar velja á skíðafatnað á börn verður að hyggja að ýmsu. Flíkin verður að vera létt, hreyfanleg, en samt skjólgóð og vatnsheld. Sam- festingur er góð fjárfesting og einn helsti kostur þeirra er að snjór á enga möguleika að læðast inn um samskeyti, einfaldlega vegna þess að um samskeyti er ekki að ræða. Varast ber að kaupa of þrönga samfestinga, séu þeir hæfilega víðir bjóða þeir barninu upp á frjálsari hreyfingar auk Það getur verið erfitt til að byrja með að ráða við skíð- in og finna rétt jafnvægi. En hafa ber hugfast að æfingin skapar meistarann. Skíðaíþróttin er bæði heilsusamleg og skemmtileg fyrir börn á öllum aldri ■ Vinsæll skfðaskóli í Hlíðarfjalli við Akureyri Á Skíðastöðum í lllíðarfjalli við Akureyri er starfræktur skíðaskóli, sem mjög vel hefur verið sóttur í vetur. Undirritaður var staddur í Hlíðarfjalli á fostudaginn og rakst þar á flokk úr skólanum. Reyndist það vera byrjendaflokkur og voru krakkar í meiri hluta eins og gefur að skilja. Leiðbeinandi hópsins var fyrst tekinn tali, hann heitir Guð- mundur Pétursson. Hann sagði að mjög gaman væri að kenna á skíði og væri það að mestu fólgið í því að sjá hve fólkinu færi mikið fram á þeirri einu viku sem hvert námskeið stæði. „Þessi námskeið eru mjög góð fyrir byrjendur og einnig þá sem hafa lært eitthvað svolítið. Það er t.d. mjög gott fyrir fólk að koma til okkar þegar það er að byrja og fá rétta undirstöðu, síðan á þetta fólk að æfa sig sjálft í 1—2 mánuði eftir námskeiðið og koma svo til okkar aftur til að fá það lagfært sem ekki er nógu gott.“ Hvernig er kennslunni háttað? „Við högum kennslunni þannig að við kennum fólkinu til að byrja með og förum svo með það eins mikið og því hæfir um fjallið og sýnum því það. Þetta gerum við einkum vegna þess að þeir eru Kristján Gunnarsson Sigrún Eggertsdóttir margir sem ekki þekkja fjallið nógu vel og sjá því ekki þá mögu- leika sem það býður upp á. Þá ger- um við þetta einnig til að sýna fólkinu þá staði sem varhugaverð- astir eru og brýnum fyrir því að fara varlega." Eins og kom fram hjá Guðmundi stendur hvert nám- skeið yfir í eina viku. Þátttakend- um er skipt í hópa eftir getu og eru oft þrír hópar i einu á nám- skeiðunum. Tveir þátttakendur í námskeiðinu voru teknir tali. Kristján Gunnarsson 8 ára sagði að mjög gaman væri í skíða- skólanum. „Þetta er fyrsta nám- skeiðið sem ég fer á og það getur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.