Morgunblaðið - 20.02.1982, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982
Meistaramótið
í frjálsíþróttum
MEISTARAMÓT íslands í frjáls-
íþróttum fcr fram í Reykjavík um
helgina. Keppt verður í Baldurshaga,
undir stúku Laugardalsvallar og í
Laugardaishóll. Samtals hafa 90
frjálsíþróttamenn frá 16 félögum
skráó sig til þátttöku, en í þeirra
hópi er allt bezta frjálsíþróttafólk
landsins sem statt er hérlendis. Bú-
izt er við spennandi keppni í flestum
greinum, en innanhússmótin í vetur
hafa sýnt að frjálsíþróttafólkið er í
framfór. Tímaseðill mótsins er ann-
ars sem hér segir:
LAIIUAKDAGOK:
LAIICÍÁKDALSHÖLL:
11.00 HOO karia og hÁnlökk karla.
11.25 H00 kvt nna.
11.50 kúluvarp karla.
BALDDKSHAGl:
14.00 50 karla undanrásir.
14..10 50 kvenna undanrásir.
Milliriðlar »g úrslit í 50 m karla og kvenna
hefjast að loknum undanrásum.
Ift.OO l^ntjstókk karla.
SDNNIIDACalJK:
LAIKjAKDALSHÖLL
12.00 1500 karla »g hástökk kvenna.
12.30 Kúluvarp kvenna.
13.20 4x3 hringja hoðhlaup.
BALDIIKSHAGI:
15.00 50 grind karla undanrásir.
15.20 50 grind kvenna undanrásir.
Milliriðlar og úrslit að undanrásum loknum.
16.00 l*rístökk karla.
16.50 Langstökk kvenna.
Verndar-
gripur
Eng-
lendinga
Á myndinni hér til hliðar má sjá
Bohby Gharlton, einn af heimsmeist-
urum Engiendinga í knattspyrnu frá
1966, ásamt lukkudýri enska lands-
liðsins í dag, „Bulldog Bobby“, eða'
Bobba Bolabít. Er það mál manna,
að Bobbi Bolabítur sé nokkurs kon-
ar millistig milli Bobby Charlton og
Winston Churchill. Talsmenn enska
knatLspyrnusambandsins segja hins
vegar að bolabíturinn eigi að vera
persónugerfingur ensku knattspyrn-
unnar, sem sé í eðli sínu sókndjörf,
áræðin og frökk, einmitt eins og
bolabítar.
Knattspyrna
• Formaður íþróttaráðs Reykjavíkurborgar, Eiríkur Tómasson, afhendir
Konráði Gíslasyni viðurkenningu. Á myndinni má sjá Asgeir Asgeirsson og
Davíð Ólafsson seðlabankastjóra, en þeir fengu báðir viðurkenningu fyrir
almenningsíþróttir. I horni myndarinnar má svo sjá hinn kunna íþróttafröm-
uð Valdimar Örnólfsson, sem einnig var heiðraður.
• Hjónin Jóakim Pálsson og Björg Þorsteinsdóttir voru heiðruð fyrir gott
starf að íþróttamálum.
■r/: . rfa
• Hópur íþróttafólks úr TBR, sem var heiðraður fyrir gróskumikið starf og góðan árangur.
Sjö félög fengu styrk úr
afrekssjóði Iþróttaráðs
- Ragnar Ólafsson golfleikari var
heiðraður fyrir sérstakt afrek
í FYRRADAG var veittur styrkur úr
afrekssjóði íþróttaráðs Reykjavíkur.
Alls var úthlutað 160 þúsund krón-
um úr sjóðnum að þessu sinni. Eftir
talin félög hlutu styrk að þessu
sinni:
KnatLspyrnufélagið Víkingur hlaut
40.000 krónur en félagið vann bæði
íslandsmeistaratitilinn í handknatt-
leik og knattspyrnu á síðasta ári.
KnatLspyrnufélagið Þróttur fékk
20.000 krónur vegna góðrar frammi-
stöðu handknattleiksliðs félagsins,
en liðið varð bikarmeistari og í öðru
sæti í deildarkeppninni. Þá tók liðið
þátt í Evrópukeppni og sigraði bæði
norsku og hollensku meistarana.
Hið unga íþróttafélag í Árbæ,
Fylkir, fékk 20.000 krónur en fé-
lagið varð Reykjavíkurmeistari í
knattspyrnu í fyrsta sinn á síðasta
ári. Þá náði félagið líka góðum ár-
angri í yngri flokkunum. Knatt-
spyrnufélag Reykjavíkur fékk
20.000 krónur fyrir frábær afrek
þeirra Guðrúnar Ingólfsdóttur í
kúluvarpi og kringlukasti og Sig-
urðar T. Sigurðssonar í stangar-
stökki. Brutu þau bæði blað í sögu
þessara íþróttagreina hérlendis á
síðasta ári. Guðrún kastaði fyrst
íslenskra kvenna yfir 50 metra í
kringlukasti og Sigurður stökk
fyrstur yfir fimm metra í stang-
arstökki.
Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur fékk 20.000 krónur í
styrk.
TBR er óumdeilanlega forystu-
félag á íslandi í badminton-
íþróttinni.
Það ruddi þessari skemmtilegu
íþróttagrein braut hérlendis og
hefur alla tíð staðið í fararbroddi.
Síðan 1970 hefur það unnið öll
íslandsmót. Sl. ár tók það í fyrsta
sinn þátt í Evrópukeppni félags-
liða og sigraði þar lið Frakklands
og Sviss en tapaöi naumlega fyrir
liði Belgíu.
Golfklúbbur Reykjavíkur fékk
20.000 krónur.
Golfklúbbur Reykjavíkur er
stærsti og þróttmesti golfklúbbur
landsins og hefur verið svo alla
tíð.
í landsliði því sem á sl. ári
keppti í Evrópumóti í Skotlandi og
mikla athygli vakti m.a. fyrir 4.
sæti Ragnars Ólafssonar voru 5 af
6 þátttakendum úr Golfklúbbi
Reykjavíkur.
Á sl. ári stóð Golfklúbburinn
fyrir Evrópumóti unglinga og
leysti það mikla verkefni svo vel
af hendi að til sóma var.
Ármann fékk krónur 10.000
vegna Árna Þ. Árnasonar sem er
besti skíðamaður Islands um þess-
ar mundir í alpagreinum.
Þá fékk lyftingadeild KR krónur
10.000 vegna góðra afreka Jóns
Páls Sigmarssonar í kraftlyfting-
um á síðasta ári en ekki þarf að
fjalla um afrek hans, svo oft hefur
það verið gert, en hann vann með-
al annars silfurverðlaun í kraft-
lyftingum á heimsmeistaramótinu
í Calcutta á Indlandi.
Ragnari Ólafssyni voru veitt
verðlaun fyrir sérstætt afrek. Var
það fagur verðlaunagripur.
Ragnar Ólafsson varð golf-
meistari Islands. Keppti á
Evrópumeistaramóti landsliða í
Skotlandi þar sem hann náði 4.
sæti einstaklinga. Var valinn í
úrvalslið Evrópu til keppni við úr-
valslið Suður-Ameríku. Lék tvo
einliðaleiki og vann annan. Stóð
sig einnig mjög vel í tvíliðaleik.
Frábær og óvæntur árangur.
Þá voru Valdimar Örnólfsson og
hjónin Jóakim Pálsson og Björg
Þorsteinsdóttir heiðruð vegna
framlags síns til þjálfunar og fé-
lagsmála.
Framlag Valdimars Órnólfsson-
ar til útbreiðslu íþrótta er orðið
mikið. Forusta hans við uppbygg-
ingu og rekstur Skíðaskólans í
Kerlingarfjöllum hefur án efa átt
mikinn þátt í þeim mikla áhuga
fyrir iðkun skíðaíþróttarinnar
sem nú fer yfir landið.
Morgunleikfimi hefur hann
stjórnað gegnum ríkisútvarpið.
Kennslu í íþróttum hefur hann
lengi haft með höndum í tveimur
virðulegustu menntastofnunum
landsins, Menntaskólanum í
Reykjavík og Háskóla Islands.
Hann er nú formaður íþrótta-
nefndar ríkisins. Valdimar var
landsþekktur íþróttamaður og
mjög fjölhæfur. Þó hann sé hætt-
ur íþróttakeppni stundar hann
daglega íþróttaæfingar og er því
góð fyrirmynd allra fyrrverandi
keppnismanna.
Hjónin Jóakim Pálsson og Björg
Þorsteinsdóttir hafa um áraraðir
verið óbrigðulir starfsmenn á öll-
um frjálsíþróttamótum sem hald-
in hafa verið í Reykjavík. Það get-
ur oft verið erfitt að fá svo marga
starfsmenn, til að vinna við frjáls-
íþróttamót, sem þörf er á og er
framlag þeirra hjóna því mjög
mikilsvert.
Þrír voru heiðraðir fyrir gott
fordæmi við iðkun almennings-
íþrótta sér til heilsubótar og
ánægju: þeir Konráð Gíslason, Ás-
geir Ásgeirsson og Davíð Ólafs-
son.
KONRÁÐ GÍSLASON
Allt frá opnun Sundhallar
Reykjavíkur árið 1937 hefur Kon-
ráð Gíslason verið þar fastur
morgungestur.
Það er álit manna að enginn
hafi oftar heimsótt Sundhöllina
en Konráð Gíslason.
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Ásgeir Ásgeirsson hefur í a.m.k.
áratug notað sinn matartíma til
að heimsækja Melavöllinn og
skokka þar og í nágrenninu sér til
heilsubótar. Skiptir það ekki máli
hvernig veður er þann og þann
dag. Er þetta mjög til eftirbreytni.
DAVÍÐ ÓLAFSSON
Davíð Ólafsson hefur um ára-
tuga skeið stundað skíða- og
gönguferðir og verið þar öðrum
góð fyrirmynd.
Undir hans stjórn hefur Ferða-
félag íslands, en hann er formaður
þess, tekið upp gönguferðir á skíð-
um sem fastan lið í starfsemi fé-
lagsins og með þeim hætti mjög
stuðlað að útbreiðslu skíðaferða.
— ÞR.