Morgunblaðið - 20.02.1982, Síða 47

Morgunblaðið - 20.02.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1982 47 4 Islend- ingar keppa á HM í norrænum greinum KJÓRIR íslendingar eru meðal Tjölda keppenda á heimsmeistara- mótinu í Norrænum greinum á skíð- um sem fram fer við Holmenkollen í Noregi um þessar mundir. íslend- ingarnir eru Magnús Eiríksson frá Niglufirði, Einar Ólafsson frá fsa- firði og þeir Haukur Sigurðsson og Jón Konráðsson frá Ólafsvík. Þeir keppa allir í 15 km, 30 km og boð- göngu. Þjálfari íslendinganna er Göngugarpurinn Haukur Sigurðsson. Björn Þór Ólafsson. Nánar verður greint frá úrslitum á mótinu í þriðju- dagsblaðinu. Tveir leikir í úrvals- deildinni um helgina TVEIR leikir fara fram í úrvals- deildinni í körtuknattleik um helgina, einn í dag og annar á morgun. Valur og UMFN eigast við í Hagaskólanum í dag og hefst leikurinn klukkan 14.00. A morg- un, á sama stað og tíma, leika síð- an KR og ÍR. Leikir þessir hafa einkum gildi fyrir Val og KR, sem eiga möguleika á því að hreppa 2. sætið í deildinni. Ekkert nema kraftaverk, eða eitthvað þvíum- líkt, getur hins vegar komið í veg fyrir að UMFN verði íslands- meistari annað árið í röð. Fylgjast með Pétri BANDARÍSKA körfuknattleiksliðið l’ortland Trailblazers, sem Pétur Guðmundsson leikur með í NBA- deildinni, leikur tvo leiki í New York dagana 26. og 27. febrúar. Mótherjarnir eru New Jersey Nets og New York Knix. Pétur verður ekki í slæmum félagsskap, því hópur íslendinga ætlar að fara utan gagn- gert til þess að horfa á Pétur leika listir sínar. „í mínum huga er þessi ferð úr sögunni" - segir Friðjón Friðjónsson gjaldkeri KSÍ „NEI, ÞAÐ hefur ekkert gerst í málinu, það er í biðstöðu eins og er, óþægilegri biðstöðu,“ sagði Friðjón Friðjónsson stjórnarmaður hjá KSÍ í samtali við Morgunblað- ið í gær, en KSÍ hafði þá nýlega haldið fund um þá óvæntu stöðu sem upp kom í sambandi við fyrir hugaða ferð íslenska landsliðsins í knattspyrnu til arabalandanna, en eins og Mbl. skýrði frá fyrir skömmu drógu Kuwait og Qatar heimboð sín til baka, án þess að gefa nokkrar skýringar. Mbl. spurði Friðjón hvort að menn, héldu enn í einhverjar vonir að úr ferðinni suður eftir gæti orðið, þrátt fyrir allt. „I mínum huga er ferð þessi afskrifuð, enda mjög knappur tími til stefnu, til stóð að fara útan á fimmtudaginn í næstu viku. Við höfum á hinn bóginn sent út línu og óskað eftir skýr- ingum frá Kuwait- og Qatar- mönnum. Vonandi heyrum við frá þeim um helgina, ekki þó að það komi til með að breyta neinu.“ Einhversstaðar kom fram, að KNÍ væri að íhuga landsleiki við Egypta í staðinn fyrir umrædda landsleiki sem nú eru úr sögunni? „Við ræddum ekkert slíkt á fundi okkar og ég held að allt tal um slíka iandsleiki sé ekkert annað en draumórar," sagði Friðjón að lokum. - gg- Cunningham undir hnífinn í fjórða sinn • Allt hefur gengið Laurie Cunn- ingham í óhag síðan hann gekk til liðs við Real Madrid. Knallspyrna 1 ÞAÐ Á ekki af Laurie Cunningham, eða Nvörtu perlunni eins og hann var kallaður hér áður, að ganga, en ný- lega gekkst hann undir skurðaðgerð númer fjögur síðan hann gekk til liðs við spænska liðið Real Madrid fyrir þremur árum. Skurðaðgerðin kom öllum á óvart, ekki síst læknaliðinu hjá Real Madrid sem hafði lýst því yf- ir að „Perlan" væri loksins orðin jafn góð á ný eftir þriðja upp- skurðinn á hnénu erfiða. Allt virt- ist ganga í haginn og var búið að velja hann sem varamann hjá Real fyrir deildarleik gegn Cast- eilon fyrir skömmu. Leikið er á sunnudögum á Spáni, en á föstu- deginum fór Cunningham að finna til eymsla í hnénu „góða“. Var hann þegar í stað lagður undir hnífa skurðlæknanna og gera allir sér góðar vonir um fremur skjótan bata kappans. Hefur hann tekið stefnuna á upphaf næsta mánað- ar. Tveir dóu TVEIR dóu á leik Barcelona og Osasuna nýlega, annar fékk hjarta- slag í stúkunni, en hinn hrapaði í nýbyggingu í sömu stúku, ætlaði að finna sér betri útsýnisstað. Við hjá Heimilistækjum hf höfum aldrei boðið ódýrari heimilistæki en einmitt núna! Vegna tollalækkana, sem nýlega tóku gildi, lækkaði útsöluverð nokkurra gerða heimilistækja mjög verulega. Við hjá Heimilistækjum hf. erum reyndar ekki í nokkrum vafa um að verðið er hagstæðara en nokkru sinni fyrr. Þessvegna ætlum við að nefna nokkur dæmi: Philco þvottavélar: Verð frá kr. 6.129.- Philips uppþvottavélar: Verð frá kr. 8.458.- Kannaðu málið! Philips og Philco kæliskápar: Verð frá kr. 3.806.- Philips brauðristar: Verð frá kr. 429.- PS. Tollur á eldavélum lækkaði Philco þurrkarar: Verð frá kr. 5.235.- Philips hrærivélar: Verð frá kr. 1.926.- ekki, en samt kosta Philips h&ÍmílÍStr¥*k Í hf Philips og Caravell frystikistur: Verð frá kr. 5.998.- Philips ryksugur: Verð frá kr. 1.772.- eldavélar aðeins frá kr. 3.486.- IJnarstoct?™ 2Msfli3?8 - isels

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.