Morgunblaðið - 28.03.1982, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.03.1982, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. MARZ 1982 llndirbúinn veggurinn þar sem altaristaflan úr mosaik á að koma. Gn mosaik- myndgerð er gömul listgrein í Evrópu. Altarístafla úr mosaik eftir Asgrún Kirkjur á íslandi eru misjafn- lega vel búnar myndverkum, þótt þar sé margan fagran grip að finna. Nú virðist mjög vaxandi áhugi á því að búa kirkjur steindum gluggum, mosaikmyndum og öðrum listmunum eftir listamenn okkar. Um þessar mundir er hér staddur með menn sína Fritz Oidtmann, annar eig- andi hins virta listaverkaverkstæðis með sama nafni í Þýzkalandi, en Oidt- mannsbræður hafa á undanförnum áratugum unnið slík listaverk fyrir ís- lenzkar kirkjur, svo sem mosaikmynd Nínu og steinda glugga Gerðar í Skál- holtskirkju og mosaikmynd Gerðar á Tollstöðinni, svo eitthvað sé nefnt. í þetta sinn er Fritz Oidtmann kom- inn með menn sína til að koma fyrir í Grindavíkurkirkju stórri mosaik- mynd, sem þeir hafa unnið eftir hinni gömlu altaristöflu Ásgríms Jónsson- ar, listmálara. Að því loknu munu þeir halda austur í Þykkvabæ til að koma fyrir í kirkjunni 7 steindum gluggum eftir Benedikt Gunnarsson, listmál- ara, en þeir eru á leið til landsins. Einnig koma þá með hlutar úr glugg- um eftir Gerði til viðgerða á 5 steind- um gluggum í Skálholti, sem urðu fyrir skemmdum fyrir nokkrum árum. í sendingunni eru líka nokkrir steind- ir gluggar eftir Höllu Haraldsdóttur, listmálara, sem hún vann í Linnich. Einn af steindu gluggunum, sera llalla Harakis- dóttir vann ný- lega á verksbeði Oidtmanns í ÞýzkalandL í Grindavik er ný kirkja, með safnaðarheimili sem Ragnar Emilsson arkitekt hefur teiknað og ætlunin er að vígja næsta haust. I gömlu kirkjunni var alt- aristaflan olíumálverk eftir Ás- grím Jónsson, sem sóknarbörnun- um þótti mjög vænt um. Heitir myndin „Jesús lægir öldurnar" og á eðlilega mjög vel við í þessu sjávarplássi. En myndin var of lít- il fyrir altaristöflu í nýju kirkj- una, aðeins einn fermetri, og því var tekið það ráð að láta vinna hjá Oidtmanns í Linnich stóra mosaikmynd eftir henni. Hún er 18Vfe fermetri. Voru Þóðverjar að vinna að henni í vikunni — á gólf- inu þegar myndirnar voru teknar — og bjuggust við að ljúka því um helgina. Kirkjugluggar Benedikts í Þykkvabæ Kirkjan í Þykkvabænum var vígð fyrir nokkrum árum. Hún er einnig teiknuð af Ragnari Emils- syni, arkitekt. Hefur Kvenfélagið á staðnum nú gengizt fyrir því að fá steinda kirkjuglugga á norður- vegg. Var Benedikt Gunnarsson, listmálari, fenginn til að gera þar 7 glugga, sem framleiddir eru í Þýzkalandi. Hefur hver gluggi ákveðið viðfangsefni. Sá fyrsti er úr upphafi Biblí- unnar, úr Mósebók, þar sem segir: Verði ljós! Eru gluggarnir á leið- inni til landsins með skipi og verða settir í nú í næstu viku. Benedikt, sem hefur unnið steind listaverk í glugga víðar, m.a. í Keflavíkurkirkju, hefur í hyggju að efna til sýningar á slíkum verk- um sínum, og jafnvel að stækka nýju gluggana í Þykkvabæjar- kirkju fyrir þá sýningu. Ýmsir íslenzkir listamenn hafa á undanförnum áratugum fengið verk sín unnin í verkstæðinu í Linnich. Nú síðast hefur tvisvar sinnum dvalið þar Halla Har- aldsdóttir, listmálari, og unnið þar við gerð steindra glugga. í fyrra sinnið var hún aðallega að kynna sér og læra þessa gömlu listgrein, að gera kirkjuglugga í blý. En í seinna "Skiptið vann hún þar með starfsfólki að 11 steind- um gluggum sínum, sem sumir seldust strax í Þýzkalandi. Og hún á tvær myndir í nýútkominni listaverkabók þar. Hún hefur gert tillögur að 7 gluggum í Njarðvík- urkirkju, en ekki er þó búið að ÞAÐ HEFUR ÖRUGGLEGA EKKIFARIÐ FRAMHJÁ NEINUM SEM ÆTU AÐEINS ÞAÐ BESTA - ÍBÚÐAGISTING Á SJÁLFRI MAGALUF-STRÖNDINN ÚRVALS-ferðir eru oft á tíðum uppseldar fram í tímann, er því viðskip vinum ráðlagt að panta eins snemma og mögulegt er, þannig að trygg að þeir geti ferðast þegar þeim hentarog notið bestu gistingar sem völ <

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.