Morgunblaðið - 07.04.1982, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR
77. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ótti við afeögn Thatchers
veldur hruni verðbréfa
íbúar Falklandseyja á gangi meðal
landgöngudreka Argentínumanna í
Port Stanley. Að sögn Argentínu-
manna er líf að færast í eðlilegt horf
á eyjunum, en fregnir herma að stöð-
ugir liðsflutningar Argentínumanna
til eyjanna eigi sér nú stað, á sama
tíma og fjölmennur floti brezkra
herskipa stefnir til Falklands.
Simamjnd AP.
London, 6. apríl. AP.
MARGARETT Thatcher forsætisráð-
herra margítrekaði að hún mundi
ekki segja af sér vegna töku Falk-
landseyja, en ótti við afsögn ráðherr-
ans leiddi til verðhruns á verðbréfum
i kauphöllinni í London, pundið féll
og hefur ekki verið lægra gagnvart
dollar í flmm ár, og gullúnsan hækk-
aði um 10 dollara vegna Falklands-
eyjadeilunnar. Thatcher neitaði að
verða við kröfum stjórnarandstöðunn-
ar að segja af sér, og sagði við umræð-
ur í þinginu, að nú þyrftu Bretar á
viðnámsþreki og viljaþrótti að halda.
Verðbréf féllu í verði um þrjá
milljarða punda vegna mikillar
sölu, og sögðu sérfræðingar seljend-
ur hafa óttast að Thatcher neyddist
til að segja af sér, og stefna hennar
í efnahagsmálum mundi þar með
líða undir lok. Verðbréfasalan væri
því á sinn hátt traustsyfirlýsing við
Thatcher.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gerðu harða hríð að Thatcher, og
sökuðu stjórn hennar um að van-
meta Ieynilegar upplýsingar, sem
borizt hefðu um miðjan marz, um
fyrirhugaðar aðgerðir Argentínu-
manna á Falklandseyjum. Thatcher
sagði stjórn sína ekki hafa haft
hugmynd um áform Argentínu-
manna fyrr en sl. miðvikudag. Bæði
Times og Daily Telegraph segja í
dag, að yfirvöld í London hefðu
fengið vitneskju um innrásina í síð-
ustu viku marz, „en samt kosið að
aðhafast ekkert".
Brezka stjórnin hefur leigt
„hluta" tankskipa BP til þess að
fylgja flotanum, sem sigldi í gær til
þess að reyna að ná Falklandseyj-
um úr höndum Argentínumanna.
BP á 45 tankskip. Jafnframt verður
hald lagt „á býsna mörg" kaupskip
til þess að flytja hermenn, þunga-
vopn og aðrar birgðir til Falklands-
eyja, að sögn formælanda varnar-
málaráðuneytisins. Auk farþega-
skipsins „Canberra", hefur verið
lagt hald á flutningaskipið „Elk“,
sem er vel til þess fallið að flytja
skriðdreka og herflutningabifreiðir,
og dráttarbátinn „Salvageman",
sem er einn öflugasti dráttarbátur
heims. Einnig hefur verið lagt hald
á fjórar Boeing 747-þotur British
Airways til liðsflutninga.
„Canberra" verður notuð til
flutninga til Ascension-eyju, en tal-
ið er að Bretar ætli að nota Ascen-
sion sem stökkpall fyrir frekari
hernaðaraðgerðir á Falklandseyj-
um, til þess að styðja landgöngu-
sveitirnar, sem eru um borð i flot-
anum, sem lagði upp í gær. Hermt
er að úrvalssveitir fallhlífarher-
manna hafi þegar verið fluttar
þangað.
Argentínumenn hétu því í dag, að
þeir myndu verjast á Falklandseyj-
um, „hvað sem það kostaði", og
héldu miklir liðs- og vopnaflutn-
ingar áfram til eyjanna frá megin-
landinu. Hermenn eru teknir til við
að grafa sér skotgrafir og reisa
varnarvirki.
Að sögn „The Sun“ óttast brezkir
knattspyrnuleiðtogar að stjórnin
krefjist þess að Englendingar,
Skotar og Norður-írar dragi sig út
úr úrslitakeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu á Spáni í
sumar, vegna hernáms Argentínu-
manna á Falklandseyjum. Brezkir
íþróttamenn tóku þátt í Ólympíu-
leikunum í Moskvu gegn vilja ríkis-
stjórnarinnar, en knattspyrnu-
leiðtogar segjast ekki geta stungið
höfðinu í sandinn og beitt sömu
rökum og íþróttaforystan hefði þá
gert.
Bandaríkjamenn greiða
fyrir samningaviðræðum
Brezka herskipið „Fearleas** lagði af atað áleiðis til Falklandseyja í gær-
morgun. í kjölfar skipsins sigla þrír landgönguprammar, sem síðar voru
teknir um borð í „Fearless“. Skipið sigldi frá Portsmouth. símamvnd ap.
Wa-shinglon, 6. apríl. AP.
FYRIR tilstilli Bandaríkjastjórnar hóf-
ust i dag tilraunir háttsettra manna til
þess að greiða fvrir hugsanlegum við-
ræðum Argentínumanna og Breta til
lausnar Falklandseyjadeilunni. Alex-
ander llaig utanríkisráðherra ræddi i
Washington við sendiherra ríkjanna
beggja, í sínu lagi hvorn, og einnig við
Nicanor Costa Mendez, utanríkisráð-
herra Argentínu. Brezka stjórnin fagn-
aöi öllu frumkvæði af hálfu Banda-
ríkjamanna til lausnar deilunni um
Falklandsevjar.
Nánir samstarfsmenn Haigs
sögðu að ekki bæri að líta á viðræður
hans við fulltrúa ríkjanna sem upp-
haf málamiðlunar í deilu Argentínu-
manna og Breta. Talsmaður varn-
armálaráðuneytisins sagði Banda-
ríkjamenn ætla að sigla milli skers
og báru í deilunni, og hvorugum að-
ila leggja lið.
Mikil samstaða er hins vegar með
Bretum í ríkjum EBE og samveldis-
löndum, sem flest hver hafa gripið
til einhverra aðgerða gegn Argent-
Atvinnulausum fjölgar
um 300.000 í Póllandi
Varsjá, 6. apríl. AP.
ATVINNULAUSUM mun fjölga um 300 þúsund á þessu ári í Póllandi, þrátt
fyrir tilraunir herstjórnarinnar til að bæta úr hráefnaskorti og orkuskorti, sem
neytt hefur fjölmargar verksmiðjur til að loka, að sögn blaðsins Zycie Warszaw.
Að sögn blaðsins kemur atvinnu- ( pólsk sendinefnd undirritaði sam-
leysið þó ekki aðeins til með að
bitna á iðnaðarverkamönnum, bú-
ast megi við samdrætti í öðrum
greinum atvinnulífsins, svo sem í
ýmsum greinum þjónustu.
Því var fagnað í dag í Varsjá er
komulag við rúmlega 500 banka á
Vesturlöndum, er veitir Pólverjum
fjögurra ára frest til að greiða
tæplega 2,4 milljarða dollara skuld-
ir, sem féllu í gjalddaga í fyrra.
I sameiginlegri yfirlýsingu, sem
ínumönnum. Fyrirtæki í Austurríki
hafa hætt framleiðslu skriðdreka og
annarra hergagna t.il Argentínu-
manna. Páll páfi lét í ljós áhyggjur
vegna deilunnar, en Tass-fréttastof-
an kenndi Bretum um klúður og gaf
í skyn stuðning við Argentínumenn í
deilunni. Stjórnin í E1 Salvador lýsti
stuðningi við Argentínumenn.
gefin var út í Varsjá og Prag í kjöl-
far heimsóknar Jaruzelskis, segir,
að leiðtogar landanna hafi ákveðið
að vinna að meiri samvinnu og auk-
inni samræmingu á sviði efna-
hagsmála. Talið er m.a. að Pólverj-
ar framleiði ýmsar vörur fyrir
Tékka, gegn því að fá frá Tékkum
ýms nauðsynleg hráefni, sem skort-
ur er á í Póllandi.
Ný tilfelli
gin- og
klaufaveiki
Kaupmannahöfn, 6. apríl. AP.
TVEIMUR nautgripahjörðum var
eytt á Fjóni í dag, eftir að ný til-
felli gin- og klaufaveiki fundust á
eynni. Hefur þá 3.365 svínum og
nautgripum verið eytt frá því veik-
innar varð fyrst vart 18. marz sl.
Hjarðirnar tvær, sem höfðu
sýkt dýr að geyma, voru á sama
svæði og fyrri tilfelli fundust á.
Samtals var 252 dýrum lógað í
dag. í sumum dýranna var sýk-
ingin á háu stigi, og vantaði t.d.
alveg tunguna í eitt þeirra.
Gripið var til mikilla varúð-
arráðstafana á Fjóni eftir að
gin- og klaufaveikin kom þar
upp í marz. Svæðið, sem veikin
fannst á, var einangrað, og fólk
hefur verið hvatt til þess að
fækka ferðum sínar til eyjarinn-
ar. Danir hafa beðið mikið efna-
hagslegt tjón af völdum veikinn-
ar, þar sem ýms helztu við-
skiptaríki þeirra gripu til inn-
flutningsbanns á danskar land-
búnaðarvörur.