Morgunblaðið - 07.04.1982, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.04.1982, Qupperneq 1
48 SÍÐUR 77. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Ótti við afeögn Thatchers veldur hruni verðbréfa íbúar Falklandseyja á gangi meðal landgöngudreka Argentínumanna í Port Stanley. Að sögn Argentínu- manna er líf að færast í eðlilegt horf á eyjunum, en fregnir herma að stöð- ugir liðsflutningar Argentínumanna til eyjanna eigi sér nú stað, á sama tíma og fjölmennur floti brezkra herskipa stefnir til Falklands. Simamjnd AP. London, 6. apríl. AP. MARGARETT Thatcher forsætisráð- herra margítrekaði að hún mundi ekki segja af sér vegna töku Falk- landseyja, en ótti við afsögn ráðherr- ans leiddi til verðhruns á verðbréfum i kauphöllinni í London, pundið féll og hefur ekki verið lægra gagnvart dollar í flmm ár, og gullúnsan hækk- aði um 10 dollara vegna Falklands- eyjadeilunnar. Thatcher neitaði að verða við kröfum stjórnarandstöðunn- ar að segja af sér, og sagði við umræð- ur í þinginu, að nú þyrftu Bretar á viðnámsþreki og viljaþrótti að halda. Verðbréf féllu í verði um þrjá milljarða punda vegna mikillar sölu, og sögðu sérfræðingar seljend- ur hafa óttast að Thatcher neyddist til að segja af sér, og stefna hennar í efnahagsmálum mundi þar með líða undir lok. Verðbréfasalan væri því á sinn hátt traustsyfirlýsing við Thatcher. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gerðu harða hríð að Thatcher, og sökuðu stjórn hennar um að van- meta Ieynilegar upplýsingar, sem borizt hefðu um miðjan marz, um fyrirhugaðar aðgerðir Argentínu- manna á Falklandseyjum. Thatcher sagði stjórn sína ekki hafa haft hugmynd um áform Argentínu- manna fyrr en sl. miðvikudag. Bæði Times og Daily Telegraph segja í dag, að yfirvöld í London hefðu fengið vitneskju um innrásina í síð- ustu viku marz, „en samt kosið að aðhafast ekkert". Brezka stjórnin hefur leigt „hluta" tankskipa BP til þess að fylgja flotanum, sem sigldi í gær til þess að reyna að ná Falklandseyj- um úr höndum Argentínumanna. BP á 45 tankskip. Jafnframt verður hald lagt „á býsna mörg" kaupskip til þess að flytja hermenn, þunga- vopn og aðrar birgðir til Falklands- eyja, að sögn formælanda varnar- málaráðuneytisins. Auk farþega- skipsins „Canberra", hefur verið lagt hald á flutningaskipið „Elk“, sem er vel til þess fallið að flytja skriðdreka og herflutningabifreiðir, og dráttarbátinn „Salvageman", sem er einn öflugasti dráttarbátur heims. Einnig hefur verið lagt hald á fjórar Boeing 747-þotur British Airways til liðsflutninga. „Canberra" verður notuð til flutninga til Ascension-eyju, en tal- ið er að Bretar ætli að nota Ascen- sion sem stökkpall fyrir frekari hernaðaraðgerðir á Falklandseyj- um, til þess að styðja landgöngu- sveitirnar, sem eru um borð i flot- anum, sem lagði upp í gær. Hermt er að úrvalssveitir fallhlífarher- manna hafi þegar verið fluttar þangað. Argentínumenn hétu því í dag, að þeir myndu verjast á Falklandseyj- um, „hvað sem það kostaði", og héldu miklir liðs- og vopnaflutn- ingar áfram til eyjanna frá megin- landinu. Hermenn eru teknir til við að grafa sér skotgrafir og reisa varnarvirki. Að sögn „The Sun“ óttast brezkir knattspyrnuleiðtogar að stjórnin krefjist þess að Englendingar, Skotar og Norður-írar dragi sig út úr úrslitakeppni heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu á Spáni í sumar, vegna hernáms Argentínu- manna á Falklandseyjum. Brezkir íþróttamenn tóku þátt í Ólympíu- leikunum í Moskvu gegn vilja ríkis- stjórnarinnar, en knattspyrnu- leiðtogar segjast ekki geta stungið höfðinu í sandinn og beitt sömu rökum og íþróttaforystan hefði þá gert. Bandaríkjamenn greiða fyrir samningaviðræðum Brezka herskipið „Fearleas** lagði af atað áleiðis til Falklandseyja í gær- morgun. í kjölfar skipsins sigla þrír landgönguprammar, sem síðar voru teknir um borð í „Fearless“. Skipið sigldi frá Portsmouth. símamvnd ap. Wa-shinglon, 6. apríl. AP. FYRIR tilstilli Bandaríkjastjórnar hóf- ust i dag tilraunir háttsettra manna til þess að greiða fvrir hugsanlegum við- ræðum Argentínumanna og Breta til lausnar Falklandseyjadeilunni. Alex- ander llaig utanríkisráðherra ræddi i Washington við sendiherra ríkjanna beggja, í sínu lagi hvorn, og einnig við Nicanor Costa Mendez, utanríkisráð- herra Argentínu. Brezka stjórnin fagn- aöi öllu frumkvæði af hálfu Banda- ríkjamanna til lausnar deilunni um Falklandsevjar. Nánir samstarfsmenn Haigs sögðu að ekki bæri að líta á viðræður hans við fulltrúa ríkjanna sem upp- haf málamiðlunar í deilu Argentínu- manna og Breta. Talsmaður varn- armálaráðuneytisins sagði Banda- ríkjamenn ætla að sigla milli skers og báru í deilunni, og hvorugum að- ila leggja lið. Mikil samstaða er hins vegar með Bretum í ríkjum EBE og samveldis- löndum, sem flest hver hafa gripið til einhverra aðgerða gegn Argent- Atvinnulausum fjölgar um 300.000 í Póllandi Varsjá, 6. apríl. AP. ATVINNULAUSUM mun fjölga um 300 þúsund á þessu ári í Póllandi, þrátt fyrir tilraunir herstjórnarinnar til að bæta úr hráefnaskorti og orkuskorti, sem neytt hefur fjölmargar verksmiðjur til að loka, að sögn blaðsins Zycie Warszaw. Að sögn blaðsins kemur atvinnu- ( pólsk sendinefnd undirritaði sam- leysið þó ekki aðeins til með að bitna á iðnaðarverkamönnum, bú- ast megi við samdrætti í öðrum greinum atvinnulífsins, svo sem í ýmsum greinum þjónustu. Því var fagnað í dag í Varsjá er komulag við rúmlega 500 banka á Vesturlöndum, er veitir Pólverjum fjögurra ára frest til að greiða tæplega 2,4 milljarða dollara skuld- ir, sem féllu í gjalddaga í fyrra. I sameiginlegri yfirlýsingu, sem ínumönnum. Fyrirtæki í Austurríki hafa hætt framleiðslu skriðdreka og annarra hergagna t.il Argentínu- manna. Páll páfi lét í ljós áhyggjur vegna deilunnar, en Tass-fréttastof- an kenndi Bretum um klúður og gaf í skyn stuðning við Argentínumenn í deilunni. Stjórnin í E1 Salvador lýsti stuðningi við Argentínumenn. gefin var út í Varsjá og Prag í kjöl- far heimsóknar Jaruzelskis, segir, að leiðtogar landanna hafi ákveðið að vinna að meiri samvinnu og auk- inni samræmingu á sviði efna- hagsmála. Talið er m.a. að Pólverj- ar framleiði ýmsar vörur fyrir Tékka, gegn því að fá frá Tékkum ýms nauðsynleg hráefni, sem skort- ur er á í Póllandi. Ný tilfelli gin- og klaufaveiki Kaupmannahöfn, 6. apríl. AP. TVEIMUR nautgripahjörðum var eytt á Fjóni í dag, eftir að ný til- felli gin- og klaufaveiki fundust á eynni. Hefur þá 3.365 svínum og nautgripum verið eytt frá því veik- innar varð fyrst vart 18. marz sl. Hjarðirnar tvær, sem höfðu sýkt dýr að geyma, voru á sama svæði og fyrri tilfelli fundust á. Samtals var 252 dýrum lógað í dag. í sumum dýranna var sýk- ingin á háu stigi, og vantaði t.d. alveg tunguna í eitt þeirra. Gripið var til mikilla varúð- arráðstafana á Fjóni eftir að gin- og klaufaveikin kom þar upp í marz. Svæðið, sem veikin fannst á, var einangrað, og fólk hefur verið hvatt til þess að fækka ferðum sínar til eyjarinn- ar. Danir hafa beðið mikið efna- hagslegt tjón af völdum veikinn- ar, þar sem ýms helztu við- skiptaríki þeirra gripu til inn- flutningsbanns á danskar land- búnaðarvörur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.