Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
17
Stjarnan leikur í 1. deild í fyrsta skipti:
„Stjarnan á hiklaust
erindi í 1. deildina“
segir Gunnar Einarsson þjálfari og leikmaöur liðsins
• Magnús Andrésson fyrirliði.
með var stefnan sett á 1. deild.
Það kom okkur síðan ákaflega
mikið til góða hversu jöfn liðin
reyndust og Gunnar Einarsson,
þjálfari liðsins, stóð vel fyrir sínu,
hélt hópnum vel saman. Og hann
byggði á góðum grunni, því í vetur
skilaði sér einnig starf sem aðrir
unnu á undan honum, til dæmis
þeir Sigurður Einarsson og Viðar
Símonarson."
En kom aldrei upp sú staða að
vegna reynsluleysis og vegna þess
hvað í húfi var að taugarnar vildu
bresta?
„Þegar við vorum búnir að
vinna tvo fyrstu leikina í Eyjum
vorum við komnir með mikið
sjálfstraust og eins og allt þróað-
ist voru möguleikar okkar svo
miklir undir lokin að sú staða kom
varla upp. Miklu frekar þjöppuð-
um við okkur saman og tókum
stefnuna á sjálfan titilinn þegar
möguleiki á honum skaut upp koll-
inum. Persónulega lagði ég mikið
upp úr því að vinna deildina og
þegar það tókst var ánægjan tvö-
föld,“ sagði Magnús og að lokum.
— gg-
• Hér að ofan má sjá lið Stjörnunnar úr Garðabæ, sem sigraði i 2. deildarkeppninni í handknattleik og flyst í 1. deild í
fyrsta skiptið í sögu félagsins, sem reyndar er ekki löng. Nöfn þeirra eru, aftari röð f.v.: Einar vatnsberi, Guðjón
Friðriksson, Magnús Andrésson fyrirliði, Eggert ísdal, Guðmundur Óskarsson, Hilmar Ragnarsson, Gunnlaugur Jónsson,
Eyjólfur Bragason, Gunnar Einarsson þjálfari og Guðmundur Jónsson formaður handknattleiksdeildar. Aftari röð f.v.:
Sigmar Jónsson, Viðar Símonarson, Ómar Karlsson, Birkir Sveinsson, Magnús Teitsson og Örn Einarsson.
Ljósm. Júlíus.
EINS og frá hefur verið greint í Mbl.
lauk 2. deildar keppninni í hand-
knattleik fyrir nokkru og var Stjarn-
an úr Garðabae þar fremur óvæntur
sigurvegari. Með því að sigra Hauka
mjög frækilega með þriggja marka
mun suður í Hafnarfirði í síðasta
leik deildarinnar fékk liðið einu
stigi meira en ÍR, sem hafnaði í öðru
sæti og verður samferða Stjörnunni
upp i 1. deild. ÍR-ingar vita hvað I.
deildin er, en árangur Stjörnunnar
er talsvert athyglisverðari, því á síð-
asta keppnistímabili lék liðið í 3.
deild. Og aldrei áður hefur þetta
kornunga íþróttafélag átt lið í neinni
1. deild í knattíþróttum. Mbl. ræddi
aðeins við Magnús Andrésson, fyrir-
liða liðsins, en hann hefur árum
saman verið i eldlínunni. Mbl. lagði
fyrst fyrir Magnús hvernig það legð-
ist í hann að leika í I. deild eftir öll
þessi ár í 2. og 3. deild.
„Það leggst alls ekki illa á mig,
en við gerum okkur grein fyrir því
að róðurinn verður mjög þungur,
en við munum æfa stíft og sam-
viskusamlega berjast fyrir sætinu
í deildinni. Óhætt er að segja að
við munum gera okkur ángæða
með það fyrst og fremst að halda
sætinu og við munum stefna að
því.“
En er liðið þess megnugt að
spreyta sig í 1. deild?
„Við erum með hóp leikmanna
sem hefur leikið saman í 6—8 ár
og erum að því leyti vel settir. Við
vorum jafnasta lið 2. deildarinnar
og samæfingin innan hópsins var
að nokkru leyti á bak við það. En
það þarf örugglega að styrkja liðið
og það kemur til með að styrkjast
þar sem við reiknum með því að
fyrri leikmenn Stjörnunnar sem
leika og æfa með öðrum félögum
muni skila sér.“
Hverju þakkið þið árangurinn?
„í haust þegar keppnistímabilið
hófst vissum við alls ekki hvar við
stóðum gagnvart hinum liðunum,
nýkomnir upp úr 3. deild. Við
reiknuðum með deildinni sterkari
en hún reyndist vera, reiknuðum
við með því að lið eins og Haukar
og Fylkir, með sína 1. deildar
reynslu myndu skera sig úr og
skipa sér í efstu sætin. En þegar
mótið hófst kom í ljós að þessi lið
höfðu vanmetið stöðuna og þau
féllu á því. Tveir fyrstu leikir
okkar voru gegn Vestmannaeyja-
liðunum úti í Eyjum, en það er
alltaf afar erfitt að sækja þau lið
heim. Engu að síður náðum við
góðum leikjum og unnum örugg-
lega. Það má segja að þá höfum
við gert okkur grein fyrir því að
við áttum jafn mikla möguleika og
hvert annað lið í deildinni og þar
GUNNAR Einarsson þjálfaði Stjörn-
una, jafnframt því sem hann lék
nokkra leiki framan af mótinu, eða
allt þar til hann varð fyrir slæmum
meiðslum og fór í uppskurð á hné.
Gunnar er þrautreyndur handknatt-
leiksmaður, lék áður með FH, Göpp-
ingen og íslenska landsliðinu. Mbl.
spurði Gunnar um framhaldið, hvort
hann verði áfram þjálfari liðsins.
„Það er óvíst á þessu stigi,
hreinlega vegna þess að ég hef
ekki gert það upp við mig. Ég
starfa sem íþróttafulltrúi í Garða-
bænum og það er erilsamt. Að
þjálfa og leika í 1. deild myndi
þýða að vera bundinn nánast á
hverju kvöldi. En það verður fund-
ur með leikmönnum fljótlega þar
sem þessi mál verða rædd. En fari
svo að ég sjái áfram um liðið, mun
ég einnig leika með. Ég er orðinn
góður af meiðslunum, meira að
segja betri en ég var áður en allt
slitnaði."
Hvert var markmiðið hjá ykkur
þegar vertíðin hófst síðasta haust?
„Við vorum nýkomnir upp úr 3.
deild og þegar keppnin hófst setti
ég það markmið að halda sætinu í
deildinni, það var raunhæft
markmið þá. Um áramótin breytti
ég markmiðinu, eftir það stefnd-
um við fast og ákveðið á toppinn,
því það kom í ljós að við vorum
betur undir mótið búnir en hin lið-
in og það sást best á því að við
unnum flesta okkar leiki á síðustu
tíu mínútum hvers þeirra, vorum
hreinlega í betra líkamlegu ásig-
komulagi, enda æfðum við mjög
vel allt frá 1. júní."
En hvernig leggst 1. deildin í þig?
„Stjarnan á sannarlega erindi í
deildina, en veturinn verður vafa-
laust erfiður. Ég tel þó að hægt sé
að ná 30—40 prósent meiru út úr
liðinu en náðist á þessu keppnis-
tímabili og strákarnir hafa sýnt
að þeir hafa áhuga og getu til að
gera vel. Nei, við erum ekki
hræddir við 1. deildina."
Hvernig verður undirbúningnum
háttað fyrir næsta keppnistímabil?
„Ja, ef ég verð þjálfari þá er það
• Gunnar Einarsson þjálfari.
fullmótað. Æfingar munu hefjast
1. júlí, það reyndar heldur seinna
en í fyrra, en á móti kemur að æft
verður daglega. Síðan verður
stefnt að því að fara til Vestur-
Þýskalands, en mér hefur borist
boð frá félagi þar í landi sem heit-
ir Lading. Fyrirliði liðsins er gam-
all félagi sem lék með mér hjá
Göppingen og lið þetta er nokkurs
konar „spútniklið“ í Þýskalandi,
var að vinna sig upp í 1. deild mjög
óvænt. Þeir vilja fá okkur út og ef
úr yrði myndum við dvelja þar í 10
daga, æfa á daginn og leika á
kvöldin. Þess má geta, að Júgó-
slavinn Horwat leikur með Lad-
ing.“
En hvað um framtíðina?
„Iþróttaaðstaðan í Garðabæ
þ.e.a.s. möguleikarnir frekar en
aðstaðan sjálf eru geysilegir. Mið-
að við fólksfjölda og staðsetningu
er hér óvenjulega góð aðstaða til
þess að skapa stórveldi í hand-
knatt'eik. Yngri flokkarnir eru
geysilega efnilegir og staðsetning
félagsins hvetur leikmenn til að
ganga til liðs við okkur, ekki síst
þar sem liðið hefur nú skipað sér á
bekk með bestu liðum landsins."
— gg-
Lena Köppen með Volvo-bikarinn en
hún fékk hann þegar hún var kjör-
inn íþróttamaður Norðurlandanna
af samtökum íþróttafréttamanna.
A10NT/
FYTesTu
STÓF
óP/íoFc/,
HE/MS'3/JCAR
í
•• • yo/zoE/C/tr; FJ4HGF
TWEPOT. MATTLE(?.C>eLPC)UR
pe/KRA UP, T/ÖK&UST WÆT7UE&3A
| í g~/ A/f/OÚTc/. .
• PPAPA/A//J), fíuM£///A
/o&c>sa4i//a roKc/ e/s/o
EfVto9,Opjáfi/KA//4^
9£At T/j./Zy'A'/vTo je//>rr-
7oJCO.
t/e/ATÍB/kit-fí///A/ ,
v7/er/sr t>r/
ÆK4 FfifiAH/K
Éc/fi-
E/Y
oG
Ein umferð eftir á Spáni
og allt á suðupunkti
í SPÆNSKU knattspyrnunni er
engu líkara en að Barcelona sé ger-
samlega búið að gefa upp öndina, en
fyrir fáum vikum hafði liðið góða
forystu í deildinni. Síðan hefur hver
ósigurinn rekið annan og á laugar-
daginn tapaði liðið 1—3 fyrir Real
Madrid. Þar með féll Barcelona af
toppinum, en Real Sociedad tók
stöðuna. Úrslit leikja urðu sem hér
segir:
Las Palmas — Valladolid 1—1
Cadiz — Gijon 3—1
Betis — Castellon 3—1
Real Madrid — Barcelona 3—1
Atl. Bilbao — Santander 4—1
Osasuna — Real Sociedad 0—0
Espanol — Ati. Madrid 2—2
Zaragoza — Hercules 2—2
Valencia — Sevilla 3—2
Sem fyrr segir er Real Sociedad
efst með 45 stig, Barcelona og Real
Madrid hafa 44 stig hvort félag og
Atl. Bilbao hefur 40 stig.
Lena varð Evrópumeistari
íþróttamaöur Norðurlanda, i minton í Böblingen í V—Þýskalandi I Peter Nierhoff varð Evrópumeistari
badmintonstúlkan fræga frá Dan- um síðustu helgi. Lena sigraði Karin í einliðaleik karla og komu þau úr-
mörku, Lena Köppen vann sinn Bridge frá Englandi í úrslitum með slit nokkuð é óvart.
fjórða Evrópumeistaratitil í bad- I yfirburðum 11—1 og 11—9. Jens |
„Bjóst við að Fylkir og
Haukar myndu skera sig úr“
— segir Magnús Andrésson fyrirliði Stjörnunnar