Morgunblaðið - 20.04.1982, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
Frægasti körfuboltamaður
Bandaríkjanna, Larry Bird:
Varðað
slástum
eina boltann
á heimilinu
Larry Bird má hiklaust telja einn besta körfuknatt-
leiksmann í Bandaríkjunum um þessar mundir. Því til
stuönings má nefna, að í „All Star“-leik þessa keppnis-
tímabils, þar sem allar skærustu stjörnur bandarísku
atvinnumannadeildarinnar í körfuknattleik, NBA, voru
samankomnar, var Bird kosinn maður leiksins. Hlaut
hann aö launum sæmdarheitiö MVP (The Most Valuable
Player of NBA). í leiknum skoraöi hann þó „aöeins“ 19
stig. Ber þaö vitni um einstaka fjölhæfni hans, en Larry
er jafnvígur í vörn og sókn. Átti t.a.m. 12 fráköst í „All
Star“-ieiknum.
„All Star“ er fastur viöburöur þar sem bestu körfu-
knattleiksmenn Bandaríkjamanna leiöa saman hesta
sína í keppni milli austur- og vesturríkjanna.
Eins og gefur aö skilja, er slíkur leíkmaður ekki á
neinum sultarlaunum. Skv. núgildandi samningi milli
hans og Boston Celtics (núverandi NBA-meistara), eru
árslaunin litlir 650.000 dollarar (um 6V2 milljón íslenskra
króna) og við þá upphæð bætast auglýsingatekjur. Sök-
um þess hve Bird hefur staöiö sig frábærlega vel frá því
hann gekk til liðs við Boston Celtics haustið 1979, er
reiknaö með að árslaun hans fari upp í tvær milljónir
dollara, hvorki meira né minna, ef hann endurnýjar
samning sinn við Celtics, er núverandi samningur renn-
ur út áriö 1984.
Larry Bird er 2,06 m á hæð, sem þó nægir ekki, heldur
má þess utan telja geysilega þjálfun og frábæra hæfi-
leika helstu orsakir velgengni hans. Eða eins og kappinn
sagði sjálfur, er ég rabbaði stuttlega viö hann: — Þetta
hefur veriö bölvaö púl. Taldi hann þrotlausar æfingar
tvímælalaust undirrót velgengni sinnar.
Það er ekki auoveu ao stoova Larry Hird. Hér er þad Michall Ray Richard-
son sem það reynir.
Velgengni
fátæka drengsins
Saga Larry Birds er dæmigerö
saga um velgengni tátæka drengs-
ins. Hann fæddist áriö 1956 í bæn-
um French Lick í Indiana-fylki.
Fjölskylda hans var fátæk og varö
hann aö slást um eina körfubolt-
ann á heimilinu viö eldri bræöur
sina, Mark og Mike. Eins og nærri
má geta, beiö hann oftast lægri
hlut. Fór því oft svo, aö hann æföi
þegar aðrir voru farnir aö sofa á
heimilinu, eöa áöur en þeir risu úr
rekkju á morgnana. Eftir að hann
eignaöist sinn eiginn körfubolta,
skildi hann boltann vart viö sig og
æföi öllum stundum Má því meö
sanni segja, aö Larry sanni spak-
mælið góöa: „Æfingin skapar
meistarann". Þótt hann sé oröinn
eins konar „meistari", lætur hann
þó ekki deigan síga, langt því frá. I
sumar, er leikmenn Celtics voru í
æfingabúöum fyrir keppnistímabil-
iö, var Bird vanur aö veröa einn
eftir í salnum og taka séræfingar
eftir æfingu meöan aörir leikmenn
voru dauðfegnir aö komast í baö.
Hann hefur því svo sannarlega
þurft aö hafa fyrir því aö vera tal-
inn sá besti. Aö loknum leik milli
Boston Celtics og Atlanta, sem
leikinn var ekki alls fyrir löngu í
Boston, fékk ég leyfi til aö taka
nokkra leikmenn Celtics tali. Þegar
þeir heyrðu, aö þar væri kominn
skiptinemi alla leiö frá ls-
landi, lengst noröan úr Atlantshafi,
var mér fúslega veitt leyfi til aö
rabba við kappana. Fyrst rabbaöi
ég viö Larry Bird sjálfan. Var hann
hinn almennilegasti og svaraöi
góöfúslega öllum spurningum mín-
um.
Vinsæll leikmaður
Mestu ánægju sína í daglegu lífi
sagöi hann vera aö spila golf eöa
drekka bjór í góöra vina hópi, fjarri
sviösljósinu. Síöan barst taliö aö
Islandi, en þaö eina sem Larry vissi
(taldi sig vita) um island, var, aö
þar væri afskaplega kalt og
bandaríski herinn væri meö her-
stöö þar. Þegar ég spuröi Bird,
hvern hann teldi bestan í NBA nú,
sagöi hann, aö þar væru margir
góöir og ekki væri hægt aö til-
greina neinn sérstakan. Leikmenn
kæmust kannski í stuö og væru
„bestir" í nokkrum leikjum. Væri
afar erfitt aö segja einhven ákveö-
inn bestan. Bird taldi upp 15 leik-
menn sem hann gæti ekki gert upp
á milli. Sjálfur var hann ekkl í þeim
hópi, en hæverska og hlédrægni
eru einkennandi fyrir Bird. Ég
spurði félaga Birds hjá Celtics
hvaö þeir heföu um Larry aö segja.
Svörin voru öll á sömu lund. Öllum
kom þeim saman um aö hann væri
sá besti í NBA í dag og rómuöu
óeigingirni hans og framkomu alla,
jafnt innan vallar sem utan.
Félagi Birds, M.L. Carr, haföi
t.d. þetta um hann aö segja: „Þaö
er engin spurning um þaö, aö
Larry er sá besti í NBA í dag. Þaö
er frábært aö spila meö honum.
Óeigingirni hans er einstök, hann
hugsar ávallt fyrst um samherj-
ann.“
Danny Ange tók í sama streng.
Bird væri sá besti. Þrátt fyrir aö
hann vekti langmesta athygli meö-
al almennings, væri hreint ekki
hægt aö vera öfundsjúkur, hann
væri einfaldlega frábær. Hann
kvaöst ekki segja þetta vegna
þess aö hann væri í liöi meö Bird
og kannski hlutdrægur. Þetta væri
einfaldlega staöreynd.
Larry Bird leikur framvörö meö
Celtics. í leikjum gerir hann nær
allt sem hægt er aö gera í körfu-
bolta, „treöur", hittir úr ótrúlegasta
færi, „stelur” boltanum, „blokker-
ar“ skot, nær fjölda frákasta og
matar félaga sína í sífellu meö
snilldarsendingum. Þaö gegnir því
lítilli furðu, hve vinsæll hann er
meöal þeirra. En óeigingirni er ein-
mitt sá eiginleiki í fari Birds sem
félagar hans sögöust kunna hvaö
best að meta, er ég ræddi viö þá.
Celtics næst-
neðstir 1978—1979
— NBA-meistarar
1980—1981
Svo vikið sé aö félagi Larry
Birds, Boston Celtics, þá má hik-
laust telja þaö frægasta körfu-
knattleikslið í heiminum nú, (sé
sýningarliöiö Harlem Globetrotters
ekki taliö meö). Á þeim 32 árum
sem atvinnumannadeildin banda-
ríska, NBA, hefur veriö viö lýöi,
hafa Boston Celtics hvorki meira
né minna en 14 sinnum oröiö
NBA-meistarar, mun oftar en
nokkurt annaö liö í deildinni. Celt-
ics voru í mikilli lægö keppnistíma-
biliö 1978—1979. Liðiö vann aö-
eins 29 leiki, en tapaöi 53, og varö
neöst í sínum riöli innan NBA, sem
skiptist í fjóra riöla. Jafnframt uröu
Celtics næstneöstir aö stigum í
NBA. Sama keppnistímabil lék
Larry Bird meö háskólaliði Indi-
ana-fylkis og leiddi þaö til 33 sigra
í röö. Bird var potturinn og pannan
i liöinu, skoraði aö meöaltali 30
stig og átti u.þ.b. 15 fráköst í leik.
Háskólaliö Indiana varö annaö
besta háskólaliöiö í Bandaríkjun-
um þaö keppnistímabil, tapaði
naumlega í úrslitum.
Áriö 1979 gekk Bird til liös viö
Boston Celtics og þá fóru hjólin aö
snúast á nýjan leik. Er skemmst frá
því aö segja, aö Celtics voru meö