Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
21
Edda Jónsdóttir hlaut
verðlaun á alþjóða-
sýningu 1 Bretlandi
EDDA Jónsdóttir, myndlistar-
kona, hlaut verðlaun á sjöunda
breska alþjóðlega grafík „bienaln-
um“, sem nýlega var haldinn í
Bradford í Englandi og hlaut hún
verðlaunin fyrir verkið Nálægð.
Eddu Jónsdóttur var boðið að
sýna á þessari sýningu og sýndi
hún þar ásamt Valgerði Bergs-
dóttur og Þórði Hall. Þetta er
með virtari alþjóðlegun grafik-
sýningum og í dómnefnd eru
þekktir myndlistarmenn og
safnafólk.
Lóðaúthlutun
í Ártúnsholti
BORGARRÁÐ samþykkti úthlutun á
raöhúsalóAum til eftirtalinna einstakl-
inga á fundi sinum í gær:
í Reyöarkvísl:
Nr. 2: Egill Stephensen, Laugar-
nesvegi 55
nr. 6: Hannes Þorkelsson, Fálka-
götu 1
nr. 8: Magnús Ásgeirsson, Dúfna-
hólum 4
nr. 10: Örn Árnason, Dalalandi 10
nr. 12: Ólafur G. Sveinsson, Ból-
staðarhlíð 48
nr. 14: Guðmundur I. Gíslason,
Bólstaðarhlíð 48.
Eftirtaldir hlutu úthlutun eftir út-
drátt, en þeir höfðu hlotiö 88 stig.
I Fiskakvísl:
Nr. 2: Guðbjörn Guðmundsson,
Glaðheimum 20
nr. 4: Guðmundur Pétursson,
Dalseli 10
nr. 6: Magnús Hjartarson, Skafta-
hlíð 29
nr. 8: Magnús Helgason, Barma-
hlíð 48
nr. 10: Guðmundur Finnbogason,
Hraunbæ 73
nr. 12: Andrés Guðnason, Lang-
holtsvegi 23
nr. 14: Guðmundur Björnsson,
Hjallalandi 27
nr. 16: Ásgeir Friðjónsson, Snæ-
landi 1
nr. 18: Ögmundur Kristinsson,
Dalalandi 12
nr. 20: Magnús Gissurarson,
Skaftahlíð 16
nr. 22: Axel Smith, Krummahól-
um 4
nr. 24: Ólafur Ófeigsson, Laugar-
nesvegi 108
í Laxakvísl:
Nr. 1: Hallur Hallsson, Klepps-
vegi 144
nr. 3: Bergur Sigurpálsson, Nes-
vegi 63
nr. 5: Jenný Ásmundsdóttir, Ak-
urgerði 7
nr. 7: Þorvaldur Þorsteinsson,
Drápuhlíð 45
nr. 9: Örn H. Jacobssen, Sóleyjar-
götu 13
nr. 11: Halldóra Sveinsdóttir,
Spóahólum 10
nr. 13: Guðmundur Árnason,
Gaukshólum 2
nr. 15: Bjarni Gunnarsson, Keilu-
felli 4
í Reyöarkvísl:
Nr. 1: Ólafur J. Bjarnason,
Kambaseli 29
nr. 3: Guðmundur Ásgeirsson,
Jörfabakka 2
nr. 5: Gunnar Óli Ferdinandsson,
Langholtsvegi 166
nr. 7: Guðlaugur Guðmundsson,
Barmahlíð 54
nr. 9: Gunnar Gunnarsson, Furu-
gerði 21
nr. 11: Agnar Svanbjörnsson,
Flókagötu 41
nr. 13: Stefán Carlsson, Háagerði
45
nr. 15: Eyþór Ólafsson, Espi-
gerði4
nr. 4: Anna G. Egilsdóttir, Laug-
arnesvegi 53
nr. 16: Tómas Þórhallsson,
Fellsmúla 10
nr. 18: Rúnar Sveinsson, Lang-
holtsvegi 118
Næstu rétthafar eru:
Þorleifur V. Friðriksson, Vestur-
götu 46a
Sverrir Hermannsson, Kambs-
vegi 15
Jóhann Gunnarsson, Eskihlið 35
Benedikt K. Bachmann, Leiru-
bakka 20
Björn Guðjónsson, Gautlandi 5
Aðalbjörg Hólmsteinsdóttir, Háa-
leitisbraut 26.
Þorsteinn Pálsson:
VSÍ leggur áherzlu á
raunhæfar viðræður
„VSÍ HEFUR LAGT ríka áherzlu á, að samningaviðræður
gætu orðið raunhæfar og í ályktun 72-manna nefndar ASÍ
kemur fram mikill misskilningur," sagði Þorsteinn Páls-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, í samtali við Morgunblaðið í
gær. í ályktun 72-manna nefndarinnar síðastliðinn
fimmtudag, vítir samninganefnd ASÍ vinnubrögð vinnu-
veitenda, sem sífellt reyni að tefja viðræður og drepa
málum á dreif og skorað er á vinnuveitendur að ganga
þegar til raunhæfra viðræðna. Þorsteinn Pálsson hafði
þetta um málið að segja:
„Það er alveg ljóst, að meðan
svo óraunhæf kaupkröfugerð
er uppi, eins og núna, þá mun
Vinnuveitendasambandið ekki
flýta fyrir að samið verði á
þeim grundvelli. Við höfum á
hinn bóginn lagt til, að samið
verði með tilliti til efnahags-
legra aðstæðna og við höfum
óskað eftir ýmsum nauðsynleg-
um upplýsingum þar að lút-
andi, fyrst og fremst til að gera
samningaviðræðurnar raun-
hæfar. Það er þess vegna alger
misskilningur í ályktun
72-manna nefndarinnar, að
Vinnuveitendasambandið hafi
með sínum aðgerðum á þessu
sviði verið að stuðla að því að
viðræðurnar yrðu óraunhæfar.
Þvert á móti er stefnt að því að
þær geti orðið raunhæfar. Við
treystum því, að þessi mis-
skilningur verði leiðréttur í
næstu ályktun 72-manna
nefndarinnar.
Það má líka benda á það í
þessu sambandi, að á síðustu
kjaramálaráðstefnu Verka-
mannasambandsins kom það
alveg skýrt fram af hálfu eins
af forystumönnum verkalýðs-
félaganna, að óraunhæfar
kaupkröfur gætu leitt verka-
lýðsfélögin út í langvarandi
verkföll, sem skiluðu takmörk-
uðum árangri og langa verk-
fallið 1955 hafi meðal annars
orðið vegna óraunhæfrar kaup-
kröfugerðar. Það er alveg ljóst,
að finnist ekki einhver annar
flötur á samningaviðræðum en
núverandi kaupkröfugerð, þá
stefnir í stórkostleg átök ef
einhver alvara er á bak við
þessa skjótu verkfallshótun
strax í upphafi samningavið-
ræðna þegar heill mánuður er
eftir af samningstímanum,"
sagði Þorsteinn Pálsson.
Aðspurður um heildarkröfur
einstakra félaga og sambanda
innan ASÍ sagði Þorsteinn
Pálsson, að kröfurnar væru
þær sömu og síðastliðið haust.
Það virtist ljóst, að þeir sem
væru í efsta hluta launastigans
gerðu mestar kaupkröfur, eins
og t.d. byggingamenn, en kröf-
ur t.d. Verkamannasambands-
ins og Iðju væru lægri.
Vinnuveitendasambandið
metur kaupkröfur nokkurra
helztu félaga og sambanda sem
hér segir:
Verkamannasambandið
15—17% strax og 40% hækkun
á tveggja ára samningstíma.
Byggingamenn 32—35%
strax og 82—88% á 2'á ári.
Iðnverkafólk 12—13% strax
og 32—34% á tveimur árum.
Verzlunarmenn 24—25%
strax, 50—54% á tveggja ára
tímabili.
Málmiðnaðarmenn 30—34%
strax, 86—91% á tveggja ára
samningstíma.
Matreiðslumenn 104—106%
strax og 133—135% á tveggja
ára tíma.
Ófaglært starfsfólk í veit-
ingahúsum 28—30% strax og
55—59% á tveggja ára samn-
ingstíma.
Frá fyrsta viðræöufundi aðila í vor.
Framboðslisti sjálfstæðismanna á Patreksfirði:
Hilmar Jónsson í 1. sæti
Stefán Skarphéðinsson og fleiri bjóða fram lista „framfarasinna“
Sjálfstæðismenn á Patreksfírði
hafa ákveðið framboðslista sinn við
hreppsnefndarkosningarnar í næsta
mánuöi, og skipa eftirtalin listann, í
þessari röð: Hilmar Jónsson spari-
sjóðsstjóri, Erna Aradóttir húsmóð-
ir, Ingimundur Andrésson vélstjóri,
Haraldur Karlsson póstfulltrúi, Sig-
urður Jóhannsson byggingarmeist-
ari, Jón Þ. Arason málarameistari,
Haraldur Aðalsteinsson vélsmíða-
meistari, Ingveldur Hjartardóttir
skrifstofumaður, Gísli Olafsson
vinnuvélastjóri, Einar K. Jónsson
húsasmiðameistari, Gísli Þór Þor-
geirsson múrarameistari, Héðinn
Jónsson útgeröarmaður, Sjöfn A.
Ólafsson ritari og Árni Bæringsson
verkamaður.
Framboðslistinn var samþykkt-
ur á fundi sjálfstæðismanna, með
þorra greiddra atkvæða, en þrír
fundarmenn sátu hjá. Sjálfstæð-
ismenn eiga nú tvo af sjö hrepps-
nefndarmönnum, þá Hilmar Jóns-
son og Stefán Skarphéðinsson. í
prófkjöri sem nú var efnt til, varð
Stefán efstur að atkvæðum í
fyrsta sæti, en Hilmar gaf á hinn
bóginn ekki kost á sér í prófkjörið.
Síðan hefur það gerst að Hilmar
hefur tekið sæti á framboðslistan-
um eins og að ofan greinir, en
Stefán ekki. Stefán og fleiri hafa á
hinn bóginn ákveðið að bjóða fram
annan lista, „lista framfarasinna",
að því er Stefán sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær.
Listann skipa eftirtalin, í þessari
röð:
Stefán Skarphéðinsson lögmað-
ur, Pétur Sveinsson fulltrúi, Sig-
urður G. Jónsson lyfsali, Jón
Sverrir Garðarsson mjólkur-
bústjóri, Rannveig Árnadóttir
húsmóðir og verkakona, Grétar
Guðmundsson verkamaður, Magn-
ús Guðmundsson sjómaður, Ólaf-
ur Jónsson verkamaður, Stefanía
Haraldsdóttir húsmóðir, Bjarni
Valur Ólafsson bifreiðastjóri,
Ólafur Magnússon skipstjóri, Árni
Magnússon sjómaður, Dröfn
Árnadóttir húsmóðir og Guð-
mundur Friðriksson vélgæslumað-
Stefán sagði, að löng saga væri
að baki þessu framboði „framfara-
sinna“ nú. Hann hefði flutt til
Patreksfjarðar 1977, og síðan ver-
ið kjörinn í hreppsnefnd fyrir
Sjálfstæðisflokkinn 1978. Nú hefði
hann síðan gefið kost á sér til
prófkjörs, og orðið þar í efsta sæti.
„Síðan gerðist það, að mér fannst
ég verða fyrir ákveðnu vantrausti
af hálfu þriggja manna innan
flokksins, sem þar eru í forsvari
eða telja sig vera það,“ sagði Stef-
án. „Ég hef ekki áhuga á að vera á
lista með mönnum sem ekki
treysta mér, og því ákvað ég að
taka ekki sæti á lista sjálfstæð-
ismanna. Menn getur svo greint á
um það hvort mér var beint eða
óbeint bolað þaðan í burt. Síðan
gerðist það svo að til mín leitaði
fjöldi fólks og hvatti til þessa
framboðs. Þar kom að mér fannst
ég verða að taka ákvörðun, og hún
liggur semsagt fyrir nú.“
Hilmar Jónsson sparisjóðs-
stjóri, efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins, sagði á hinn bóg-
inn, að hann hefði ákveðið að taka
sér hvíld frá hreppsmálum, eftir
að hafa setið í hreppsnefnd síðan
1974. Því hefði hann ekki gefið
kost á sér í framboð í prófkjörinu.
Þegar það svo hefði gerst, að Stef-
án vildi ekki vera á listanum, hefði
mönnum þótt slæmt ef báðir
hreppsnefndarmenn Sjálfstæðis-
flokksins hættu. „Því ákvað ég að
verða við óskum um að vera aftur
í framboði," sagði Hilmar. „Stefán
hefur talið sig órétti beittan, en
okkur er ekki ljóst í hverju það
felst, og vitum ekki til að flokks-
bræður hans hafi barist gegn hon-
um. Enda er það svo, að hefði
hann kosið að vera á lista sjálf-
stæðismanna hefði hann að mín-
um dómi verið þar í samræmi við
niðurstöðu prófkjörs. í þessu sam-
bandi er þó rétt að hafá það í huga
að prófkjörið var ekki bindandi,"
sagði Hilmar að lokum.
I samtali við Morgunblaðið í
gær, vildi Stefán Skarphéðinsson
leggja á það áherslu, að listi sá er
hann og fleiri byðu fram væri listi
„framfarasinna" og bæri ekki að
líta á hann sem klofningslista út
úr Sjálfstæðisflokknum. „Ég er
sjálfstæðismaður, og ekki er vert
að blanda um of saman landsmál-
um og skiptingu manna i stjórn-
málaflokka, og málefnum eins
hreppsfélags eins og Patreksfjarð-