Morgunblaðið - 20.04.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982
23
I>ingfréttir í stuttu máli:
Þungur skriður
á þingmálum
Þungur skriður var á þingfund-
um í gær og mál gengu á milli þing-
dcilda eins og á færibandi. Kin lög
vóru samþykkt, breyting á lögum
um Innheimtustofnun sveitarfé-
laga, þess efnis, að stofnunin geti
tekið að sér innheimtu fyrir félags-
málaráðuneytið á meðlagsskuldum
erlendra ríkisborgara, sem búsettir
eru hér á landi.
• Frumvörp, sem gengu frá
neðri deild til efri deildar, án
þess að nokkur kveddi sér hljóðs
við þriðju umræðu þeirra, fjöll-
uðu um eftirfarandi efni: 1)
breytingu á ábúðarlögum, 2)
breytingu á jarðalögum, 3) nýja
ríkisborgara, 4) breytingu á bún-
aðarmálasjóðslögum, 5) hækkun
á hlutafé Islands í Alþjóðabank-
anum, 6) breytingu á lögum um
tekjustofna sveitarfélaga.
• Á sama hátt gekk frumvarp
um blindrabókasafn Islands og
frá efri deild til neðri deildar án
umræðu, en mælt var fyrir frum-
vörpum um skyldusparnað (sjá
frétt hér á síðunni) og lagmetis-
iðnað, þ.e. framlengingu á einka-
rétti Sölustofnunar lagmetis á
sölu á niðursoðnum og niðurlögð-
um sjávarafurðum til A-Evrópu-
landa, þ.e. landa þar sem ríkis-
einkarekstur er á innflutningi,
en Hjörleifur Guttormsson iðn-
aðarráðherra hafði orð fyrir því
frumvarpi. Frumvarpið gerir ráð
fyrir því að þessi einkaréttur
framlengist til 31. desember
1983.
Sigurlaug Bjarnadóttir (S)
mælti fyrir frumvarpi í efri
deild, sem hún flytur ásamt fleiri
þingmönnum um fræðsluskyldu í
grunnskóla varðandi hættu af
fíkniefnum, þ.á m. áfengi.
• Miklar umræður spunnust í
efri deild um skyldusparnaðar-
frumvarp ríkisstjórnarinnar og í
neðri deild um stjórnarfrumvarp
um dýralækna, sem hávaðaum-
ræður urðu um, en þingmönnum
þóttu ýmis ákvæði í frumvarpinu
ekki við hæfi, eins og varðandi
„hagkvæm lán“ til bifreiðakaupa
dýralækna o.fl. Þá kom fram
breytingartillaga frá Vilmundi
Gylfasyni og Álbert Guðmunds-
syni, þess efnis, að þessi lög giltu
aðeins til 1. janúar 1984, þó sam-
þykkt verði nú.
• Þingflokkafundir vóru kl. 4 i
gær. Þingdeildarfundir áttu að
hefjast aftur kl. 6 síðdegis og
standa eitthvað frameftir kvöld-
inu.
Sýning helguð Halldóri Laxness opnuð
OPNUÐ verður sýning sem helguð
er Halldóri Ijixness í tilefni áttræð-
isafmælis hans í MÍK-salnum í
kvöld.
Þar verða sýndar svartlistar-
myndir, bókaskreytingar við út-
gáfu Atómstöðvarinnar á hvít-
rússnesku, ljósmyndir, veggspjöld
og leikskrár frá sýningu Mali-leik-
hússins í Moskvu á Silfurtungli
Halldórs. En það var leikið þar á
árunum 1955—1957.
Einnig gefur að líta á þessari
sýningu ljósmyndir af Halldóri
sem tengdar eru starfi hans í MÍR,
en hann var foseti félagsins
1950—1969. Sýningin stendur yfir
í nokkrar vikur.
Tónskólakórinn í Hallgrímskirkju
í KVÖLD, þriðjudagskvöld kl. 20.30,
mun kór Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar halda tónleika í Hall-
grímskirkju á Skólavörðuholti.
Á efnisskrá eru m.a. verk eftir
Orff, Kodaly, Bizet, Ramírez og
Bennett auk útsetninga á íslenskum
þjóðlögum. Þungamiðja tónleik-
anna verður Misa Criolla eftir Ariel
Ramírez fyrir kór, einsöngvara og
slagverk í suður-amerískum stíl.
Einsöngvarar eru Sigrún Þor-
geirsdóttir og Ásta Hr. Maack.
Stjórnandi kórsins er Sigursveinn
Magnússon. Öllum er heimill
ókeypis aðgangur.
Það kostar ekki nema 1500 krónur
að auki að taka„s6lar^ádaruT
með sér til Mexico
d
Hugsaðu þér bara! Sautján daga ferð tll œvtntýralandsins. Fyrst
er floglð til New York með stórri Flugleíðaþotu. Síðan er haldið
áíram til Mexico - til Mexico City eða Taxco eða Acapulco, þar
sem sólin skín allan guðslangan daginn.
Svona lerðir kosta auðvitað peninga, en það kostar ekki nema
1500 krónur í viðbót að taka .sólargeislann" með, - það er að
segja ef hann er ekki orðinn 2ja ára! Annars kostar það örlitið
meira. En það hlýtur að vera ánœgjunnar virði að harfa hann
með í stað þess að þurfa að sakna hans alveg óskaplega í
rúmlega hálian mánuð í sól og hlta í Acapulco „Sólargeislinn"
gœti meira að segja sungið „Lítill Mexikani með som-som-
brero" fyrir alla karlana í Acapulco.
Til að byrja með verða famar 4 hópferðir með íslenskum farar-
stjóra. Brottíarir eru 20. mars, 3. apríl (páskaíerð), 1. mai og 15.
mctí. í þessum ferðum verður gist eina nótt í New York, 4 í Mexico-
borg, 2 í Taxco og 9 í Acapulco. Svo er auðvitað hœgt að fram-
lengja í New York í bakaleiðinni. Auk þessara hópferða eru í
boði einstaklingsferðir til Mexico og er þar hœgt að velja um
fleiri ferðamöguleika og brottfarardaga.
Sennilega er .sólargeisllnn" ekki nógu gamall til að geta lesið
þessar línur, en hún mamma hans les þœr vonandi. Annars geta
pabbi og mamma fengið allar upplýsingar um œvintýraferðir
Flugleiða til Mexico hjá Flugleiðafólkinu eða hjá nœstu ferða-
skrifstofu.
Verð fyrir fullorðna er frá 12.573 krónum
MEXICO
ACAPULCD _
FLUGLEIDIR