Morgunblaðið - 20.04.1982, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL1982
SundlaugarbyKgingin er tilleg
til skólans frá gömlum nemendum
■>g ýmsum velunnurum staðarins,
sn áætlað er að kostnaður muni
verða um 1 milljón nýkrónur. Nú
þegar er söfnun komin í um hálfa
milljón og bætist þar ört við. í
kaffiboði skólastjórahjónanna
voru flutt nokkur erindi og árnað-
INNLENT
Prófessor við
Moskvuháskóla
flytur fyrirlestra
Sagnfræðingurinn Ivan O.
Farizov, sem er kúrdískur að
þjóðerni, mun halda tvo fyrir-
lestra á vegum MÍR í þessari
viku.
Sá fyrri, sem fjallar um
lausn þjóðernismála í Sovét-
ríkjunum, verður fluttur í
kvöld í MIR-salnum en sá síð-
ari verður á sama stað á mið-
vikudagskvöld. Þá ræðir Ivan
um Islam og múhameðstrúar-
menn í Sovétríkjunum.
Héldu tón-
leika í Húna-
vatnssýslu
SlINNl!l)A(i!INN 28. mars síðastlið-
inn héldu þau Sigurður Björnsson,
óperusöngvari og Agnes Löve, píanó
leikari tónleika í félagsheimilinu á
Blönduósi.
Efnisskráin var fjölbreytt og
söng Sigurður bæði íslensk og er-
lend lög en Agnes lék verk eftir
Sehubert og R. Schumann. Var
þeim vel fagnað af þeim er á
hlýddu.
Daginn eftir fóru þau síðan í
skólana í sýslunni og héldu tónleika
fyrir nemendur við mjög góðar und-
irtektir, að því er segir í frétt sem
Mbl. hefur borizt frá fræðslu-
stjóranum á Blönduósi.
aróskir, þar á meðal var sundlaug-
inni lýst, en hún verður 8x16 metr-
ar að stærð, auk hitapotts og
saunabaðs. Einnig verður komið
upp búningsherbergjum í sam-
bandi við laugina.
Nemendur yngri deildar skólans
eru nú í verklegu námi víða á
heimilum norðanlands, en skólan-
um verður sagt upp 14. maí, sama
dag og skólinn var stofnaður 1882.
Umsóknir um skólavist næsta vet-
ur eru þegar farnar að berast og
það margar að sýnilegt er að skói-
inn verði fullsetinn. Skólastjóra-
frúin sagði mér, að fullsett verði
um hverja helgi fram eftir sumri,
er þar um fundi ýmiss konar og
hátíðarhöld að ræða. Hæst ber þó
biskupsvígslu og afmælishátíðina
og er þá von á miklu fjölmenni.
Þessir nýju húsbændur að Hólum
una sér vel á staðnum og hugsa
gott til framtíðarinnar. Starfsfólk
staðarins er sammála um, að
skólastjórahjónin séu starfi sínu
vaxin, sem sagt öndvegisfólk.
— Björn í Bæ.
Siglufjörður:
Reitingur í
grásleppunet
SigluflrAi, 19. apríl.
GRÁSLEPPUKARLAR hafa undan
farið fengið reitingsafla og komið
með 3 og 4 tunnur eftir daginn. Þeir
sem róið hafa með þorskanet eru
þessa dagana að skipta yfir á grá-
sleppuna, en varla var bein að fá í
þorskanetin. Síðustu daga hefur að-
eins orðið vart á færi og virðist fisk-
urinn vera að ganga. Síðustu vikur
hefur verið mikiö af loðnu norðan-
lands og mætti llafrannsókna-
stofnunin í Reykjavík aðeins hyggja
betur að þessum dýrmæta stofni,
sem finnst ekki í skjölum fræðinga
þar um slóðir.
Stálvík landar hér í dag 9Ö—100
tonnum. Austur af Langanesi hafa
togararnir verið að fá allt upp í
30—40 tonn af ufsa í hali.
Hér er afskaplega gott veður í
dag og þegar vorið er komið í dal
þá er óhætt að segja að vel liggi á
Siglfirðingum.
— mj.
mwk
Jón Reykdal og Edda Jónsdóttir við nokkur listaverkanna í sýningarsalnum í Safnahúsinu á Húsavík.
Húsavík:
Mjög góð aðsókn og um 40 verk
hafa verið seld á grafíksýningu
llúsavík, 19. april.
SJÖ listamenn höfðu um helgina
sameiginlega myndlistarsýningu í
Safnahúsinu á llúsavík við góða að-
sókn. Þar sem sýningin hefur vakið
sérstaka eftirtekt hefur verið ákveð-
ið að framlengja hana fram á sumar-
daginn fyrsta svo fleiri fái tækifæri
til þess að kynnast hér svo til
óþekktri listgrein þvi meginhluti
sýningarinnar eru grafíkmyndir, en
slíkar myndir hafa aðeins einu sinni
áður verið á sýningu á Húsavík.
Við opnun sýningarinnar ávarp-
aði varaforseti bæjarstjórnar,
Katrín Eymundsdóttir, viðstadda
og tveir grafíksýnendurnir, þau
Jón Reykdal og Edda Jónsdóttir,
skýrðu í stórum dráttum frá því
hvernig slík verk eru unnin. Auk
þeirra sýna Þórður Hall, Ragn-
heiður Jónsdóttir, Valgerður
Bergsdóttir og Björg Þorsteins-
dóttir, sem öll sýna grafíkmyndir,
og Ingi Örn listamaður frá Akur-
eyri, sem sýnir pastelmyndir og
teikningar.
Yfir 40 listaverk hafa selst.
Listafólkið lofar mjög aðstöðu til
sýninga í Safnahúsinu og eins og
áður segir hefur sýningin verið
framlengd og verður hún opin
næstu kvöld frá 20—22 og á
sumardaginn fyrsta frá 15—22, en
þá lýkur henni. Ástæðu tel ég til
að hvetja þá, sem tækifæri hafa
til, að láta þennan listaviðburð
ekki framhjá sér fara.
— Fréttaritari
Saltsalan reisir 9 salt-
skemmur víða um land
„Eykur öryggi í saltdreifingu og ætti
að lækka saltið“ segir Finnbogi Kjeld
SALTSALAN hf. hefur nú í hyggju að
reisa 9 saltskemmur víðsvegar um
landið, þegar er búið að taka tvær
skemmanna í notkun og sú þriðja er
í byggingu. Skemmurnar, sem hafa
verið teknar í notkun, eru í Keflavík,
en sú skemma tekur 7000 tonn af
salti, og í Kópavogi, en skemman þar
tekur 2800 tonn. Skemman, sem ver-
ið er að byggja i Vestmannaeyjum,
verður svipuð að stærð og sú i Kefla-
vík með um 7000 tonna geymslu-
rými.
Finnbogi Kjeld, forstjóri Salt-
sölunnar hf., sagði í samtali við
Virkja þarf fleira fólk
og ná auknum slagkrafti
— segir Jón Magnússon, nýkjörinn formaður Neytendasamtakanna
Morgunblaðið, að ákveðið hefði
verið að byggja þessar saltskemm-
ur sökum þess hve geymslurými
saltkaupenda um allt land væri lít-
ið og sökum þess hve mikil salt-
notkun í stuttan tíma á árinu ylli
margvíslegum erfiðleikum og bæri
þar hæst kostnaðarauka við flutn-
inga og dreifingu.
nMeð því að reisa saltskemmur
verða flutningar á saltinu jafnari
og við verðum ekki eins háðir
duttlungum veðurs. Þá verður auð-
veldara fyrir okkur að koma við
betri nýtingu á skipunum og ekki
ætti að koma fyrir að fiskvinnslu-
stöðvar verði saltlausar þegar
mest liggur við,“ sagði Finnbogi.
Hann sagði ennfremur að til-
koma saltskemmanna yki fyrst og
fremst á öryggi í saitdreifingu, auk
þess sem saltverðið ætti að geta
lækkað eitthvað, meðal annars
vegna betri nýtinar á skipum og
möguleika á að flytja meira af
saltinu með stórum skipum, en
stærð skipanna skipti verulegu
máli fyrir flutningskostnað.
Auk saltskemmanna í Vest-
mannaeyjum, Keflavík og Kópa-
vogi, þá hefur Saltsalan í hyggju
að reisa skemmur í Grindavík og
Þorlákshöfn og yrðu þær nokkuð
stórar, ennfremur er hugmyndin
að reisa 2500 til 3000 tonna
skemmur á Eskifirði, á Akureyri
og á Snæfellsnesi.
JON Magnússon, lögfræðingur, var
kjörinn formaður Neytendasamtak-
anna síðastliðinn laugardag. Jafn-
framt var samtökunum breytt í
landssamtök en áður var Keykjavík-
urfélagið skipulagsbundni aðilinn og
með deildir á ýmsum stöðum á land-
inu.
Morgunblaðið ræddi við Jón
Magnússon og sagði hann, að þessi
skipulagsbreyting hefði verið í
bígerð frá síðasta aðalfundi sam-
takanna og hefði sérstök nefnd
unnið að tillögum um breyting-
una, sem síðan hefði verið sam-
þykkt með nokkrum breytingum á
aðalfundihum á laugardaginn.
Breytingin hefði verið aðalmál
fundarins og miklar vonir væru
bundnar við þessar breytingar, og
að fleira fólk næðist til að starfa í
samtökunum. Hér væru neytenda-
samtökin ekki hluti af ríkiskerf-
inu eins og víða annars staðar, því
væri mikilvægt að virkja sem
flesta og ná þannig auknum
slagkrafti. Hingað til hefði ekki
verið hægt að fjalla um mál sem
snerti neytendur í heild, heldur
mest megnis um einstök kvörtun-
armál. Með þessari breytingu ættu
landssamtökin að geta sinnt heild-
armálunum frekar og félögin sjálf
sem slík önnuðust dagleg störf og
kvörtunarþjóniifctu.
Auk Jóns voru eftirtaldir kosnir
í stjórn Neytendasamtakanna:
Anna Birna Halldórsdóttir, við-
skiptafræðingur, Anna Bjarnason,
blaðamaður, Bjarni Skarphéðins-
son, rafvirkjameistari í Borgar-
nesi, Dröfn Farestveit, húsmæðra-
kennari, Jóhannes Gunnarsson,
fulltrúi, Jón Óttar Ragnarssöíl,
dósent, Jónas Bjarnason, efna-
verkfræðingur, Olafur Ragnars-
son, hæstaréttarlögmaður, Reynir
Ármannsson, fulltrúi, Sigrún
Gunnlaugsdóttir, kennari á Akra-
nesi og Steinar Þorsteinsson,
tannlæknir á Akureyri.
Aðildarfélög samtakanna eru 14
og félagar alls um 50#0.
Iðnskólinn fær hjólastillingabúnaö
Nýlega gaf fyrirtækið G. Ilinriksson hf. Iðnskólanum hjólastillibúnað frá V.
Löverer í Danmörku. Þessi búnaður hefur komið skólanum mjög vel og stuðlar
tvíma lalausl að bættri hæfni bifvélavirkja, segir í frétt frá Iðnskólanum.
Myndin er af Sigurði Kr. Sigurðssyni, framkvæmdastjóra G. Ilinriksson hf.,
ásamt nemendum og kennuHlim Iðnskólaiis.-------J
Byrjað að vinna
við sundlaug að
Hólum í Hjaltadal
llólum, lljaltadal, 19. apríl.
í DÁNAMLEGl veðri eins og alltaf þegar hátíð er haldin á Hólum
var fyrsta skóflustungan tekin að nýrri sundlaug á staðnum á sunnu-
daginn. Það gerði Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri. Fjölmenni var
við þessa athöfn, sem verður merkasta átakið í tilefni 100 ára
afmælis Hólaskóla, sem minnst verður 3. og 4. júlí í sumar.