Morgunblaðið - 20.04.1982, Side 32

Morgunblaðið - 20.04.1982, Side 32
Síminn á afgreiðslunni er 83033 Jttor£imbIní>ií> ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1982 Stálu bíl og eyðilögðu ÖKUFERÐ þriggja pilta, sem stálu Skoda-bifreið aöfaranótt sunnudagsins, endaði með ósköpum. Þeir óku á Ijósastaur á Flugvallarvegi, skammt frá Hótel Loftleiðum, með þeim afleiðingum, að bifreiðin bókstaÓega rifnaði í sundur og toppur hennar þeyttist af. Piltarnir voru fluttir í slysadeild en reyndust lítið meiddir. Grunur leikur á að þeir hafi verið ölvaðir. Kópavogur: Rúmlega 200 manns sóttu um 27 lóðir RIIMLEGA 200 umsóknir bárust um 27 einbýlishúsalóðir í Kópavogi, en umsóknarfrestur rann út i gær. Lóð- irnar eru við Hlíðartún og Álfatún austast í Kópavogi, næst Ástúni, neðan l'verbrckku. Reiknað er með, að úthlutun fari fram um mánaðamótin, en lóðirnar eiga að verða byggingar- hæfar í október í haust. Síðar í ár verður úthlutað lóðum undir ein- býlishús og raðhús í Marbakka og Sæbólslandi í Kópavogi. Electran 1 leiguflug milli Ítalíu og Kamerún Steftiir í mikil átök fínnist ekki nýr vidrædugrundvöllur — segir Þorsteinn Pálsson um óraunhæfar kröfur verkalýdsfélaganna BUIST er við, að svör Þjóð- hagsstofnunar við fyrirspurn- um VSÍ um afleiðingar þess á verðbólgu og atvinnustig, ef kaupkröfur yrðu samþykkt- ar, liggi fyrir á föstudag. Næsti fundur ASÍ og VSÍ verður á föstudag og þá verð- Framboðsfresturinn rennur út á miðnætti 425 einstaklingar verða kosnir 22. maí FRAMBOÐSFRESTUR vegna bæjar- og sveitarstjórnakosninganna 22. maí næstkomandi rennur út á miðnætti i nótt. Kosið verður í 22 kaupstöðum og 37 kauptúnahreppum. Kosningar í strjálbýli fara hins vegar fram 26. júni. Að sögn Unnars Stefánssonar hjá Sambandi íslenzkra sveitarfélaga verða í kosningunum 22. maí kosnir 425 einstaklingar í borgar-, bæjar- og sveitarstjórnir. I Reykjavík verður kosinn 21 borgarfulltrúi, í Kópavogi, Hafnarfirði og á Akureyri verða kosnir 11 bæjarstjórnarmenn á hverjum stað, 9 bæjarfulltrúar í 11 kaupstöðum og 7 fulltrúar í 7 kaup- stöðum. { 37 kauptúnahreppum verða kosnir samtals 223 sveitar- stjórnamenn. ur væntanlega fjallað þessa útreikninga. um Alþýðusambandið hefur skor- að á verkalýðsfélög að afla sér verkfallsheimilda, en samnings- tímabilinu lýkur 15. maí. í álykt- un 72-manna nefndar ASI síð- astliðinn fimmtudag, segir, að vinnuveitendur tefji samninga- viðræður og skorað er á þá að hefja nú þegar raunhæfar við- ræður. Þorsteinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, segir hins vegar, að vinnuveitendur leggi einmitt alla áherzlu á raunhæfar viðræður og þess vegna hafi verið óskað eftir ákveðnum upplýsing- um frá Þjóðhagsstofnun. „Finn- ist ekki einhver annar flötur á samingaviðræðum en núverandi kaupkröfugerð, þá stefnir í stórkostleg átök, ef einhver al- vara er á bak við þessa skjótu verkfallshótun strax í upphafi samningaviðræðna þegar heill mánuður er eftir af samnings- tímanum," sagði Þorsteinn Páls- 1 son meðal annars. Sjá nánar á miðopnu blaðsins. Electra-vöruflutningaflugvél Arn- arflugs, sem félagið keypti af ís- cargo á dögunum, er nú komin í leiguflug milli Genúa á Ítalíu og Kamerún i Afríku. Að sögn Halldórs Sigurðssonar, sölu- og markaðsstjóra hjá Arnar- flugi, mun vélin flytja byggingar- efni milli Ítalíu og Kamerún, en flugið milli þessara tveggja staða tekur um 15 klukkustundir. Vélin er nýkomin úr skoðun hjá Fred Olsen í Osló, en ýmsar lag- færingar voru þar gerðar á henni. Electra-vöruflutningaflugvél Arnarflugs Heimsóttu barnaspltala Hringsins Skemmdarverk á húsum í Flatey á Skjálfanda llúsavík, 19. apríl. SKEMMDARVERK voru unnin í fvrra á húsum i Flatey á Skjálfanda, en hús þessi hafa verið notuð til sumardvalar síðan byggð lagðist niður i eynni. Húsunum hefur verið vió haldió og sum þeirra endurbætt og það sem skemmt var i fyrra hafði verió lagfært. Nú um páskahelgina hafa óþurftarmenn aftur gengið á land í Flatey og framið sams konar spjöll og gengið hálfgeróan ber- serksgang um húsin. Brotizt var inn í þau, rúður brotnar og Ijósastæói og umgengnin eins og íslendingum er ekki sæmandi. Við höfnina standa verbúðir sem notaðar hafa verið á vorin í sambandi við verkun grásleppu- hrogna og sem veiðarfærageymsl- ur. Inn í þá skúra, sem næstir voru, hafði verið brotizt og þar ruslað til og gerð tilraun til að kveikja í einum skúranna, en sú tilraun heppnaðist ekki. Ef eldur hefði brotizt út hefðu mikil verð- mæti farið forgörðum bæði í þess- um skúr og nærliggjandi, en þar voru geymd veiðarfæri. Það sem vekur undrun manna er að ólæstir skúrar voru látnir í friði, en brot- izt inn í læsta skúra. Skemmdarverk sem þessi eru letjandi fyrir fólk og svo kann að fara, að fólk hætti að halda hús- um við og geti því ekki veitt sér þá ánægju að dvelja um tíma á forn- um slóðum og æskustöðvum. — Fréttaritari I.jÓNm.: KÖK. Körfuknattleiksmennirnir úr Harlem Globetrotters sýndu listir sínar í fyrsta sinni I Laugardalshöllinni í gærkveldi. Fyrr um daginn heimsóttu þeir lam- aða og fatlaða og einnig litu þeir inn á barnaspítala Hringsins. Á meðfylgj- andi mynd eru þeir á barnaspítalanum og sýna sjúklingunum knattfimi sína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.