Morgunblaðið - 12.05.1982, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ1982
77
ifikt'AKANDI
Ragnhildur Gísladóttir var kos-
in söngkona ársins 1982 og er því
tvímælalaust sú söngkona sem
flestir vilja hlusta á, þó að Dag-
blaðið & Vísir hafi eitthvað rugl-
ast á leturstærðinni á þeirri frétt
og annarri sem ekki var neinum
fagnaðarefni en góð sölufrétt.
Ragnhildur var aðaldriffjöðrin í
stofnun kvennahljómsveitar á síð-
asta ári, og völdu þær henni frum-
legt en rammíslenskt nafn, Grýl-
urnar. Hafa þær stelpurnar frá
byrjun fylgt rokkinu og má þá
kannski segja í nýrri stefnu. Mér
finnst þessi stefna ekki höfða sér-
lega til mín, enda orðinn gamall.
Hins vegar er mér að skapi það
framtak og áræði að stofna
kvennahljómsveit og brjótast inn
á þann skemmtanamarkað þar
sem karlmenn hafa verið svotil
einráðir.
Fram koma í tilskrifum Anne-
marie umhugsunarverð atriði,
þ. á m. um fiskvinnu. Við íslend-
ingar höfum sumir skömm á fisk-
vinnu og þykir hún heyra til gam-
alla kvenna og fráskilinna. Sann-
leikurinn er sá, að þeir hinir sömu
skammast sín fyrir að hafa ekki
tekið þátt í þessari mikilvægustu
atvinnugrein okkar. Ég skal viður-
kenna, að allur minn starfsferill í
fyrstihúsi er ein vika. Hins vegar
er ég ekki óvanur að stunda fisk-
veiðar eftir 10 ára sjómennsku.
Margir falla í þá gryfju að
skrifa og fullyrða án undangeng-
inna athugana, og því síður sann-
ana. Nú vill svo undarlega til, að
ein Grýlanna vinnur við fisk-
vinnslu í frystihúsi á milli þess
sem hún æfir og spilar, og hinar
hafa flestar starfað við þá ágætu
og nauðsynlegu atvinnugrein um
lengri eða skemmri tíma. Líkt er
með þær og flesta aðra sem starfa
við tónlist, að tónlistarstarfið er
aukavinna sem bætt er á sig utan
venjulegs vinnutíma. Gildir þar
eitt og hið sama hvort hópurinn
heitir Grýlur eða Pólýfón.
Að lokum vil ég óska Grýlunum
góðs gengis í framtíðinni. Þær
eiga svo sannarlega heiður skilinn
fyrir framtak og dugnað á sínu
sviði. Slíka ósk færi ég einnig
Pólýfónkórnum og Hauki Morth-
ens, og öllum öðrum, ungum og
gömlum, sem halda uppi með mik-
illi vinnu tónlistarlífi hér á landi,
hver á sínu sviði.“
að unnt sé að fá þessa góðu að-
stöðu fyrir uppeldi barnanna, þarf
að búa vel að fóstrum bæði að því
er varðar launakjör þeirra og
starfsaðstöðu.
Þyrfti að kynna
sér málin betur
Iljúkrunarfræóingur hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Við
vorum sammála um það nokkrir
hjúkrunarfræðingar, að nauðsyn-
legt væri að leiðrétta ummæli
Þrastar Ólafssonar sem hann
viðhafði í viðtali við Dagblaðið í
gær (mánudag). Þar segir hann,
að upphæð mánaðarlauna hjúkr-
unarfræðinga segi lítið sem ekk-
ert, launin hækki svo fljótt. Við
sjáum ástæðu til að upplýsa Þröst
um það, að við hækkum ekki í
kaupi um svo mikið sem krónu
fyrstu fjögur ár okkar i starfi, eft-
ir að námi lýkur. Þetta þyrfti
hann að kynna sér betur, ætti
raunar að vita það, hann sem er í
samninganefnd. Þá talar hann um
að fram hafi farið þrír viðræðu-
fundir. Við könnumst ekki við það.
Allavega hefur okkur ekki borist
vitneskja um viðræður og
þykjumst við þó fylgjast gaum-
gæfilega með framvindu þessara
mála. Þá langar okkur til að vita, í
sambandi við framlengingu upp-
sagnarfrestsins, hvort leyfilegt
hafi verið að boðsenda framleng-
ingarbréfin eins og gert var. Þarf
ekki að senda slík bréf í ábyrgð-
arpósti og láta kvitta fyrir mót-
töku þeirra?
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
Hvað er unnið með
þyí að segja svona?
Sigga skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Eftir að hafa lesið þær greinar
sem voru í þætti þínum föstudag-
inn 7. maí varð ég að skrifa þér.
Fyrst og fremst vil ég benda
Annemarie Bjarnason á að sem
betur fer hafa ekki allir sama
tónlistarsmekk. Mér finnst Grýl-
urnar t.d. ágætar og er ekki ein
um það. Annemarie deilir á
Ragnhildi og segir að leikur
hljómsveitar hennar hafi „varla
glatt marga áhorfendur". Hér ætti
Annemarie að athuga betur sinn
gang.
Ég veit það vel að það eru ekki
margir yfir 35—40 ára aldri sem
hafa áhuga á þessari tónlist, en ég
vil líka benda Annemarie á að það
eru heldur ekki margir undir 30
ára aldrei sem hafa áhuga á klass-
ískri tónlist eða öðru því sem hún
nefnir. Ég spyr: Af hverju skyldu
ekki vera tóniistarþættir fyrir alla
áhugahópa? Af hverju þá ekki
þáttur eins og Skammhlaup líka?
Má ekki leyfa þeim sem gaman
hafa af tónlist eins og Grýlurnar
spila að hlusta á hana, fyrst þeim
finnst hún góð?
Mér hefur alltaf verið kennt að
maður eigi ekki að vera sjálfselsk-
ur. Svo vildi ég nú spyrja Anne-
marie: Ertu nú handviss um að
engin Grýlanna vinni á spítala eða
í fiskvinnslustöð? Reyndar gæti ég
sagt í sama dúr og þú: Geta ekki
einhverjir þeirra sem fluttu
Mattheusarpassíuna farið að
vinna á hinum eða þessum vinnu-
staðnum? En þá spyr ég aftur:
Hvað er unnið með því að segja
svona?
Að lokum vildi ég benda Gunn-
laugi Rögnvaldssyni á það að mér
fyndist að fyrst hann þarf svona
nauðsynlega að setja út á blaða-
mennsku D&V, gæti hann hrein-
lega sagt þeim það eða sent það
skriflega til D&V í staðinn fyrir
að skrifa um það í Morgunblaðið.
Það finnst mér ólíkt eðlilegra."
Giýluraar:
Fjarstæða að alhæfa
um tónlist þeirra
Sigurveig og Kristina skrifa:
„Kæri Velvakandi.
Við gátum ekki orða bundist
þegar við sáum grein Annemarie
Bjarnason um þáttinn Skamm-
hlaup sem sýndur var í sjónvarp-
inu. Okkur finnst fjarstæða að
fólk alhæfi um að tónlistin sem
Grýlurnar flytja sé öskur, og
okkur finnst að klæðnaður og
framkoma komi tónlistinni lítið
við. Hvernig veit Annemarie,
hvort þessi sýning hefur glatt
marga eða fáa eða alls enga?
Auk þess þykir okkur það mjög
óvirðulegt gagnvart Grýlunum að
segja að þær geti gert meira gagn
í fiski eða á spítölum, þegar hver
maður sér, að þær hafa lagt vinnu
í verk sín, þó að tónlistin sé ekki
við allra hæfi.
Þó að við séum ekki frekar að-
dáendur Grýlanna en annarra
hljómsveita fannst okkur þetta
mjög þröngsýnt hjá Annemarie.
GÆTUM TUNGUNNAR
Heyrst hefur: Mest af þeim bókum, sem seldar voru fyrir
jólin, voru íslenskar.
Rétt væri: Mest af þeim bókum, sem seldar voru fyrir
jólin, var íslenskt. (Ath.: Mest... var íslenskt.)
Betur færi þó: Flestar þær bækur ... voru íslenskar.
03? S\GGA V/OGA £ 'CiLVCRAM
INNROMM
Getum nú boðið
vandaða innrömmun
Mikið rammaúrval
afgreiðsla
Má
LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811
Þakka hjartanlega öllum þeim er minntust mín á
áttrœðisafmœli mínu 27. apríl sl.
Haraldur Runólfsson,
Hólum.
Húsrými óskast
60—100 fm húsrými í gamla bænum, sem henta
fyrir eöa innrétta mætti sem vinnu/teiknistofu
óskast nú þegar til leigu eöa e.t.v. kaups.
Tilboð sendist auglýsingad. Mbl. fyrir 18. þ.m
merkt: „K — 6458“.
Eftirfarandi vátryggingarfélög hafa ákveö-
iö aö frá 15. maí til 1. september veröi
opnunartími þeirra
frá kl. 8 til 16
en nauösynlegri afgreiðslu þó sinnt á milli
16 og 17.
ámmm
Tryggmgafélag bindindismanna
Q
rilíííWÍTÍR'
TRYGGINGAR
82800
(*,• * j) S/óvátryggingarfélag ísl.
f Suöurlandsbraut 4.
T50T<G<SIM<SI (g
Laugavegut 178 — Reykjavlh simi 21120. ^^
TRYGGINGAMIÐSTOÐIN í
Aðalstraeti 6.
101 — Reyk/avik
' Vlá U$ <bALTíNG OVf VTd'dT
! Vt4mAUÓT, ‘bTBINA, 06 0ó\
[wla Tm vö wta
Yt& ÚZ
SALVNU
vV
UoMMvffto'rt
5TEMM YtfMV SKO
/JVÝ