Morgunblaðið - 12.05.1982, Síða 32
Þegar sá frægi snærisþjófur Jón Hreggviðs-
son lagði leið sína á fund sinnar allranáðug-
ustu tignar,Danakonúngs hér um árið barst
hann ,,til staðarins Amsturdamms við lónið
mikla sem verður inní Holland og þeir kalla
Suðursjó. Þetta er mikill kaupstaður þaðan-
sem menn sigla til Asíá.”‘Amsturdammur er
ennþá mikill kaupstaður svo ekki sé meira
sagt. Ferðamenn hvaðanæva að leggja leið
sína þangað til þess að kynnast töfrum þessar-
ar heillandi borgar, svo ekki sé minnst á alla
listamennina sem sækja sér innblástur í bygg-
ingarlist hennar, sem einkennist af hinu dul-
úðuga samblandi síkja, brúa, gangporta og
breiðstræta.
Flugleidaferd 11.-15. júní
Flogið verður til Amsterdam 11. júní og gist á
Hotel Sonesta, sem er mjög gott hótel í mið-
borginni.
Flogið verður heim þann 15. um Luxera-
borg.
Innifalið í verðinu er flugfar, ferð frá flugvelli
á hótelið og frá Amsterdam til Luxemborgar,
sigling um síkin, sem Jón Hreggviðsson kall-
aði reyndar graktir, og íslensk farar-
stjórn.
Verð pr. mann í tveggja manna herbergi kr. 3.987.-
Verð pr. mann í eins manns herbergi kr. 4.707.-
Verð fyrir barn 2-11 ára í herb. foreldra kr. 1.994.-
Verð fyrir barn yngra en 2ja ára kr. 400.-
Flugvallarskattur er ekki innifalinn í verðinu.
Athugið að aðeins er um þessa einu ferð að
ræða á þessu frábæra verði.
Leitið frekari upplýsinga hjá söluskrifstofum
félagsins, umboðsmönnum eða ferðaskrif-
stofunum.
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi
•íslandsklukkan hls. 175. Mclgafcll 1943.