Morgunblaðið - 16.05.1982, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. MAÍ1982
Hafi nokkurt þjóðfélag
nokkru sinni átt framundan
hrapallegt skipbrot, var það
Argentína skömmu fyrir 2.
apríl síðastliðinn. Allt frá því
í árslok 1980 hafa landsmenn
gert sér grein fyrir því, að
brátt myndi þar upp úr sjóða,
eíTda þótt enginn hafi vitað
með vissu, hvers konar ham-
farir væru í vændum. í marga
mánuði fyrir innrásina á
Falklandseyjar var loftið lævi
blandið, og þar ríkti gremja
og örvænting. Hvarvetna
mátti finna hina knýjandi
þörf fyrir að hreinsað yrði
duglega til í þjóðfélaginu.
Borgaralegir stjórnmálamenn
sögðu, að „þjóðfélagsleg
sprenging" væri á næsta leiti,
og var það þeim bersýnilegt
tilhlökkunarefni. Efnahags-
sérfræðingar veltu því fyrir
sér, hvernig gjaldþrot þjóðar-
innar yrði. Innan hersins lá
það orð á, að hægrisinnaðir
herforingjar, sem álitu Leo-
poldo Galtieri háskalegan
miðjumann, hygðust velta
m■\M
Galtieri hershöfðingi, einn þriggja i herforingjastjórninni og gegnir jafn-
framt starfi forseta landsins.
væru aðeins skeinuhættir
landsmönnum sínum, og öðr-
um þjóðum stafaði ekki hætta
af þeim, þótt þeir gengju
kappsamlega fram í því að
drýgja glæpaverk. En fyrir
þremur árum lá við borð, að
Argentína segði Chile stríð á
hendur út af þremur litlum
eyjum, sem yfirleitt hafa ver-
ið taldar tilheyra Chile. Þá
hlutuðust þeir til um innan-
ríkismál Bólivíu og lögðu
fram aðstoð sína við að eyði-
leggja tilraun til að koma á
lýðræði þar í landi. Þeim var
það kappsmál að stjórnarfar í
Bólivíu væri með sama hætti
og í Argentínu.
Þar að auki ala ýmsir
hægrisinnaðir Argentínu-
menn á fáránlegum metnaði
fyrir hönd þjóðarinnar.
Skömmu eftir innrásina í
Falklandseyjar birtist í víð-
lesnu tímariti, sem nátengt er
herforingjastjórninni, grein
með stóru landakorti, þar sem
gefið var til kynna, að Arg-
entína hefði „tapað" land-
Lýðræðið það skelfilegasta
í augum herforingjanna
Höfundur þessarar greinar er James Neilson, fyrrum rit-
stjóri „Buenos Aires Herald" í Argentínu, en sökum ítrek-
aðra líflátshótana flúði hann til Uruguay fyrir skömmu. í
greininni fullyrðir hann, að ástæðan fyrir hertöku Falk-
landseyja hafi verið ótti herforingjastjórnarinnar við
óánægju almennings í landinu fyrir margra hluta sakir.
honum úr sessi og fá í staðinn
forseta sem væri í senn harð-
skeyttari og meiri þjóðernis-
hyggjumaður.
Með öðrum orðum, um
nokkurt skeið hafði verið í
Argentínu landlæg móður-
sýki, sem þjóðinni sjálfri stóð
ekki aðeins ógn af, heldur
einnig grannríkjum hennar.
Og meðal grannríkjanna voru
Bretar vegna yfirráða þeirra
yfir Falklandseyjum.
Harðir þjóðernissinnar í
Argentínu höfðu aldrei farið í
launkofa með þá skoðun sína,
að Falklandseyjar bæri að
taka herskildi og frá því að
Galtieri komst til valda í des-
ember síðastliðnum, var
skeggrætt opinberlega um
kosti og galla þess að innrás
yrði gerð í eyjarnar. Þótt
sumum þætti kostur þessi all-
fýsilegur, töldu þeir þó, að
hann gæti orðið of dýrkeypt-
ur. Hins vegar var ríkisstjórn
Galtieris í svo mikilli úlfa-
kreppu síðustu vikurnar fyrir
2. apríl, að ókostirnir við her-
töku eyjanna virtust smá-
munir einir, ef henni tækist
að umflýja þau örlög, sem hún
hafði búið sér.
Margir eiga sjálfsagt erfitt
með að skilja, hvaða ógn og
skelfingu Galtieri og kappar
hans töldu sig eiga yfir höfði
sér, og álíta, að þeir hefðu
einfaldlega átt að efna til
kosninga og láta borgaraleg
öfl um stjórn landsins um
hríð. Því miður var málið ekki
svona einfalt. Herforingjarnir
í Argentínu telja sig ekki geta
lagt niður völd, því að þá væru
þeir knúnir til að svara fyrir
margháttuð glæpaverk sem
þeir frömdu í valdastólum.
Sannleikurinn er sá, að í aug-
um Galtieri og manna hans er
lýðræðið það skelfilegasta af
öllu í heiminum, jafnvel
skelfilegra en styrjöld.
Miskunnarlaus barátta
Eftir að herforingjar rændu
völdum í landinu árið 1976,
hófu þeir umsvifalaust
miskunnarlausa baráttu gegn
öllu því, er þeir töldu bera
svip af marxisma. I þessari
baráttu var óspart gripið til
pyntinga. Um 15.000 manns,
þar á meðal 100 ungbörn,
„hurfu". Þótt fullvíst þyki, að
obbinn af þessu fólki hafi ver-
ið drepinn, oft á svívirðilegan
hátt, hafa stjórnvöld firrt sig
allri ábyrgð á þeim voðaverk-
um.
Þar að auki liggur það orð
á, að allmargir háttsettir liðs-
foringjar hafi dregið að sér
umtalsverðar fjárfúlgur þau 6
ár, sem herforingjastjórnin
hefur verið við völd, og notað
til þess alls kyns aðferðir.
Ef þingræðisleg ríkisstjórn
tæki við völdum, gæti ekkert
komið í veg fyrir, að dómstól-
ar hæfu rannsóknir á hinum
meintu glæpaverkum og
kvæðu upp dóma yfir hinum
seku. Andófsmenn í Argen-
tínu líkja þessum væntanlegu
skuldaskilum við Níirnberg-
réttarhöldin, og óttinn við þau
veldur því, að herforingjarnir
munu halda dauðahaldi um
stjórntaumana, hvað sem það
kostar.
Örvæntingarbragð
Það er því augljóst, að inn-
rásin í Falklandseyjar var ör-
væntingarbragð herforingja-
stjórnarinnar. Með því að
leggja út í vinsælt ævintýri
gat hún bægt athygli manna
frá ófremdarástandinu heima
fyrir. Ef stjórnin hefði metið
rétt, er hugsanlegt að þetta
hefði tekist, því að nálega
sérhver Argentínumaður er í
hjarta sínu sannfærður um,
að Falklandseyjar tilheyri
Argentínumönnum. Eigi að
síður er ekki víst, að stjórn-
inni hefði tekist að ávinna sér
vinsældir almennings með
þessu bragði, en þótt hann
hafi hrósað sigri opinberlega
vegna töku eyjanna, hefur
álitið á ríkisstjórninni ekki
batnað. Hún er enn sem fyrr
talin fyrirlitleg, spillt, grimm-
úðleg og óhæf í alla staði.
En herforingjastjórninni
urðu á hrapalleg mistök, er
hún taldi, að hertaka eyjanna
yrði látin átölulaus á alþjóða-
vettvangi. Bretar létu sér ekki
nægja að bera fram mótmæli,
fá ríki lýstu yfir stuðningi við
aðgerðir Argentínu og bresku
hermennirnir voru ekki úr-
kynjaðir, síðhærðir eitur-
lyfjaneytendur, eins og her-
foringjastjórnin hafði haldið,
heldur reyndust þeir hinir
vígalegustu. Hvorki stjórn-
völd í Argentínu né almenn-
ingur hafði búist við mikilli
mótstöðu, en þegar Bretar
reyndust fastir fyrir, kom
annað hljóð í strokkinn.
Margaret Thatcher var sökuð
um að gera of mikið úr her-
tökunni, og svo fóru
Argentínumenn líka að rífest
innbyrðis.
Sjálfsblekking
En herforingjastjórnin mis-
reiknaði sig eins og frægt er
orðið, enda hefur hún oft áður
gert sig bera að furðulegustu
sjálfsblekkingum. Almenn-
ingur í Argentínu vill gjarnan
heyra það sem honum er sagt,
en hann er orðinn svo vanur
því, að opinberir aðilar hag-
ræði sannleikanum, að hann
getur ekki leyft sér þann
munað að trúa þeim núna.
Gorgeirinn í stjórninni fer
núorðið í taugarnar á fólki. I
byrjun apríl var argentínska
þjóðin í innilegri gleðivímu,
eins og sagt er að hafi gripið
um sig í Evrópu í upphafi
heimsstyrjaldarinnar fyrri.
Er apríl var á enda runninn,
hafði ömurlegur hversdags-
leikinn náð tökum á þjóðinni
aftur.
Um nokkurra ára skeið hef-
ur það ekki verið neitt
launungarmál, hvers konar
menn hafa farið með æðstu
stjórn Argentínu. Hins vegar
hafa fáir valdamenn í heimin-
um hugsað þá hugsun til enda,
hverju slíkir menn gætu kom-
ið til leiðar. Jimmy Carter,
fyrrum Bandaríkjaforseti, var
þar heiðarleg undantekning.
Aðrir fullvissuðu sig um, að
hershöfðingjarnir í Argentínu
svæðum til Chile, Bólivíu,
Perú, Brasilíu, Paraguay og
Uruguay. Paraguay-menn
tóku aðdróttanir þessar
óstinnt upp og báru fram
opinber mótmæli. Þótt furðu-
legt megi virðast, tóku hin
ríkin þessu með þegjandi
þögn.
Ástæðan fyrir Falklands-
eyjaævintýrinu er umfram
allt hið ömurlega ástand í
Argentínu. Ef þar ríktu lýð-
ræðislegir stjórnarhættir og
hagsæld og þjóðin nyti virð-
ingar á alþjóðavettvangi,
myndu yfirráðin yfir Falk-
landseyjum engu máli skipta.
Ef þar ríkti ekki harðsvírað
einræði og sárafátækt, hefðu
málin ugglaust þróast á ann-
an veg. Það má jafnvel gera
ráð fyrir því, að Bretar hefðu
beðið Argentínumenn að taka
■ið sér yfirstjórn eyjanna, ef
l eim hefði tekist að gera land
itt að eins konar spænsku-
mælandi Ástralíu.
En því fer fjarri, að hag-
sæld og hamingja ríki í Arg-
entínu. Þar ræður ferðinni
þráhyggja, hatur og hugarór-
ar. Mistök á mistök ofan hafa
dregið kjark úr fólki og sært
stolt þess. Það skal því engan
undra þótt yfirráð Breta yfir
eyjaklasanum hafi hægt og
bítandi orðið að skelfilegri
smán við hina hvekktu þjóð-
arsál.
Eins og nú standa sakir,
geta Argentínumenn varla
hrósað sigri án þess að her-
foringjaklíka Galtieri geri
það líka. Best væri fyrir þjóð-
ina, ef málunum lyktaði á
þann veg, að harðstjórninni
yrði steypt af stóli og í stað
hennar kæmi þingræðis-
stjórn, sem taka myndi upp
samningaviðræður við Breta
um yfirráðin yfir Falklands-
eyjum. Því miður eru þó ekki
horfur á að herforingjastjórn-
in falli, eins og hin illræmda
herforingjastjórn í Grikk-
landi, þar sem nú ríkir lýð-
ræði. Hætt er við að ástandið
í Argentínu leiði til þess, að
ný herforingjastjórn taki við
af Galtieri og verði hún sýnu
harðskeyttari og hættulegri
heimsfriðnum.
- JAMES NEILSON
Norræna félagið:
Fundur hjá
Grænlands-
förum
EINS OG kunnugt er munu Græn-
lendingar í Eystribyggð undir for-
ystu baejarstjórans í Qaqortoq
(Julianeháb) Henrik Lunds, efna
til glæsilegra hátíðarhalda dag-
ana 2.-9. ágúst nk. í tilefni af því
að 1000 ár eru liðin síðan Eiríkur
rauði Þorvaldsson kom fyrst til
Grænlands.
Norræna félagið beitir sér fyrir
hópferð um mánaðamótin júlí-
ágúst til Grænlands af þessu til-
efni. Tæplega tvö hundruð manns
hafa þegar skráð sig en rými er
fyrir 150 manns.
Væntanlegir Grænlandsfarar
eru boðaðir á áríðandi fund í
Norræna húsinu þriðjudaginn 18.
maí nk. kl. 20.30.
Fyrirlestur
um verk A.D.
Jorgensen
DANSKI sagnfræðingurinn og
skjalavörðurinn Harald Jnrgensen
flytur fyrirlestur í boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands þriðjudag-
inn 18. maí kl. 17.15 í stofu 423 í
Arnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist: „A.D.
Jorgensens beromte værk: 40 for-
tællinger af fædrelandets hist-
orie", og er hann fluttur á dönsku.
Öllum erheimill aðgangur.
Harald Jorgensen var til
skamms tíma landsskjalavörður í
Landsarkivet for Sjælland, og
hann kemur hingað til lands sem
ráðunautur menntamálaráðuneyt-
isins um skjalavörslu. En hann
hefur einnig skrifað og gefið út
fjölmargt um danska sögu. í þetta
sinn hefur hann kosið að tala um
bók afa síns A.D. Jorgensen, en sú
bók mun hafa orðið einna vinsæl-
ust allra danskra sagnfræðirita
sem út hafa komið. Hún er hundr-
að ára í ár, kom út í áttundu út-
gáfu í fyrra og hafði þá komið út í
60.000 eintökum alls.
Dagskrá á
þjóðhátíð
Norðmanna
í TILEFNI þjóðhátiðardags Norð-
manna, sem er á morgun, 17. maí,
hefur stjórn Nordmannslaget í
Reykjavík tekið saman dagskrá er
hefst með því að klukkan 9.30 verð-
ur lagður blómsveigur á leiði fall-
inna Norðmanna, sem hvíla í Foss-
vogskirkjugarði.
Klukkan 10.30 hefst skemmtun í
Norræna húsinu fyrir norsk-
íslenzk börn, farið verður í skrúð-
göngu í tilefni dagsins og spilar
skólahljómsveit Mosfellssveitar.
Um kvöldið verða hátíðahöld í
Golfskálanum við Grafarholt og
þar verður norskur matur á boð-
stólum.
Kosningahátíð
A-listans hald-
in í Súlnasal
A-LISTINN í Reykjavík efnir til
kosningahátíðar að Hótel Sögu á
mánudagskvöld og flytja efstu
menn listans ávörp. Á kjördag
verður ekki um kosningastarf af
hálfu flokksins að ræða, að öðru
leyti en því, að veitingar verða á
boðstólum í kosningamiðstöðvum
og bílasímar verða fyrir þá, sem
óska eftir aðstoð til að komast á
kjörstað.