Alþýðublaðið - 11.09.1920, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 11.09.1920, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið Gefið tit aí AlþýÖidlokknum. 1920 Laugardaginn 11. september. 208. töiubl. T 1 1 * L a adst jari er flutt nan í At sturstræ- fci 1 10. Öfugfstreymi. Ein af ásfæðuraum til þess, að unga fólkið hefir fluzt ór sveitun- um til kaupstaðarana er só, á Norðurlandi, að bændur höfðu nokkuð af fólki aflógu, vegna þess hve búskaparlagið var garnaldags, og hugsunin lítil á því að bæta tún og engi. Þegar farið var að stunda síldveiðar, óx atvinnan við sjóinn ár frá ári. Kaupið var dá- gott og hækkaði. Bændur sáu sér leik á borði — þeir óhagsýtiu og fégjörnu — og að hér var tæki- færi til þess að haía meira »upp úrc hjúinu og sendu það oft og tíðum í síldarvinnu. Einkum átti þetta við um þær sveitir er næst- ar láu síldveiðistöðvunum. A Suð- urlandi varð líkt uppi á teningn um þegar þilskipaútgerð óx, og með togaraútgerðinni fór það enn meir í vöxt, að bændur sendu vinnumenn sína >til sjóss. Að þessu er þannig varið vita flestir reyndir útgerðármenn og sk’p stjórar og sjómennirnir þekkja þetta, og verkamenn um alt land vita það og þekkja þess ótal dæmi, að vinnumenn voru og eru jafnvel enn sendir til kaupstað- anna til vinnu og jafnvel bæradur sjálfir hafa sótt vinnu til bæjanna Hver var nú afleiðingin af þessuf Hún var sú, aö vinnuhjúið, sem oft færði húsbóndanum heim tveggja til þriggja ára kaup sitt í »glærumc peningum, hlaut að finna til þess, að hér var því gert rangt til. Og loksins komst það að þeirri niðurstöðu, að miklu frjálsar og eðlilegra var, að það fengi sjálft það fé, sein það með súrum sveita vann sér inn, með sínum kröftum. Og hin eðlilega afleiðing var su, að það sagði húsbóndanum upp vistinni og flutti sig til bæjarins. Eins fór fyrir bóndanum, sem fór að vinna við og við í bænum, honum fanst girnilegra að sjá peningana glampa í lúkum sér, en að sjá búpening- inn heima hjá sér, eða iðjagræn túnin. Honum fanst það engir peningari Og þó merkilegt megi virðast hefi eg orðið var við þenna hugsunarhátt, enn þá á þessum tfma. Tímakaup daglauna- mannsins í bænum vilti honum og villir honum sýn. Hann athugaði það ekki, að vinnan er víða stop- ul. Og fæstir verkamenn hafa vinnu alla dagar ársins. Að sæld- arlíf verkamannsins er blekkingl Nu er svo komið, að vinnu- hjúaskortur er í sveitum, að því er margir segja. Og ástandið batnar ekki meðan búskapnum fleygir ekki meira áfram en nú er, og meðan b'ændur alment halda að bæirnir séu hið sanna gósenland 1 í stuttu máli, höfuðorsökin til aðstreymisins til bæjanna er sú, að sjávarútveginum hefir fleygt svo fram úr landbúnaðinum, að þeim er ekki saman jafnandi. Höfuðatriði þessa máis er því það, að bændur leggi alla stund á það, að efla landbúnaðinn og umfram alt bœta búskaparlagið. Kvásir. €rlenð simskeytl Khöfn, 9. sept. Krasin á heimleið. Frá London er símað að Krasin haldi heim yfir Riga. Kolaverkfallið. Brezka stjórnin ætlar að iáta kosningar fara fram, ef kolanámu- menn gera verkfall. Cork-borgarstjórinn. Lloyd George hefir ekki ennþá breylt afstöðu sinni til Cork borg- arstjórans. Blaðakongnr danðnr. Þýzki blaðakongurinn Rudoif Mosse er látinn. Hann var meðal annars eigandi Berliner Tageblatt. Hj úkr anarkonurnar. Norrænt hjúkrunarkonuþing er nýafstaðið.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.