Morgunblaðið - 03.07.1982, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 1982
llmsjónarmaður Gísli Jónsson
P>nn hef ég fengið Pálsbréf,
og mun ekki af veita. Góð-
kunningi minn, Páll Helgason
á Akureyri, hefur sjöunda bréf
(til mín) svo og mælir nú í
ljóðstöfum í fyrsta sinni:
Kárra kosta mitt er mál,
Mín því sljó er hyggja.
Sama graut í sömu skál
og síAast máttu þiggja.
Ef allir töluðu og rituðu mál
svo margra kosta sem Páll
Helgason, þyrfti engu að kvíða
í því efni. Hyggja hans er og
ekki sljórri en svo, að hann er
hverjum manni hnaskari að
taka eftir mállýtum í því sem
hann les.
Ég hef haft þann sið að birta
mjög margt af þessum mállýt-
um til viðvörunar, en aldrei
getið úr hvaða blöðum eða
tímaritum lesmálið er. Slíkt
gæfi einungis til kynna hvaða
lesmál er Páli tamt, en væri
ekki vísbending um málfar
einstakra blaða. Aður en vitn-
að er til dæma úr Pálsbréfi
VII, skal aðeins vikið að eign-
arfallinu fárra kosta í upp-
hafslínunni á vísu Páls. Held
ég svo áfram að taka í smá-
skömmtum dæmi um forsetn-
ingarlaus aukaföll, sem ég hef
miklar mætur á.
Eignarfallið fárra kosta
nefnist eðliseignarfall og þarfn-
ast sjáanlega ekki forsetn-
ingar, enda bágt að finna hver
hún ætti þá að vera. Mjög ein-
föld dæmi um eðliseignarfall,
úr daglegu nútímamáli, eru:
Barnið er þriggja ára, húsið er
margra hæða (margra hæða
hús). Eðliseignarfall er algeng-
ara að fornu en að nýju og
mun í því bókmáli, sem varð-
veist hefur, gæta áhrifa frá
latínu, en í henni voru höfund-
ar íslenskra fornrita spreng-
lærðir. Talað er um korn til
dæmis, það sem var lítils vaxt-
ar. Seinna stældi góður prest-
ur, Eiríkur Brynjólfsson, söng-
texta um Nóa, sem var „mikils
háttar maður". En þegar sagt
er að einhver sé mikillar ættar,
þá fer að verða spurning hvort
ekki væri réttara að flokka það
undir upprunaeignarfali.
I síðasta þætti var sagt frá
hinu nauðasjaldgæfa tímaeign-
arfalli (kom annars dags). Þá er
ónefnt tillitseignarfall (með lýs-
ingarorðum), dæmi: Vegurinn
er erfiður yfirferðar. Hann er
illur viðureignar. Konungsgarð-
ur forn var sagður rúmur inn-
gangs, en þröngur brottfarar.
Ékki vildi ég hafa gleymt stað-
areignarfalli, sem varðveitist til
dæmis í orðasambandinu þessa
heims og annars.
Víkjum þá aftur að bréfi
Páls. Hann tekur dæmi úr
blaði, þar sem skrifað var um
að koma upp frystu skauta-
svelli. Höfundur mun eiga hér
við „vélfryst" skautasvell, þ.e.
svell sem verður til með til-
styrk frystivéla, en ekki af
náttúrlegum orsökum. Því tek-
ur Páll þetta upp, að svell er að
sjálfsögðu frosið, og það
hljómar andkannalega að
heyra orðasambandið fryst
svell. Þó skal viðurkennt að
munur er á því og hinu, ef tal-
að væri um frosið svell. Það
væri hrein tátólógía, og er hér
auglýst eftir góðu nýyrði um
þetta fyrirbæri mannlegs
máls. Óþörf tvítekning, svo
sem frosið svell, andvana lík,
snauður fátæklingur, heitir al-
þjóðlegu orði tautologia. Ég tók
þann kost, sem sjá má, að rita
það eftir íslensku lagi, því að
mig skortir þarna gott nýyrði.
I næstu klausu (Pálsbréf
VII, 2) er dæmi um skakka
beygingu sagnarinnar að
valda. Sú beyging, sem rétt
telst, er mjög óregluleg: valda,
olli, hef valdið. Þetta veldur því,
að menn hneigjast til að segja:
hefur ollið eða ollað. Þótt dæmi
um slíkt tal séu gömul á bók-
um, er það ekki talið „rétt“
mál.
Enda þótt sögnin sé vand-
meðfarin, vildi ég biðja menn
um að firrast hana ekki og
flýja til hinnar Ijótu sagnar að
orsaka. Við skulum heldur
segja að valda einhverju og
hætta þá á hvort við kunnum
að beygja sögnina rétt, heldur
en að tala um að orsaka eitt-
hvað.
Þriðja dæmi Páls er um
brenglaða orðaröð: „Ég held að
þær í Grýlunum hefðu látið
sér ekki detta það í hug.“
Þetta er mjög einkennilegt.
Atviksorðið ekki á þarna að
koma strax á eftir hjálpar-
sögninni hefðu. En gott var að
fá þetta dæmi. Staða atviks-
orða í íslensku er einmitt í
stórhættu fyrir áhrif frá
ensku. Þau áhrif eru hins veg-
ar á þann veg að færa atviks-
orð framar, en það á að vera að
íslenskri hefð og hætti. At-
viksorð heita á latínu adverbia
(meðsagnarorð), því að tíðast
standa þau einmitt með sögn-
um og tákna þá hvar, hvernig
og hvenær eitthvað gerist og á
hve háu stigi eitthvað er. At-
viksorð er jafnan eftirsett í ís-
lensku: Hann kemur aldrei.
Hún veit þetta áreiðanlega. í
ensku er atviksorð hins vegar
fyrirsett í slíkum dæmum: He
never comes. She certainly
knows this. Því miður heyri ég
og sé mörg dæmi þess, að farið
sé að hafa enska háttinn á
þessu í máli okkar. Ýkt dæmi
væri: Hún núna veit þetta, í
153. þáttur
stað þess að segja: Hún veit
þetta núna.
Mér dettur því í hug að
dæmið, sem Páll tók, vitni um
ofleiðréttingu (hypercorrect-
ion). Maðurinn veit af því, að
hætta er á að hafa atviksorðið
of framarlega. Nú ætlar hann
aldeilis að gæta sín og segir,
„að þær í Grýlunum hefðu lát-
ið sér ekki detta þetta í hug“.
Oft hefur í þessum þáttum
verið drepið á notkun fornafn-
anna hvor og annar og sam-
hengi þeirra. í bréfi Páls (VII,
4) er þessi klausa: „... og þeir
sem síðastir eru í röðinni
reyna að telja kjarkinn hvor í
aðra.“ Hér skortir á samræmi
eintölu og fleirtölu. Hvorir
(hverjir) telja kjarkinn í aðra,
en hvor (hver) telur kjark í
annan.
Þá skal minnst á beygingu
sagnarinnar að Ijá = lána, að
gefnu tilefni frá Páli Helga-
syni. Sögnin hét á eldra mál-
stigi léa og lýsingarhátturinn
léað. Nú er tvennt til. Hljóða-
sambandið éa breytist þrá-
sinnis í já með þeirri sérís-
lensku breytingu sem heitir
samdráttur (tvö atkvæði verða
eitt). Yrði þessi breyting í öll-
um kennimyndum, kæmi út
samræmd beyging: Ijá - Ijáði -
Ijáð. En málinu er ýmislegt
betur gefið en samræmi. Það
er einnig sú venja, að grannt
sérhljóð falli niður á eftir
breiðu sérhljóði eða tvíhljóði.
Ef það gerðist í öllum kenni-
myndum, kæmi út samræmda
beygingin lé - léði - léð. í
nafnhætti reyna menn löngum
að láta sagnir enda á a (eða á),
og því heitir sögnin nú að Ijá,
en í síðari kennimyndunum
hefur orðið brottfall. Kemur
þá út hin ósamræmda beyging:
Ijá - léði - léð (nútíð: ég ljæ).
Þetta mun tíðast. Hitt get ég
ekki talið rangmæli, þótt menn
samræmi beyginguna: ljá,
ljáði, ljáð.
Fyndnasta dæmið úr 7. bréfi
Páls (til mín) er svo: „Margt
verður gert af hálfu skólans í
tilefni af 100. ártíð hans.“
Artíð er dánarafmæli: Skól-
inn ætlar sem sagt að verða
margtækur í athöfnum, þegar
hann hefur verið dauður í
hundrað ár.
P.s.
Vegna fyrirspurnar í Vel-
vakanda á þriðjudaginn, leit-
aði ég til starfsmanna Orða-
bókar Háskólans um aldur
orðasambandsins alla vega í
merkingunni að minnsta kosti.
Ekki fundust eldri dæmi en frá
okkar öld og þau nýleg, t.d. í
verkum Jónasar Árnasonar og
Þorsteins frá Hamri.
V erzlunarmannahelgín:
Hátíð Re^kjavikur
skáta að Úlfljótsvatni
SKÁTAFÉLÖtlIN í Reykjavík ætla
að halda afmælismót um verslun-
armannahelgina í ár til að minnast
þess að 70 ár eru liðin frá því fyrsta
skátasveitin var stofnuð í Reykjavik.
Heiðursgestir verða frú Hrefna
Tynes og Oskar Pétursson. Kjör-
orð mótsins er „Austur aftur".
Mótið er tvíþætt, annars vegar
skátabúðir og hins vegar fjöl-
skyldubúðir. Dagskrá verður í
gangi fyrir alla aldurshópa.
Dagskráin í skátabúðunum
byggist á flokksstarfi, og er aðal-
lega um að ræða ýmsa dagskrár-
pósta og markferð. Meðal dag-
skrárpósta má nefna trjárækt,
girðingu, hnýtingar, radíóskátun,
refaveiðar, gönguferðir, vatnasaf-
ari, þrautabraut o.fl.
83000
4ra herb. íbúö viö Hólabraut, Hafn.
Góð 4ra herb. íbúö á 1. hæð í tvíbýlishúsi, þribýlishúsi, bílskúrsrétt-
ur, bein sala, hagstæð kaup.
Einbýlishús viö Uröarstíg, Hafn.
Lítið járnklætt timburhús, hagstætt verð.
Einbýlíshús viö Unnarstíg, Hafn.
Lítið einbýlishús á einni hæð, hagstætt verð. Laust fljótlega.
Viö Sólheima, Rvík
lítil snotur íbúð með sérinngangi. Hagstætt verð.
Opiö alla daga til kl. 10 e.h.
FASTEICNAÚRVALIÐ
SÍMI83000 Silfurteigii
Sölustióri: Auðunn Hermannsson, Kristján Eiríksson hæstaréttarlögmaöur
Til sölu
Járnvarið timburhús
Til sölu er þetta fallega hús staösett í Hafnarfiröi.
Stærö þess er 172,4 m2 og stækkunarmöguleikar
miklir. Bílskúrsréttur er viö húsiö. Lóöin er stór og
fyrirkomulag skemmtilegt.
Mjög athyglisverð eign sem gefur ótakmarkaöa
möguleika.
Nánari upplýsingar í síma: 25977, 25972, 54731.
HÚSEIGNIN
Sími 28511
Opið í dag, verðmetum eignir sam
dægurs.
Einbýlishús Mossfellssveit
Hæð og kjallari 240 fm plús söklar aö búlskúr, húsið er timburhús á
steyftum kjallara, nýtt, verð kr. 2,3 millj. Skipti koma til greina.
Hótel til sölu
Veitinga og gistihús í fullum rekstri. 19 ára steinhús úti
á landi samtals 320 fm á einni hæö, 6 gistiherb. Stór (50—60
manna) salur, auk þess 5 herb. íbúð i húsinu, bilskúr, allur búnaður
fylgir með, verð 1,6 millj.
Kleppsvegur — 3ja herb.
90 fm í lyftublokk við Kleppsveg mjög vönduð íbúð, gott skápa-
rými.suðu svalir. Verð 900—1 millj.
Hraunbær — 2ja herb.
Vönduð 2ja herb. íbúö á 2. hæð við Hraunbæ. 67 fm. Verð 700 þús.
Dalsei 7—8 herb.
160 fm íbúð á tveim hæðum 6 svefnherb. Verð 1.6—1.7 millj.
Gamli bærinn — verö aðeins 750 þús.
85 fm hæð og ris allt sér i gömlu steinhúsi. Stórar stofur, stórt
barnaherb., og eldhús á hæðinni. í risi stórt svefnherb., og bað.
Verð aðeins 750 þús.
Njálsgata — 4ra herb. efri hæö verö 750 þús.
75 fm efri hæð í þríbýli í skemmtilegu eldra járnklæddu timburhúsi.
Verð 750 þús.
Hraunbær — 4ra herb.
110 fm á 4. hæð. Mjög vönduð, sór smíðaöar innróttingar. 3 svefn-
herb., stofa með suður svölum. Þvottahús í ibúðinni. Verð 1.100
þús. Skipti koma til greina á góðri 3ja herb. íbúð í Þingholtunum.