Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982 Sölustofnun lagmetis: Rækjuútflutningurmn tvö- til þrefaldast „YMIST er búið að gera eða verið að l'ani'a frá samningum, sem þýða, að á þessu ári verður um að ra-ða algjört metár í útflutningi á niðursoðinni rækju. Miðað við útflutning á síðasta ári er um tvij- til þrefiildun að ræða og miðað við fyrri ár er um margföldun að ræða. I magni er þetta á milli 5 og 6 milljónir dósa að andvirði um 70 Verkamannabústaðir: 308 íbúðum úthlutað — 1200 sóttu um HTJOKN verkamannabústaða í Keykjavík hefur á þessu ári úthlutað rúmlega 300 íbúðum í verkamanna- bústiiðum, ýmist ^nýjum eða endur- söluíbúðum. IJmsækjendur um þessar íhúðir voru alls 1.200. Að sö|;n Ríkharðs Steinbergsson- ar, framkvæmdastjóra verka- mannabústaða, er hér um að ræða 176 nýjar ibúðir við Eiðsgranda og verða þær afhentar á árinu 1983 og fyrri hluta ársins 1984. Hinar íbúð- irnar eru endursöluíbúðir, flestar í Breiðholti, en verkamannabústaðir hafa forkaupsrétt á um 2.300 íbúð- um í borginni. Þá sagði Ríkharður, að næst á dagskrá væri að hefja byggingu 90 ibúða í Ártúnsholti og 110 íbúða í Selási. millónir króna," sagði Heimir Hann- esson, framkvæmdastjóri Sölu- stofnunar lagmetis, er Mbl. innti hann eftir söluhorfum á niðursoðinni rækju. „Helztu samningarnir hafa verið gerðir við stórar verzlanasamsteyp- ur í Vestur-Þýzkalandi, meðal ann- ars eina, sem heitir Aldi, en eins og er fer öll rækjan til Vestur-Þýzka- lands," sagði Heimir. „Við erum ánægðir með þessa samninga og teljum það nánast kraftaverk hve vel okkur hefur gengið að komast inn á þennan markað. Við erum einnig að kanna markaðshorfur í Bandaríkjunum og Bretlandi og vonumst til að geta haldið sam- bærilegri eða betri samningagerð áfram. Þegar er búið að gera samn- inga, sem ná fram á næsta ár, en það er ekki inni í tölunni, sem ég nefndi áðan, ef svo væri myndi and- virðið hækka um að minnsta kosti 10 milljónir." Er til nægilegt hráefni til að framleiða upp í þessa samninga? „Það er náttúrulega Ijóst að það þarf feykilegt hráefni í þetta. í 5 milljónir dósa þarf um 3.300 lestir af ópillaðri rækju og við teljum okkur vera búna að tryggja okkur nægilegt hráefni. Meðal annars hef- ur verið veittur viðbótarkvóti á rækjumiðunum og nokkuð magn keypt af Rússum. Þessir samningar geta skapað verkefni fyrir 3 til 4 verksmiðjur langt fram eftir árinu og eru okkur því mjög mikilvægir hvað snertir atvinnu," sagði Heim- ir. Pólýfónkórinn á Spáni: Aðsókn og móttaka framar björtustu vonum — segir Ingólfur Guðbrandsson Frá Arnaldi Indriúasyni í (iranada, 5. júlí. Á ÞKItlJA þúsund manns hlýddu á tónleika l'ólýfónkórsins í gríðarstórri 16. aldar dómkirkju Cranada borgar á Spáni í kvöld að viðstöddum borgar- stjóranum. Tónleikarnir vöktu mikla hrifningu meðal áheyrenda, sem stóðu upp og klöppuðu lengi að tón- leikunum loknum. Þessir tónleikar eru hinir fjórðu sem Þólýfónkórinn hefur haldið á söngferðalagi um Spán. „Ég held það sé skoðun flestra hér, að aðsókn og móttaka hafi far- ið fram úr björtustu vonum,“ sagði Ingólfur Guðbrandsson, stjórnandi kórsins í samtali við Mbl. að tón- leikunum loknum. Pólýfónkórinn hefur haldið tón- leika í borgunum Malaga, Marbella, Nerja og nú síðast í Granada. Þar stendur yfir 31. tónlistarhátíð borg- arinnar. Fimmtu ogsíðustu tónleik- ar kórsins verða í borginni Sevilla annað kvöld. Tónleikarnir hafa vak- ið mikla athygli og mjöggóð aðsókn hefur verið að þeim. Segja má, að ætíð hafi verið húsfyllir. í Malaga hlýddu um 600—800 manns á tón- leika kórsins, í Marbella voru um 600 áheyrendur, og í Nerja hlýddu um 900 manns á tónleika kórsins. í Granada i kvöld mættu eins og áður sagði um tvö þúsund manns. „Ég fann streyma um mig kulda og fegurð norðursins þegar kórinn fiutti verk Jón Leifs, Éddu-óratorí- una. Það var stórkostlegt að heyra það, eins og reyndar allt annað á efnisskránni." Þetta sagði einn af áheyrendum Pólýfónkórsins í borg- inni Nerja í samtali við blaðamann Mbl. eftir tónleika kórsins þar. Þessi sami áheyrandi hafði hlýtt á tónleika kórsins í Malaga og síðan ekið liðlega 50 kílómetra leið til Nerja daginn eftir til að hlýða á tónleikana þar. Spánverji að nafnf Rafael Rodriquez sagöi í samtali við blaðamann Mbl. eftir að hafa hlýtt á tónleika Pólýfónkórsins: „í þrjátíu og eitt ár hef ég sótt tón- leika á hátíðinni hér í Granada, en ég hef aldrei verið á stórkostlegri tónleikum og efast um að verða á öðrum slíkum." Fundur í Valhöll kl. 20.30 í kvöld: „Hvers er að vænta í afvopnunarmáliim?“ Frummælandi verður Birgir ísl. Gunnarsson Utanríkismálanefnd SUS, Sam- bands ungra sjálfslæðismanna, j'engst í kvöld fyrir fundi í Valhöll, Háaleilisbraut I, og hefsl fundurinn kl. 20.30. Hann er haldinn í kjallara- sal. Yfirskrift fundarins er: „Hvers er að vænta í afvopnunarmálum?" og mun Birgir ísl. Gunnarsson alþingis- maður halda framsöguerindi, en hann er nýkominn af afvopnunarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York. Mun Birgir í erindi sínu fjalla m.a. um störf ráðstefnunnar og horfurnar framundan. Að ræðu Birgis lokinni varða almennar umræður. „Tilefni fundarins er það að Birg- ir ísl. Gunnarsson sat afvopnunar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York, og ekki síst í ljósi þeirr- ar miklu umræðu sem fram hefur farið um afvopnunarmál að undan- förnu," sagði Éinar K. Guðfinnsson, formaður utanríkismálanefndar SUS í samtali við Morgunblaðið. „Nú eru framundan veigamiklar viðræður stórveldanna um afvopn- unarmál og því þótti okkur eðlilegt að fá Birgi Isl. Gunnarsson til þess að mæta á fund og ræða gang þess- ara mála, ekki síst með tilliti til ráðstefnunnar í New York,“ sagði Einar K. Guðfinnsson. Vegfarendur fylgdust af áhuga með skákmótinu, sem fram fór í blíðskaparveðri á Lækjartorgi. Mynd Mhl. Kmilíi. Skákmótið á Lækjartorgi; Helgi Ólafsson lagði alla andstæðinga sína SKÁKMÓT til styrktar þátttöku íslenzka skáklandsliðsins í Kvrópukeppninni gegn Englend- ingum var haldið á Lækjartorgi i blíðskaparveðri í gær að viðstödd- um fjölmörgum áhorfendum. Helgi Olafsson, sem tefldi fyrir Þjóðviljann, sigraði örugglega, vann alla sína andstæðinga. Tím- inn gaf farandbikar og vann Þjóð- viljinn Tímabikarinn. Helgi var í miklu stuði og sigr- aði alla andstæðinga sína, sjö að tölu. Alls styrktu 30 fyrirtæki Skáksambandið og því tefldu 30 skákmenn í mótinu. Jóhann Hjartarson, sem tefldi fyrir Búnaðarbankann, hafnaði í öðru sæti með 5Vfe vinning. í 3.-4. sæti höfnuðu þeir Friðrik Ólafsson, sem tefldi fyrir Morg- unblaðið, og Björn Þorsteinsson, sem tefldi fyrir Útvegsbankann. Helgi Ólafsson lagði alla andstæð- inga sína að velli. Friðrik Ólafsson, forseti FIDE, í viðureign við Óttar Felix Hauksson, en Friðrik tefldi fyrir Morgunblaðið og hafnaði í 3.—4. sæti. Hreinsun stallanna má ekki dragast lengur — þaö sýna atburðir síðustu daga bezt „ÞAÐ ER búið að tala mikið um að hreinsa þessa stalla, sem voru gerðir fyrir mörgum árum fyrir ofan veg- arstæðið. Á síðasta ári var borið við peningaleysi, en hins vegar tel ég að þetta sé hið brýnasta sem nú liggur íyrir í viðhaldi vega og að mínum dómi á að taka kostnaðinn af við- haldsfé. Það er ekki hægt að mæla því bót að þetta sé ekki gert árum saman og atburðir síðustu daga hafa sannað að þetta má ekki dragast lengur," sagði Matthías Bjarnason alþingismaður Vestfirðinga, er Mbl. spurði hann álits á ástandi Óshlíð- arvegar. Þá sagði Matthías einnig að- spurður um fyrirhugaðar fram- kvæmdir við veginn, sem sam- kvæmt upplýsingum vegagerð- armanna eiga að hefjast í haust: „Hitt er svo annað mál að þær framkvæmdir sem á að ráðast í á Óshlíðarvegi og byrjunarframlag er til á þessu ári hafa auðvitað mikil áhrif á umferðina. Það verð- ur erfitt að halda umferð með eðli- legum hætti um veginn á meðan og auðvitað ekkert við því að segja að það verði ekki hafist handa fyrr en í haust." Þá sagði Matthías einnig: „Þetta er þó aðeins byrjunin á því sem gera á, því þessi áætlun er til nokkurra ára og meginþorrinn af því fjármagni sem nú fer til svo- kallaðra Ö-vega, þ.e. Ólafsvík- urennis, Ólafsfjarðarmúla og Óshlíðar, fer nú í Ólafsvíkurenni og síðan Óshlíð á næsta ári. Engar framkvæmdir verða aftur á móti við Ólafsfjarðarmúla. Hér er að- eins, eins og fyrri daginn, spurn- ing um peninga. En undir kröfur þeirra sem um þennan veg fara tek ég hvað varðar hreinsun á stöllunum og það þó fyrr hefði verið. Það er margbúið að þrýsta á þetta, án árangurs," sagði Matthí- as að lokum. Auglýsendur athugið! Auglýsingar sem eiga að birtast í sunnudagsblaði, þurfa framvegis að berast auglýsingadeild fyrir kl. 16.00 á föstudögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.