Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 3
Iðnaðar ráðu neytið: Þrír ráðnir til að vinna að álmálinu Iönaðarráðuneytid hefur ráðið þrjá menn til starfa til þess að vinna að könnunum í sambandi við álmál- ið. I>orgeir Örlygsson hefur verið ráðinn til þess að skrifa um þjóðrétt- arlega hlið álmálsins, Gísli Gunn- arsson til þess aö taka saman sögu- legt yfirlit álmálsins og Birgir Björn Sigurjónsson mun skrifa um efna- hagslega hlið málsins, samkvæmt heimildum Mbl. í samtali við Mbl. vildi Hjörleifur Guttormsson, iðnað- arráðherra, lítið tjá sig um verksvið þessara manna. „Lausráðnir menn hafa áður komið til starfa og þetta er ekkert fréttnæmt. Við erum að vinna að álmálinu, fara ofan í saumana. Þú nefnir tiltekin nöfn, en það eru fleiri aðilar sem við kveðjum til. Ég vii ekki staðfesta neitt um verksvið einstakra manna, enda ekki ástæða til að mínum dómi. Við erum ekki aðeins að vinna að athugun á samskiptum við AIu- suisse, heldur álvinnslu almennt hér á landi, forsendum hennar og hagkvæmni," sagði Hjörleifur í samtali við Mbl. „Almennt séð get ég staðfest, að unnið er af krafti við að fara yfir lögfræðilega stöðu okkar í sam- skiptum við Alusuisse og þróun al- þjóðaréttar á undanförnum árum og áratugum. Islenskir lögfræð- ingar koma ekki bara við sögu heldur erlendir líka. Það er mitt mat, að við hefðum aldrei getað lagt þau gögn á borðið, sem gert var, nema vegna þess við fengum aðstoð færustu manna." —Hefur bandaríski lögfræðing- urinn Charles Lipton skilað áfangaskýrslu? „Hann hefur skilað vinnuplaggi, en það er ekki til dreifingar eða birtingar," sagði Hjörleifur Gutt- ormsson. Innbrot á Akureyri: Ók með þýfið á stolnum bíl í gegnum bllskúrshurð BROTIST var inn í hljómtækjaverzl- unina Hljómver, Glerárgötu 32 á Ak- ureyri, aðfaranótt laugardagsins. Nokkrum sambyggðum segulbands- og útvarpstækjum af gerðinni Beltek var stoliö, svo og fleiri hljómflutn- ingstækjum. Verðmæti þýfisins nem- ur um 40 þúsund krónum. Þjófurinn hafði tækin á brott með sér með því að stela sendi- bifreið sem var í bílskúr sam- byggðum verzlunarhúsinu. Hann ók bílnum í gegn um bílskúrshurð- ina, og er bíllinn ófundinn. Hann er af gerðinni Simca og ber ein- kennisstafina A-7575 og er greini- lega merktur verzluninni. Rannsóknarlögreglan á Akur- eyri biður alla þá, sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir umrædda nótt og þá, sem séð hafa til bílsins, vinsamlega að snúa sér til hennar. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982 FRA DAIHATSU-UMBOÐINU: r Argerðir 1982 nær uppseldar Tryggið ykkur síðustu bílana á frábæru verði Daihatsu Charmant 114.800.- m/öllu -v-;: § Daihatsu Taft 4x4 Orfáum bílum oraðstafað á verði frá 158.670. Daihatsu Charade — Uppseldur Næsta sending árgerð 1983, væntanleg ág.-sept. Viðurkennd gæði — Viðurkennd þjónusta. Valið er auðvelt og öruggt. Oaihatsu-umboðió, Ármúla 32. Símar 85870 - 39179.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.