Morgunblaðið - 06.07.1982, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982
13
Edward Gíslason
Winnipeg:
Stórgjöf
til Islenzk-
kanadíska
sjóðsins
ÞAU tíðindi gerðust fyrir skömmu,
að Edward Gislason, sem búsettur
er á Gimli í Manitóba, afhenti
('anada-lceland Foundation
peningjagjöf að upphæð fimmtíu
þúsund dollara (um 560 þúsund
krónur). Hefur hann mælt svo fyrir,
að peningum þessum verði varið til
að styrkja námsfólk, sem búsett er í
Kanada, til námsdvalar á íslandi.
Og er það von hans, að fólk þetta
muni við heimkomu til Kanada
vinna að menningartengslum þess-
ara tveggja landa.
Edward Gíslason, sem nú er
rúmlega áttræður, fæddist á ís-
landi, en fluttist ungur vestur til
Kanada og hefur lengst af verið
búsettur i Árborg, þar sem hann
hefur stundað búskap. Hann hefur
eldlegan áhuga á að islenskur
menningararfur megi dafna meðal
íslendinga í Kanada og hefur sýnt
það áþreifanlega með þessari
stórmannlegu gjöf.
Canada-Iceland Foundation var
stofnað fyrir tuttugu og fimm ár-
um. Á stefnuskrá þess félags er að
styrkja með fjárframlögum þau
málefni sem varða menningarleg
samskipti Islands og Kanada.
M.B.
Annar hæsti
úr Grindavík
PÁLL Hreinn Pálsson, annar hæsti
skattgreiðandi einstaklinga í
Reykjaneskjördæmi, er búsettur i
Grindavík en ekki Garðabæ, eins og
Mbl. var tjáð og sagt var i laugar-
dagsblaði.
Áð beiðni Skattstjóraembættis-
ins í Reykjaneskjördæmi er þetta
hér með leiðrétt og viðkomandi
beðnir velvirðingar.
Síðasta sending af SKODA seldist upp á örfáum vikum, en
með lagni tókst okkur að kría út 100 bíla til viðbótar á algeru
TOMBÓLUVERÐI eða frá kr. 63.790.
Þeir eru væntanlegir núna um miðjan mánuð og miðað við fyrri
reynslu er nauðsynlegt að panta sér bíl strax. Þú ættir því
að hringja í hann Halla og heyra í honum hljóðið.
Varömiðaöviðgengi 1.7.-82
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
<
1
l
\
\
i
I
i
I
<
(
(
I
-
BEINT FLUG I SOLINA OG SJOIN
3. & 24. AGUST 14.SEPT. 5.0KT0BER
AÐALSTRÆTI9
S. 28133