Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JtJLÍ 1982 21 • Hetja Ítalíu, Paolo Rossi, skorar fyrsta mark sitt gegn Brasilíumtfnnuin í gerdag. Rossi átti eftir að bæta tveimur mörkum við og fsra landi sínu óvæntan sigur. Símamynd AP. Úrslit sem fáir bjuggust við: ítalir sendu Brasilíumennina heim — Rossi skoraði þrennu fyrir ítalfu ÓHÆTT ER að segja að ítalir hafi aftur komið á óvart í gær er þeir slógu Brasilíumenn, sem flestir höfðu spáð heimsmeistaratitli, út úr keppninni, með því að sigra þá með þremur mörkum gegn tveimur, og tryggja sér þannig sæti í undanúr- slitum. I*ar með hafa þeir lagt bæði suður-amerísku stórveldin að velli á skömmum tíma, því eins og menn muna sigruðu þeir Argentínu í síð- ustu viku. Öllum á óvart léku ítalir sóknarleik strax í byrjun leiksins, en það er ekki vaninn á þeim bæ. Þeir urðu að vinna leikinn til að komast í undanúrslit, en Brasilíu nægði jafn- tefli. Paolo Rossi, sem nýbyrjaður er að leika aftur eftir tveggja ára bann vegna mútumálsins fræga á Ítalíu, var svo sannarlega hetja Ítalíu- manna, þvi hann skoraði öll mörkin þrjú. Leikurinn þótti einn sá albesti og skemmtilegasti á HM hingað til. Fyrsta markið kom á 5. mín. Conti skipti boltanum yfir á vinstri vænginn á bakvörðinn sókndjarfa Cabrini, sem kom á fullri ferð fram kantinn. Hann sendi góða sendingu yfir á fjærstöngina þar sem Rossi skallaði óvaldaður í netið hjá Peres. Italir héldu áfram að sækja stíft og Graziani misnotaði gott færi eftir níu mínútur. Tveimur mín. síðar fengu Brassarnir enn betra færi er Serginho skaut framhjá, er auðveldara virtist að skora. Þremur mínútum síðar náðu Brasilíumenn að jafna. Zico sendi mjög góða sendingu í gegnum vörnina, á Socrates sem fékk hana á vítateigslínunni. Hann óð inn í teiginn og skoraði af stuttu færi. Varnarmaðurinn sterki hjá ítöl- um, Gentile, sem tók Maradona úr umferð í leiknum við Argentínu, passaði Zico í leiknum og var hann bókaður s.trax á 14. mín. fyrir brot á honum. Rossi bætir öðru marki við Um miðjan hálfleikinn komst Rossi inn í sendingu á miðjunni og tók á rás í átt að marki. Er hann kom að vítateignum lét hann vaða á markið og skoraði með föstum jarðarboltá. Eftir markið var Brasilía sterkara liðið og síðari hluta hálf- leiksins yfirspiluðu þeir ítalina úti á vellinum en komust lítt áleiðis gegn hinni sterku vörn þeirra, sem sjaldan hefur leikið betur en í þessum leik. Eitt færi fengu þeir þó, Socrates skallaði fallega á markið en Zoff varði glæsilega. í síðari hálfleiknum voru Brass- arnir miklu meira með boltann og léku þeir þá mjög vel. Bæði liðin fengu ágætis færi áður en næsta mark var gert. Falcao, Zico, Ton- inho Cerezo og Serginho voru allir nálægt því að skora fyrir Brasilíu og fengu góð færi sem þeir mis- notuðu. Roberto Falcao, sem leikur með Roma á Italíu, jafnaði síðan á 67. mínútu. Hann fékk sendingu frá Junior rétt við vítateiginn. Eftir að hafa leikið á tvo varnarmenn skoraði hann með föstu vinstri fótar skoti. En Adam var ekki lengi í Paradís. Aðeins 8 mín. seinna skoraði Rossi enn. Conti tók hornspyrnu sem Bergomi skallaði áfram. Oriali náði knett- inum og skaut á markið, og Rossi stýrði honum í netið af örstuttu færi. Antognoni skoraði mark fyrir ENGLAND og Spinn gerðu marka- laust jafntefli, 0—0, i Madrid í gærkvöldi að viðstöddum 92 þúsund áhorfendum. Það verður því lið V-Þjóðverja sem leikur í undanúr- slitum HM-keppninnar. Lið Þjóð- verja mætir Frökkum i undanúrslit- unum, en lið ítala mætir Pólverjum. Þessir leikir fara fram 8. júli. Leikur Englendinga og Spánverja var oft mjög spennandi og áttu bæði liðin góð marktækifæri. Englendingar lögðu allt í sölurnar til þess að knýja fram sigur i leiknum og skora og oft mátti sjá allt enska liðið í sókn, en undir lok leiksins pressuðu Englend- ingar mjög stíft á mark Spánverja án þess þó að þeira tækist að skora. Mikill hiti og raki var á meðan á leiknum stóð og háði það enska lið- inu mjög að sögn fréttaritara. En hit- inn var 34 stig. England er nú úr keppninni þrátt fyrir að liðið hefur ekki tapað leik. En það segir ekki ítali þremur mínútum fyrir leiks- lok en það var dæmt af vegna rangstöðu. Þótti það heldur um- deildur dómur og er atvikið var endursýnt í sjónvarpi sýndist mönnum markið vera fullkomlega löglega skorað. Þrátt fyrir að Brassarnir væru meira með boltann í leiknum gekk þeim illa að brjótast í gegnum sterka vörn Itala, og nokkrum sinnum varði Zoff gamli í markinu mjög vel. Hann er elsti leikmaður keppninnar, 40 ára að aldri. Þjálfararnir, Bearzot hjá Ítalíu og Santana hjá Brasilíu, voru sammála um það eftir leikinn að Brassarnir gætu sjálfum sér um kennt að hafa ekki komist áfram. Þeim hefði nægt jafntefli og eftir að staðan var orðin 2—2 reyndu þeir allt til að sigra og gleymdu vörninni. „Við lékum vel í seinni hálfleiknum, en gekk illa að eiga við ítölsku vörnina, sem lék eins alla söguna. Lið verða að geta skor- að mörk. í siðustu tveimur leikjum sínum hefur ensku leikmönnunum ekki tekist að skora. Enska landslið- ið í knattpyrnu hefur nú leikið ellefu landsleiki án þess að tapa. Nokkur harka var í leiknum í upphafi, og sýnt var að leikmenn beggja liða ætluðu að selja sig dýrt. Spánverjar áttu gott mark- tækifæri á 22. minútu, en skot Al- onso fór hátt yfir. Robson átti tvo góða skalla að marki Spánar á 28. og 30. mínútu. England sótti mjög stíft siðustu 15 mínútur fyrri hálf- leiksins og tvívegis þurfti spánski markvörðurinn að taka á honum stóra sinum, til að bjarga skotum frá Trevor Francis og Robson. Jafnræði var með liðunum framan af síðari hálfleiknum. Þegar sýnt var að enska liðið átti í vandræð- um með að komast i gegnum vörn Spánverja sendi Ron Greenwood og hún gerir best. Við misnotuðum nokkur færi, skoruðum færri mörk og töpuðum," sagði Santana eftir leikinn. „Ég hef alltaf sagt að mínir menn væru ekki ósigrandi. í dag varð á vegi okkar leikmaður eins og Rossi. Við leikum ekki maður gegn manni og hann nýtti sér það til fullnustu," bætti hann við. Gífurlegur fögnuður var á Ítalíu eftir leikinn en i Brasilíu hafa menn sjaldan verið sorgmæddari. Liðin voru þannig skipuð í leiknum: Ítalía: Zoff, Gentile, Col- lovati (Bergomi á 34. mín.), Scirea, Cabrini, Oriali, Tardélli (Marini á 76. mín.), Antognoni, Conti, Rossi, Graziani. Brasilia: Peres, Leandro, Oscar, Luizinho, Junior, Falcao, Cerezo, Socrates, Zico, Serginho, Eder. Ahorfendur voru 44.000. tvo leikmenn inná, þá Kevin Keeg- an og Trevor Brooking. Þeir komu inn á á 63. mínútu leiksins, fyrir Graham Rix og Tony Woodcock. Við þessa skiptingu varð sóknar- þungi Englendinga meiri og hættulegri. Strax á 66. mínútu var Brooking mjög nálægt því að skora með þrumuskoti, en mark- vörður Spánverja bjargaði meist- aralega. Þá átti Keegan góðan skalla rétt framhjá á 70. mínútu. Besta tækifæri Spánverja kom á 56. minútu leiksins. Þá fékk Al- onso boltann í góðu færi þar sem hann var óvaldaður á vítateig en skot hans fór langt framhjá mark- inu. Lið Englands var þannig skipað: Peter Shilton, Kenny Sanson, Phil Thomson, Terry Butcher, Mick Mills, Bryan Robson, Ray Wilkins, Graham Rix, (Brooking 63.), Paul Mariner, Tony Woodcock, (Kevin Keegan 63.), Trevor Francis. I.deildin ótrúlega jöfn ÚRSLIT í leikjunum í 1. doild um síðustu helgi urðu þessi: IA — Víkingur 2—2 ÍBK — ÍBÍ 1—1 KA - l!BK 0—2 Fram — ÍBV 3—0 Valur — KR 0—0 Staðan í 1. deildarkeppninni er nú þcssi: Víkingur 9 4 4 1 14—10 12 ÍBV 9 5 13 12—9 II KR 9 2 6 1 5-4 10 UBK 10 4 2 4 13—14 10 Valur 10 4 2 4 8—10 10 Fram 9 3 3 3 11-9 9 ÍA 10 3 3 4 10—10 9 ÍBK 9 3 3 3 6—8 9 KA 10 2 4 4 8—11 8 ÍBÍ 9 2 2 5 11—13 6 Næstu leikir t 1. deild fara fram 13. júli, KR — ÍBÍ, og 14. júlí lcika Valur og ÍA. Hlé cr gcrt á 1. deildinni vegna lands- leiks Islands og Finnlands 11. júlí i Hclsinki. ÞR. • ♦ v ^ 2. deild: Þróttur R hefur ekki tapað leik Kftirtaldir lcikir voru leiknir í 2. deild um helgina: Þór A. — Þróttur R. 2—2 Reynir — Njarðvík 5—1 FH — Þróttur 3—0 Einverji — Skallagrímur 3—2 Fylkir — Völsungur 0—0 Staðan eftir þessa leiki er þannig: Þróttur R 8 6 2 0 15—4 14 FH 7 4 2 1 8—5 10 Þór Ak. 8 2 5 1 11—9 9 RcynirS. 8 3 2 3 13—8 8 Völsungur 8 3 2 3 9—9 8 Fylkir 8 16 1 9—10 8 Njarðvík 8 2 3 3 14—16 7 Einherji 7 2 3 3 9—11 6 Þróttur N. 8 1 3 4 4—10 5 Skallagrímur 8 116 7—16 3 Næstu leikir eru 10. júlí. t ' HM á Spáni: Undanúrslitin á fimmtudag Undanúrslitaleikirnir í HM á Spáni verda spil- aðir á fimmtudaginn. Pólland og Ítalía mætast í Barcelona kl. 15.15 og kl. 19.00 eigast síðan Vestur-Þjóðverjar og Frakkar við í Sevilla. Tapliðin í þessum leikj- um leika siöan um þriðja sætið i keppninni, á laug- ardaginn kl. 18.00 í Alic- ante, en sigurvegararnir til úrslita um heims- meistaratitilinn í Madrid á sunnudaginn. Hefst sá leikur kl. 18.00. _ V-Þjóðverjar áfram: Engl lendingui mti íkst ekl ki ac ) skora g i Spáni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.