Morgunblaðið - 06.07.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982
23
• Norður-frinn William Hamilton (no. 11) skorar hér fyrra mark sitt í
leiknum við Austurríki á dögunum. Leikurinn endaði 2—2. Koncilia í marki
Austurríkis á ekki möguleika á að verja góðan skalla Hamiltons.
Pólverjar í
undanúrslit
— Boniek í leikbann,
því ekki meö
„VIÐ VINNUM þá auðveldlega,"
sagði Antoni Piechnniczeck, þjálfari
Pólverja, fyrir leikinn við Sovét-
menn í fyrradag. Pólverjum nægði
jafntefli og léku þeir ekki mikinn
sóknarleik. Það gerðu Rússarnir
reyndar ekki heldur og náði hvorugt
liðið að skora mark. Pólverjar kom-
ust því áfram og fögnuðu áhorfendur
mjög í leikslok, en þeir voru flestir á
handi Póllands.
Áhorfendur voru þó ekki eins
ánægðir með leikinn sjálfan, því
hann þótti slakur, og bauluðu á
liðin. Mikið var um hnoð á miðj-
unni og færi sköpuðust sjaldan.
Færi Pólverjanna voru öllu hættu-
legri og varði Dasaev tvisvar
ágætlega frá Matysik og Boniek
um miðbik síðari hálfleiks.
Bæði lið skiptu um einn leik-
mann í upphafi seinni hálfleiksins
til að hressa upp á sóknirnar en
það bar ekki tilætlaðan árangur.
Leikurinn var nokkuð grófur og
voru fimm leikmenn bókaðir,
þ.á m. Pólverjinn Boniek. Var það
önnur bókun hans í keppninni og
fer hann því í eins leiks bann og
leikur ekki í undanúrslitunum. Er
það mikill missir því hann hefur
verið frábær í síðustu leikjum.
Liðin voru þannig skipuð í
leiknum:
PÓLLAND: Mlynarczyk, Dzi-
uba, Zmuda, Janas, Majewski,
Kupcewicz (Ciolek á 52. mínútu),
Buncol, Matysik, Lato, Boniek,
vmnl q »*n 1/
SOVÉTRÍKIN: Dasayev, Bor-
ovski, Chivadse, Baltacha, Demy-
anenko, Shengelia (Andreyev á 58.
mínútu), Bessonov, Sulkvelidze,
Oganesyan, Gavrilov (Daraselia á
79. mínútu), Blokhin.
• Jimmy Connors
• John McEnroe
Frábær úrslitaleikur:
Connors marði
John McEnroe
Bandaríkjamaðurinn Jimmy
Connors sigraði landa sinn John
McKnroe í frábærum úrslitalcik
Wimbledon-keppninnar i tennis á
sunnudaginn. Kapparnir léku i fjóra
og hálfa klukkustund og sigraði
Connors 3—2 (3—6, 6—3, 6—7,
7-6, 6-4).
McEnroe tapaði því titli sínum
aðeins ári eftir að hann náði hon-
um af Björn Borg. Connors sigraði
síðast á Wimbledon fyrir átta ár-
um og var honum fagnað mjög í
leikslok.
Venja er að gera sigurvegara
Wimbledon-mótsins að heiðursfé-
laga All-England-tennisklúbbsins,
en er McEnroe sigraði í fyrsta
skipti fyrir ári var ákveðið að gera
það ekki, vegna slæmrar fram-
komu hans. Eftir að fagnaðarlát-
unum linnti fyrir Connors á
sunnudaginn var það tilkynnt á
vellinum, að McEnroe hefði verið
tekinn í sátt og ákveðið að gera
hann að heiðursfélaga eins og
aðra er sigrað hafa.
•mamammmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmammmmmmmmammmamammmmai
Auðveldur sigur Frakka á Norður-írum:
Rochetau 09 Giresse
skoruðu tvö hvor
FRAKKAR sigruöu Norður-íra mjög
auöveldlega meö fjórum mörkum
gegn einu í síðasta leik D-milliriðils
á HM á sunnudaginn. Þeir voru
mun ákveönari allan leikinn og
heföi sigurinn getaö oröiö stærri þar
sem Frakkarnir fengu mörg ágæt
færi sem þeir misnotuöu. Frakkar
sigruðu því örugglega í riðlinum og
komust þar meö í undanúrslit HM i
fyrsta skipti síöan 1958.
Frakkar byrjuðu af krafti og
náðu þeir strax tökum á miðjunni.
Þeir fengu fyrsta færi leiksins er
Platini reyndi að vippa yfir Jenn-
ings, en gamli maðurinn varði ör-
ugglega. Platini lék að nýju með
Frökkum eftir meiðsli, og átti
hann frábæran leik.
Frakkarnir miklu betri
Um miðjan hálfleikinn gerðu
Frakkar harða hríð að írska
markinu og tvisvar á sömu mínút-
unni komst það í mikla hættu.
Fyrst náði Jimmy Nicholl að
stöðva skot Rochetau og síðan
varði Jennings hreint frábærlega
frá Platini.
Fyrsta mark leiksins skoraði
Giresse fyrir Frakka af stuttu
færi eftir góðan undirbúning Plat-
ini og strax á 2. mín. seinni hálf-
leiks bætti Dominique Rochetau
öðru marki við. Hann skoraði með
góðu skoti neðst í markhornið eft-
ir að hafa brotist framhjá
McCreery.
Frakkar héldu áfram að sækja
og fengu góð færi en höfðu heppn-
ina ekki með sér. Genghini skaut
rétt framhjá og Rochetau skallaði
glæsilega, örfáa sentimetra fram-
hjá, eftir fyrirgjöf Bossis. Þriðja
mark Frakka lá í loftinu og kom
það á 67. mín. Rochetau skoraði
aftur, nú eftir mikið einstaklings-
framtak. Þrír varnarmenn reyndu
að stöðva hann en allt kom fyrir
ekki.
Nokkrum mínútum síðar
minnkaði Gerry Armstrong mun-
inn fyrir írana er hann skoraði
sitt þriðja mark í keppninni. Ett-
ori, markverði Frakka, mistókst
að ná fyrirgjöf Norman Whiteside
og Armstrong skallaði auðveld-
lega í markið. Rochetau fékk gott
færi til að bæta þriðja marki sínu
við er hann lét Jennings verja frá
sér á 79. mín. Aðeins mínútu síðar
skoraði Giresse sitt annað mark í
leiknum, og 4. mark Frakka, með
þrumuskalla eftir fyrirgjöf frá
Jean Tigana.
Hinn ungi Norman Whiteside
fékk gott færi til að minnka mun-
inn 5 mín. fyrir leikslok, en Ettori
varði mjög vel frá honum.
Öruggur sigur var því í höfn hjá
Frökkum. Þeim hefði nægt jafn-
tefli í leiknum til að komast áfram
en þeir léku greinilega til sigurs.
Þeir hafa miklu betra liði á að
skipa en Irar og sigurinn var aldr-
ei i hættu. írarnir börðust hetju-
lega en voru einfaldlega ekki nógu
góðir til að ógna Frökkunum veru-
lega. Lið þeirra var mjög jafnt en
hjá Frökkum voru Platini og Tig-
ana bestir.
Liðin voru þannig skipuð í
leiknum:
FRAKKLAND: Ettori, amoros,
Janvion, Tresor, Bossis, Giresse,
Tigana, Genghini, Rochetau
(Couriol á 84. mínútu), Platini,
Soler (Six á 63. mínútu).
NORÐUR-ÍRLAND: Jennings,
Jimmy Nicholl, Chris Nicholl,
McClelland, Donaghy, McCreery
(John O’Neill á 86. mínútu), Mart-
in O’Neill, Mcllroy, Armstrong,
Hamilton, Whiteside.
DÓMARI: Alojzy Jarguz frá
Póllandi.
Víkingur í efsta sæti er
íslandsmótið er hálfnað
„ÞAÐ var gott aö ná stigi á Akra-
nesi. Vörnin geröi sig seka um mis-
tök, sem kostuðu okkur mörk. Þetta
var ekki okkar besti leikur í sumar
en nokkuö góöur engu að síður,“
sagöi Youri Sedov, þjálfari Víkings,
eftir jafntefli fslandsmeistara Vík-
ings og Akurnesinga á Akranesi á
laugardag, 2—2. Víkingar tróna í
efsta sæti 1. deildar þegar íslands-
mótiö er hálfnað; hafa hlotið 12 stig
úr 9 leikjum. Skagamenn urðu aö
sigra til þess að blanda sér af alvöru
í toppbaráttu 1. deildar. Þaö tókst
ekki og Skagamenn eru um miöja
deild meö 9 stig úr 10 leikjum.
„Þetta var að mörgu leyti góöur
leikur. Viö áttum góöa kafla, en spil-
iö datt niður á milli. Möguleikar
okkar eru alls ekki úr sögunni. Síö-
astliðið sumar vorum við í svipaðri
aöstöðu eftir fyrri hluta mótsins, en
fengum áður en upp var s'aðið þrjá
til fjóra sjensa til þess að komast á
toppinn. Viö höfum ekki sagt okkar
síðasta orð; lið okkar á eftir að vaxa
og eflast þegar líður á mótið,“ sagöi
Árni Sveinsson, besti maður Skaga-
manna í viðureigninni viö Víking.
Leikur Skagamanna og Víkinga
bauð oft upp á góð tilþrif beggja
liða. Víkingar voru atkvæðameiri
lengst af í fyrri hálfleik. Eins og
viðureignin við Eyjamenn á
fimmtudag hafi setið í Skaga-
mönnum. Þó náðu Víkingar ekki
að skapa sér afgerandi færi; fengu
þó þrjú þokkaleg tækifæri. Aðal-
steinn Aðalsteinsson lék skemmti-
lega á Sigurð Halldórsson út á
vinstri og brunaði inn í vítateig
Skagamanna, lék þar á annan
leikmenn og markið blasti við
honum, en skotið geigaði. Heimir
Karlsson lék upp vinstri kantinn
að endamörkum og gaf út í teiginn
á Sverri Herbertsson, en skot hans
fór framhjá og á 37. mínútu var
Ómar Torfason óvaldaður í teign-
um eftir fyrirgjöf Þórðar en Davíð
Kristjánsson, markvörður Skaga-
manna, varði skot hans.
Skagamenn áttu eitt gott færi;
Sigurður Lárusson skallaði yfir
eftir hornspyrnu Guðjóns Þórð-
— Víkingur
2—2
arsonar. En Víkingar náðu forustu
á 41. mínútu. Stefán Halldórsson
tók aukaspyrnu og sendi háa
sendingu að marki Skagamanna.
Davíð Kristjánsson hugðist grípa
knöttinn en missti hann og Gunn-
ar Gunnarsson fylgdi vel á eftir og
skoraði af suttu færi, 0—1.
Skagamenn náðu að jafna metin
á 45. mínútu. Sigurður Halldórs-
son skoraði með sannkölluðum
þrumuskalla úr teignum eftir
hornspyrnu Guðjóns Þórðarsonar
og Vikingar náðu ekki að hefja
leikinn aftur þegar dómarinn
flautaði til leikhlés, 1—1.
Það var greinilegt í upphafi síð-
ari hálfleiks, að Skagamenn ætl-
uðu sér sigur og ekkert annað.
Þeir byrjuðu af miklum krafti og
sóttu stíft að marki Víkinga. Og
þeir uppskáru mark á 8. mínútu;
Árni Sveinsson stal knettinum af
Stefáni Halldórssyni, lék upp að
endamörkum vinstra megin og gaf
snilldarsendingu á Guðbjörn
Tryggvason, sem kastaði sér fram
og skallaði knöttinn glæsilega í
netið framhjá Ögmundi Kristins-
syni, markverði Víkings. Glæsi-
legt mark, 2—1.
Það var greinilegt, að Víkingar
ætluðu ekki að gefa eftir. Þeir
hófu að sækja af eldmóði og að-
eins tveimur mínútum síðar upp-
skáru þeir mark. Stefán Hall-
dórsson tók hornspyrnu frá hægri,
sendi vel fyrir mark Skagamanna.
Davíð sló knöttinn frá, hann féll
fyrir fætur Heimis Karlssonar og
Heimir þakkaði fyrir sig með því,
að skora með föstu skoti úr teign-
um, 2—2.
Eftir markið sóttu bæði lið á
víxl, en Skagamenn voru þó
hættulegri. Árni Sveinsson átti
hörkuskot framhjá á 23. mínútu
og Sveinbjörn Hákonarson skaut
framhjá frá vítateig eftir horn-
spyrnu. Víkingar áttu þó sín færi.
Sverrir Herbertsson lék laglega á
varnarmenn Skagamanna og
komst upp að endamörkum, og
sendi út á Heimi Karlsson en skot
hans fór í varnarmann. Eftir því
sem á síðari hálfleik leið fjaraði
kraftur beggja liða; leikmönnum
tókst ekki að skapa sér afgerandi
færi og jafntefli því staðreynd.
Árni Sveinsson var yfirburða-
maður í liði Skagamanna, send-
ingar hans frábærar. Sigurður
Lárusson var sterkur fyrir og
Kristján Olgeirsson átti góða
spretti.
Lið Víkings var mjög jafnt og
fast fyrir. Gunnar Gunnarsson
var besti maður liðsins, vex með
hverjum leik. Þá gerði Áðalsteinn
Aðalsteinsson góða hluti, en datt
þess á milli úr leiknum. Heimir
Karlsson og Sverrir Herbertsson
voru frískir framherjar.
Dómari var Villi Þór.
I stuttu máli:
Akranes — Víkingur 2—2.
Gul spjöld: Ragnar Gíslason og
Gunnar Gunnarsson, Víkingi og
Árni Sveinsson, Akranesi.
Lið Akraness:
Davíö Kristjánsson 5
Guðjón Þóröarson 7
Sigurður Halldórsson 7
Sigurður Lórusson 7
Árni Sveinsson 8
Guðbjörn Tryggvason 7
Júlíus Ingólfsson 6
Sveinbjörn Hákonarson 7
Jón Áskelsson 7
Björn Björnsson 6
Kristján Olgeirsson 7
Sigþór Ómarsson (vm) 6
Lið Víkings:
Ögmundur Kristinsson 7
Ragnar Gíslason 6
Stetán Halldórsson 6
Jóhannes Báröarson 7
Magnús Þorvaldsson 6
Gunnar Gunnarsson 8
Aðalsteinn Aöalsteinsson 7
Þórður Marelsson 7
Ómar Torfason 6
Heimir Karlsson 7
Sverrir Herbertsson 6
I