Morgunblaðið - 06.07.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982
27
• Lárus Grétarsson, einn ungu mannanna i liði l'ram, með boltann í leikn-
um gegn ÍBV. Ljó*m. (iuðjón b.
Öruggur sigur
Fram gegn ÍBV
FRAM vann öruggan sigur á liði ÍBV
í Laugardalnum á laugardag, 3—0, í
1. deildinni í knattspyrnu. Var þetta
annar sigur Fram í röð og hefur liðið
nú skorað fimm mörk í síðustu
tveimur leikjum sínum. Liði ÍBV
gekk illa að finna réttan takt í leik
sinn gegn Fram og sér i lagi var
varnarleikur Eyjamanna óöruggur.
Liðin léku á hallarflötinni í Laugar-
dal, og var oft mesta furða hvað leik-
mönnum gekk vel að hemja boltann
á rajög svo ósléttum vellinum sem
var eitt forarsvað. Það er nú reyndar
saga til næsta bæjar að hvað eftir
annað skuli I. deildar-félögin í
Reykjavík þurfa að leika á ónýtum
velli í íslandsmótinu.
Leikur Fram og IBV var mjög
jafn framan af, liðin skiptust á að
sækja án þess þó að skapa sér
verulega hættuleg marktækifæri.
Fyrsta mark Fram skoraði Viðar
Þorkelsson eftir góðan undirbún-
ing Halldórs Arasonar. Halldór
gaf vel fyrir markið af kantinum
og Viðar var rétt staðsettur inni í
vítateignum og skoraði með góðu
skoti. Eyjamenn voru mjög nálægt
því að jafna metin á 34. mínútu
leiksins. Eftir góða sókn af þeirra
hálfu átti Omar Jóhannsson
þrumuskot að marki Fram, en
heppnin lék ekki við hann. Boltinn
fór í fótinn á Guðmundi mark-
verði og hrökk út á völlinn. Ómar
var í dauðafæri þegar hann skaut.
Það sem eftir lifði hálfleiksins var
hart barist en enginn markverð
tækifæri sköpuðust.
Síðari hálfleikurinn var öllu
líflegri en sá fyrri. Það voru Eyja-
menn sem áttu fyrsta góða mark-
tækifærið. Valþór átti hörkuskalla
að marki Fram af stuttu færi en
rétt framhjá á 65. mínútu. Var
þetta besta marktækifæri ÍBV í
síðari hálfleiknum. Á 68. mínútu
leiksins skoraði Fram sitt annað
mark. Halldór Arason gaf góða
sendingu inn á Guðmund Torfason
sem komst einn innfyrir vörn ÍBV
og skoraði með þrumuskoti af
stuttu færi óverjandi fyrir Pál
Pálmason markvörð ÍBV. Þarna
var vörn ÍBV mjög illa á verði eins
og svo oft í leiknum. Fram átti
mjög gott tækifæri á að bæta
þriðja markinu við á 75. mínútu.
Þá komst Ólafur Hafsteinsson
einn inn fyrir vörn ÍBV og var
Ólafur næstum kominn inn að
markteig þegar hann reyndi skot,
en brást bogalistin og skaut fram-
hjá. Betri marktækifæri en þetta
fá leikmenn varla upp í hendurn-
ar. Það var svo Halldór Arason
sem skoraði þriðja mark leiksins.
Hann gaf sér góðan tíma á 83.
mínútu er hann komst í gegn og
vippaði boltanum laglega yfir Pál
í markinu. Vel gert hjá Halldóri.
Fleiri urðu mörkin ekki.
Lið IBV virkaði ekki sannfær-
Fram
— ÍBV
3:0
• Halldór Arason lék vel í liði
Fram. Leikmaður sem sýnir alltaf
góða baráttu.
andi í þessum leik. Sér í lagi var
varnarleikurinn hjá liðinu í ólagi.
Vörnin var alltof flöt. Ef rang-
staðan brást var enginn fyrir inn-
an til þess að taka á móti sóknar-
mönnunum, sem komust í gegn.
Þá var eins og lið ÍBV virkaði
þreytt í síðari hálfleiknum. Það
vantaði meiri neista í leik manna
og baráttu. Þá var sóknin frekar
bitlaus. Lið ÍBV var jafnt að getu í
leiknum, enginn einn skar sig úr.
Lið Fram lék yfirvegað gegn
ÍBV. Ungu leikmennirnir í liðinu
eru óðum að falla inn í leik liðsins
og standa sig vel. Viðar Þorkels-
son og Þorsteinn Þorsteinsson
komu báðir vel frá leiknum. Mart-
einn fyrirliði lék vel í vörninni og
stjórnaði henni af festu. Halldór
Arason skapaði góð marktækifæri
í leiknum, duglegur leikmaður
sem gefst aldrei upp. Lið Fram er
alveg greinilega á uppleið og verð-
ur án efa erfitt við að eiga í næstu
leikjum sínum.
I stuttu máli. íslandsmótið 1.
deild. Laugardalsvöllur.
Fram—ÍBV 3—0 (1—0).
Mörk . Fram: Viðar Þorkelsson á
23. mínútu, Guðmundur Torfason
á 68. mínútu og Halldór Arson á
83. mínútu.
Gul spjöld: Hafþór Sveinjónsson
Fram og Örn Óskarsson ÍBV.
Áhorfendur á leiknum voru 584.
— ÞR.
Breiðablik sigraði KA verðskuldað
í FREMUR bragödaufum leik sigr-
aöi Breiöablik KA noröur á Akureyri
á laugardaginn, 2—0, eftir að staðan
i hálfleik hafði verið I—0. Leikurinn
einkenndist mjög af miöjuþófi sem
var lítt skemmtiíegt fyrir augað, og
langtímum saman gerðist bókstaf-
lega ekki neitt.
Leikurinn byrjaöi mjög rólega en
Blikarnir náðu strax undirtökunum í
leiknum og sóttu mun meira. Þeim
gekk þó illa að skapa sér færi og
gerðist ekkert markvert fyrr en á 12.
mín. en þá kom fyrra mark Breiða-
bliks. Eftir nokkurn darraðardans
fyrir utan vítateig KA barst boltinn
til Vignis Baldurssonar og hann var
ekkert að tvínóna við hlutina og
skaut firnaföstu skoti að markinu.
Aðalsteinn markvörður KA náði að
slæma hendi til knattarins, þegar
hann gerði góða tilraun til að verja
skotið, en knötturinn hrökk i stöng-
ina af honum og inn, 1—0 fyrir
Breiðablik.
Eftir markið lifnaði heldur yfir
KA-mönnum, enda alveg ástæða
til, en það voru þó Blikarnir sem
höfðu undirtökin allan hálfleikinn
og var barátta þeirra mjög mikil.
Á 32. mín. komst Hákon Gunn-
arsson einn innfyrir vörn KA en
Aðalsteinn markvörður bjargaði á
11. stundu með góðu úthlaupi. 11
mínútum síðar átti KA svo sitt
fyrsta umtalsverða færi í leiknum,
en þá komst Gunnar Gíslason inn-
fyrir vörn Breiðabliks en Guð-
mundur markvörður bjargaði með
góðu úthlaupi.
Eftir fremur leiðinlegan fyrri
hálfleik vonuðust margir til þess
að liðin hristu af sér slenið og
sýndu virkilega klærnar en það
var borin von því seinni hálfleikur
var engu skemmtilegri en sá fyrri.
Fyrsta umtalsverða færið í hálf-
leiknum kom á 10. mín. en það átti
Breiðablik. Birgir Teitsson komst
þá einn og óvaldaður innfyrir vörn
KA en Aðalsteinn í markinu var
vel á verði og náði að bægja hætt-
unni frá. Aðeins fimm mínútum
síðar átti Helgi Bentsson gott skot
nokkuð utan vítateigs. Boltinn fór
í gegnum vörnina og framhjá Að-
alsteini í markinu en á marklín-
unni var Guðjón Guðjónsson og
náði hann að afstýra marki. Eina
færi KA í seinni hálfleik kom svo
á 20. mín. en þá fékk Ásbjörn
Björnsson sendingu innfyrir vörn
Blikana, en þrumuskot hans úr
skáfæri rétt utan markteigs fór
yfir.
Þrem mínútum síðar gerðu
Blikarnir svo endanlega út um
leikinn og var þar að verki Helgi
Bentsson. Hann fékk „stungusend-
ingu“ innfyrir vörn KA og þakkaði
hann fyrir sig með því að senda
knöttinn örugglega framhjá Aðal-
steini í marki KA. Það sem eftir
lifði leiksins má flokka undir eina
stóra flatneskju, þar sem boltan-
um var haldið að mestu leyti utan
við vitateigana.
Lið Breiðabliks var nokkuð
sprækt á köflum en datt svo niður
buxunum að tapa stigum í þessum
leik. Liðið lék að þessu sinni án
tveggja af lykilmönnum liðsins,
þeim Sigurði Grétarssyni og Ólafi
Björnssyni.
Lið KA byrjaði íslandsmótið
mjög vel en flug það er þeir voru
komnir á hefur lækkað mjög mik-
ið í undanförnum leikjum og hafa
þeir nú tapað 3 leikjum í röð. í
þessum leik virtist einsog alla
leikgleði og baráttuvilja skorti hjá
liðinu en það kann ekki góðri
lukku að stýra. Liðið verður að
fara að sýna virkilega klærnar ef
það ætlar ekki að lenda í fallbar-
áttunni innan tíðar.
í STUTTU MÁLI:
Akureyrarvöllur 3. júlí 1982.
KA — Breiðablik 2—0 (1—0).
Áminning, engin.
Mörk Breiðabliks: 10. mín. Vignir
Baldursson og 68. mín. Helgi
Bentsson. Áhorfendur 606.
Lið KA:
Aðaliteinn Jóhannsson
Eyjólfur Ágústsson
Guðjón Guöjónsson
Haraldur Haraldsson
Erlingur Kristjánsson
Gunnar Gíslason
Elmar Geirsson
Ormarr Örlygsson
Hinrik Þórhallsson
Ragnar Rögnvaldsson
Tómas Vilbergsson (vm)
Jón Marínósson (vm)
Lið Breiðabliks:
Guðmundur Ásgeirsson
Svavar Svavarsson
Helgi Helgason
Þórarinn Þórhallsson
Benedikt Guðnason
Vignir Baldursson
Hákon Gunnarsson
Jóhann Grétarsson
Birgir Teitsson
Helgi Bentsson
Þorsteinn Hilmarsson
ísland og Sviss neðst
Í8LENSKA landsliðið í handknatt-
leik hafnaði í 5. sæti á alþjóðlega
handknattleiksmótinu í Júgóslavíu.
Landslið Svisslendinga hafnaði í
sjötta og síðasta sætinu, þar sem
markatala þeirra var mun óhagstæð-
ari en íslenska liðsins.
Sovétmenn urðu sigurvegarar á
mótinu. Þeir sigruðu í öllum leikjum
sínum. Þeir sigruðu Júgóslava í
hreinum úrslitaleik, 23—20,
(11—11). Sá leikur var skemmtileg-
ur á að horfa og nánast endurtekn-
ing á úrslitaleik þessara þjóða i síð-
ustu heimsmeistarakeppni. Júgó-
slavar leiddu nær allan leikinn, en
höfðu ekki þrek til að halda í lið
ltússanna siðasta stundarfjórðung-
inn. Endanleg staða á mótinu varð
sem hér segir:
Stig
1. Sovétríkin 10
2. Júgóslavía 8
3. Pólland 6
4. Júgóslavía „B“ 4
5. ísland 1
6. Sviss 1
r
Island — Júgó-
slavía „B“ 19:20 (10:7)
ÞAÐ VAR hálfgerður klaufaskapur
hjá íslensku strákunum að tapa
þessum leik gegn eldhressu ungl-
ingalandsliði Júgóslava, sem var
styrkt með tveimur eldri leik-
mönnum.
Islenska landsliðið var betri að-
ilinn nær allan leikinn og höfðu
frumkvæðið allt fram á síðustu
mínútur leiksins að Júgóslavar
skoruðu sigurmark leiksins. Þetta
var í eina skiptið í leiknum sem
júgóslavneska unglingalandsliðið
tók forystuna. Mörk íslenska liðs-
ins skiptust þannig:
Kristján Arason 5 (öll víti)
Þorbergur 4
Alfreð 4
Páll Óiafsson
Siggi Sv.
Guðmundur
ísland — Pólland
24:29 (14:16)
EINS <)<; markatalan gefur til
kynna, var sóknarleikur aðal beggja
liða í þessum leik. Fyrir áhorfendur
var leikurinn mjög skemmtilegur á
að horfa. Hraðinn í leiknum með
ólíkindum ef mið er tekið af því að
þetta var fimmti leikur þjóðanna á
jafnmörgum dögum.
Leikfléttur beggja liða gengu
upp og klöppuðu áhorfendur leik-
mönnum óspart lof í lófa. Pólverj-
ar höfðu þó frumkvæðið allan
leikinn og sigur þeirra var aldrei í
hættu.
Þrátt fyrir miklar mannabreyt-
ingar á pólska landsliðinu, sýndi
frammistaða þeirra á mótinu, að
þeir verða áfram í röð sterkustu
handknattleiksþjóða.
Segja má, að íslenska landsliðið
hafi leikið góðan sóknarleik allt
mótið og lofar hann góðu fyrir
frammistöðu íslenska landsliðsins
á komandi vetri. Varnarleikurinn
er aðalhöfuðverkur liðsins og
hann kemur niður á markvörsl-
unni, sem var þó góð á köflum. í
leiknum gegn Pólverjum léku allir
leikmenn vel í sókn, en Þorbergur
og Kristján Arason áttu þar best-
an leik íslenska liðsins.
Sóknarnýting reyndist 50%, eða
24 mörk í 48 upphlaupum. Mörk
íslenska landsliðsins skiptust
þannig:
Þorbergur 7
Kristján 7 (1 víti)
Guðmundur 3
Alfreð 2
Steindór 1
Jóhannes 1
Páll Ólafss. 1
Knattspyrna
þess á milli. Þeir börðust mjög vel og voru sýnilega ekkert á þeim Bjarni 2 Þorbjörn Jensson 1 Þorbjörn 1 Bjarni 1
Fram: Valur: ÍBV
Guðmundur Baldursson 6 Brynjar Guömundsson 5 Páll Pálmason 6
Þorsteinn Þorsteinsson 6 Úlfar Hróarsson 4 Ágúst Einarsson 7
Trausti Haraldsson 7 Grímur Sæmundsson 4 Snorri Rútsson 6
Sverrir Einarsson 6 Magni Pétursson 5 Valþór Sigþórsson 6
Marteinn Geirsson 7 Dýri Guðmundsson 6 Örn ÓskarsBon 6
Halldór Arason 7 Þorgrímur Þráinsson 5 Viðar Elíasson 7
Ólafur Hafsteinsson 4 Ingi Björn Albertsson 4 Ómar Jóhannsson 6
Viöar Þorkelsson 6 Hilmar Sighvatsson 4 Jóhann Georgsson 6
Lárus Grétarsson 5 Njáll Eiðsson 3 Þóröur Hallgrímsson 6
Guðmundur Torfason 6 Guðmundur Þorbjörnsson 4 Sigurlás Þorleifsson 6
Hafþór Sveinjónsson S Þorsteinn Sigurðsson 4 Sveinn Sveinsson 6
Valur Valsson (vm) 3
ÍBV: KR: ÍA
Páll Pilmason 5 Stefán Jóhannsson 6 Davíö Kristjánsson 5
Ágúst Einarsson 5 Sigurður Sigurðsson 4 Guðjón Þórðarson S
Öm Óskarsson 5 Sigurður Pétursson 4 Sveinbjörn Hákonarson 4
Þórður Hallgrímsson 5 Ottó Guömundsson 5 Sigurður Lárusson 6
Valþór Sigþórsson 5 Magnús Jónsson 4 Sigurður Halldórsson 6
Snorri Rútsson 5 Jósteinn Einarsson 5 Björn Björnsson 5
Sveinn Sveinsson 5 Ágúst Már Jónsson 5 4
Jóhann Georgsson 5 Hálfdán Örlygsson 4 Jón Alfreðsson 5
Sigurlás Þorleifsson 6 Jón G. Bjarnason 5 Júlíus P. Ingólfsson 5
Ómar Jóhannsson 6 Willum Þórsson 4 Guðbjörn Tryggvason 5
Viðar Elíasson 6 Sæbjörn Guðmundsson S Árni Sveinsson 6
Kári Þorleífsson (vm) 5 Sigurður Indriðason (vm) 4 Kristján Olgeirsson (vm) 5
Óskar Ingimundarson (vm) 3