Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982
Sanngjarn sigur FH
FH VANN sanngjarnan, en nokkuð
stóran sigur, 3:0 (1:0), á Þrótti Nes-
kaupstað í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu, . er liðin mattust á
Kaplakrikavelli á laugardaginn.
FH-ingar með Pálma Jónsson, sem
skoraði öll mörk liðsins, fremstan í
flokki voru allan leiktímann sterkari
Páimi Jónsson:
Þetta voru allt góð
og lögleg mörk
„ÉG er auðvitað ánægður. Ég er það
alltaf þegar við vinnum og ekki var
verra að skora þrennu. Þetta voru
allt ágætis mörk, lögleg og góð,“
sagði Pálmi Jónsson, miðframherji
FH.
„Við höfum nú tekið beina stefnu
á fvrstu deildina og stöndum vel að
vígi, þar sem við erum í 2. sæti í
annarri nú. Annars finnst mér önnur
dcildin fremur slök nú eins og sú
fvrsta, en ég tel að við eigum fullt
erindi í þá fyrstu," sagði Pálmi.
aðilinn og var leikur þeirra nokkuð
góður á köflum. Þróttur átti nokkrar
góðar sóknir en tókst ekki að nýta
þær. Staða Þróttar í deildinni er
langt frá því að vera góð, liðið er
næst neðst með 5 stig og verður að
herða sig verulega ef fall í 3. deild á
ekki að verða hlutskipti þess. FH er
nú næst efst og stefnir á að fylgja
Þrótti Reykjavík upp i 1. deildina.
FH tók þegar frumkvæðið i leikn-
um og á 20. mínútu sendi Jón Hall-
dór góða sendingu á kollinn á
l’álma, sem skallaði í stöngina og
Þrótturum tókst að bægja hættunni
frá. Reít á eftir tók Sigurður Frið-
jónsson, bezti sóknarmaður Þróttar,
mikla rispu og lék á þrjá FH-inga og
inn í vítateiginn en fjórði varnar-
maðurinn komst þá i veg fyrir hann
á síðustu stundu og bjargaði. Á 24.
mínútu skoraði Pálmi svo sitt fyrsta
mark. Þá kom há sending inn á víta-
teig Þróttar, varnarmönnum mis-
tókst að hreinsa frá og knötturinn
féll fyrir fætur Pálma, sem skoraði
laglega af stuttu færi. Á 30. mínútu
fékk Þórhallur Jónasson góða send-
Þórhallur Jónasson:
Fall í 3. deild
ekki á dagskrá
„SIGUR FH var sanngjarn en of
stór. FH var betra liðið, var meira
með boltann og skapaði sér því betri
og fleiri færi en við. Þá var síðasta
markið ólöglegt, því Ágúst mark-
vörður okkar hélt boltanum, þegar
Pálmi náði honum og fyrsta markið
kom eftir mistök í vörn okkar,“
sagði Þórhallur Jónasson, fyrirliði
Þróttar.
„Staða okkar nú eftir þennan leik
er sú að við erum í þriðja neðsta sæti
deildarinnar og það getur bæði
versnað og batnað er umferðinni
lýkur. Staðan er því erfið, en við
erum ekki óvanir því og munum
naga stig af hinum liðunum þegar
líður á mótið. Það er ekki á dagskrá
að falla í þá þriðju. Það hefur háð
okkur talsvert að við höfum misst 7
leikmenn frá því í fyrra og í þeirra
stað hafa komið ungir strákar, góðir
leikmenn en þá skortir reynslu.
Þá finnst mér önnur deildin frem-
ur slök nú og aðeins Þróttur Reykja-
vik hefur burði til að leika í fyrstu
deild. Hvaða lið kemur til með að
fylgja Þrótti upp er erfitt að segja
vegna þcss hve jöfn staðan er,“
sagði Þórhallur.
ingu inn fyrir vörn FH frá Heimi
Guðmundssyni. Hann lék upp aö
vítateigshorni en skaut langt fram-
hjá. Um fieiri veruleg marktækifæri
var ekki að ræða i fyrri hálfleiknum,
en FH-ingar voru þó mun atkvæða-
meiri.
FH-ingar hófu síðari hálfleikinn
með miklum látum og á 51. minútu
skaut Jón Þór framhjá úr þröngu
færi eftir mistök í vörn Þróttar og 2
mínútum síðar varði Ágúst, mark-
vörður Þróttar, laglega langskot frá
Jóni Halldóri með því að lyfta knett-
inum yfir þverslána. Upp úr því fékk
FH 3 hornspyrnur í röð, en tókst
ekki að skora. Rétt á eftir sendu
FH-ingar knöttinn úr markspyrnu
beint fyrir fætur Heimis, sem lék
upp að vítateignum og skaut, en
markvöröur FH, Baldvin Guð-
mundsson, lyfti knettinum yfir
slána. Á 65. mínútu átti Pálmi gott
skot að marki Þróttar eftir sendingu
frá Jóni Halldóri, en í varnarmann.
Á 68. mínútu skoraði Pálmi síðan
annað mark sitt i leiknum, eftir að
boltinn hrökk til hans á markteig og
Ágúst átti ekki möguleika á að verja.
Á 78. mínútu skoraði Pálmi svo sitt
þriðja raark eftir að Ágúst hafði
misst fyrirgjöf fyrir fætur hans. Það
sem eftir var leiksins sóttu FH-ingar
nokkuð stíft án þess að ná að skora
og Þróttur náði að skjóta inn einni
og einni sóknarlotu án árangurs.
FH lék þennan leik nokkuð vel og
átti margar góðar sóknarlotur og lék
vel saman sem heild. Mest bar á
Viðari í vörninni og Pálma og Jóni
Halldóri í sókninni, en aðrir leik-
menn áttu nokkuð góðan leik.
Þróttarliðið var Iakari aðilinn í
leiknum og náði ekki að leika vel
saman, en skaut þó inn nokkrum
góðum sóknarlotum, sem hefðu átt
að gefa mark, en heppnin var ekki
liðsmaður Þróttara að þessu sinni.
Að þessu sinni bar mest á þeim Sig-
urði Friðjónssyni í sókninni, Þór-
halli Jónassyni og Herði Rafnssyni á
miðjunni. í vörinni voru þeir
sterkastir, Eiríkur Þór Magnússon
og Guðmundur Yngvason. — HG
• Hér er ekkert gefið eftir. Björn Olgeirsson Völsungi er aðeins of seinn að
koma í veg fyrir skot Fylkismannsins.
Völsungur sótti
eitt stig suður
Hún var ekki rishá knattspyrnan
sem Fylkir og Völsungur sýndu á
laugardaginn er liðin áttust við í 2.
deild i Laugardalnum. Leiknum
lyktaði með jafntefli, hvorugt liðið
skoraði mark.
Ekki vantaði baráttuviljann í
liðin en krafturinn var ekki virkj-
aður í markaskorun. Fylkismenn
voru skárri aðilinn en það var
Völsungur sem fékk hættulegasta
færi leiksins. Björn Olgeirsson var
þá aleinn með boltann fyrir fram-
an mark Fylkis, og átti aðeins
markvörðinn eftir, en skot hans
fór vel yfir. Fylkir átti öllu hættu-
legri færi en eins fór fyrir þeim,
aldrei vildi boltinn í netið.
Leikmenn voru nokkuð jafnir að
getu og ekki er hægt að tína neina
út úr.
— sh.
Bræóurnir tryggðu
Einherja sigur
Jafntefli í Keflavík
EINHERJI frá Vopnafirði nældi sér
í tvö stig er liðið sigraði Skallagrím á
hcimavelli um helgina í 2. deild í
knattspyrnu, með þrcmur mörkum
gegn tveimur. Leikurinn var mikill
baráttuleikur og nokkuð jafn.
Vigfús Davíðsson skoraði tvö
mörk fyrir Einherja og bróðir
hans, Gísli, bætti því þriðja við.
Gunnar Orrason skoraði fyrra
mark Skallagríms og nafni hans
Jónsson það síðara. Skallagrímur
komst yfir tvisvar yfir í leiknum
en Vigfús jafnaði í bæði skiptin.
Gísli tryggði liðinu svo sigur
nokkrum mínútum fyrir leikslok.
ÍBK og ÍBÍ geröu jafntefli 1—1,
er liðin léku í 1. deildinni á laugar-
dag í Kefiavík. Staðan í hálfleik var
0—0. Voru þetta nokkuð sanngjörn
úrslit miðað við gang leiksins.
Keflvíkingar hófu leikinn með
mikilli sókn, og til marks um
sóknarþungann fengu þeir níu
hornspyrnur fyrstu 15 mínútur
leiksins. En ísfir'ðingar áttu
hinsvegar skyndisóknir, er sköp-
uðu oft mikla hættu við mark
Keflvíkinga, og átti keflvíska
vörnin oft í vandræðum með hinn
mikla hraða ísfirsku framherj-
anna. Á 27. mínútu skall hurð
nærri hælum vð keflvíska markið,
er Þorsteinn Bjarnason hugðist
hreinsa frá eftir glæfralegt út-
hlaup, en knötturinn fór beint í
ísfirðing, og af honum í mark-
stöngina. En eins og áður segir
sóttu Keflvíkingar miklu meira
allan hálfleikinn. Voru flestar
sóknarlotur Keflvíkinga byggðar
upp á hægra kantinum, af Olafi
Júlíussyni, besta manni vallarins,
sem mataði samherja sína
viðstöðulaust á fallegum sendi-
ngum fyrir markið, en án árang-
urs. Ýmist voru Keflvíkingar of
seinir á knöttinn, eða þeir sköli-
uðu yfir eða framhjá, eða knöttur-
inn hafnaði í höndum Hreiðars
Sigtryggssonar, markvarðar ís-
firðinga, sem átti frábæran leik.
Það vantar eitthvert bit í fram-
línu, sem ekki tekst að skora eitt
einasta mark úr þeim mýgrút af
tækifærum, sem Keflvíkingar
fengu í fyrri hálfleik. Að vísu
vantaði Ragnar Margeirsson, sem
var í leikbanni, en Iið, sem ekki
getur verið án eins manns, er illa
sett. Á 43. mínútu fékk Örnólfur
Oddsson að sjá gula spjaldið, en
IBK
tr *
— ibi
1—1
bæði hann og þó einkum Gunnar
Guðmundsson sýndu oft leiðinlega
grófan leik, það er alger óþarfi, að
vera að sparka í andstæðinginn,
þegar knötturinn er hvergi nærri.
I síðari hálfleik jafnaðist leikur-
inn og sóttu Isfirðingar mun meir.
Keflvíkjngar urðu þó fyrri til að
skora. Á 73. mínútu leiksins skor-
aði Magnús Garðarsson, eftir góða
fyrirgjöf frá Daníel Einarssyni,
með hörkuskoti af um 20 metra-
færi, algerlega óverjandi fyrir
Hreiðar markvörð. Eftir markið
færðist mikið fjör í Isfirðinga og á
81. mínútu jafnaði Gunnar Pét-
ursson, með einstaklega glæsilegu
marki. Eftir sendingu utan af
kanti tók Gunnar knöttinn á lofti
og spyrnti viðstöðulaust með
vinstra fæti í efra markhornið.
Sannkallað draumamark.
Við markið færðist mikið líf í
leikinn og sóttu liðin til skiptis, og
á 87. mínútu fengu Keflvíkingar
besta marktækifæri leiksins. Óli
Þór fékk knöttinn í miðjum víta-
teig ísfirðinga, lék á tvo varnar-
menn og virtist ekkert eiga eftir,
nema að renna knettinum í mark-
ið, en datt þá (lét sig detta, til að
fá vítaspyrnu fullyrtu keflvískir
áhorfendur, er stóðu í kringum
Knattspyrna
blaðamann) og sá dómari leiksins,
að flestra dómi réttilega, ekkert
athugavert við það fa.ll.
Þór og Þróttur skildu jöfn
EFSTA LIÐ 2. DEILDAR, Þróttur úr Reykjavík, tapaði sínu öðru stigi er liðið
gerði jafntefli við Þór á Akureyrarvelli sl. fijstudagskvöld. 2 mörk gegn 2
urðu úrslit þokkalegs leiks. Svo slaklega lék Þróttur fyrri hálfleikinn að nær
hefði verið að þar hefði spilað eitt af neðstu liðum deildarinnar. í hálfleik gat
staðan verið 3—4:1 fyrir Þór ef margnefndar heilladísir hefðu vogað sér að
aðstoða lánlausa Þórsara að þessu sinni. Já, Þórsarar voru einstakir klaufar
við mark Þróttar, þvi urðu mörkin færri en efni stóðu til. Þróttur lék siðari
hálfleikinn betur á sama tíma og Þór gaf eftir.
Þróttur beitti stöðugt rang-
stöðuaðferð er hann réði greini-
lega ekki við. Fyrir vikið áttu
framherjar Þórs nokkrum sinnum
greiðan aðgang að marki Þróttar
en hvert upplagða tækifærið á
fætur öðru fór veg allrar veraldar
og þess i stað nýttu Þróttarar sér
sitt tækifæri. Ágúst Hauksson
skoraði auðveldlega eftir að hafa
fengið sendingu inn í teig upp úr
aukaspyrnu en vörn Þórs verður
sökuð um sofandahátt að þessu
sinni. En Þórsarar eru menn
ákveðnir vilji þeir það við hafa og
einungis 4 mínútum síðar höfðu
þeir jafnað með góðu marki Haf-
þórs Helgasonar. Mark þetta
hleypti slíku lífi í heimamenn að
Þróttarar áttu ekkert svar og
langtímum saman stóð vart steinn
yfir steini í þeim herbúðum.
Markið sem greinilega lá í loftinu
kom ekki fyrr en 2 mínútum fyrir
leikhlé. Átti Þróttur skyndiupp-
hlaup er lauk á þann veg að Sigur-
björn Viðarsson og Baldur Hann-
esson hlaupa saman með þeim af-
leiðingum að sá síðarnefndi fellur
og Ulfar dómari Steindórsson
dæmir vítaspyrnu á miður heppna
Þórsara. Atvik sem þetta er ætíð
umdeilanlegt og vissulega sýnist
sitt hverjum. Þórsarar mómæltu
ákaft en fengu engu breytt og
Daði Harðarson kom sínum
mönnum yfir, 2:1, ákaflega
óverðskuldað.
Niðurbrotnir Þórsarar áttu
mjög undir högg að sækja lengst
af í síðari hálfleik, næstum öll sú
knattpyrna er sást þessar 45 mín-
útur var Þróttar og má segja að
nú hafi aðkomumenn borgað fyrir
sig og vel það. Segja má að rétt-
lætinu hafi verið fullnægt er Úlfar
dæmir vítaspyrnu á Þrótt er u.þ.b.
7 mínútur voru eftir af leiknum.
Bjarni Sveinbjörnsson var þá
felldur heldur gróflega og Guðjón
Guðmundsson jafnar úr vítinu
fyrir Þór, 2:2. Það sem eftir lifði
leiks börðust bræður án sýnilegs
ávinnings og réttlát úrslit leiksins
urðu 2 mörk gegn 2.
Njarðvíkingar fengu
skell í Sandgerði
EKKI tókst Njarðvíkum að fylgja
eftir stórsigrinum yfir FH á dögun-
um er þeir mættu Reyni í Sandgerði
um helgina. Reynismenn unnu stór-
sigur, skoruðu 5 mörk gegn einu
marki Njarðvíkinga.
Bjarni Kristjánsson var hetja
Reynis, hann skoraði þrjú mörk og
lagði upp annað tveggja marka
Ómars Björnssonar. Mark Njarð-
víkurliðsins var sjálfsmark. Reyn-
ir var mun sterkari aðilinn ef á
heildina er litið, en sigurinn var
þó fullstór.
Með þessum sigri skaust Reynir
upp í 4. sæti deildarinnar
Njarðvík er í 7. sæti. *
en
.1 mn ’*«>
-mope í; gnite^t'i rrcq iqsss twq
u<m* íuoannei ,<ixkimvi incn -m|**> >