Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982
35
Reykjanesfólkvangur
Nú eru liðin tæp sjö ár frá því að
niu sveitarfélög á Reykjanesskaga
tóku saman höndum um að stofna
fólkvang á Reykjanesi. Megin-
markmiðið með stofnun hans var að
tryggja sem best rétt almennings til
að njóta þeirrar náttúru, sem svæðið
hefur upp á að bjóða, án þess þó að
umhverfið bíði tjón af. Jafnframt
eru i gildandi reglugerð ákvæði um
skipulagða efnistöku, en víða hafa
myndast Ijót sár af þeim sökum. Sér-
stök stjórn skipuð fulltrúum sveitar-
félaganna fer með málefni fólk-
vangsins.
A þeim tíma sem liðinn er frá
því að fólkvangurinn var stofnað-
ur hefur ýmislegt verið að gerast
og margt áunnist, þó það hafi oft á
tíðum ekki farið hátt. Er þar helst
að telja:
1. Upplýsingabæklingur. í vetur
gaf stjórn fólkvangsins út upplýs-
ingabækling um svæðið, sem hef-
ur m.a. að geyma upplýsingar um
náttúrufar, sögu og helstu göngu-
leiðir. Einnig er í bæklingnum
kort með ýmsum skýringum og
ábendingum. Bæklingi þessum
hefur verið dreift ókeypis.
2. Merkingar. Á síöasta ári voru
reistar þrjár vörður við aksturs-
leiðirnar inn í fólkvanginn, en í
þeim eru upplýsingaskilti sem
varða friðunina. Þá hafa verið sett
upp tréskilti við upphaf helstu
gönguleiða. Hjálparsveit skáta í
„MAÐUR og maskína" heitir dúk-
ristumappa, sem Guðmundur Ár-
mann Sigurjónsson, listmálari á Ak-
ureyri hefur gefið út í 100 tölusettum
og árituðum eintökum.
Alls eru fimm dúkristur í hverri
möppu, þrykktar í tveimur litum
og eiga það sameiginlegt, að sýna
fólk að vinnu í Skinnadeild Sam-
bandsverksmiðjanna á Akureyri.
Guðmundur Ármann vann
myndirnar þannig, að hann fór á
Blindravinafélag íslands hef-
ur verið arfleitt að öllum eigum
Sölva Kristjáns Sigurgeirssonar,
en hann andaðist hinn II.
október 1981 að Elliheimilinu
Grund, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá Blindravinafé-
laginu.
Kristján, eins og hann var
jafnan kallaður, var Snæfell-
ingur að uppruna, fæddur 17.
janúar 1897 og átti heima
fram á 5. tug ævi sinnar á
Hafnarfirði tók að sér þessar
merkingar nú í vor.
3. Landnotkun. Viðkomandi
sveitarfélög gengust fyrir því á
síðasta ári að koma á banni við
lausagöngu hrossa innan fólk-
vangsins og hefur þeirri ákvörðun
verið framfylgt eins og kostur er. í
undirbúningi eru nú beitarþols-
rannsóknir, sem gefa munu til
kynna ástand og þol gróðurs.
I vetur gaf Náttúruverndarráð
út fjölritið: „Eldstöðvar á Reykja-
nesskaga“ þar sem m.a. er úttekt á
efnistökumálum á skaganum
ásamt tillögum um áframhaldandi
nýtingu og friðun. Hefur verið
reynt að fylgja þessu eftir innan
fólkvangsins sem kostur er.
4. Vegagerð. Á síðastliðnu ári
var opnuð ný leið um fólkvanginn,
sem fær er öllum bílum. Liggur
hún vestan Sveifluháls, frá
Vatnsskarði um Móhálsadal og
Vigdísarvelli, og niður á þjóðveg-
inn við Latfjall. Jafnframt mun
hin nýja hringleið frá Bláfjöllum
og niður að Hafnarfirði liggja inn-
an fólkvangsins. Er það von fólk-
vangsstjórnar að báðar þessar
leiðir verði til þess að örva áhuga
almennings á að kynnast fólk-
vanginum og um leið að stuðla að
bættri umgengni.
5. Landvarsla. Sl. sumar var
komiðá tímabundinni landvörslu í
fólkvanginum, til eftirlits með
efnistöku, lausagöngu hrossa og
vinnustaðinn og teiknaði fólkið við
vinnu sína. Síðan vann hann
teikningarnar í dúk, þ.e.a.s. hverja
mynd í tvo dúka og voru þær síðan
þrykktar hjá Valprent á Akureyri.
Hlífðarkápa möppunnar er
hinsvegar silkiþrykkt hjá Teikni-
stofunni Stíll á Akureyri, en Guð-
mundur er annar aðstandenda
þeirrar teiknistofu og nýstofnaðs
gallerís, sem ber sama nafn, og
rekið er í húsakynnum teiknistof-
unnar.
Snæfellsnesi, en fluttist þaðan
til Keflavíkur. Þar kvæntist
hann Sólveigu Jónsdóttur, sem
lézt fyrir rúmum 26 árum. Þau
hjón voru barnlaus. Frá árinu
1980 var Kristján vistmaður á
Elliheimilinu Grund, enda var
hann þá orðinn blindur.
Kristján stundaði sjó-
mennsku framan af ævi og var
hress og heilsugóður allt til
æviloka. Arfurinn nam um 100
þúsund krónum.
almennri umgengni. Stendur til að
hafa á svipað fyrirkomulag með
vörslu í sumar, en æskilegt hefði
verið að auka hana að mun. Slíkt
leyfir fjárhagur hins vegar ekki að
þessu sinni.
Þó ýmislegt hafi áunnist á því
sjö ára tímabili, sem liðin eru frá
stofnun fólkvangsins, er því miður
ekki hægt að segja að allir hlutir
séu í stakasta lagi. Mikil sár
myndast árlega vegna aksturs
utan vega um viðkvæm gróður-
lendi og upplýsingaskilti eru brot-
in niður. Jafnframt hefur ekki
tekist nægilega vel að koma á
skipulagi í efnistöku, eins og ætl-
unin var í upphafi og nauðsynlegt
er að bæta að mun aðstöðu þeirra
fjölmörgu ferðamanna sem heim-
sækja þetta svæði árlega. Má í því
sambandi t.d. nefna Krýsuvík.
Fáar höfuðborgir geta státað af
því að hafa rétt við bæjardyrnar
REYKJANES
FÓLKVANGUR
jafn fjölbreytilegt náttúrufar eins
og finnst í Reykjanesfólkvangi og
er leitt til þess að vita að honum
skuli ekki vera meiri sómi sýndur.
Það er því eindregin ósk stjórnar
Reykjanesfóikvangs að almenn-
ingur gefi sér tíma til að heim-
sækja svæðið og kynnast því,
þannig að sá áhugi vakni, sem
nauðsynlegur er til að gengið verði
um landið með þeirri virðingu sem
því er samboðið.
Fréttatilkynning.
<x
ALFA-LAVAL
VAiniA
SKIPtVR
LANDSSMIÐJAN vekur
athygli á /ALFA-LAVAL
varmaskiptum til notkun-
ar vid upphitun á vatni til
neyslu og fyrir miöstöðv-
arkerfi. ALFA-LAVAL er
sænsk gæðavara. Um
það eru allir sammála
sem reynt hafa.
r ^
Helstu kosti ALFA-LAVAL
varmaskipta teljum vió vera:
X Þeir eru virkir og einfaldir
X Plöturnar úr ryðfríu stáli
semtærast ekkivióöll
venjuleg skilyrði
X Hreinsun auóveld
X Þrýstiþol mikið
X Breytingarauðveldar
X Þeir taka lltið pláss
X Nýtingin mjög góð
_______________________j
LANDSSMIÐJAN hefur
einkaumboð fyrir ALFA-
LAVAL á íslandi. og get-
ur vottað um aö áratuga
löng reynsla á hitaveitu-
svæðum um allt land
hefur sannað ágæti
þessara varmaskipta.
Viö veitum allar tækni-
legar upplýsingar, svo
og hvers konar upplýs-
ingar aðrar um ALFA-
LAVAL varmaskiptana.
LANDSSMIIUAN
^20-6-80
AUGLÝSINGASTOFA
MYNDAMÖTAHF
7
f Upplýsingar
i sima
35408
SIEMENS
Einvala lið:
Siemens- heimilistækin
Úrval v-þýskra SIEMENS-heimilistækja þar sem
hvert tæki leggur þér líö við heimilisstörfin.
Öll tæki á heimiliö frá sama aðila er trygging þín
fyrir góðri þjónustu og samræmdu útliti.
SMITH & NORLAND HF.
NÓATÚNt 4. SÍMI 28300.
Mynd úr möppunni, Maður og maskína.
„Maður og maskína“
dúkristur frá Akureyri
Blindravinafé-
lagið arfleitt