Morgunblaðið - 06.07.1982, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1982
39
Helga Kristjáns-
dóttir — Minning
Fædd 19. marz 1903
22. júni 1982
Það er óhætt að fullyrða, að
hvenær sem dauðinn drepur á dyr,
kemur hann manni ætíð jafnt á
óvart, jafnvel þótt von hafi verið á
honum um einhvern tíma. Svo fór
það einnig á dögunum, þegar
frænka mín og föðursystir, Helga
Kristjánsdóttir, kvaddi þennan
heim eftir langa og erfiða sjúk-
dómslegu á Elliheimilinu Grund
þriðjudaginn 22. júní sl., hátt á
áttræðisaldri. Helga er ein af
þeim manneskjum sem ég man
fyrst eftir sem barn, og fljótt
skapaðist á milli okkar hlýja og
vinskapur, sem entist alla tíð.
Fyrst man ég glögglega eftir
henni á Hringbraut 37 hér í borg,
en þar bjó hún ásamt manni sín-
um og stórum barnahópi á efstu
hæð í fjölbýlishúsinu við hliðina á
Björnsbakaríi. í þá daga fannst
manni húsið vera skýjakljúfur og
af svölum efstu hæðar hafði ungur
sveinn það á tilfinningunni, að
hann sæi allan heiminn.
Helga var fædd á ísafirði 19.
marz 1903, þar sem faðir hennar,
Kristján Asgeirsson frá Skjald-
fönn í Nauteyrarhreppi við Djúp,
starfaði við Asgeirsverslun. Móðir
Helgu var Þorbjörg Guðmunds-
dóttir, sem var fædd í Höll í
Haukadal í Dýrafirði. Helga flutti
ung til Flateyrar með foreldrum
sínum, þar sem Kristján tók við
starfi faktors við Ásgeirsverslun.
Börn Þorbjargar og Kristjáns
voru tíu, en nokkur dóu ung, og
var Helga elst þeirra er náðu full-
orðinsaldri. Eftir eru á lífi þrír
bræður, Magnús Guðjón, fyrrum
skrifstofustjóri Slippfélagsins í
Reykjavík, Guðmundur, skipa-
miðlari, og Steinarr, skipstjóri.
Helga giftist vestur á Flateyri
18. okt. 1925, Guðmundi Sigurðs-
syni, en hann kom þangað sem
ungur maður sunnan úr Keflavík
til að taka að sér skrifstofustörf
hjá Sameinuðu ísl. verslununum,
en það fyrirtæki tók við af Ás-
geirsverslun. Guðmundur, sem
lést 21. sept. 1974, var sonur Sig-
urðar Þ. Jónssonar, sem á sínum
tíma var faktor í Keflavík og síðar
kaupmaður við Laugaveginn í
Reykjavík, og konu hans, Hólm-
fríðar Guðmundsdóttur. Lengst af
starfaði Guðmundur við embætt-
is- og bankastörf í Reykjavík. Þau
hjón áttu sex börn, sem öll eru á
lífi, en elst þeirra er Ástríður, gift
Ingvari Emilssyni, haffræðingi
hjá Sameinuðu þjóðunum í Mex-
ico. Hólmfríður, banka-
starfsmaður, gift Árna Þor-
grímssyni, flugumferðarstjóra í
Keflavík, Sigurður Þ. Guðmunds-
son, læknir, kvæntur Ragnheiði
Aradóttur, sem lést 1. júlí sl.,
Gylfi, framkvæmdastjóri inn-
flutningsdeildar LÍÚ, en kona
hans er Ása Hjartardóttir, hús-
móðir, Þorbjörg, auglýsingastjóri
hljóðvarpsins, sem gift er Baldvin
Ársælssyni, prentara, og loks
Gerður, sem löngu er þjóðkunnur
þulur hljóðvarpsins, en maki
hennar er Sveinn A. Bjarklind,
loftskeytamaður. Barna- og
barnabarnabörnin eru orðin fjöl-
mörg og dreifð víða um lönd. Það
má geta þess, að Helga lést á af-
mælisdegi Hólmfríðar dóttur
sinnar, en þann sama dag ól dótt-
urdóttirin Helga fyrsta barn sitt,
sem er stúlkubarn.
Helga var einhver lífsglaðasta
manneskja sem ég hef nokkru
sinni kynnst og það var sama, að
þótt oft hafi verið erfitt að ala upp
stóran hóp barna á efnalitlu heim-
ili, var húsmóðirin ætíð björt og
hress. Hún naut þess að greiða
götu annarra og miðla af þekkingu
sinni úr skóla lífsins, en aldrei
heyrði ég hana fjalla um sjálfa sig
eða sín vandamál. Helga, eins og
fólk hennar ailt, naut þess að vera
innan um annað fólk og því stærri
sem hópurinn var, því betra
fannst henni. Með krafti og þreki
komu þau hjón börnum sínum öll-
um til menntunar og frama á
lífsbrautinni, þótt oft hafi verið
knappt í búi, en á heimilinu var
samt alltaf til nóg af gleði, hjarta-
hlýju og vinskap. í Helgu ólgaði
alltaf þessi bjargtrausti vestfirski
kraftur, sem enginn sem um-
gekkst hana komst hjá að taka
eftir og smitast af. Helga naut
þess mest af öllu að vera innan um
fjölskyldu sína, ekki aðeins börn
og maka, heldur einnig systkini og
systkinabörn, og raunar alla aðra
ættingja sína vestan af fjörðum.
Metorð eða veraldarauður skipti
hana engu máli í samskiptum við
annað fólk, heldur einstaklingur-
inn sjálfur, hver svo sem hann
var.
Mestan hluta ævi sinnar var
Helga heilsugóð og hraust, en síð-
ustu árin reyndust henni erfið
sökum öldrunarsjúkdóms og mest-
an þann tíma dvaldi hún á Elli-
heimilinu Grund. Hún kvaddi
þennan heim á sinn hæverska og
hljóðlega hátt, eftir að hafa lokið
heilladrjúgu dagsverki. í dag verð-
ur þessi gagnmerka og góða
frænka mín til moldar borin og
lögð til hinstu dvalar við hlið eig-
inmanns síns við Fossvoginn.
Fyrir fönd föður míns og ann-
arra ættingja sendi ég börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
Helgu okkar innilegustu samúð-
arkveðjur á sorgarstundu. Blessuð
sé minning hennar.
Jón Hákon Magnússon
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn-
ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess
skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort
ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð-
um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð
og með góðu línubili.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
auglVsinoasíminn er.
22480
JRirtmbhkit
Aðalskipulag
Keflavíkur, Njarðvíkur og Keflavíkurflugvallar. Tillaga
að aðalskipulagi fyrir Keflavík, Njarövík og Keflavík-
urflugvöll fyrir tímabiliö 1982—2002 liggur nú frammi
á bæjarskrifstofunni í Keflavík, Hafnargötu 12 á
venjulegum skrifstofutíma. Uppdráttur sem sýnir hið
skipulagða svæði sem er Keflavík, Njarðvík og Kefla-
víkurflugvöllur ásamt fylgiskjölum liggur frammi til 1.
september 1982.
Athugasemdum við tillöguna skulu sendar undirrit-
uðum fyrir 1. september 1982. Þeir sem eigi gera
athugasemdir við tillöguna innan tilskilins frests telj-
ast samþykkir henni.
Keflavík, 2. júlí 1982,
Bæjarstjórinn í Keflavík,
Hafnargötu 12, Keflavík.
Þúertekklá
Þessvcgna spyijum við -
Væri ekki þjóðráð að nýkjörnar bæjar- og sveitar-
stjórnir viðs vegar um land byðu kjósendum sæti I
fögrum lundi, eöa i iöandi mannlifi á gangstétt — á
bekk fráokkur??
Við framleiðum garðbekki I mörgum stærðum sem
henta alls staðar lúnum fótum, eða bara þeim sem
vilja tylla sér andartak og ræða landsins gagn og
nauðsynjar, taka I nefiö, eða horfa á elskuna sína.
Og vel á minnst: Við eigum lika bekki I heimilisgarð-
inn.
Hafið samband við Landssmiðjuna. Við viljum endi-
lega leiða ykkur til sætis á bekk frá okkur — og I all-
an sannleikann um verð og gæði áöur en sumarið
eráenda.
LANDSSMIOXAN
20-6-80