Morgunblaðið - 06.07.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982
41
fólk í
fréttum
Dervisar dansa á Greenwood Road í London.
Eins og aö standa á fjallstoppi
innan um lerkitré og kalda strauma
+ Dervisar eru félagar í múham-
eösku bræöralagi, þeir eru einna lík-
astir munkum. Þeir reyna að komast
í persónulegt samband við Guö og
ein aðalaöferð þeirra til þess er eins-
konar sveifludans. í þessum dansi ef
dans skal kalla snúa þeir sér í hringi
eins hratt og þeir geta i takt viö
trúarlega arabíska tónlist um leið og
þeir endurtaka Allah i sífellu. Þeir
halda lófunum beint út, hægri lófinn
snýr upp og sá vinstri niður.
Þessi múhameðstrúarsérflokkur
er nú tekinn að breiðast út í Eng-
landi. Á Greenwood Road í Lon-
don má oft sjá hópa af dervisum
að hringsnúast. Þeir eru innfædd-
ir Bretar sem hafa snúist til múh-
ameðstrúar. Þeir kalla sig Muri-
du’l-Haqq sem á íslensku útleggst
víst „sannleiksnemarnir", og þeir
eru fylgjendur Sheikh Abdullah
Sirr-Dan al-Jamal sem áður hét
John Ross. Þeir hafa allir tekið sér
arabísk nöfn, en þeir halda áfram
að nota hin venjulegu ensku nöfn
sín í daglegu lífi. En andstætt við
það sem tíðkast í múham-
eðstrúarlöndunum leyfa þeir kon-
um aðgang að hópnum, og eru nú
um fjórðungur af hópnum konur.
Nuri Karim, öðru nafni Judy, er
ein af þeim. Hún starfar sem líf-
fræðingur í Wimbledon. Hún segir
að fólk eigi erfitt með að trúa því
að hún hafi snúist til múham-
eðstrúar, „það eiga allir von á því
að ég fari að ganga með blæju“.
Judy gengur ekki með blæju en að
öðru leyti klæðir hún sig i sam-
ræmi við hinar ströngu reglur
múhameðstrúarinnar. Judy segir
að hún taki þátt í snúningsdansin-
um vegna þess að það geri hana
jákvæða og rói hana á taugum,
snúningsdansinn sé eins og að
standa á fjallstoppi innan um
lerkitré og kalda strauma.
Judy, öðru nafni Nuri Karim.
Betty Vac-
ani hættir
+ Hin 73 ára gamla Betty Vac-
ani hefur verið danskennari
ensku konungsfjölskyldunnar
um 53 ára skeið. Hún kenndi
Elísabetu drottningu og Mar-
gréti systur hennar og börnum
þeirra dans.
Betty Vacani er nú að hætta
störfum og þetta verður síðasta
árið sem skóli hennar, Vacani-
dansskólinn í London, starfar.
Betty Vacani segist ekki munu
leiðast þó að hún dragi sig í hlé
því líf hennar sé ríkt af minning-
um. Og hún á nóg af minningum
um kóngafjölskylduna. Hún seg-
Betty Vacani lifir i heimi konung-
legra endurminninga.
ir að Edward prins hafi alla tíð
verið ákaflega óhlýðinn, þegar
hún hafi sagt honum að setjast
hafi hann staðið upp og öfugt.
Karl prins segir hún að hafi ver-
ið allt öðruvísi, hann hafi alltaf
haft hugann við dansinn.
Betty segist hafa byrjað að
kenna Elísabetu drottningu dans
þegar hún hafi verið aðeins 4ra
ára gömul og hafi hún verið ljúft
og námsfúst barn, en Margrét
systir hennar hafi verið ennþá
liðugri. Betty Vacani segir að
Anna prinsessa hafi staðið sig
mjög vel í dansinum og hafi hún
m.a.s. tekið 1. stigs próf í ballett.
Samt segir Betty Vacani að það
sé aðeins einn af hinum konung-
legu nemendum sínum sem hafi
mikla hæfileika á þessu sviði og
það sé Frances, dóttir Margrétar
prinsessu og Snowdons lávarðar.
Segir Betty að Frances hafi
möguleika á að verða mikil og
fræg dansmey.
Við berurn það
bezta á borð
Komdu þegar pú hefur
góðan tíma, því hjá
okkur er margt að sjá
ÞU ÞARFT EKKI AÐ FARA ANNAÐ
Ll“í HÚSCACNAHÖLLIN
BILOSHÖFOA 20 110 REVKJAVtK « >141190 og >1410
Li\l>SIUOM.ST\
okkar pakkar og Modlr
hvorl ■ land aam ar.
I aima 91-81410 farftu
upplyalngar um varft,
gaafti og afborgunarkjftr