Morgunblaðið - 06.07.1982, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982
165 laxar veiðst
í Laxá í Aðaldal
1882 og síðan sögu skólans og gat
þá meðal annars um þær um-
bætur, sem gerðar hefðu verið
nú upp á síðkastið. Bæri þar
hæst hitaveitu, sem komin væri
nú í öll hús staðarins, byggingu
hesthúss og hlöðu við það sem
áformuð væri ásamt endurbót-
um á heimavistum og mötuneyti.
Það væri því snúið vörn í sókn
frá því sem verið hefði fyrir 2
árum þegar við lá, að skólinn
hefði verið lagður niður. Núna
gætu nemendur fengið fjöl-
breyttar valgreinar, svo sem lax-
eldi í samvinnu við Hólalax,
hrossarækt og loðdýrarækt. Það
væri því bjart fram undan.
Þá talaði landbúnaðrráðherra,
Pálmi Jónsson. Ræddi hann m.a.
endurbæturnar undanfarið og
þakkaði fjármálráðherra og
fjárveitingavaldinu góðan skiln-
ing á þörfum skólans. Gaf hann
síðan skólanum hátíðarútgáfu af
Skarðsbók.
Þá töluðu einnig Jóhann Sal-
berg, oddviti sýslunefndar
Skagafjarðarsýslu, Magnús
Jónsson, skólastjóri Bændaskól-
ans á Hvanneyri, Jónas Jónsson,
búnaðarmálastjóri, Ingi
Tryggvason, formaður Stéttar-
sambands bænda, Guðmundur
Jónsson, fyrrverandi skólastjóri
og Asgeir Bjarnason fyrir hönd
eldri nemenda. Að lokum afhenti
formaður skólanefndar og for-
maður sundlaugarnefndar Gísli
Pálsson, Jóni Bjarnarsyni, skóla-
stjóra sundlaugina. Á milli
atriða söng karlakórinn Heimir
og einnig var sýning á hrossum
búsins, sem Þorkell Bjarnason
ráðunauður lýsti.
í tilefni hátíðarinnar voru
pósthús og minjagripasala starf-
rækt í anddyri skólans og var
sérstakur póststimpill notaður í
tilefni dagsins. Þá er áformað að
gefa út bók í haust; „Þættir úr
sögu Bændaskólans á Hólum í
100 ár“, en í vetur gaf nemenda-
félag skólans út rit í tilefni af-
mælisins „Bústólpi". Þar voru
útdrættir úr ritgerðum nemenda
og jafnframt ritaði skólastjóri
grein þar einnig.
Fjölmenni mikið kom heim að
Hólum í tilefni dagsins, jafnt
gamlir nemendur sem yngri og
Skagfirðingar, ásamt velunnur-
um skólans. Var öllum gefinn
kostur á því að skoða húsakost
skólans og þær framkvæmdir,
sem einna helzt hafa gerzt nú
síðustu 2 árin. Að loknum hátíð-
arhöldunum var öllum gestum
Hólastaðar boðið í kaffisamsæti.
Veiðin í Laxá í Aðaldal gengur
sæmilega, að því er Mbl. fregn-
aði í veiðihúsinu við ána í gær.
Þá höfðu veiðst 165 laxar,
flestir neðan Æðarfossa. Stærsti
fiskurinn sem á land hefur kom-
ið var 21 pund og 117 cm að
lengd. Veiddist sá á Breiðunni og
tók flugu. Francis nr. 8, rauðan.
Þær flugur sem fengsælastar
hafa veriö eru Laxá blue og
Hairy Mary. í gær var veður
sæmilegt við ána, skyjað, en í
fyrradag rigndi við fögnuð veiði-
manna.
Lélegt í Laugardalsá
Veiðin í Laugardalsá í Ögur-
sveit í Isafjarðardjúpi hefur ver-
ið léleg það sem af er. Um hádegi
á sunnudag höfðu veiðst samtals
23 laxar og var sá stærsti 16,5
pund. Vatn er með meira móti í
ánni og hún veiðileg, að sögn tíð-
indamanns Mbl. en hins vegar
lítið af laxi samanvið. Fiestir
laxarnir hafa tekið maðk, en þrír
hafa ginið við flugu. Þær flugur
sem afla hafa gefið eru: Kol-
skeggur, Skröggur og Sweep.
Grímsá að glæðast
Heldur er veiðin að glæðast í
Grímsá í Borgarfirði, en í gær
höfðu um 70 laxar veiðst þar.
Veiðin í Grímsá hófst 19. júní.
Stærsti fiskurinn vó 16 pund og
fékkst hann á maðk.
Veðrið hefur verið þurrt og áin
því með minna móti og sagði við-
mælandi blaðsins í veiðihúsinu
að „Matlorca-veður" hafi verið
þar að undanförnu
Nú eru útlendingar að veiðum
í Grímsá og verður svo út júlí.
— ój.
Frá sundlaugarvígslunni.
Hólaskóli hundrað ára:
Sundlaug vígð við há-
tíðarhöldin á Hólum
Á sunnudaginn, var haldið upp á
100 ára afmæli Hólaskóla. Hófst
afmælishátíðin klukkan 11 fyrir
hádegi með því, að ný sundlaug
var vígð, en hún var gjöf frá göml-
um nemendum og velunnurum
skólans.
Sigurður Guðmundsson vígslu-
biskup i Hólastifti flutti vígslu-
ræðu og hr. Pétur Sigurgeirsson
biskup blessaði viðstadda og laug-
ina. Þvi næst stungu nemendur frá
því i vetur sér til sunds, ásamt
börnum heimamanna. Laugin er
16% metrar að lengd, með bún-
ingsaðstöðu, gufubaði og setpotti.
Kl. 13.30 var gengið til kirkju.
Þar þjónuðu fyrir altari Sigurð-
ur Guðmundsson vígslubiskup
og staðarprestur Sighvatur Em-
ilsson, en hr. Pétur Sigurgeirs-
son biskup predikaði. Sagði hann
m.a. í ræðu sinni, að gott sam-
starf hefði verið með kirkju og
skóla í þessa öld sem skólinn
hefði starfað, og kvaðst vona að
svo yrði enn um ókomin ár.
Því næst var gengið út á útih-
átíðarsvæðið fyrir neðan kirkj-
una. Fyrst flutti forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, ávarp.
Því næst talaði skólstjórinn Jón
Bjarnason. Rakti hann aðdrag-
anda að stofnun Hólaskóla árið
Jarðborinn Jötunn; nú er lokið við
að bora fyrstu holuna.
Gísli Pálsson formaður sundlaugarnefndar afhendir Jóni Bjarnasyni skólastjóra sundlaugina.
Krafla:
2150 m djúpri holu
SAMTÖK hcrstöðvaandstæðinga stóðu fyrir útifundi á Miklatúni á laugar-
dag og stóð samkoman frá kl. 14 til 17.
Ræður voru fluttar og skemmtikraftar komu fram. Fundarefnið er
barátta gegn kjarnorkuvopnum. Meðfylgjandi mynd var tekin á fundin-
um og var hann fámennur, eins og sjá má.
Ljósm. Mbl. Guðjón.
í LIÐINNI viku var lokið við að
bora fyrstu holuna, sem boruð veró-
ur við Kröflu í sumar. Holan er
2.150 metra djúp og stóð borun yfir i
um einn og hálfan mánuð. í síðustu
viku var unnið við að fóðra holuna.
„Nokkurt hrun var í holunni, sem
útaf fyrir sig er ekki óeðlilegt og
gekk vel að ráða við það,“ sagði
Gunnar Ingi Gunnarsson, staðar-
tæknifræðingur í samtali við Mbl.
„Nú er verið að flytja Jötun og
hefst stefnuborun í fyrsta sinn á
Islandi væntanlega á morgun
(þriðjudag). Við munum bora
beint niður fyrstu 250 metrana en
beygjum þá. Stefnuborun er vel
þekkt erlendis, en hefur aldrei
verið reynd hér á landi," sagði
Gunnar Ingi.
Mynd Mbl. (iubjón.
Fámennur fundur á Miklatúni
Eru
þeir að
fá 'ann
?
Lokið við borun á