Morgunblaðið - 06.07.1982, Blaðsíða 48
~m !
Askrifuiniminn cr X3033
1‘HIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1982
12.000 lestir af skreið í landinu:
V erðmætið
500 milljónir
SAMKV7KMT upplysingum Kiskifélags íslands eru birgAir af skreið í landinu nú
um 9.000 lestir. Kirgðir af hertum þorskhausum eru taldar um 3.000 lestir og
samanlagt verðmæti í kringum 500 milljónir. Kkkert hefur verið flutt út af skreið
eða hausum síðan í maí, en þá voru fluttar út um 900 lestir og enn er beðið eftir
úthlutun leyfa í Nigeríu.
Hannes Hall hjá Skreiðarsamlag-
inu sagði, að ekkert hefði verið flutt
út á þess vegum í tvo mánuði og enn
væri beðið eftir leyfum á Nígeríu.
Ekkert væri flutt frá þeim til ann-
arra landa. Hannes sagði, að mjög
erfitt væri að gera sér grein fyrir
verðmæti þesara birgða þar sem
ekkert væri farið að semja um verð.
Það væri ekki hægt fyrr en ljóst
væri hverjir fengju innflutningsleyfi
til Nígeríu, því væri það út í loftið að
gizka á verð. Aðspurður sagði hann,
að þetta væru ekki óvenju miklar
birgðir af skreið og hausum miðað
við árstíma, vertíðarskreiðin væri
enn að þorna. Engin afurðalán
fengjust út á skreið nú, enda væri
sjaldnast hengt upp á sumrin og það
gæti verið farið að sverfa að fisk-
vinnslunni vegna þess að ekkert
hefði verið flutt út svo lengi, heil-
mikið hefði verið farið á þessum
tíma, væri Nígería ekki lokuð. Þá
sagði hann að horfurnar væru þær,
að líða færi að því aö leyfin yrðu
veitt og þá gæt útskipun þegar haf-
izt.
Landsmenn hafa notið sólar og blíðu undanfarna daga og ekki eru stórfelldar breytingar sjáanleg-
ar. l»ó er lægð að búa sig undir að renna upp að landinu og gæti gert austan og síðan norð-austanátt
á miðvikudag með skúrum um sunnanvert landið, en síöan verður væntanlega aftur hægviðri.
Myndina tók Kristján Örn í góða veðrinu á I'ingvöllum um helgina.
Viðræður um hreinsun
stallanna í Óshlíðinni
Þingflokksfundir
um efnahagsmálin
(■l'OMtlNIM'K Kristjánsson, bæjarstjóri i Bolungarvík, sagði í samtali við Mbl. í
ga*r, að hann myndi á næstunni eiga viðræður við Vegagerð ríkisins um hreinsun
stallanna fyrir ofan Oshlíðarveginn.
Vegurinn um Óshlíð hefur verið
með versta móti síðustu vikur að
sögn Guðmundur Kristjánssonar,
bæjarstjóra í Bolungarvík, og þeirra
sem um veginn hafa farið. Ástæða
þessa er óvenjulega mikil þurrkatíð
og hefur mikið hrunið úr hlíðinni og
afleiðing þess m.a. það slys sem varð
sl. föstudag og Mbl. hefur sagt frá.
Guðmundur sagði, að reiknað væri
með að framkvæmdir hæfust í haust
við breikkun vegarins. Þá hefur bæj-
arstjórn Bolungarvíkur sent Vega-
gerðinni áskorun um að nú þegar
yrðu hreinsaðir stallar ofan vegar-
ins, sem gerðir voru fyrir nokkrum
árum, en koma nú að litlum notum
þar sem þeir hafa ekki verið hreins-
aðir.
Slysið á föstudag er annað stór-
slysið frá því að vegurinn um Óshlíð
var tekinn í notkun. I fyrra slysinu
féll skriða niður á rútubifreið með
þeim afleiðingum að tveir farþegar
létust. Þó hefur það nokkru sinnum
komið fyrir að steinar hafa lent ofan
á bifreiðum og þá á stundum munað
litlu að illa færi.
Jón E. Friðriksson, bæjarstjóri í
Ólafsfirði, sagði ástand vegarins um
Ólafsfjarðarmúla svipað og verið
hefur. Unnið er að rannsóknum á
Banaslys á
Sandskeiði
FJÖRTÍU og eins árs gamall
maður beið bana á Sand-
skeiði laust eftir klukkan 21
í gærkvöldi. Hann lenti í
skrúfu flugvélar og beið
samstundis bana. Maðurinn
var við æfingar í fallhlífar-
stökki þegar slysið átti sér
stað.
hagkvæmni jarðgangna sem yrðu 3
km löng, en það er sú eina leið sem
talin er geta leyst vandann þar. Jón
sagði að mesta hættan væri á vetr-
um vegna snjóflóða. Jarðgöngin eru
að sögn Jóns á langtímaáætlun.
Orkustofnun vinnur að borun fjórðu
rannsóknarholunnar til könnunar
aðstæðna og virtust niðurstöður
þeirra lofa góðu. Þá sagði Jón að
auðvitað slægi óhug að fólki við
fréttir af slysi eins og varð á Óshlíð-
arvegi og væri það geysimikið mál
fyrir íbúa Ólafsfjarðar að fá um-
rædd jarðgöng.
Jóhannes Pétusson, sveitarstjóri í
Ólafsvík, sagði að versti tíminn hvað
varðar hættu á skriðuföilum í Ólafs-
víkurenni væri þegar rigningarveður
stæði á ennið. Til stendur að hefja
framakvæmdir við veginn um Ólafs-
víkurenni í sumar. Vegurinn verður
að sögn Jóhannesar færður niður í
fjöru og byggður vegkantur 20—30
metra frá skriðufætinum. Ákveðið
er að vinna fyrir 6 milljónir króna í
sumar, en heildarkostnaður var
áætlaður 46 milljónir króna um síð-
ustu áramót. Jóhannes sagði að mik-
il áhersla væri lögð á lagfæringu
vegarins af íbúum á norðanverðu
Snæfellsnesi, því umferð hefði auk-
ist um veginn ár frá ári. Þá sagði
hann að engin stórslys hefðu orðið á
veginum, en bílar skemmst og oft
verið teflt á tæpasta vaðið, eins og
hann orðaði það.
Sj.á viAtal vid (iuðmund KósmundHNon
á mióopnu og ummæli \1atthía.sar
Bjarnasonar á bls. 2.
ÞINGFLOKKUR og framkvæmda
stjórn Alþýðubandalagsins komu sam-
an til fundar í gær og var staða efna-
hagsmála þar til umræðu. Menn voru
ekki á eitt sáttir hvað varðar niðurstöð-
ur útreikninga Þjóðhagsstofnunar og
var hart deilt á kafla hennar varðandi
útgerð og fiskvinnslu, sem margir
töldu byggða á allt of mikilli svartsýni.
Á ríkisstjórnarfundi í dag mun sjáv-
arútvegsráðherra væntanlega leggja
fram hugmyndir nefndar sem unnið
hefur að athugun málsins frá þvi að
skýrsla svonefndrar togaranefndar var
lögð fram. í skýrslu nefndarinnar kem-
ur m.a. fram samkvæmt heimildum
Mbl. að um 200 til 300 milljónir króna
þurfi til að koma útgerðinni á réttan
kjöl á ný og munu hugmyndir sjávar-
útvegsráðherra ganga út á aðstoð rikis-
sjóðs í því efni.
Ekki komu fram neinar tillögur
um lausnir efnahagsvandans á þing-
flokksfundi alþýðubandalagsmanna
í gær og lauk fundinum með því að
ákveðinn var annar fundur öðru
hvoru megin við næstu helgi og
mönnum falið að kynna sér málin
fram að þeim tíma. Þingflokkur
framsóknarmanna kemur saman um
líkt leyti og er Mbl. kunnugt um, að
þingmenn Framsóknarflokksins
hafa ýtt mjög á það, að þeim fundi
verði hraðað.
í gær fjallaði þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins um stöðu efnahags-
mála. Að sögn Ólafs G. Einarssonar
formanns þingflokksins var fundur-
inn fjölmennur og fór þar fram ítar-
leg umræða um stöðu og horfur
efnahagsmálanna.
Bílaleiga Akureyrar:
*
Avísanir
fundnar
ÁVÍSANIR að upphæð um 100 þús-
und krónur, sem stolið var af
skrifstofum Bilaleigu Akureyrar i
desember siðastliðnum, fundust
undir brúnni yfir Reiðgil á Öxna-
dalsheiði á laugardag og var þeim
skilað til lögregíunnar á Akureyri á
laugardagskvöld.
Innbrotið á skrifstofur Bíla-
leigu Akureyrar í Tryggvagötu
12 var framið aðfaranótt þor-
láksmessu og var um 300 þúsund
krónum í ávísunum og peningum
stolið. Máiið er enn óupplýst.
Geir Hallgrímsson í ræðu í Varðarferð:
Eflum friðarstarf á grund-
velli sameiginlegs öryggis
Kaupum ekki viðskipti með víðtækari samningum við Sovétmenn
„MEGINÞORRI manna í friðar-
hreyfingum í Vestur-Evrópu er ekki í
andstöðu við Atlantshafsbandalagið.
Forystumenn hreyfingarinnar i
Bandaríkjunum telja, að hugmyndir
þeirra muni styrkja bandalagið en
ekki veikja það. Beggja vegna At-
lantsála eru friðarsinnar raunsærri
en svo að fylgia einhliða afvopn-
un ... Úrsögn Islands úr AtlanLs-
hafsbandalaginu eða einhliða upp-
sögn varnarsamningsins við Banda-
ríkin yrði til þess að auka ófriðarlík-
ur en ekki draga úr þeim. I þessum
efnum verður okkur Sjálfstæðis-
mönnum ekki hnikað. Við fórnum
ekki friðarkerfi og friðarhreyfingu
AtlanLshafsbandalagsins fyrir örygg-
isleysi og aukna ófriðarhættu. Við
Sjálfstæðismenn bjóðum öllum frið-
arsinnum samstarf á þessum
grundvelli."
Þannig komst Geir Hallgríms-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, m.a. að orði er hann fjallaði
um friðarhreyfingar í Evrópu og
Bandaríkjunum í ræðu í Varðar-
ferð sl. laugardag. Geir Hall-
grímsson sagði ennfremur í ræðu
sinni, að það væru mikil öfugmæli,
þegar forystumenn Alþýðubanda-
lagsins og herstöðvaandstæðingar
reyndu að tengja baráttu friðar-
hreyfinga því stefnumáli sínu að
gera Island varnarlaust.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
fjallaði einnig um sovézku samn-
ingana í ræðu sinni og sagði: „Við
viljum ekki kaupa viðskipti með
því að gera víðtækari samninga,
sem Sovétríkin geta notað til að
beita okkur þrýstingi og til áróð-
urs í eigin þágu ...“
Þá sagði Geir Hallgrímsson í
ræðu sinni í Varðarferðinni, að
reynsla síðustu fjögurra ára sýndi,
að samstaða Sjálfstæðismanna
tryggði forystu Sjálfstæðisflokks-
ins í málefnum borgar og lands en
sundrung Sjálfstæðismanna færði
vinstri mönnum völdin í hendur.
Sjá ræðu Geirs Hallgríms-
sonar í heild á miðopnu.