Morgunblaðið - 08.07.1982, Side 37

Morgunblaðið - 08.07.1982, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1982 37 Myndabandaleiga kvikmyndahúsanna dreifir innlendu myndefni Framsýnar/ ísmyndar — Myndabandaleigan hefur þegar tekið til útleigu tvo fyrstu þættina Frá vinstri: Þórir Steingrímsson frá Garðaleikhúsinu, Guögeir Leifsson, framkvæmdastjóri Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna, Björn Vignir Sigur- pálsson, Framsýn, Gísli Sigurþórsson, Ismynd, Jóhann Magnússon frá verk- smiðjunni Vífilfelli og Arni Þórarinsson, Framsýn. MYNDBANDALEIGA kvikmyndahús- anna og fyrirtækin Framsýn hf. og ísmynd sf„ hafa gert með sér samning, sem tryggir myndbandaleigunni dreif- ingarrétt á öilu efni Framsýnar/ís- myndar, sem ætlað er á myndbanda- leigumarkaðinn, til eins árs. Myndbandaleigan hefur nú þegar tekið til útleigu tvo fyrstu innlendu þættina: Stefnumót — viðtals- og skemmtiþátt, þar sem fram koma m.a. Hermann Gunnarsson, íþrótta- fréttamaður, Auður Haralds, rithöf- undur, Magnús Eiríksson, laga- smiður, Hafsteinn Hauksson, bif- reiðaíþróttamaður, Ingimar Eydal, tónlistarmaður og sælkeri, og hljómsveitin Tommy Fresh og Co. Þá hefur verið gerður þáttur um sýningu Garðaleikhússins á Galdra- landi, barnagamni Baldurs Georgs- sonar. Leikstjóri er Erlingur Gísla- son, en með aðalhlutverk fara: Aðal- steinn Bergdal, Magnús Ólafsson og Þórir Steingrímsson. Þessi þáttur er afrakstur sérstaks samnings milli Framsýnar/ísmyndar og Garða- leikhússins um samvinnu þeirra í milli. Samningurinn milli Framsýnar/- ísmyndar og Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna felur í sér, að leigutekjum af þáttunum verður skipt í samræmi við tölvuskráðar upplýsingar um útleigu þáttanna, en það gerir jafnframt framleiðendum kleift að fylgjast með leigu á myndsnældum sinum. Þá mun myndbandaleigan taka að sér að gæta hagsmuna fyrirtækjanna og listamanna á snærum þeirra, gagn- vart hugsanlegri misnotkun á efn- inu. í þessum þáttum og í þeim sem eftir fylgja, hefur auglýsingum verið skotið inn á milli efnis. Þetta er gert til þess að vega upp á móti háum framleiðslukostnaði hins íslenska myndefnis. Gerður hefur verið samningur milli Framsýnar/ís- myndar og verksmiðjunnar Vífilfells um auglýsingar í myndefninu. Framsýn og ísmynd eru um þessar mundir að ljúka við gerð þriðja þátt- arins fyrir myndbandaleiguna, sem byggist á stuttum gamanþáttum úr daglega lífinu eftir þær Auði Har- alds og Valdísi Óskarsdóttur, og ís- lenskri rokk- og dægurlagatónlist í Skonrokk-stíl. Stefnt er að gerð tveggja þátta til viðbótar í júlímán- uði. Samhliða þáttagerðinni fyrir myndbandaleiguna vinna fyrirtækin að gerð kynninga- og fræðslumynda fyrir samtök og einkaaðila. Notaðir á 400 m2 Vegna mikillar sölu á nýjum bflum að undanförnu getum við boðið mikið úrval notaðra bfla á sérstökum sumarkjörum. í björtu og rúmgóðu húsnæði getur þú valið nákvæmlega þann bíl sem þig vantar og honum fylgir 6 mánaða Verið velkomin JÖFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600 Sumarbústaðaeigendur Vorum að fá sendingu af þessum vinsælu norsku arinofnum. Þeir sem eiga pantanir eru vinsamlega beðnir að staðfesta þær. Blaóburóar- fólk óskast Vesturbær Miöbraut Austurbær Flókagata 1—51. ÚTHVERFI Nökkvavogur Skipasund Karfavogur KÓPAVOGUR Reynigrund Upplýsingar í síma 35408

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.