Morgunblaðið - 06.08.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
7
VÉLALEIGA H.J.
Njálsgötu 72, s. 86772 — 22910 — 23981.
Loftpressur í öll verk.
Múrbrot, fleygun og borun.
Gerum föst tilboö ef óskaö er.
“GOOD trouble:’
10 ný lög frá
REO SPEEDWAGON.
Keep the Fire Burnin’g er bara
fyrsta lagiö af þessari plötu sem
veröur vinsælt
V^KARNABÆR
tMnorhf
The new album featuring ttie single,
"KeepThe Flre Burnin'.”
On Epic Records and Topes.
"Eplc" Is a trademark of CBS Inc.
» reiöhíól nútimans«
^ ÁSTELLI
superia
Glæsileg og vönduð belgísk reiðhjól í ýmsum stærðum
og gerðum. Lífstíðarábyrgð á hjólastelli. Sérstaklega létt
og meðfærileg. Fáanleg bæði 3 gíra, 4 gíra og 10 gíra.
Komið og skoðið hjólin í björtum og þægilegum
220m2 sýningarsal, eða fáið senda bæklinga. •
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri.
Hjól & Vagnar
Háteigsvegi 3, 105 Reykjavik, tcetand, Tel.(91)ZW1
PJODVIIIINN
Dökkar horfur kynntar 4 fundi forsctisráöberra
meö samráösaðilum 1 gter
!E2Ss?2E-*i.««í»*3
inMl LNia Tli“ M
meö samraösaouuiu i — , «X
Hætta á 3 mfljörðum i við-
IdptahaDa og 80% verðbolgu|
Fjóröungur vöru- ‘ * ~ ™ 1
„Eg er undrandi á þessum fundi!“
• Hver vóru ummæli forystumanna launþegasamtaka um „sam-
ráðsfund“ ríkisstjórnarinnar, sem Þjóöviljinn hélt ekki vatni yfir?
• Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ: „Þetta er náttúrulega
ekkert samráö, þar sem lagðar eru skýrslur fyrir menn og engu
svarað sem spurt er um. Slíkt getur tæplega kallast samráö, þótt
það heiti svo á máli ríkisstjórnarinnar.“ Talar ríkisstjórnin annað
mál en launþegahreyfingin?
• Kristján Thorlacius, oddviti BSRB: „Ég er undrandi á þessum
fundi. Þar kom ekkert nýtt fram. Okkur vóru send þessi skjöl frá
Þjóðhagsstofnun fyrir helgi, og á fundinum kom ekkert frekar
fram ... Þessi fundur var ekki kallaður saman til aö hafa samráö
og annar „samráðsfundur" hefur ekki veriö boðaður.“
Söguleg
forsíða
Þjóðviljans
Staksteinar birta nú
mynd af forsídu Þjóðvilj-
ans, 4. ágúst sL Þar er eltki
verið að segja frá því að
meginmarkmið stjóraar-
sáttmálans, „að treysta ís-
lenzkt atvinnu- og efna-
hagslíf, og ná verðbólgu
niður ,4 svipað stig og í
helztu viðskiptalöndum
okkar" séu i höfn. Aldeilis
ekki. Verðbólgan er ekki
komin niður fyrir 10%
ársvöxt í höndum verð-
lagsmálaráðherrans, niður-
talningarpostulans Tómas-
ar Árnasonar. Hún stefnir
sum sé í lítil 80%, segir
Þjóðviljinn. Atvinnuvegirn-
ir eru á heljarþröm, segir
blaðið, viðskiptahalli
ógnvekjandi og greiðslu-
byrði af erlendum lánum
komin í 20%, eða langt yfir
hættumörk. Já, Ijótt er að
heyra, hvern veg ríkis-
stjórainni hefur tekizt að
„bjarga sóma Alþingis",
„treysta atvinnu- og efna-
hagsfíf þjóðarinnar" og
leggja verðbólguna að velli.
Undir þessum kringum-
stæðum boðar ríkisstjórnin
til „samráðsfúndar" þar
sem ..samráðsaðilar" fá
náðarsamlegast að hhista á
i'rkibiskupsboö.skap. For-
ystumenn verkalýðshreyf-
ingar eru allt annað en
ánægðir með þetta „sam-
ráð", en Þjóðviljinn má
eltki vatni halda af hrifn-
ingu. Um það efni segir
GAS i Alþýðublaðinu í gær
„En rítstjórí ÞjóðvUjans
er á aUt öðrum buxum en
forystumenn verkalýðs-
hreyfíngarinnar. Hann er
hæstánægður með „fram-
tak" forsætisráðherra og
viU fleirí „samráðsfundi"
af þeirri tegund, sem fram
fór i fyrradag. Yfírskrift á
leiðara ÞjóðvUjans í gær
er „Fleiri samráðsfúndi"!
— Er Kjartan Ólafsson,
ritstjórí og fyrrum þing-
maður Alþýðubandalags-
ins, að grínast? Er hann að
gera grín að forsætisráð-
herra eða aðihim vinnu-
markaðarins? Eða báðum?
Er hann að gera grín að
ríkisstjórninni og þar með
flokksbræðram sinum í
ráðherrastóhim?" Já, von
er að maðurínn spyrji.
Hið stöðuga
gengi — og
gjaldmiðils-
breytingin
Gjaldmiðilsbreytingin
var skrautblóm í barmi rík-
isstjórnarinnar. íslenzka
krónan var sögð komin I
fjölskyldu Norðurlanda-
mynta sem jafningi til
frambúðar. Ráðherrar
fíuttu fjálgar ræður um hið
„slööuga gengi", sem
stjórnsýsla þeirra myndi
tryggja þjóðinni, samhliða
því að gjöréyða horagrýtis
verðbólgunni, en útfor þess
fyrirbæris var tímasett
1982. Sagt er að trúgjöm-
ustu fylgismenn ríkis-
stjóraarínnar biði þess nú
dag hvera að sjá auglýst I
Timanum og Þjóðviljanum,
að stjórnarráðið verði lok-
að í dag vegna bálfarar
verðbólgunnar!
En hveraig hefur „hið
stöðuga gengi" gengið fýrír
sig?
Bandaríkjadahir var
skráður á nýkr. 3,95 í upp-
hafí árs 1980 (sölugengi)
og kr. 4,34 (til ferða-
manna). í gær var sam-
svarandi skráning kr. 12,23
og kr. 13,45. Það þarf sem
sagt þrísvar sinnum fleiri
krónur fyrir hvera dal í
dag en þegar ríkisstjórn
hins „stöðuga gengis" hóf
feríl sinn.
Og hvern veg hefur ís-
lenzku krónunni vegnað
sem varanlegur jafningi í
fjölskyldu Norðurlanda-
mynta?
f ársbyrjun 1981 vóra is-
lenzk og dönsk króna
.Jafningjar". í dag þarf ná-
lægt einni og hálfri is-
lenzkri til að mæta þeirrí
dönsku. Og ekki er al-
menningi grunlaust um, að
gengislækkun, í kjölfar við-
varandi gengissigs, sé til
umræðu í ríkisstjórninni.
En hvað segir svo hinn
margfrægi stjórnarsáttmáli
um stefnuna í gengismál-
um? Jú, jú, ekki vantar
orðin frekar en fyrrí dag-
inn: „Beitt verði aðhaldi i
gengismáhim. Til að
treysta gengi gjaldmiðils-
ins verði gert sérstakt átak
til framleiðniaukningar I
atvinnuvegunum." Hvorki
meira né minna. Þetta
„sérstaka átak" hefur
belzt komið fram í því að
refja atvinnureksturínn í
skatta- og skuldafjötra og
setja hvers konar þrösk-
uldi á veg hans til fram-
leiðniaukningar, enda
þjóðartekjur, sem fífskjör-
um ráða, rýrnandi, á sama
tíma og viðskiptahallinn og
skuldasöfnun erlendis vex
í takt við verðbólguna.
Hvar sem væri í veröldinni
myndi ríkisstjórn, sem svo
gjörsamlega hefur brugðizt
í störfum sinum, þurfa að
taka pokann sinn.
LEIGJENDUR MYNDBANDA
ATHUGIÐ!
Að gefnu tilefni skal það tekið fram að myndbönd merkt
fkoinof eru eingöngu til heimilis- og einkanota hér
á landi, en ekki til opinberrar birtingar svo sem skýrt er
tekið fram á öllum myndböndum frá floiríor . Opinber
birting telst t.d. sýning í myndbandakerfum fjölbýlis-
húsa, verslunum, veitingahúsum, vinnustöðum, fólks-
flutningabifreiðum, skipum, flugvélum o.s.frv., hvort
sem sýnt er gegn gjaldi eður ei. Fjölföldun á efni mynd-
bandsins er með öllu óheimil, hvort sem er að hluta til
eða í heild sinni.
Brot á framanskráðu varðar lögsókn fyrir almennum
dómstólum.