Morgunblaðið - 06.08.1982, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
Lúðrasveil Vestmannaeyja leikur í Oddgeirsvarð&num við vígshi listaverksins. Tónsprotinn rís á móti lista- Oddgeirsvarðinn séður á hlið.
mönnunum.
Oddgeirsvarðinn í Vestmannaeyjum;
„Hér fer saman stílhrein feg-
urð og ákveðið notagildi“
Sigurgeir Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja og Svava Guð-
jónsdóttir, færa Birni Stefáni Hallssyni arkitekt og Þorsteini Sigurðssyni
formanni framkvæmdanefndar, þakkir fyrir vel unnin störf.
Grein: Árni Johnsen
Myndir: Sigurgeir Jónasson
Glæsilegt listaverk og mann-
virki til minningar um Oddgeir
heitinn Kristjánsson, tónskáld frá
Vestmannaeyjum, var vígt í Vest-
mannaeyjum fyrir skömmu. Er það
fyrsti útihljómlistarskáli á íslandi,
staðsettur á Stakkagerðistúninu i
Kyjum, sem er aðal samkomustað-
ur Eyjamanna á útihátíðum, nema
Þjóðhátíð Vestmannaeyja sem
haldin er i Herjólfsdal. Oddgeirs-
varðinn er listaverkið kallað í dag-
legu tali, en fjöldi einstaklinga,
fyrirtækja og félaga í Eyjum stóð
að því að byggja varðifnn.
Hugmyndin að því að reisa
þennan minnisvarða um Oddgeir
kom fyrst fram á fundi hjá Rot-
aryklúbbi Vestmannaeyja og var
það Bragi I. Ólafsson sem stakk
upp á þessu í tilefni af dánar-
afmæli Oddgeirs sem lézt fyrir
aldur fram árið 1965. Við vígslu
Oddgeirsvarðans fjallaði Magn-
ús Jónsson frá Grundarbrekku,
gjaldkeri byggingarnefndar,
nokkuð um framkvæmd verks-
ins, en upphaflega var skipuð
undirbúningsnefnd frá Rotary-
klúbbnum, Akóges, Lúðrasveit
Vestmannaeyja, Bifreiðastöð
Vestmannaeyja og bæjarstjórn
Vestmannaeyja. Þessi undirbún-
ingsnefnd efndi m.a. til sam-
keppni um gerð minnisvarðans
og var valin hugmynd Björns
Stefáns Hallssonar, arkitekts,
sem byggði hugmynd sína á
nótnaborði, tónstiganum og
tónsprotanum. I júlí sl. ár var
framkvæmdarnefnd sett á lagg-
irnar og var Þorsteinn Sigurðs-
son frá Blátindi formaður henn-
ar, en auk hans áttu sæti í
nefndinni, Friðrik Ásmundsson,
skólastjóri, Valtýr Snæbjörns-
son, byggingarfulltrúi, Einar M.
Erlendsson, smiður, Sigurjón
Sigurðsson, bílstjóri og Þórarinn
Magnússon, kennari, en að auki
var Viðar M. Aðalsteinsson
tæknilegur ráðgjafi og Magnús
Jónsson, gjaldkeri.
Gekk öll framkvæmd verksins
mjög vel undir stjórn Þorsteins
á Blátindi og lögðust allir á eitt
að koma verkinu í höfn á sem
skemmstum tíma. Sem dæmi um
einstakling og félagssamtök sem
lögðu hönd á plóginn má nefna
Guðna Hermansen, listmálara
og félaga í Akoges, sem söfnuðu
100 þúsund krónum til verksins.
„Þetta mannvirki", sagði
Magnús Jónasson, „sem reist er
til heiðurs Oddgeiri Kristjánss-
yni, tónksáldi okkar Eyjabúa er
aðeins örlítill þakklætisvottur
fyrir öll þau góðu verk er hann
gerði fyrir þetta bæjarfélag.
Fyrir öll fallegu lögin hans, fyrir
allt það sem hann veitti okkur
krökkunum nemendum hans,
fyrir fallegra og betra mannlíf
Eyjanna. Allt þetta skóp hann
með lífi sínu og framgöngu hér.
En ekki var hann hér einn að
verki, þar stóð fjölskyldan hans
þétt með honum og þá ekki hvað
síst hans góða eiginkona, Svava
Guðjónsdóttir, sem er hér með
okkur í dag og sérlegur heiðurs-
gestur. Henni vil ég fyrir hönd
okkar allra, færa okkar innileg-
ustu þakkir fyrir öll hennar
störf og biðja góðan Guð að
styrkja hana og blessa."
Eftir að frú Svava Guðjóns-
dóttir ekkja Oddgeirs hafði af-
hjúpað Oddgeirsvarðann og
Þorsteinn Sigurðsson á Blátindi
hafði afhent Sigurgeir Ólafssyni
forseta bæjarstjórnar mann-
virkið, flutti séra Kjartan örn
Sigurbjörnsson ávarp og bless-
unarorð og þá ávarpaði Hildur
Oddgeirsdóttir samkomuna:
Oddgeir Kristjánson tónskákl frá
Vestmannaeyjum.
Góðir Vestmannaeyingar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar vil
ég þakka öllum Vestmannaey-
ingum, nær og fjær, einstakling-
um og félögum, þá virðingu sem
þeir hafa sýnt föður mínum með
því að reisa þennan fagra minn-
isvarða.
Það er von okkar að tilkoma
minnisvarðans verði til þess að
fegra og auka mannlífið hér í
hjarta bæjarins.
Ég vil lýsa sérstakri ánægju
minni yfir hversu vel hefur tek-
ist til með gerð minnisvarðans.
Hér fer saman stílhrein fegurð
og ákveðið notagildi. Vonandi á
þetta mannvirki eftir að gleðja
bæði auga og eyra um ókomna
framtíð.
Á sama hátt og lög pabba hafa
orðið sameign allra bæjarbúa,
vona ég að þessi minnisvarði
verði eign okkar allra og notaður
af okkur öllum, ekki síður en lög-
in hans.
Um leið og ég ítreka þakklæti
okkar fyrir þetta sérstaka fram-
tak, vil ég nota tækifærið og
þakka einnig fyrir þá virðingu og
þann stuðning sem faðir minn
hlaut í lifanda lífi, stuðning í
starfi, til náms og lagaútgáfu,
bæði frá bæjarstjórn og bæjar-
búum.
Allt var þetta og er, okkur
ómetanlegt. Hafið öll kærar
þakkir fyrir."
Síðan lék Lúðrasveit Vest-
mannaeyja undir stjórn Hjálm-
ars Guðnasonar, Oddgeirslög, en
Oddgeir var stjórnandi hennar í
áratugi og þá söng Kirkjukór
Vestmannaeyja einnig nokkur
Oddgeirslög undir stjórn Guð-
mundar H. Guðjónssonar. Mikið
fjölmenni tók þátt í vígslu
Oddgeirsvarðans, sem fór fram á
Sjómannadaginn. í marga ára-
tugi hefur Lúðrasveit Vest-
mannaeyja oftsinnis leikið á
Stakkagerðistúni og vegna þess
fæddist sú hugmynd að reisa
minnisvarða sem hefði notagildi
og reyndar hafði Oddgeir oft tal-
að um nauðsyn þess að byggja
hljómskála. Einnig hefur Betel-
söfnuðurinn sungið og prédikað
til blessunar á Stakkagerðistúni
um langt árabil og hljómsveitir
og ýmsir aðilar hafa komið þar
fram úti undir heiðum himni.
Við vígslu Oddgeirsvarðans. Frá vinstri: Svava Hafsteinsdóttir, dótturd-
óttir Oddgeirs, Hildur, dóttir tónskáldsins, Svava Guðjónsdóttir, ekkja
Oddgeirs og Hrefna Oddgeirsdóttir.
Þrír breður Oddgeirs voru viðstaddir athöfnina. Frá vinstri: Haraldur,
Lárus og Ólafur Kristjánsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.