Morgunblaðið - 06.08.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
15
Katyiisha-eldflaugar, sem tsraelar náðu á sitt vald í Sexdagastriðinu
1967, sendar í átt til Beirút.
veg. Undrun og fordæming var
það, sem efst virtist vera í hug-
um þeirra, sem greiddu atkvæði
með tillögunni. „Það sem er að
gerast er í raun að verið er að
leggja Beirút, einhverja glæst-
ustu borg Miðausturlanda, í
rúst,“ sagði Hamilton Whyte,
fulltrúi Breta.
Lögreglan í Beirút skýrði frá
því í dag, að meira en 250 manns
hefðu látið iífið og 670 slasast í
geysihörðum árásum Israela á
vesturhluta Beirút í gær, mið-
vikudag. Sagði ennfremur að
fjöldi bygginga hefði verið jafn-
aður við jörðu. Þá var ennfremur
skýrt frá því, að fjöldi sjúklinga
á sjúkrahúsum dæi innan
Sífellt vaxandi and-
úð í garð Israela
Sameinuðu þjóðunum, Beirút, Washington, 5. ágúst. AP.
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gærkvöldi tillögu
frá Spánverjum og Jórdönum þar
sem innrás fsraela í Líbanon var
fordæmd. Tillagan var samþykkt
með 14 atkvæðum gegn engu og
athygli vakti að Bandaríkjamenn
sátu hjá í atkvæðagreiðslunni.
Fulltrúi Bandaríkjamanna,
Carl S. Gershman, sagði að þrátt
fyrir breytingar á orðalagi til-
lögunnar frá því, sem fyrst var
gert ráð fyrir, væri í henni einn
alvarlegur brestur þar sem ekki
væri minnst á brottflutning
PLO-manna frá Líbanon.
Gershman sagði ennfremur að
afstaða Bandaríkjamanna
endurspeglaðist í ummælum
Ronald Reagans, forseta lands-
ins, á miðvikudagsmorgun er
hann lýsti því yfir að ekki mætti
dragast lengur að PLO hefði sig
á brott frá Líbanon en á móti
kæmi, að Israelar yrðu að koma
á vopnahléi og sjá til þess að það
yrði haldið.
Fulltrúi ísraela hjá Samein-
uðu þjóðunum, Yehuda Z. Blum,
sagði í ræðu á fundi með Örygg-
isráðinu „að Líbanon tilheyrði
Líbönum og nauðsynlegt væri að
skæruliðar hefðu sig á brott án
tafar", og vitnaði þá til PLO.
Blum sagði ennfremur að Israel-
ar hefðu engan áhuga á að dvelja
áfram í Líbanon. „Um leið og
takmarkinu um frið í Galíleu er
náð munum við draga okkur í
hlé,“ sagði hann ennfremur.
Tillagan, sem var samþykkt í
Öryggisráðinu var sú sjöunda,
sem snertir ísraela eftir innrás
þeirra í Líbanon í júníbyrjun.
Ummæli fulltrúa þjóðanna í ör-
yggisráðinu voru flest á sama
skamms þar sem ekkert vatn
væri að fá. Dagurinn í gær var
sá 11. í röð án vatns í vestur-
hluta Beirút.
Israelar tilkynntu í dag, að
þeir hefðu misst 19 menn í síð-
ustu bardögum umhverfis Beir-
út. Tilkynning þessi kom á sama
tíma og Ronald Reagan varaði
ísraela sterklega við frekari
árásum á Beirút.
Þetta er mesta mannfall á ein-
um og sama deginum, sem vitað
er um, frá því í fyrstu viku inn-
rásarinnar. Svo virtist sem þess-
ar fregnir kæmu almenningi í
Jerúsalem í opna skjöldu því
greina mátti, að fólk virtist sleg-
ið yfir þessari fregn. Alls hafa
ísraelar þá misst 318 hermenn
frá því innrásin hófst. Er það
næstum sami fjöldi og ísraelar
misstu í Suez-stríðinu á árunum
Ungur drengnr (I forgrunni myndarinnar) heldur á tveimur stígvélum og
leitar að öðru nýtilegu í rústum, sem voru áður heimili hans i Beirút.
1%8—1970.
Varnarmálaráðherra ísraels,
Ariel Sharon, sakaði í dag
bandaríska embættismenn blá-
kalt um lygar í frétt í útvarpinu
í Tel Aviv. Sharon átti viðræður
við yfirmann bandaríska
sendiráðsins í Tel Aviv á mið-
vikudag og lagði þá fram harka-
leg mótmæli vegna þeirra um-
mæla Bandaríkjamanna að ís-
raelar hleyptu af 1000 skotum
fyrir hvert eitt, sem kæmi frá
PLO.
Sprengja sprakk í dag í bif-
reið, sem lagt var á bílastæði við
Alexandre-hótelið í austurhluta
Beirút þar sem meira en eitt
hundrað erlendir blaðamenn
hafa aðsetur. Ekki var skýrt frá
neinum dauðsföllum í fyrstu
fregnum af atburðinum, en
nokkrir slösuðust. Sprengjan var
svo öflug að allar rúður í fram-
hlið hótelsins brotnuðu.
Hundruð kvenna og barna í
Amman, höfuðborg Jórdaníu,
fóru í dag í fjöldagöngu þar sem
innrás Israela í Líbanon var
mótmælt á friðsamlegan máta.
Fóru göngumenn um götur í
Amman og hrópuðu ókvæðisorð í
garð ísraela.
Brezhnev
hrósar PLO
Moskvu og Tókýó, 5. ágúst. AP.
LKONID I. Brezhnev sendi í dag
skeyti til Yasser Arafats, leiðtoga
PLO, þar sem hann lýsti aðdáun
sinni á þrautseigju manna hans í
umsátrinu í vesturhluta Beirút.
Sagði ennfremur í skeytinu að
Brezhnev mæti málstað Palestínuar-
aba mikils.
Þá barst í dag yfirlýsing frá ríkis-
stjórn Japan, sem fordæmir ísraela
harkalega og krefst þess að þeir hafi
hermenn sína á brott í snatri. Sagði
í yfirlýsingu, að ísraelar brytu allt,
sem flokkast gæti undir diplómatísk
samskipti þjóða á milli og aðgerði
þeirra í Beirút að undanförnu væru
villimannlegar. Loks sagði ennfrem-
ur að stjórn landsins hefði fyllstu
samúð með málstað Araba.
r
Aframhald
á óeirðum
í Liverpool
Liverpooi, 5. ágúst. AP.
KNN urðu óeirðir í Liverpool, fjórða
daginn í röð, þegar hópar ungmenna
reistu götuvígi og grýttu lögreglu-
menn í gærkvöldi.
Sjö ungmenni voru handtekin í
Everton-hverfinu en ólæti brutust
einnig út í útjaðri borgarinnar við
Cantril þegar unglingar lokuðu
vegum með gömlum húsgögnum
og trjástofnum. Þá var brotist inn
í verslanir í miðborginni og þrír
menn sluppu með 11.000 punda
ránsfeng úr klóm lögreglunnar.
Iþróttamenn
Aix-le.s-bains, Frakklandi, 5. ágúst. AP.
FJÓRIR pólskir íþróttamenn hafa
beðið um hæli í Frakklandi sem
pólitískir flóttamenn, að því er
lögreglan í Aix í Suðaustur-
Veður
Akureyri 12 skýjað
Amsterdam 31 heiðskírt
Aþena 38 skýjað
Barcelona 27 hálfskýjað
Berlín 29 skýjað
BrUssel 25 skýjað
Chtcago 29 rigning
Dyflinni 19 rigning
Feneyjar 27 Mttskýjað
Frankturt 24 rigning
Færeyjar vantar
Genf 22 skýjað
Helsinki 25 heiðskfrl
Hong Kong 31 skýjað
Jerúsalem 30 heiðskfrt
Jóhannesarborg 20 heiðskfrt
Kaupmannah. 26 heiðskfrt
Las Palmas 24 skýjað
Lissabon 30 heiðskfrl
London 23 skýjað
Los Angeles 24 heiðakfrt
Madríd 31 heiðskírl
Malaga 26 heiðríkt
Mallorca 29 léttskýjað
Miami 29 skýjað
Nýja Delhi 34 rigning
New York 27 rigning
Osló 31 heiðskfrt
París 24 skýjað
Peking 30 heíðskírt
Perth 12 skýjað
Reykjavik 11 úrkoma
grennd
Rio de Janeiro 22 skýjað
Rómaborg 30 rigning
San Francisco 18 heiðskírt
Stokkhólmur 30 heíðskirt
Toronto 26skýjað
biðja um hæli
Frakklandi skýrði frá í dag. Menn-
irnir fjórir höfðu komið til helg-
arkeppni við franska og sviss-
neska íþróttamenn.
Gervilunga
grætt í kind
Providence, Rhode lsland, 5. ágúst. AP.
VÍSINDAMENN við Brown-
háskólann eru nú að undirbúa að-
gerð sem felur í sér, að grætt er
gervilunga í kind, en ef það tekst
gæti þetta orðið merkur áfangi í
læknavisindunum.
Takmark vísindamannanna er
að ná þeim árangri, að mögulegt
sé að græða í mann gervilunga
sem kæmi í staðinn fyrir annað
sem óvirkt er eða sjúkt. Þá fyrst
væri að vænta róttækra breyt-
inga á högum þeirra sem eiga við
ólæknandi eða langvinn öndun-
arvandamál að stríða.
Tilraunin mun fara fram í
september eða október, en óháð
því hvernig nú til tekst, telja vís-
indamennirnir fullvíst að enn
séu tíu ár, þangað til hægt verði
út frá þessum tilraunum að
græða gervilunga í mann.
Nokkrir lungnaflutningar
hafa þegar farið fram, en að-
gerðin er erfið og ekki er auð-
veldara að finna gefendur.
Bretland:
Geösjúkling-
ur við hirð
drottningar
London, 5. ágúst. AP.
GEÐSJIIKUR maður var ráðinn að
hirð Elísabetar II drottningar að-
eins þremur vikum áður en hann
varð eiginkonu sinni að bana, sam-
kvæmt fréttum frá London í dag.
Þessi frétt kemur sem reiðar-
slag eftir að mikið uppistand hef-
ur ríkt í landinu vegna óvæntrar
næturheimsóknar sem drottn-
ingin fékk á rúmstokk sinn og
aðallífvörður hennar neyddist til
að segja af sér, vegna þess að upp
komst um kynvillu hans.
Stephen Chambers, 29 ára að
aldri, var ráðinn sem öryggis-
vörður um óákveðinn tíma þegar
opnað var nýtt listasafn í mið-
borginni af meðlimum konungs-
fjölskyldunnar í mars sl., segir í
skýrslu frá fréttastofu hallarinn-
ar.
Hann var dæmdur í tíu ára
fangelsi í síðustu viku fyrir að
hafa stungið eiginkonu sína til
bana að viðstaddri þriggja ára
gamalli dóttur þeirra. Sálfræð-
ingur, sem var settur í málið,
segir Chambers eiga við mikla
andlega erfiðleika að stríða, sem
rekja megi til þunglyndis.
Steel hefur
meira fylgi
en Jenkins
London, 5. ágúst. AP.
BRESKIR kjósendur telja að Dav-
id Steel, leiðtogi frjálslyndra, sem
aldrei hefur setið í ráðherrastól,
yrði betri forsætisráðherra en leið-
togi jafnaðarmanna, Roy Jenkins,
samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar sem gerð var fyrir Daily
Express.
Niðurstaða þessi kom mjög á
óvart, þar eð það hefur verið mál
manna nú um nokkra hríð, að
Roy Jenkins, 61 árs að aldri, sem
hefur fjórum sinnum setið í
stjórn, myndi verða leiðtogi
Kosningabandalags jafnaðar-
manna og frjálslyndra.
í ljós kom að 55 prósent að-
spurðra myndu kjósa Steel sem
leiðtoga Kosningabandalagsins,
en aðeins 27 prósent Jenkins.
Ekkert hefur verið ákveðið hve-
nær kjósa á leiðtoga bandalags-
ins, sem yrði forsætisráðherra ef
það ynni sigur í kosningunum
sem fram munu fara fyrir maí-
mánuð 1984.
Elding veld-
ur dauðsfalli
og skemmdum
London, 5. ágúst. AP.
ELDINGUM laust niður í tvo al-
menningsgarða í Lundúnum í dag
með þeim afleiðingum að maður,
sem var að skokka, beið bana í öðr-
um garðinum og 17 manns, sem leit-
uðu skjóls undir tré i úrhellinu, sem
fylgdi óveðrinu, urðu að leita læknis
eftir að eldingu laust niður í tréð.
Óhemju úrhelli var í Lundúnum
í dag og sköpuðust stórfelld vand-
ræði af þeim sökum í hluta neð-
anjarðarlestarkerfis borgarinnar.
Varð að fella niður ferðir á tveim-
ur leiðum auk þess sem vatnselg-
ur orsakaði skammhlaup á tveim-
ur stöðum til viðbótar.
Loka varð safni í borginni, Vict-
oria og Albert-safninu þar sem
vatn komst í geymslur og munir
voru í hættu. í Norðurhluta
landsins varð óveðrið enn verra og
vitað var um allt að metradjúp
flóð af völdum rigningar í
Yorkshire.
Milljarðatjón
í Nagasaki
Tókýó, 5. ágúst. AP.
EIGNATJON vegna flóðanna í Jap-
an í júlímánuði nemur að minnsta
kosti einum milljarði dollara í Naga-
saki og nágrenni einu saman.
í flóðunum sem orsökuðust af
feiknalegum rigningum lét 291
maður lífið og 7 er enn saknað.
Dagana 23.-25. júlí var úrkoman
í Nagasaki 500 millimetrar. Ann-
ars staðar í landinu urðu minni
skemmdir en alls er vitað um 307
látna og 43ja er saknað.