Morgunblaðið - 06.08.1982, Síða 30

Morgunblaðið - 06.08.1982, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982 Luis Arconada, spænski landsliðsmarkvörðurinn, ásamt börnum sínum tveimur. Luis Miguel Arconada: „HM-keppnin var upp á líf og dauða fyrir spænsku leikmennina" Frá llrlgii Jónsdóttur frctUriUru Mbl. i Burt>os. HANN haföi heitið sjálfum sér að gleyma IIM í sumarfriinu. Minnast ekki á keppnina fyrr en hinni hörðu gagnrýni hafði linnt svoiítið og hætt yrði að hella skömmunum yfir spænska landsliðið. Luis Miguel Arconada, mark- vörður spænska landsliðsins í knattspyrnu, kom til Calonge á Costa Brava mánudaginn 12. júlí og tilkynnti þegar í stað umsjón- armanni lúxusíbúðanna „Eden Mar“ að hann vildi ekki fá til sín nein dagblöð. Svipaða aðvörun fékk eigandi veitingahússins „E1 Raco“, þar sem Arconada borðaði stuttu eftir komuna. Hann reyndi að vekja sem minnsta athygli. Ekki fékk Arconada óskir sínar uppfylltar. Það var ekki hjá því komist að ræða um HM enda á allur æsingur og uppþot spænskra fjölmiðla þessar vikurnar rætur sínar að rekja til keppninnar. I viðtali við spænska tímaritið „Cambio 16“ segir Arconada: „Aldrei í lífinu hef ég þurft að líða svona þunga reynslu eins og rit- deilurnar vegna frammistöðu spænska landsliðsins á HM.“ Arc- onada heldur áfram þungur á brún: „Þetta með sokkana — og hann stynur sáran — hefur sér- staklega verið til skammar. Það að ég vildi nota hvíta sokka eins og ég hef alltaf gert, þar sem hvítir sokkar eru lukkutákn fyrir mig, þótti nægileg ástæða til forsíðu- fregnar blaðanna. Fyrir heimsmeistarakeppnina var Arconada álitinn einn besti markvörður Evrópu. Núna eftir keppnina rignir yfir hann harðri gagnrýni úr öllum áttum og efast er um hæfni hans sem mark- manns. Arconada segir að áður hafi hann ekki verið svo góður né nú svo lélegur. „Lánið lék einfaldlega ekki við okkur. Við erum mannleg- ir. Það á að dreifa gagnrýninni meira.“ „Santamaria? Allt í lagi.“ Hann reynir að komast hjá því að svara. Síðan lætur hann þá skoðun í ljós að lið það sem spænski landsliösþjálfarinn stefndi fram væri hvorki það heppilegasta né það besta. Þetta er í fyrsta skipti, sem Arconada eyðir sumarfríi sínu á Costa Brava. Honum líst vel á staðinn; segir að hann sé tilvalinn til þess að slappa af og gleyma HM við hlið konu sinnar og tveggja barna. „Vera með fjölskyldunni, taka sér sundsprett, leika tennis, sofa mikið og sigla“ eru einu áform Arconada þessa dagana. „Sú stund kemur að hugsa þarf aftur um knattspyrnu og æfingar, en alls ekki núna. Ekki til að tala um. Fyrir aðra leikmenn lands- liðsins þýddi keppnin líf eða dauða. Eg er bara enn einni reynslunni ríkari. Hér er um að ræða liðinn atburð, og það þýðir ekki að fást um það sem liðið er. Lífið heldur áfram.“ Arconada er markvörður og fyrirliði Spánarmeistara Reai Sociedad, sem leika á við Víking í fyrstu umferð Evrópukeppni meistaraliða dagana 15. og 22. september nk. Arconada hóf æf- ingar á nýjan leik með félagi sínu 2. ágúst. Að öllu forfallalausu gefst íslenskum knattspyrnuunn- endum tilvalið tækifæri til að fylgast með honum verja mark andstæðinga Víkinga. Vegna þessa væri allt í lagi þótt hann sýndi ekki hæfni, sem tilheyrði einum besta markverði Evrópu. Bæjarkeppni í tennis: Kópavogur lagði Akureyri naumlega FYKSTA bæjarkeppnin sem haldin hefur verið hér á landi í tennis fór fram á Akureyri laugardaginn 24. júlí. Áttust þar við lið heimamanna og lið frá Kópavogi. Gestirnir sigr- uðu naumlega, 3—2, eftir jafna og spennandi keppni. Fimm keppendur voru í hvoru liði, og keppti hver þeirra einn leik. Lið Kópavogs skipuðu: Christian Staub, Hjálmar Aðal- steinsson, Kristján Baldvinsson, Eyjólfur K. Eyjólfsson og Arnar Arinbjarnar, en þeir eru allir í tennisdeild Í.K. í liði Akureyrar voru Ole Sonne, Kári Árnason, Haukur Jóhannesson, Hörður Þórleifsson og Pétur Ringsted. Pétur Ringsted byrjaði á því að sigra Eyjólf 6—0 og 6—3, en Kópavogsmenn jöfnuðu metin í næsta leik er Kristján sigraði Hörð 4—6, 6—4, 6—5. Haukur Jó- hannsson tók síðan forystuna á ný fyrir Akureyri er hann lagði Arn- ar að velli, 6—3 og 6—5, en í fjórða leiknum lagði Hjálmar Kára 6—1, 3—6 og 6—4, þannig að staðan í bæjarkeppninni var jöfn fyrir síð- asta leikinn. Hann léku þeir Ole Sonne og Christian Staub. I byrjun leiksins lék Ole á fullu og komst í 3—0, en Christian náði síðan forystu og sigraði 6—3. Annað sett leiksins var mun jafn- ara en það fyrra og spiluðu báðir mjög vel. Sigraði Christian 8—6 eftir mjög skemmtilegan og tví- sýnan leik, sem stóð í rúmlega tvo tíma, og tryggði Kópavogi sigur 3-2. í ráði er að halda þessa bæjar- keppni árlega hér eftir. Júgóslavarnir rændir — og töpuöu svo í þokkabót Júgóslavncska knattspyrnuliðið Dinamo Zagreb fór ekki beint frægðarPór til Los Angeles fyrir skömmu. Meðan liöið var að leika gegn Mexikönsku liði á háskóla- leikvangi nokkrum gerðist það, að einhver óprúttinn eða óprúttnir, komust inn í 9 hótelherbergi Júgó- slavanna og létu greipar sópa um eigur þeirra. Lásarnir á herbergjun- um voru dýrkaðir upp sérlega fim- lega og hurfu verðmæti sem voru talinn á um 1200 dollara vírði. ÞýPið var afar blandað, stolið var rakspíra, myndavélum, klukkum, útvörpum, fatnaði, gleraugum, auk gjaldeyris. Og til að snúa hnífnum i sárinu, þá tapaði Dinamo leiknum 0-1! Santamaria leystur frá þjálfarastörfum SPÆNSKA knattspyrnusambandið rak nýverið frá störfum landsliðs- þjálfarann Jose Kmilio Santamaria, en spænska liðið þótti leika afar illa á HM-keppninni sem fram fór á Spáni og lauk i síðasta mánuði með sigri ítala. Margir sérfræðingar töldu Spánverja í hópi sigurstrang- legri þjóðanna, en þeir stóðu síðan síður en svo undir þeim spádómum. Sá sem tekur við af Santamaria er hinn 60 ára gamli Miguel Mun- oz, sem lék á sínum tíma í tíu ár með Real Madrid og þjálfaði þar síðan 16 ár í viðbót. Hann sagði að ráðningin hefði haft gífurleg áhrif á sig: „Þetta er eins og að hefja feril sinn á nýjan leik og ég geri mér miklar vonir um góðan árang- ur.“ Munoz er ráðinn til tveggja ára í senn. „Norway Cup“ Leiö yfir tugi manna í norsku hitabylgjunni Geysilega umfangsmikið knatkspyrnumót stendur yfir í Nor- egi um þessar mundir, svokallað „Norway Cup“, en það er talið vera fjölmennasta knattspyrnumót sem fram fer ár hvert. Fjöldi liða frá öll- um heimshornum taka þátt í mótinu og eru keppendur sagðir vera 22.000 talsins. Af mótinu er það helst að frétta, að flestir leikirnir hafa farið fram í mikilli hitabylgju scm gengið hefur yfir Norðurlöndin. Hefur hit- inn farið í 35 stig þegar mest hefur verið og hafa keppendur þolað álag- ið mjög misjafnlega. Síðast er frétt- ist höfðu 55 ieikmenn misst meðvit- und í hitanum og átta sjúkraliðar sömuleiðis er þeir veittu tilhlýðilega aðstoð. Bekkelaget heitir hið hugrakka félag sem skipuleggur mót þetta. Talsmenn þess sögðu, að fyrsta daginn, er fyrstu 750 knattspyrnu- leikirnir hefðu farið fram, hefðu krakkarnir innbyrt 90.000 flöskur af svaladrykkjum. „Norway Cup“ á tíu ára afmæli að þessu sinni, en það er mót fyrir krakka á aldrin- um 13-19 ára. í fyrra var ausandi rigning framan af mótinu, en nú er sagan önnur. Alls voru 21 sól- ardagur í Osló í júlí og væri gam- an ef Reykvíkingar gætu státað af sambærilegu. Mennea gat ekki setið á sér er vel hugsanlegt, að hinn 30 ára í Evrópukeppni landsliða sem fram gamli Mennea verði í landsliði ítala fer í Aþenu i næsta mánuði. Viking með forystu ítalski spretthlauparinn heims- frægi Pietro Mennea er nú byrjaður að æfa af krafti á nýjan leik, en þessi stórsnjalli hlaupari dró sig annars í hlé eigi alls fyrir löngu og ætlaði þá að eigin sögn aldrei að keppa framar. „Eg var orðinn lúinn á þessum endalau.su mótum og fannst ég ekki hafa að neinu að keppa lengur. En ég fann fljótlega að þetta var of djúpt í mér, ég fór að sakna hlaupabrautanna og mótanna og hef hug á að keppa eins mikið og ég framast get á næstunni,“ sagði Mennea í samtali við AP í gær. Talið NORSKA deildarkeppnin í knatt- spyrnu hófst á ný um síðustu helgi eftir eins mánaðar sumarhlé og var tólfta umferðin þá á dagskrá. Vík- ingur frá Stavangri hélt þá foryst- unni með því að sigra Frederikstad 2—0. Liðið sem var í 2. sætinu áður en sumarhléið hófst, Mjöndalen, féll niður í 3. sætið eftir 2—4-tap á heimavelli gegn Lilleström. Sæti þeirra tók meistaralið síðasta keppn- istímabils, Vaalerengen, sem gerði jafntefli við Start, 1—1, á heimavelli sínum. Víkingur hefur nú 16 stig, Vaalerengen hefur 14 stig og Mjön- dalen einnig 14 stig, en lakari markatölu. Sogndal er neðst með 7 stig, Moss hefur 9 stig og Molde 10 stig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.