Morgunblaðið - 07.08.1982, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.08.1982, Qupperneq 1
36 SÍÐUR OG LESBÓK 170. tbl. 69. árg. LAIJGARDAGUR 7. ÁGÚST 1982 Prentsmiðja Mor{;unblaðsins. Washington: Stálsamkomu- lagið var fellt í gærkvöldi Washington, B. ágúst. AI*. BANDAKÍSKA stálfélagið felldi seint í kvöld samkomulag, sem náðst hafði í gærdag á milli fulltrúa Bandaríkjastjórnar og 10 ríkja innan Efnahagsbandalags Evrópu. Ákvöróun félagsins hleypir deilunni í hnút á ný og mikil óvissa ríkir nú um framhald samningavióræðna. Þetta samkomulag hefði get- að orðið endapunkturinn á löngum erjum þar sem leiðtog- ar bandaríska stáliðnaðarins hafa ásakað Evrópu um að hafa notað opinbera fjárstyrki til einkafyrirtækja til að klekkja á bandaríska stálmarkaðnum. Tilkynning um samkomulag- ið var birt í dag að loknum samningaviðræðum, sem staðið hafa alla síðastliðna viku. Sam- komulag þetta átti ekki að ganga í gildi fyrr en búið var að bera það undir leiðtoga stál- framleiðslu þessara ellefu þjóða. Samkomulagið mun ekki ná yfir hömlur á útflutningi á leiðslum sem framleiddar eru í Evrópu, en haft er eftir óstað- festum fregnum að reynt verði að komast að samkomulagi um framleiðslu þessa um miðjan september. Stofnandi friðar- hreyfingar á hæli Moskvu, 6. ágúsi. AP. LÖGREGLA handtók í dag annan tveggja stofnenda einu óháóu frióarhreyfingarinnar í Sovétríkjunum, Sergei Bat- ovrin, á heimili hans í Moskvu. í fréttum seint í kvöld var frá því skýrt, ad fé- lagar hans i hrevfingunni hefðu sannfrétt að honum hefði verið komið fyrir á geð- veikrahæli. Annar meðlimur hreyfingar- innar, Valery Godyak, var einnig handtekinn í dag. Batovrin var gefið að sök við handtökuna að hafa neitað að gegna herþjón- ustu, að sögn félaga hans, sem urðu vitni að henni. Batovrin hélt því fram við handtökuna, að hann hefði verið undanþeginn herþjónustu og hótaði að fara í hungurverkfall þegar hann var leiddur á brott. Lögregla lagði í gær hald á 88 and-styrjaldarmálverk, sem Batovrin hefur málað. Með þeim aðgerðum var komið í veg fyrir að hann gæti haldið sýningu á þeim í dag þegar 37 ár eru liðin frá því kjarnorkusprengju var varpað á Hiroshima. Lögregla kom einnig í veg fyrir, að vest- rænir fréttamenn fengju aðgang að blaðamannafundi, sem halda átti nokkrum klukkustundum áð- ur en húsleit var gerð á heimili Batovrins. Táknræn mynd frá Beirut. Örvingluð móóir heldur á tveimur börnum sínum í matarleit eftir aó heimili hennar hafði verið sprengt í loft upp. sfmamynd Al’. „Nú er framhaldið allt undir ísraelum komið — segir Philip Habib að loknu samkomulagi við leiðtoga PLO um brottflutning þeirra frá Beirut Beirút og SameinuAu þjódunum, 6. ágúst. Al*. ÍSKAKLAK GERÐU í dag harðar loft árásir á vesturhluta Beirút um svipað leyti og leiðtogar PLO tilkvnntu, að endanlegt samkomulag hefði náðst i viðræðum þeirra við Khilip Habib, sér- legan sendifulltrúa Bandaríkjastjórn- ar, um hrottflutning l’LO-manna frá Beirút. Aðeins örfá smáatriði eru söeð eftir. PLO hefur fallist á, að skilja meg- inhluta vopna sinna eftir í borginni og hafa sig á brott innan 15 daga. Hefur Arafat, leiðtogi PLO, jafnvel í hyggju að reyna að koma tveimur herdeildum með um 700 mönnum sjóleiöina frá borginni áður en al- þjóðlegar friðargæslusveitir koma til Beirút. Habib lýsti því yfir, að hann væri ánægður með hvernig mál hefðu þróast. „Nú er framhaldið allt undir Israelum komið,“ sagði hann. Orrustuþotur ísraela sprengdu í dag átta hæða hús, sem flóttamenn hafast alla jafna við í, í loft upp. Stóð ekki steinn yfir steini þegar árásunum lauk. Fjöldi manna lét líf- Bygging eldflauga- palla Bandaríkja- manna hafin Nýtt bandarískt flugskeyti, Patr- iot, er hér til sýnis í Giessen í Vestur-Þýskalandi í tilefni þess, að undirbúningur við fyrstu eldflaugarpallana eru að hefjast. Eldflaugum þessum er ætlað að koma í stað Nike-Herkúles og llawk-flauganna, sem nú eru stað- settar í Mið-Evrópu. ið. Björgunarsveitir voru enn að grafa í rústunum í leit að einhverj- um, sem kynnu að hafa grafist lif- andi undir þeim, er geysilega öflug sprengja sprakk í bifreið í næsta nágrenni. Margir, sem komist höfðu lífs af úr loftárásunum og voru að hjálpa til við björgunarstörf, létu þá lífið. ísraelar segjast hafa gert árásirn- ar á borgina í hefndarskyni fyrir sí- endurtekin brot PLO á vopnahléinu, sem á að vera í gildi í borginni. Segj- ast þeir ekki munu linna árásum sín- um fyrr en þeir sjái áþreifanlegt tákn þess, að PLO hyggist yfirgefa Beirút. Bandaríkin beittu í dag neitunar- valdi í Öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna er gengið var til atkvæða um tillögu Sovétmanna um allsherjar vopnasöluhann á ísraela. Óratími leið frá því tillagan var lögð fram og þar til hún fékk afgreiðslu, þar sem fulltrúar ríkja þriðja heimsins vildi milda orðalag hennar áður en gengið yrði til atkvæða. Ellefu ríki greiddu atkvæði með henni, eitt á móti, Bandaríkin, og þrjú sátu hjá. Ríkisstjórn Nicaragua tilkynnti í dag, aö hún hefði ákveðið að slíta öllu stjórnmálasambandi við ísrael vegna innrásarinnar í Líbanon. Sagði í opinberri tilkynningu frá stjórninni, að hún virti og skildi skýlausan rétt Palestínumanna til að fá að lifa sem frjáls og sjálfstæð þjóð. Um leið var stjórn Bandaríkj- anna harkalega gagnrýnd fyrir að snúa ekki bakinu við ísraelsmönnum í þeirri gereyðingarstarfsemi, sem þeir stunduðu í Beirút. Fyrsta þing kommún- ista í Kína í 5 ár Peking, 6. ágúst. Al*. KVRSTA landsþing kínverskra kommúnista í 5 ár hefur verið boðað þann I. september nastkomandi. Er talið fullvíst að þá niuni fara fram talsverð uppstokk- un og yngri menn verði settir í áhrifastöður. Ákvörðun þessi var tilkynnt í dag legar breytingar í landinu. Er talið eftir að miðstjórn flokksins hafði að Kínverjar muni t.d. leita eftir setið á fundi. Erlendir fréttaskýr- frekari samvinnu við erlenda aðila í endur telja að í vændum séu veru- iðnva?ðingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.