Morgunblaðið - 11.08.1982, Page 1

Morgunblaðið - 11.08.1982, Page 1
1 52 SIÐUR 173. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Afganistan: Harkalegir bar- dagar í Kabul Reynt að efla stjórnarherinn Islamabad, Pakistan, 10. AP. HÖRÐUSTU bardagar, sem ordið hafa i Kabul, höfuöborg Afganistans það sem af er þessu ári, urðu nýlega, þegar frelsLssveitir Afgana reyndu árangurslaust að sprengja í loft upp vopnabúr Sovétmanna í borginni, að því er vestrænir stjórnarerindrekar í Pakistan greindu frá í dag. Bretland: Kosta svæf- ingarmistök 280 manns lífið á ári? London, 10. ágúst AP. VERA kann að mistök í sambandi viö svæfingar sjúklinga á brezkum spítölum kosti 280 manns lífið á ári, segir í nýútkominni skýrslu samtaka svæfingarlækna í Bret- landi. Við gerð skýrslunnar var aflað upplýsinga um öll þau dauðsföll sem urðu við skurðað- gerðir á 3.700 brezkum spítölum. I skýrslunni segir að 1 af hverjum 10 þúsund sjúklingum hafi látizt vegna hreinna mis- taka við svæfingu eða samtals 280 sjúklingar á ári. Jafnframt segir að koma hefði mátt í veg fyrir þessi mistök í nær öllum tilfellum. 1 skýrslunni segir að flest til- vikanna megi rekja til þess að tiltölulega lítt þjálfað starfsfólk hafi verið látið annast svæf- ingar án þess að nægilega vel væri fylgzt með störfum þess. Einnig segir, að í tæplega 18% tilfella hafi svæfingarvélin ekki verið prófuð áður en sjúklingur- inn var svæfður. Að sögn heimildarmannanna stóðu bardagar í sjö tíma aðfara- nótt 3. ágúst og varð íbúum borgar- innar ekki svefnsamt um nóttina. Talið er að nokkrir tugir sovézkra hermanna hafi fallið, en ekki er vitað um mannfall í röðum skæru- liða. Talið er að fyrir frelsissveitunum hafi vakað að eyðileggja vopnabúr Sovétmanna í útjaðri Kabul sem sér Bagram-herflugvellinum fyrir birgðum, en þessi flugvöllur mun vera stærsta herstöð Sovétmanna í landinu. Áætlun frelsissveitar- manna mistókst en þeim tókst þó að valda miklu tjóni meðal sovézka innrásarliðsins og stjórnarhersins. Stjórnin í Kabul hefur að undan- förnu gert ítrekaðar tilraunir til að efla her landsins, en hann hefur minnkað úr 90 þúsund manns i 35 þúsund á aðeins tveimur og hálfu ári vegna mikils mannfalls og lið- hlaups. Verða nú fleiri menn en áð- ur og eldri kallaðir til herþjónustu í stjórnarher Afganistans. ÓLGA í PARÍS — Hópur fólks,gerði í gær aðsúg að Mitterand Frakklandsforseta og Gaston Deferre innanríkisráðherra, þegar þeir komu til að vera við minningarathöfn um þá, sem fórust er sprengjum var varpað inn í veitingastað Gyðinga í París í fyrradag. Á myndinni sést hvar lögregluþjónar ryðja Deferre braut í gegnum mannþröngina. Sprengjutilræðið hefur vakið mikinn óhug í Frakklandi og reiði í Israel og Begin forsætisráðherra Israels sagði í dag að ef frönsk yfirvöld gætu ekki gætt öryggis Gyðinga í Frakklandi yrðu ungmenni meðal franskra Gyðinga að gera það. (sinumjwi ap.> Líbanon: ísraelar fallast í megin- atriðum á tillögur Habibs Beirut, Jcrúsalcm, Washington, Kaíró, 10. ágúst. AP. ísraelsstjórn kvaðst í dag reiðubú- in að samþykkja áætlun Habibs, samningamanns Bandaríkjastjórnar í Líbanon, um brottdutning Palest- ínuskæruliða frá Beirut, en þó að- Bretland: Afleiðingar verk- fallanna alvarlegar l>ondon, lO.ágúst. AP. HEILBRIGÐISYFIRVÖLD tilkynntu í dag að meira en helmingur hinna 2500 ríkisreknu sjúkrahúsa væri einungis fær um að sinna neyðarþjónustu, en verkalýðsfélög starfsfólks á sjúkrahúsum hafa endurtekið að þessum aðgerð- um verði staðfastlega haldið áfram þar til á Tóstudag. Ekki er enn ljóst um nákvæmar afleiðingar verkfallanna í dag, en talsmaður stærsta verkalýðsfélags- ins sem tekur þátt í mótmælaað- gerðunum segist „vonast til að þær verði enn áhrifameiri en í gær“. Talsmaðurinn sagði að 450.000 af 750.000 starfsmönnum hafi tekið þátt í verkföllunum í gær, en flestir þeirra eru aðstoðarfólk, svo sem starfsfólk í eldhúsum, þvottahús- um, og burðarmenn. Þátttaka hjá hjúkrunarfræðingum mun ekki vera eins almenn. Verkföll þessi eru róttækustu að- gerðirnar sem gripið hefur verið til ' þr'8gja mánaða deilum, en afleið- ingarnar eru meðal annars þær að biðlistar vegna uppskurðar hafa lengst til mun og bíða nú 650.000 manns í stað 65.000 áður. Verkalýðsfélögin fara fram á 12 prósent launahækkun, en stjórn- völd, sem hafa hækkað boð sitt í tvígang, neita að fara hærra en sem nemur 7,5 prósent hækkun á laun hjúkrunarfræðinga og 6 pró- sent á laun annarra. Prentarar við ýmis stærstu blöð í Bretlandi hafa hótað sólarhrings- samúðarverkfalli til stuðnings við kröfur starfsfólks spítalanna. eins að vissum skilyrðum uppfyllt- um. Nær samtímis og um þetta var gefin yfirlýsing í Jerúsalem gerðu þotur ísraelshers loftárásir á eld- flaugastöðvar Sýrlendinga i Austur- Líbanon og höfuðstöðvar PLO í Vestur-Beirut. Eldar komu upp í stöðvum PLO við árásina en ekki er vitað ná- kvæmlega hvert mannfall eða annað tjón hefur orðið. Þotur ísraels eyðilögðu eldflaugaskot- palla Sýrlendinga í Bekaa-dalnum og í yfirlýsingu ísraelsku her- stjórnarinnar sagði að sú stefna ísraels væri óbreytt að heimila ekki flutning á sýrlenzkum eld- flaugapöllum inn í Líbanon. í tilkynningu ísraelsku ríkis- stjórnarinnar segir, að hún þurfi að fá tryggingar fyrir því að hver einn og einasti liðsmaður PLO í Beirut hverfi þaðan og upplýs- ingar um hvert hver og einn fari. Einnig segir að ísrael geti ekki sætt sig við að franskir hermenn verði í hinu alþjóðlega gæzluliði, sem ráðgert er að komi til Beirut og haldi þar uppi öryggisgæzlu á meðan PLO-menn verða fluttir á brott. Þá vill Israelsstjórn ekki að er- lenda gæzluliðið komi til Beirut fyrr en mestur hluti PLO-manna er á bak og burt. Einnig eru ísra- elar óánægðir með á hvern hátt gert er ráð fyrir brottflutningi um 1500 sýrlenzkra hermanna, sem orðið hafa innlyksa í Beirut. Forsetar Norður- og Suður- Yemens gáfu í dag út sameigin- lega tilkynningu þar sem þeir segjast reiðubúnir að taka við nokkrum hópi Palestínuskæruliða til landa sinna. Talsmaður PLO í Kaíró sagði í dag að stjórn Egyptalands gerði það enn að skil- yrði fyrir því að hún tæki við Palestínuskæruliðum, að brott- flutningur PLO-manna frá Beirut tengdist víðtækari lausn á vanda- málunum fyrir botni Miðjarðar- hafs. Sama væri að segja um stjórn Súdans, sem er reiðubúin að taka við 600 skæruliðum. Shimon Peres, leiðtogi stjórnar- andstöðunnar í Israel, átti í dag fund í Washington með Shultz utanríkisráðherra Bandaríkjanna og sagðist að honum loknum vera vongóður um að ástandinu í Beirut lyki senn. Sagðist Peres búast við endanlegu samkomulagi um brottflutning Palestínumanna innan tveggja til þriggja vikna. Grænfriðungar stöðva losun kjarnorkuúrgangs á hafi úti Am.stcrdam, 10. ágúst. AP. SEX FÉLAGAR í Greenpeace- samtökunum komust í dag um borð í brezkt skip, sem var að varpa geislavirku úrgangsefni i sjó- inn um 430 mílur undan strönd Spánar, og tókst að stöðva skip- verja við verk sitt. Að sögn talsmanns Green- peace-samtakanna í Hollandi festu grænfriðungarnir sig með keðjum við losunarbúnað skips- ins þannig að ekki var lengur unnt að koma fyrir borð tunnum með úrgangsefni frá kjarnorku- verum. Óljóst er hverjar endanlegar lyktir málsins urðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.