Morgunblaðið - 11.08.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
Deluvina; Bandaríkjamaðurinn
Jeff Fenhold, sem varð þekktur á
7. áratugnum fyrir leik sinn í
Jesus Christ Superstar á Broad-
way, og hinn ungi Frakki Michel.
Báðir nutu gjafmildi Gala á
síðustu æviárum hennar. Jeff
fékk send mörg málverk úr
einkasafni Dalíhjónanna og
sveitasetur að gjöf á Long Island
í New York-fylki.
Eiginkona Dalí sýndi Michel
einnig þakklæti sitt. í Púbol-
kastala í el Ampurdán í Catal-
una-héraði, gjöf frá Dali til konu
sinnar, var Michel gestur Gala í
ófá skipti.
Myndin er sýnir Michel og
Gala tók Marc Lacroix sumarið
1978 í einum af mörgum sölum
Púbolkastala.
Meðan Gala bjó með einhverj-
um af sínum ungu elskhugum
mátti Salvador Dalí aðeins
heimsækja kastalann að degi til.
Margar vikur sváfu hjónin ekki
saman. Hún svaf í Púbol og hann
í Port Lligat. Þessar kringum-
stæður leiddu til þess að listmál-
arinn leið sáran dapurleika,
enda þótt hann væri ófær um að
láta í ljós tilfinningar sínar.
Hann óttaðist stöðugt að einn
dag yfirgæfi Gala hann fyrir
fullt og allt. Við þessar hugsanir
örvilnaðist hann enn meira.
Salvador Dalí getur núna
dvalið næturlangt í kastalanum í
Ampurdán. Gala getur ekki
lengur komið í veg fyrir það.
Hjartaslag dró hana til bana á
uppstigningardag.
Listamaðurinn ver dag og nótt
löngum stundum við gröf konu
sinnar og bíður eftir að augu
hans hallist aftur fyrir fullt og
allt og hann geti sameinast
henni í hinu lífinu.
ÁSTIR GALA
Krá Holgu Jónsdótlur.
rrólUriUra Mbl. í Burgos.
Hún var öldruð þegar hún
kvaddi þennan heim, 90 ára, en
tii 89 ára aldurs var lífsgleði
hennar og þróttur með ólíkind-
um. Hún var lágvaxin, mjög
grönn, húðin viðkvæm og allar
hreyfingar fíngerðar. Hún neytti
varla matar og drakk eingöngu
vatn. Meira að segja hafnaði hún
alltaf rósakampavíni því, sem
eiginmaður hennar bauð gestum
þeirra í Port Lligat.
Nafn hennar var Helena Del-
uvina Diakonoff, enda þótt allir
kölluðu hana Gala. Hún sleit
samvistum við fyrsta mann sinn,
skáldið Paul Eluard, 1929. Þau
áttu saman eina dóttur, Cecile.
Fvrirsa la hjá eiginmanni sínum, Salvador Dalf.
völdum. Hinn takmarkaði hæfi-
leiki listmálarans til ástarat-
hafna, gáfur hans og hin blinda
ást, sem Dalí bar til Gala,
neyddu hann til þess að sam-
þykkja að eiginkona hans hefði
ástarsambönd við unga og glæsi-
lega karlmenn.
Tveir karlmenn höfðu lang-
varandi sambönd við Helenu
Eftir skilnaðinn tók hún saman
við Salvador Dalí.
Sambúðin við listmálarann,
sem varð síðar eiginmaður henn-
ar, var ætíð súrrealísk.
Við hlið Gala leið Dalí yndis-
legustu og verstu stundir lífs
síns. Hún blés listamanninum í
brjóst við vinnu hans og á sama
tíma þjáðist hann af hennar
Gala hlýðir á Michel leika i flygilinn f Púbol-kasUla.
Guðrún Svava
sýnir í Eden
Um helgina var opnuð i Eden i
Hveragerði sýning á nokkrum verka
Guðrúnar Svövu Svavarsdéttur i
Eden í Hveragerði. Á sýningunni eru
teikningar, vatnslitamyndir og mál-
verk.
Guðrún Svava stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykjavík og
Stroganov-akademiuna í Moskvu. Á
undanrórnum árum hefur hún hald-
ið nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum, auk þess sem
hún hefur unnið sem leikmynda-
teiknari við öll atvinnuleikhúsin í
Reykjavík.
Georg Ormsson
Keflavík 60 ára
Sextugur er í dag vinur minn
Georg Ormsson, vélvirki, íshús-
stíg 3, Keflavík. Hann er fæddur í
Reykjavík 11. ágúst 1922 og voru
foreldrar hans merkishjónin frú
Helga Kristmundsdóttir frá Vest-
mannaeyjum og Ormur Ormsson,
einn af stofnendum fyrirtækisins
Bræðurnir Ormsson, sem allir
kannast við.
Georg stundaði nám hjá vél-
smiðjunni Héðni og vann við það
fyrirtæki um árabil þar til hann
fluttist búferlum til Keflavíkur og
setti þar á stofn bifreiðaviðgerð-
arverkstæði ásamt svila sínum
Adolfi Sveinssyni, sem látinn er
fyrir nokkrum árum siðan.
Árið 1948 kvæntist Georg Ág-
ústu Randrup og hafa þau eignast
6 börn, en þau eru Ormur, vélvirki,
Ólafur, er stundar sjómennsku,
Emil, slökkviliðsmaður á Kefla-
víkurflugvelli, Sigríður, húsfrú,
Agnes, húsfrú, Ingvar Georg,
nemi, og auk þess einn kjörsonur,
Örn Georgsson, sem er sjómaður.
Er þetta myndarlegur barnahóp-
ur, sem er foreldrum sínum til
sóma og gleði. Og svo eru það öll
blessuð barnabörnin, sem eru afa
sínum og ömmu sólargeislar á efri
árum.
Undanfarin tvö ár hefur Georg
starfað við Keflavíkurradíó og er
þar réttur maður á réttum stað,
vegna þekkingar hans á vélum og
sjómennsku almennt.
Það var mikið gæfuspor þegar
Georg gekk að eiga frú Ágústu
Randrup, þá mætu konu og hafa
þau átt miklu barnaláni að fagna.
Fyrir þetta ber að þakka forsjón-
inni.
Þetta eru svona í stuttu máli
helstu æviatriði vinar míns
Georgs Ormssonar, en ég kynntist
honum vel, þegar ég og fjölskylda
mín fluttum til Keflavíkur árið
1956. Hafa úr því orðið löng og
náin kynni, sem aldrei hefur fallið
skuggi á. Georg hefur verið og er
maður greiðvikinn og hjálpsamur
og mun ég ávallt minnast þess
með þakklæti, er hann með blóð-
gjöf veitti mér ómetanlega hjálp í
alvarlegum veikindum mínum
fyrir mörgum árum. Slíku gleymir
maður ekki strax.
Georg Ormsson er enn tápmikill
og dugandi starfsmaður, sem leys-
ir störf sín af hendi með dugnaði
og atorkusemi, eins og hann hefur
alla tíð gert. Georg er traustur
maður og vinur vina sinna. Hann
er fylginn sér og fastur fyrir í
skoðunum og hefur ávallt verið og
er ákveðinn sjálfstæðismaður,
stöðugt reiðubúinn til að vinna
fyrir flokk sinn, þegar á hefur
þurft að halda. Þjóðin á aldrei of
marga trausta hugsjónamenn.
Ég er þakklátur fyrir þá góðu
vináttu, sem ég og mínir hafa not-
ið um langt skeið af hálfu Georgs
og fjölskyldu hans. Ég vona að
hann eigi eftir að lifa mörg ham-
ingjurík ár með sinni ágætu eig-
inkonu. frú Ágústu, og afkomend-
um, og vil að lokum óska honum
og fjölskyldu hans innilega til
hamingju með þessi merku tíma-
mót í lífi hans.
Sverrir Matthíasson
Hvalveiðum ber að hætta
í eitt skipti fyrir öll
— segir m.a. í yfirlýsingu frá Skuld,
félagi áhugamanna um hvalvernd
„ÞAU gleðilegu tíðindi hafa nú
orðið, að alþjóðahvalveiðiráðið
hefir samþykkt bann við hvalveið-
um frá árinu 1986 að telja,“ segir í
upphafi yfirlýsingar frá SKULD,
félagi áhugamanna um hvalvernd,
en undir hana rita Edda Bjarna-
dóttir, Skúli Magnússon, Dag-
bjartur Stigsson og Hrafnhildur
Ágústsdóttir. Minnt er á, að sam-
þykkt þessi hafi verið gerð vegna
almenningsálitsins í heiminum.
„Hvalurinn er stærsta dýr jarð-
ar, eitt hið sérstæðasta, einna gáf-
aðastur allra tegunda, með hið
fullkomnasta taugakerfi og heila-
bú, sem vísindin þekkja. Hvalur-
inn er eign heimsins. Álltént lítur
heimurinn sjálfur svo á. Enginn
hlustar á þrugl íslenzkra forráða-
manna um einhverja sérstaka „ís-
lenzka stofna", segir m.a. í álykt-
uninni. .
„I tvígang hafa íslendingar
misst af strætisvagninum í sam-
bandi við hvalinn:
1. 1974 þegar þeir þverskölluð-
ust við að framfylgja sinni eigin
samþykkt á Umhverfismálaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna það
sama ár um friðun hvalsins.
2. Fyrir tveimur árum, þegar
þeim stóð til boða fjárhagsleg og
tæknileg aðstoð við að koma á fót
nýjum atvinnuvegi í stað hval-
vinnslunnar.
Vonandi hættir ráðuneytið nú
loksins að berja höfðinu við stein-
inn. Vonandi halda þeir nú ekki
áfram að spilla með öllu orðstír
íslendinga. Vonandi ætla þeir sér
ekki að eyðileggja allan erlendan
markað fyrir íslenzkar afurðir.
íslenzk stjórnvöld ættu þegar í
stað að birta yfirlýsingu þess efnis
að þau muni hlíta samþykkt al-
þjóðahvalveiðiráðsins í einu og
öllu. Hætta öllum hvalveiðum í
eitt skipti fyrir öll og veiðum á
búrhval helzt þegar í stað.
Vert er að vekja athygli al-
mennings á því, að nú þegar eru
íslendingar auglýstir í helztu stór-
blöðum heims, sem hinir örgustu
meinvaldar hvalsins ásamt Japön-
um og Rússum.“
í lok ályktunarinnar segir svo:
Því ólánsfólki sem haft hefir
viðurværi sitt af hvalveiðum send-
um við okkar beztu óskir. Vonum
að það finni sem skjótast hollari
og ánægjulegri störf við sitt hæfi.
Islandi óskum við þess, að það
geti um alla ævi státað af sem
mestri gengd þessarar virtu
skepnu í höfunum umhverfis land-
ið.
Þýskur ljós-
myndari ákær-
ir Svíakonung
Vonricrs, Bolgíu, 6. ágúst. AP.
VESTlIR-þýskur Ijósmyndari
hcfur lagt fram kæru á hendur
Sviakonungi, þess eðlis að hann
hafi eyðilagt myndavél hans
meðan á hirðmyndatökum stóð
síðastliðinn miðvikudag.
Talsmaður lögreglunnar í
bænum, sem kæran var borin
fram í, sagði að Heinz Schmith
og fleiri ljósmyndarar hafi ver-
ið að taka myndir af konungin-
um þar sem hann var í leyfi á
heimili mágs síns í nálægum
bæ. Þegar myndatökunni var
lokið neitaði Schmith að yfir-
gefa staðinn og hélt áfram að
taka myndir. Konungur sló þá í
reiði sinni vélina úr höndum
hans og ljósmyndarinn var
leiddur á braut.
Vélinni var síðan skilað til
lögreglunnar en Schmith, sem
var á samningi hjá þýska blað-
inu Bild Zeitung, segir hana
hafa eyðilagst við hnjaskið.
Ekki liggur ljóst fyrir hvern-
ig þetta mál verður leyst, en
það er í rannsókn.