Morgunblaðið - 12.08.1982, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.08.1982, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 174. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Enn springa tvær sprengjur í París Parí.s, II. ágÚNt. AP. TVÆR sprengjur sprungu í París í nótt og dag með þeim afleiðingum að fimm særðust, þar af ein kona alvarlega. Fyrri sprengjan sprakk fyrir framan skrifstofur innflutningsfyrir- tækis, sem hefur sérhæft sig í verzlun með ávexti frá Israel. Kona, sem var þar á ferð að viðra hundinn sinn, meiddist alvarlega, þegar þessi sprengja sprakk. Síðdegis í dag sprakk síðan sprengja í bíl fyrir framan ræð- ismannsskrifstofu Iraks í borginni með þeim afleiðingum að eldur kom upp í húsinu, gluggar brotn- uðu í nærliggjandi húsum, og fjór- Ólæs þjófur stal stafrófs- kverum Versölum, Krakklandi, II. ágÚHt. AP. ÓLÆS maður og atvinnulaus hefur verið handtekinn eftir að hafa brotizt inn í smábarna- skóla í Versölum einu sinni í mánuði, samtals tuttugu sinn- um, til að ná sér í stafrófskver og skriftarbækur. Maðurinn skýrði lögregl- unni frá því þegar hann var gómaður, að heitasta ósk hans væri að læra að lesa og þess vegna hefði hann einnig tekið nokkuð af kennslubók- um í landafræði og náttúru- fræði, sem hann ætlaði að kynna sér þegar hann hefði náð valdi á lestrinum. ir slösuðust, þó enginn alvarlega. Líklegt er talið að hér hafi verið að verki aðilar hliðhollir ísrael til að hefna fyrir árásirnar á veit- inga- og dvalarstaði Gyðinga í borginni að undanförnu, en Irak hefur veitt hryðjuverkasamtökum Palestínumanna undir forystu Abu Nidal stuðning. Hópur Nidals er talinn bera ábyrgð á árásinni á veitingahúsið sl. mánudag, þegar sex manns fórust, fjórir Frakkar og tveir Bandaríkjamenn. Við jarðarför nokkurra fórnar- lambanna úr þeirri árás í dag sagði rabbíinn sem jarðsöng, að ekki kæmi til greina fyrir franska Gyðinga að stofna eigin varðsveit- ir til að gæta öryggis í hverfum Gyðinga. „Ríkið og lögreglan bera ein ábyrgð á að gæta lífs okkar og eigna," sagði rabbíinn. Lögreglumenn og sjúkraliðar gera að sárum konu, sem meiddist, þegar sprengja sprakk framan við skrifstofur ísraelsks fyrirtækis í París í fyrrinótt. símamynd ap. „Jafiivægi í Líbanon þýðir frið fyrir ísrael í 40 ár“ — segir Begin í ísraelsku blaði Beirut, Jerúsalem, Wa.shington, 11. ágú.st. AP. Spadolini reynir stjórnar- myndun á ný Pertini Ítalíuforseti fól í gær Gio- vanni Spadolini, fráfarandi for- sætisráðherra og leiðtoga Lýð- veldisflokksins, að reyna að mynda nýja stjórn í landinu. Sú ríkisstjórn yrði hin 42. á Ítalíu frá stríðslokum. Spadolini hefur ákveðið að reyna að mynda samsteypustjórn sömu fimm flokka og mynduðu síðustu stjórn, en líklegt þykir að stjórnar- myndunin muni taka nokkuð lang- an tíma. A myndinni sést Spado- lini ræða við fréttamenn eftir að hann kom af fundi Ítalíuforseta. Símamynd AP. Spadolini PHILIF Habib, hinn sérlegi sendimaður Bandaríkjastjórnar í Miðausturlöndum, átti í dag viðræður við Begin, forsætis- ráðherra ísraels, og hélt að þeim loknum á ný til Líbanon. Nú vantar aðeins herzlumun á að Habib hafi tekizt að fá alla aðila að deilunni í Líbanon til að fall- Lothar Ruehl, talsmaður v-þýzku stjórnarinnar, sagði að stjórnin væri reiðubúin til þess að taka á sig viðbótarábyrgðir við þær 600 milljónir marka, sem þegar er búið að bjóða fram. Ekki væri þó hægt að segja hve stór viðbótarfjárhæð- in yrði en fyrirtækið, sem er hið næststærsta sinnar tegundar í V-Þýzkalandi, hefði óskað eftir viðbótarábyrgðum á meðan unnið væri að því að semja við lánardrottna og koma fjármál- um þess á réttan kjöl. AEG-Telefunken hefur um 123 þúsund manns í vinnu og þar af starfa tæplega 100 þús- ast á áætlun hans um brottflutn- ing skæruliða PLO frá Beirut. Af hálfu Israels eru enn gerð- ar athugasemdir við það að gert er ráð fyrir frönskum liðssveit- um í alþjóðlega gæzluliðinu, sem koma mun til Beirut á með- an brottflutningurinn á sér stað. Einnig eru Israelar ósáttir við hugmyndir Habibs um það und í V-Þýzkalandi. Ruehl sagði að v-þýzka stjórnin ætti beinna hagsmuna að gæta við að reyna að koma í veg fyrir gjaldþrot fyrirtækisins, þar sem mörg ráðuneyti hefðu útistandandi samninga við það, þ.á m. varn- armálaráðuneytið. Fyrirtækið hefur þegar lagt fram sam- komulagsdrög við skuldareig- endur sína, þar sem gert er ráð fyrir að fyrirtækið greiði 40% af gjaldföllnum skuldum en því sem eftir er yrði breytt í lengri lán. Gert er ráð fyrir að 20 þús- und starfsmönnum verði sagt upp og gripið til ýmissa annarra sparnaðarráðstafana. hvenær gæzluliðið ætti að koma til Beirut. Israelskar herþotur gerðu enn í dag árásir á stöðvar skæruliða í Vestur-Beirut og skriðdrekar ísraela skutu á skæruliða í borginni eftir að þeir höfðu rofið vopnahléð og sært þrjá ísraelska hermenn, að því er herstjórnin í ísrael greindi frá í dag. Flestar þjóðir í Arabaheimin- um hafa nú opinberlega greint frá því að þær séu reiðubúnar að taka við hluta PLO-skæru- liðanna. Á meðal þessara ríkja er Sýrland, sem áður hafði harðlega neitað því að nokkuð llonolulu, 11. ágúul AP. SPRENGJA sprakk í farþegarými Jumbo-þotu Pan Am-flugfélagsins á leió frá Tokyo til Honolulu í dag með þeim afleiðingum að einn maður beið bana og a.m.k. fjórir slösuðust. Sprengjan sprakk skömmu áður en lending var fyrir- huguð í Honolulu og tókst flug- manninum að lenda vélinni án þess að meira tjón yrði. Alls voru 285 farþegar með þotunni. Að sögn talsmanns banda- ríska loftferðaeftirlitsins sprakk slíkt væri í bígerð, Jórdanía, ír- ak, Túnis, Súdan og Norður- og Suður-Yemen. Fréttir frá Jerúsalem hermdu í dag að Begin forsætisráðherra gerði nú ráð fyrir því að brott- flutningur skæruliðanna frá Beirut gæti hafizt í næstu viku. Haft er eftir Begin í ísraelsku blaði að ef jafnvægi komist á í Líbanon á næstunni gæti það þýtt frið fyrir ísrael næstu 40 árin. Begin segir í viðtalinu að ólíklegt sé að Sýrland og Jórd- anía muni á næstu árum hefja stríð gegn ísrael fyrst þessi ríki komu ekki skæruliðum PLO til varnar. sprengjan undir sæti 16 ára jap- ansks drengs, sem var á ferð með foreldrum sínum og lét drengur- inn lífið. Við sprenginguna kom gat á gólf farþegarýmis vélar- innar og fylltist það brátt af reyk, auk þess sem loftþrýsting- ur í vélinni minnkaði mikið. Flugmaðurinn lækkaði flug vél- arinnar snarlega og tókst að lenda henni áfallalaust. Ekki er enn vitað um orsakir þess að sprengjan sprakk, né hver kom henni fyrir eða í hvaða tilgangi. V-þýzka stjórnin vill hjálpa AEG Bonn, II. ágúst AP. ^ VESTUR-þýzka stjórnin er reiðubúin til þess að koma enn frekar til móts við raftækjafyrirtækið AEG-Telefunken til að forða því frá gjaldþroti, að því er skýrt var frá í stjórnarráðinu í Bonn í dag. Sprengja sprakk um borð í far- þegaþotu á flugi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.