Morgunblaðið - 18.08.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982
Staða fræðslustjóra
í Reykjavík:
Þrír um-
sækjendur
um starfið
l>KÍK sóttu um stöðu frærtslustjóra í
Keykjavík, cn umsóknarfrestur rann
út í fyrradag. Samkvæmt upplýsing-
um Birgis Thorlacius, rártunevtis-
stjóra í menntamálaráóuneytinu, eru
umsækjendur þessir:
Áslaug Brynjólfsdóttir, yfir-
kennari, Bessí Jóhannsdóttir,
kennari, og Sijíurjón Fjeldsted,
skólastjóri. Starfið er veitt frá og
með 1. september næstkomandi,
en þá hefur Kristján J. Gunnars-
son, núverandi fræðslustjóri, sagt
starfi sínu lausu.
Fengu 6
guðlaxa í
einu hali
RÚNAR Ársælsson, 2. stýri-
maður á Aðalvík, hafði í gær
samhand við Morgunblaðið,
vegna fréttar um guðlax í
Morgunblaðinu í gær, þar sem
sagt var, að þrír slíkir hafi
veiðst við ísland og að ekki
væri vitað um fleiri. Kúnar
sagði, að um mánaðamótin
júní-júlí hafi þeir skipverjar á
Aðalvík fengið 6 guðlaxa í
einu hali út af Vestfjörðum.
Svo sjaldgæfa kvað Rúnar
þessa fiska, að á 26 ára
starfsferli sínum á sjó, hafi
hann aldrei fyrr séð guðlax.
Um þetta leyti, sem Aðal-
víkin fékk þessa sex guðlaxa,
kvað Rúnar Akureyrartog-
ara hafa fengið tvo. Þá gat
Rúnar þess, að hann hafi et-
ið einn guðlaxanna, sem
veiddust í sumar, og hafi
hann verið herramannsmat-
ur.
I gærdag bárust svo frétt-
ir af því frá Þórshöfn, að
togari þeirra, Stakfell, hefði
í gærdag landað 5 guðlöxum,
sem hefðu verið á bilinu
40—70 kíló hver.
Erlend langtímalán:
Afborganir og vextir þriðj-
ungur útflutningstekna 1986?
AFBORGANIR og vextir af löngum
erlendum lánum, sem hlutfall af út-
flutningstckjum landsmanna, verða
orrtin lirtlega 33% á árinu 1986, sam-
kvæmt athugun, sem gerrt hefur ver-
irt á störtu og greirtslubyrði langra
erlendra lána, næstu fimm árin. í
þessu tilfelli er gert rárt fyrir, að
vaxtagreiðslur á árinu 1982 séu mirt-
artar virt, art breytilegir vextir séu
16%, sem er einfalt meðaltal síðustu
12 mánaða. Sírtan er gert ráð fyrir
13% ársvöxtum.
Dæmið hefur ennfremur verið
sett upp miðað við, að ársvextir
verði 10% í stað 13%. Þá eru af-
borganir og vextir af löngum er-
lendum lánum, sem hlutfall af út-
flutningstekjum landsmanna, lið-
lega 30%. í báðum þessum dæmum
er gert ráð fyrir því, að viðskipta-
jöfnuður verði óhagstæður um 780
milljónir króna og aðstæður frem-
ur óhagstæðar.
Hins vegar ef dæmið er tekið við
hagstæðari skilyrði og þá gert ráð
fyrir, að viðskiptajöfnuður verði
óhagstæður um 430 milljónir
króna, verða afborganir og vextir,
sem hlutfall af útflutningstekjum
landsmanna, í fyrra tilfellinu lið-
lega 26%, en um 24% í því síðara.
Athugunin gerir við óhagstæð-
ari skilyrðin ráð fyrir, að við-
skiptajöfnuður verði óhagstæður
um 2.620 milljónir króna í ár og
hlutfall afborgana og vaxta liðlega
22%.
Miðað við hagstæðari skilyrði
gerir athugunin ráð fyrir, að við-
skiptajöfnuður verði óhagstæður
um 2.420 milljónir króna og að
hlutfall afborgana og vaxta verði
liðlega 21%.
Allar tölur í athuguninni á er-
lendri lánastöðu eru á áætluðu
meðalgengi ársins 1982, sem talið
er vera 32% hærra en árslokagengi
1981. Þess má og geta, að hagfræð-
ingar eru yfirleitt sammála um, að
hættumörk afborgana og vaxta af
erlendum löngum lánum þjóða séu
í námunda við 20%.
Byrjað að kvikmynda ferðir Daniels Bruun
ÁKLA sírtasta sunnudag hófust í Austurdal í Skagafirði tökur á heimild-
arkvikmynd um Daniel Bruun, sem ísfilm vinnur að. Leikstjóri er Ágúst
Gurtmundsson. Bruun var danskur hermartur, fornleifafræðingur og rithöf-
undur, sem kom alls 13 sinnum til íslands um og eftir aldamótin síðustu og
vann að rannsóknum á byggingarlagi torfkofa og leifum þeirra allt frá 10.
öld, auk þess sem hann samdi leiðarlýsingar á íslandi. Tvisvar fór hann yfir
Kjöl með fylgdarliði og er þart seinni ferð hans þar yfir, sem heimildar-
kvikmyndin á að fjalla um. Á myndinni má sjá leikstjórann, Ágúst Guð-
mundsson, beygja sig yfir kvikmyndatökuvélina og taka upp eitt af fyrstu
atriðum myndarinnar, þar sem ferðalangarnir fara yfir Svartá. Meðal
leikara í myndinni er Jóhannes Geir, listmálari, en hann leikur Klein
nokkurn, danskan teiknara, sem fór í margar af ferðum Bruuns um ísland
og teiknaði það, sem fyrir augu bar, ef honum þótti það merkilegt.
Mótmæla byggingu
Seðlabankahússins
BORGARSTJÓRA hefur borizt bréf
undirritað af 29 einstaklingum, þar
sem því er harðlega mótmælt, að hald-
ið verði áfram byggingu hins nýja
húss Scðlahanka íslands við Arnar-
hól. Þess er krafizt, að borgarstjórn
taki þegar upp samninga við stjórn
Seðlabankans um að hætt verði við
byggingu hússins á þessum stað.
Meðal þeirra, sem rita nafn sitt
undir umrætt mótmælaskjal, eru
Þorsteinn -Ö. Stephensen, Halldór
SAMNINGAR tókust í deilu Rafiðn
aðarsambands Islands og viðsemj-
enda þeirra á fundi hjá sáttasemjara
seint í gærkvöldi, en samningar
þeirra hafa verið lausir frá því 15.
maí sl.
Samkvæmt upplýsingum Mbl.
er samningurinn á sömu nótum og
heildarsamningur ASÍ og VSI,
Laxness, Tómas Guðmundsson, Jón
Þórarinsson, Jón Baldvin Hanni-
balsson og Sigurjón Ólafsson, svo
einhverjir séu nefndir.
í bréfinu segir ennfremur: „Árið
1973 efndi samstarfsnefnd nokk-
urra menningar- og starfsmanna-
félaga í Reykjavík til mótmæla-
fundar á Arnarhóli gegn ótrúlegum
spjöllum bankastjórnar og banka-
ráðs Seðlabankans á Arnarhóli. Á
fundinum, sem var fjölmennur og
sem gerður var á dögunum, en
samkvæmt honum er heildar-
launahækkunin á samningstíman-
um 9—10%. Samningurinn gildir
til 31. ágúst 1983.
Seint í gærkvöidi höfðu ekki
náðst samningar í deilu húsgagna-
smiða og viðsemjenda þeirra og
skall því verkfall þeirra á.
einhuga, var samþykkt að stofna til
almennra mótmælaundirskrifta
meðal borgara Reykjavíkur gegn
spjöllum á Arnarhóli og byggingu
stórhýsis þar, eða í grennd við hól-
inn, sem myndi byrgja útsýn yfir
sund og eyjar og til fjallahringsins
í fjarska.“
Þá segir í bréfinu: „Nú er alveg
Ijóst orðið að borgarstjórn Reykja-
víkur hefur ekki tekið til greina
mótmæli borgaranna, nema að litlu
leyti. Ný teikning hefur verið gerð
af bankabyggingunni og hún flutt á
lóð nokkru neðar en í fyrstu var
ætlað. Vissulega höfðu þau ljótu
skemmdarverk, sem unnin höfðu
verið á sjálfum Arnarhóli, valdið
miklu um hve Reykvíkingar brugðu
skjótt við til að mótmæla, en hinu
aðalatriði mótmælanna, eyðilegg-
ingu útsýnis af Hólnum úr miðborg
Reykjavíkur, fylgdi einnig alvara."
Þá segir að ef rísa eigi byggingar
á þessum stað, væri tilvalið að
byggja í framtíðinni lágreist menn-
ingarhús, t.d. tónlistarhús, sem yrði
almenningseign og menn gætu not-
ið þar fagurra lista og hins ein-
stæða útsýnis yfir sundin.
Rafiðnaðarmenn
sömdu í gærkvöldi
í Dimmuborgum.
Ljósm. Mbl.: ÖI.K.M.