Morgunblaðið - 18.08.1982, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982
Mörg verkemi og
stór þarf að leysa
— á næstu árum, segir Gísli Kjartansson oddviti í Borgarnesi
„AtvinnuástandiA er gott, við er-
um alveg lausir viö atvinnuleysi
hér. Atvinnuleysi var nokkuð hjá
konum i vetur en það hefur lagast
aftur,“ sagði Gísli Kjartansson
oddviti Borgarneshrepps í samtali
við Morgunblaðið. Gísli var spurð-
ur um helstu framkvæmdir í Borg-
arnesi i sumar.
„Gatnagerðarframkvæmdir
eru nú á fullu. Lokið er við að
malbika Þórðargötu og Garðavík
og næstu daga verður lagt slitlag
á götur í nýju hverfunum, svo-
kölluðu Bjargslandi, og á plön
við leikskólann og Vírnet hf. Við
leggjum olíumöl á göturnar og er
henni ekið hingað frá Stóru-
Fellsöxl úr olíumalarhaug sem
hreppurinn keypti þar í vetur.
Kostnaður við þessar gatnagerð-
arframkvæmdir er um 4,5 millj-
ónir króna. Haldið er áfram gerð
gangstétta og kantsteina og
haldið verður áfram nýbyggingu
gatna í nýjum hverfum. Lóðir
við Brúartorg og í Bjargslandi
verða gerðar byggingarhæfar í
sumar.
Nú er verið að byggja við
grunnskólann, búið er að steypa
upp 2 hæðir og verður byggingin
gerð fokheld í haust. Borgarnes-
hreppur leggur 1,1 milljón króna
í bygginguna og ríkissjóður legg-
ur annað eins fram á móti.
Hafnarframkvæmdir voru tals-
verðar í sumar, gerð var þó
Gísli Kjartansson
nokkur uppfylling sem lokið var
við í júní.
Rafveitan er að byggja hús yf-
ir starfsemi sína sem áætlað er
að ljúka á þessu ári. Dvalar-
heimili aldraðra er að stækka
við sig og Sparisjóður Mýrasýslu
hefur nýlega lokið við viðbygg-
ingu sína. Borgarneshreppur
hefur í ár lagt fram um 1 milljón
í viðbyggingu Hótel Borgarness
sem tekin var í notkun í vor.
Búið er að samþykkja í bygg-
ingarnefnd nýja mjög myndar-
lega olíustöð við brúarsporðinn
sem Skeljungur ætlar að byrja
að byggja á næstu dögum. Þar
verður alhliða þjónusta við bif-
reiðir. Við brúarsporðinn verður
einnig byggt myndarlegt hús
sem í verður ferðamannaverslun
á vegum Kaupfélags Borgfirð-
inga og kaffitería fyrir 60—70
manns sem Hótel Borgarnes
kemur til með að reka. Eg geri
mér vonir um að byrjað verði á
þessu húsi ekki seinna en næsta
vor.“
— Hver verða helstu verkefni
Borgarneshrepps á næstu árum?
„Við stefnum að því að ljúka
algerlega lagningu slitlags á göt-
ur bæjarins á þessu kjörtímabili.
Það er mikill vilji fyrir því hjá
fólki að halda áfram með fegrun
bæjarins, þar þykir hafa tekist
vel til. Við erum reiðubúnir að
leggja mikið af mörkum til að
það haldi áfram. Við ætlum að
hefja byggingu nýs grasknatt-
spyrnuvallar, og í gangi er at-
hugun á vetraríþróttasvæði hér í
nágrenninu, helst í samvinnu við
Akranes og næstu nágranna-
byggðir okkar.
Eitt af stóru málunum hér
eins og víða annarsstaðar eru
holræsamálin. Við ætlum að
leysa þau eins fljótt og hægt er. I
gangi er athugun á þessum mál-
um. Gerð hefur verið bráða-
birgðakostnaðaráætlun og kem-
ur fram í henni að þetta er gíf-
urlega fjárfrek framkvæmd,
Þó að Borgarnes sé ekki i hópi stærri verstöðva landsins veiða Borgnes-
ingar suma daga vel í soðið handa sjálfum sér, því nokkrir smábátar eru
drjúgir í sókninni. Borgarneshöfn er aftur á móti stór vöruhöfn og er nú
unnið að því að betrumbæta hana. (Lj«»m. Mbl. HBj.)
kostar 17 til 27 milljónir eftir því
hvaða leið verður valin. Til sam-
anburðar má geta þess að hrepp-
urinn getur varið um 5 milljón-
um til framkvæmda árlega. Á
næsta ári er ætlunin að ljúka
þeim framkvæmdum sem verið
hafa í gangi við höfnina og við-
byggingu grunnskólans. Teikn-
ing nýs safnahúss er á lokastigi
og er það eitt af þeim málum
sem vafalaust verða í brenni-
deplinum hjá okkur á næstu ár-
um.“
— Hvaða breytingar hefur
tenging Borgarfjarðarbrúarinn-
ar haft í för með sér fyrir þorp-
ið?
„Óhætt er að fullyrða að brúin
hefur breytt bæjarbragnum
mikið yfir sumartímann, um-
ferðin hér í gegn og inní bæinn
hefur stóraukist og viðskipti
hafa einnig aukist."
íbúar við Tunguveg mótmæla
byggingu Stjórnunarskólans
ÍBÚAR við Tunguveg í Reykjavík
hafa sent borgarráði bréf, þar sem
mótmælt er byggingu við Skógar-
?erði 1—2, en þar er Stjórnunarskóli
slands að reisa hús.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru gerðar athugasemdir
við byggingarmagn á lóðinni, en
byggingarnefnd samþykkti um-
rædda byggingu á síðasta kjör-
tímabili.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Davíð Oddsson borgarstjóri
að bréfið hefði borist fyrir helgi og
yrði það væntanlega lagt fram í
borgarráði í dag, þriðjudag. Þar
yrði fjallað um erindi íbúanna.
„Maður dagsins“
Ný skáldsaga eftir
Andrés Indriðason
væntanleg frá AB
„Maður dagsins'' nefnist ný
skáldsaga eftir Andrés Indriðason,
sem Almenna bókafélagið mun gefa
út í haust. Eiríkur Hreinn Finnbog-
ason hjá Ab. sagði í samtali við
Morgunblaðið, sagan væri nútímas-
aga og sögusviðið væri Reykjavík.
Sagði Eiríkur söguna segja frá
íþróttamanni, sem slær öll met í
langstökki. Hann væri „maður
dagsins", vinsæll af fólki, slegið
upp í fjölmiðlum og umsetinn af
kvenfólki. Þá sæktust að honum
alls konar menn er vildu nota sér
hann í auglýsingaskyni á marg-
víslegan máta. Sagan segði frá því
hve erfitt væri að standast hið
mikla álag og freistingar sem
skyndilegri frægð fylgja, en af-
leiðingar frægðarinnar gætu oft
verið óþægilegar, ekki síst ef við-
komandi er ekki ailt of veraldarv-
anur, eins og aðalsöguhetjan. Þá
er einnig um það fjallað hve
skammt er í gleymsku og hve „vin-
átta“ sumra er hverful, þegar ha-
lla tekur undan fæti.
Andrés Indriðason, sem kunnur
er fyrir störf sín hjá Sjónvarpinu,
hefur áður sent frá sér tvær barn-
abækur, og gert eina kvikmynd.
Hin nýja skáldsaga er hins vegar
ætluð fullorðnu fólki fyrst og
fremst.
Aðalfimdur kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum:
Ný sókn til frelsis
og framfara í anda
sjálfstæðisstefnunnar
ftrekuð andstaða við ríkisstjórnina
ADALFUNDUR kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarða-
kjördæmi var haldinn sl. föstudag
og laugardag. Þar var stjórnmála-
ályktun samþykkt samhljóða, en
þar segir m.a. að röng stjórnar-
stefna eigi umfram allt sök á því
hvernig komið er efnahagsmálum
þjóðarinnar. Segir að verðbólga sé
á uppleið, erlendar skuldir fari vax-
andi og lífskjör versni.
Stjórnmálaályktunin í heild fer
hér á eftir:
Við mikinn og margvíslegan
efnahagsvanda er að glíma í ís-
lensku þjóðarbúi um þessar
mundir. Er ljóst að þeir örðug-
leikar eru viðameiri og torleyst-
ari en oft áður.
Á þessu ári hafa orðið gríðar-
leg umskipti í ytri aðstæðum
þjóðarbúsins. Ekki er útlit fyrir
neinar loðnuveiðar, þorskafli hef-
ur dregist saman, sölutregðu
gætir á fiskmjölsmörkuðum og
við blasir algjört hrun í sölu ým-
issa landbúnaðarafurða erlendis.
Við slíkar aðstæður hlýtur að
þrengja að á öllum sviðum þjóð-
lífsins.
En þó svo að ytri aðstæður hafi
versnað mjög á síðustu misser-
um, er ljóst að röng stjórn-
valdsstefna á umfram allt sök á
því, hvernig komið er efnahags-
málum þjóðarinnar. Ár eftir ár
hafa stjórnvöld skellt skollaeyr-
um við þeim hættuboðum, sem
hvað eftir annað hafa gert vart
við sig í efnahags- og atvinnulífi
þjóðarinnar. Þeir erfiðleikar, sem
nú blasa við, eru fyrst og fremst
afleiðing þessa sinnuleysis og
hljóta því að skrifast á reikning
stjórnvalda.
Undanfarin síðustu ár hafa
verið óvenju hagstæð á margan
hátt. Sjávaraflinn — undirstaða
efnahagslífsins — hefur verið
mikill, verð á afurðum okkar á
erlendum mörkuðum hátt, og
verðmæti útflutnings því aukist
mjög. Samt sem áður hefur þann-
ig verið búið að atvinnu-
fyrirtækjunum í landinu að þau
hafa ekki getað búið í haginn
fyrir framtíðina.
Það hefur komið óhrekjanlega í
ljós á síðustu misserum að efna-
hagsstefna ríkisstjómarinnar
hefur ekki í neinu skilað þeim
árangri sem að var stefnt. Verð-
bólgan er á hraðri uppleið og að
óbreyttri stjórnarstefnu mun hún
verða miklu meiri en áður hefur
þekkst hér á landi. Erlendar
skuldir vaxa, á sama tíma og
framkvæmdir eru skornar niður
á mörgum sviðum. Viðhaldið hef-
ur verið skattheimtustefnu
vinstri stjórnarinnar og halli á
viðskiptum við útlönd verður æ
meiri. Jafnframt þessu hafa
lífskjör almennings rýrnað og at-
vinnuöryggi landsmanna verið
stefnt í hættu.
Frammi fyrir þessu stendur
ríkisstjórnin ráðþrota og sundr-
uð. Dagar, vikur og mánuðir líða,
án þess að reynt sé að spyrna við
fótum. Þannig hrúgast efna-
hagsvandamálin upp í þjóðfélag-
inu um leið og sambúðarvanda-
málin í ríkisstjórninni verða
meiri.
Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi
vekur sérstaka athygli á því, að
margvísleg hætta steðjar að vest-
firskum byggðum, ef ekki verður
að gert. Samsetning sjávarafla er
nú ekki jafn hagstæð og áður.
Kröpp kjör frystihúsanna, sem
eru bein afleiðing stjórnarstefn-
unnar í landinu, eru hreint til-
ræði við afkomu Vestfirðinga og
fyrirhugaður niðurskurður í
landbúnaðarframleiðslu getur
hreinlega leitt til eyðingar heilla
héraða, ef ekki verður höfð aðgát.
Ljóst er að búskaparhættir og
bústærð á Vestfjörðum þolir ekki
þá skerðingu sem boðuð er. Bend-
ir fundurinn jafnframt á, að ekki
er um ofbeit að ræða á Vestfjörð-
um.
Kjördæmisráð Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum ítrekar
enn andstöðu sína við núverandi
ríkisstjórn. Valdaferill hennar
frá upphafi hefur sýnt það og
sannað að hún er þess vanmegn-
ug að taka af kjarki á brýnum
úrlausnarmálum.
Við þessar aðstæður er það
þjóðarnauðsyn að þjóðholl öfl
sameinist og hefji nýja sókn til
frelsis og framfara í anda þeirrar
stefnu Sjálfstæðisflokksins að
hagsæld og hamingja einstakl-
inganna sé undir því komin að
frelsi manna og atorka sé ekki
hneppt í viðjar.