Morgunblaðið - 18.08.1982, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1982
Nakinn prestur veldur óeirðum
Ma.saya, Nicaragua, 17. á|pjN(. Al*.
RÁDIST var inn í nokkra kaþólska
skóla í gær til að mótmæla atviki því
í síðustu viku, er presturinn Bis-
marck ('arballo var látinn ganga
nakinn um götur borgarinnar, og
samkvæmt siðustu fregnum hafa
þrír látið lifið í þessum óeirðum og
sex særst.
Það voru nemendur og fleiri
íbúar sem tóku þátt í þessum mót-
mælum í gær, en bær þessi liggur
um 27 kílómetra suðaustur af
Managua. Flestir þeirra voru með
andlit sín hulin slæðum og neituðu
að segja til nafns.
Málsatvik voru þau, að prestur-
inn kveðst hafa verið að snæða há-
degisverð á heimili vinkonu sinnar
er ókunnur vopnaður maður birt-
ist í dyrunum og krafðist þess að
þau skötuhjú fækkuðu klæðum.
Síðan hafi hann rekið þau á dyr
klæðalaus og hafi þá fjórir lög-
regluþjónar tekið við og rekið
hann nakinn um götur borgarinn-
ar.
Hins vegar birtir lögreglan
fréttir þess eðlis að árásarmaður-
inn hafi verið enginn annar en af-
brýðisamur eiginmaður og mál-
gögn stjórnarsinna segja að hér
hafi verið um að ræða klassískan
ástarþríhyrning.
ÞAÐ BYGGIST Á
ÞESSU
Traust og ending
hvers mannvirkis
byggist á góöu hrá-
efni og vandaðri
smíði.
Þið fáió
steypustál járnbindivír
mótavír gluggagirói
þakbita þakjárn
pípur í hitalögn og vatnslögn
í birgöastöó okkar
Borgartúni 31 sími27222
Allt úrvals efni á hagkvæmu verði.
SINDRA
STALHF
Stúdentakadilakk
Hvaöa bíl er hægt aö kaupa nýjan, beint
úr kassanum, fyrir u.þ.b. 47 þús. kr.?
Og þá á meira aö segja eftir aö ræöa
frábær greiðslukjörin.
Hvaöa bíll hefur lægstan viðhaldskostn-
að: eródýrastur í rekstri? Bremsukerfiö
þarfnast t.d. ekki viöhalds vegna þess aö
það er sjálfstillandi. Og plasthúsiö er ryöfrítt
svo fátt eitt sé nefnt.
Já, hvaöa bíll annar er Stúdentakadilakkinn
(Trabant) kemur til greina þegar
kaupa þarf góöan en ótrúlega hagstæöan
bíl?
Ingvar Helgason
Sýningarsalurinn v/ Rauöageröi.
Sími 33560.
Grennst í dásvefni
Þessi 37 ára gamla kona, sem liggur endilöng á rúm-
inu, er frönsk og ber nafnið Adrienne Cecchini. Hún
sefur dásvefni á heilsugæslustöð í Nice. Ef allt fer að
óskum, blundar hún í litlar 300 klukkustundir. Ætl-
unin er að setja heimsmet, en ekki síður að losa sig
við nokkur óæskileg aukakíló.
Sjö farast í spreng-
ingu á Spáni
Aviles, Spáni, 17. áfpist. AP.
SPRENGING varð þess valdandi að þriggja hæða hús bókstaflega hrundi til
grunna árla í morgun og sjö menn létu lífið. Átta annarra er saknað og sjö
eru alvarlega særðir, samkvæmt upplýsingum frá staðaryfirvöldum.
Yfirvöld telja að sprengingin hafa leitað í rústunum í allan dag
hafi orðið á bar sem er á neðstu
hæð hússins og grunur leikur á að
orsakarinnar sé að leita í gastanki
er þar var til staðar.
Slökkviliðsmenn og lögregla
í von um að geta bjargað lifandi
þeim er saknað er, en flest fórnar-
lambanna munu hafa verið ferða-
menn í þessum litla bæ á N-Spáni.
Hinckley fær sent
„djarft“ tímarit
^ New York, 17. ágúst AP.
ÚTGEFENDUR tímaritsins High Society, sem þykir í djarfara lagi, skýrðu
frá því í dag, að þeir myndu senda eintak af marshefti tímaritsins, sem m.a.
inniheldur nektarmyndir af leikkonunni Jodie Foster, á sjúkrahúsið þar sem
John Hinckley dvelst.
Hinckley þessi, sem reyndi að
ráða Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseta, af dögum til að sýna
leikkonunni ást sína, dvelur nú á
St. Elizabeth-sjúkrahúsinu í
Washington. Hann sendi blaðinu
beiðni um þetta ákveðna eintak og
með henni fylgdi fimm dollara
póstávísun.
„Við vorum í mikilli klípu,“
sagði ritstjóri blaðsins á
blaðamannafundi í dag. „Við vild-
um ekki eiga þátt í að örva hugm-
yndaflug hans í garð Jodie Foster,
en við vildum heldur ekki neita
honum um þau sjálfsögðu mannr-
éttindi að fá eintak af blaði, sem
hann hafði borgað fyrir."
Ekki hefur enn verið ákveðið
hvort Hinckley fær nokkru sinni
að líta blaðið augum. Starfsfólk
sjúkrahússins kveðst ekki kannast
við innihald blaðsins og verður því
látið kanna það áður en eintakið
verður afhent Hinckley.
Nunn nú efstur á
mótinu í Toluca
Toluca, Mexíkó, 17. ágúrt. AP.
LAJOS PORTISCH lagði landa sinn frá Ungverjalandi, Adorjan, að velli í
aðeins 25 leikjum i 5. umferð millisvæðamótsins í skák í Toluca í Mexíkó í
gær.
Portisch renndi sér því upp í
annað sætið á mótinu með þeim
Adorjan og Ivanov. Allir hafa þeir
3‘A vinning en Portisch á biðskák
gegn Seirawan. Nunn vann bið-
skák sína gegn Kouatly og tók þar
með forystuna með 4 vinninga.
Balashov er með 3 vinninga, Seir-
awan er með 2lk vinning og bið-
skák og þeir Spassky, Portisch,
Hulak, Yusupov og Polugajevsky
eru allir með 2lk vinning.
I fimmtu umferðinni áttust þeir
við Spassky og Kúbumaðurinn
Rodriguez. Lauk skák þeirra með
jafntefli eftir 57 leiki og sjö
klukkustunda yfirlegu. Þá gerðu
þeir Torre og Balashov jafntefli.
Var kysst úr kjálkaliðnum
Albenga, ÍUIíu, 17. ágúsl. AP.
FIMMTÁN ára gömul ítölsk stúlka leitaði í dag læknis hjálpar þar sem
kjálki hennar hafði farið úr liði. Tjáði læknum, að ástæðuna fyrir því að
svona fór, mætti rekja til eldheitra kossa unnustans. Fylgdi ennfremur
sögunni að hann hefði sloppið óskaddaður úr þessum innilegheitum.